Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 25.11.1933, Qupperneq 4

Nýja dagblaðið - 25.11.1933, Qupperneq 4
4 N Ý J A DAGBLAÐIÐ Annáll. Innbrot var íramið í fyrrinótt á hárgreiðslustofu frú Hobbs í Aðal- stræti. Hafði verið farið inn um glugga. En engir peningar voru þar teknir, því engir peningar voru í búðinni. Bruggari tekinn. Tryggvi Jó- hannesson á Grettisgötu 20 B var í gær tekinn fyrir heimabrugg. Fundust hjá honum 4 eða 5 litr- ar af heimabrugguðum spíritus. Mannlaus bifreið, sem stóð fyrir utan liúsið á Klapparstíg 35, rann aí stað, niður Klapparstiginn og lenti á hornhúsinu neðanvert við Laugaveginn og skemmdi hún húsið dálitið og beyglaðist eitt- livað. Tillagan, sem sagt var frá í gær, að hefði komið fram á fundi nefndar mötuneytis safnaðanna, og sagt var- að heíðl verið borin fram af P. J. J>. Gunnarssyni, var einnig samin og borin fram af liinum endurskoðanda reikning- anna Arngrími Kristjánssyni kenn- ara. Tveir af jafnaðarmönnunum í nefndinni, þeir Amgrímur Krist- jánsson og Sigurjón Ólafsson, hafa tjáð blaðinu, að þelr hafi eliki verið á fundi, þar sem Gísla Sigurbjörnssyni var veittur þessj 700 króna ferðastyrkur. Togariuu Huglnu i Hafnarfirði kom aí veiðum með 1200 körfur fiskjar, og fór áleiðis tii Englands með aflann í nótt. Rán kom írá Englandi í fyrradag og fór á veið- ar í gær. — F.U. Úr Kefiavík. Nokkrir bátar reru hér siðastiiðinn þriðjudag og öfl- uðu 5—6 þúsund pund hver. Afl- inn er isaður til útflutnings: í suðaustan rokinu i fyrradag sökk hér á höfninni opinn vélbátur og var í dag unnið að því að ná honum upp. Báturinn er vátryggð- ur hjá Sjóvátryggingarfélagi ís- iands. — F.Ú. Togarastrandið á Skaga. Frek- ari fréttir af strandi togarans Neue Fundland nálægt Vík á Skaga eru þær, að nú er eitt varð- skipanna að reyna að ná togaran- um út, en talsverður leki er kom- inn að skipinu, og álitið er að það sé mjög' laskað. Mikill fiskur er í skipinu. Skipverjar fóru strax út í annan þýzkan togara, sem var "á flóanum. Skipafregnlr. Esja var á Sauðár- króki í gær um hádegi. Hekla fer í dag vestur til Sands og Ólafsvíkur með saltfarm. Frá Fljótsdaishóraði. Heyskapur var þar ágætur og hey góð. Fé til slátrunar var með lakasta móti þar eins og viðast annars- staðar. Bráðapestarí fé hefir lítið sem ekkert orðið vart þar. þakku menn það aðallega tvennu, ágæti hins íslenzka bólefnis og að farið er að bólusetja miklu fyr en áður var gert. Haustið, hefir verið gott. Brengur fær slag og deyr. Dreng- ur að • naíni Ragnar B. Bjarna- son, til heimilis á Vegamótastíg 9 hér í bæ, var í gær að fara í sundlaugina í Austurbæjarskólan- um, þegar hann hneig niður á gólfið. Lögregiuþjónn, sem var þar skamrnt li'á, tók drenginn og bar hann inn á lækningastofu skól- ans, og dó hann skömmu siðar, Óskar þórðarson læknir var kall- aður til drengsins og áleit hann og lijúkrunarkonan, að drengur- inn hefði dáið aí slagi. Drengur- inn var í 7. bekk. Bjó hann hjá önunu sinni, þvi íoreldrar hans eru bæði dáin. Slátrað var með flestu móti hér i haust. Slátrað hefir verið um 50.000 fjár hjá Sláturíéiagi Suður- lands í Reykjavík, Hafnarfirði og Akranesi. Féð hefir verið með rýrastu móti og mun það hvað mest stafa af ormaveiki í fénu, sem hefir verið mjög útbreidd héj' sunnanlands. Frá Akureyri. Hátiðakantata Björgvins Guðmundssonai- við Al- þingishátiðarljóð Davíðs Stefáns- sonar var sungin 21. og 22. þ. m. fyrir fuliu húsi og við góðan orðs- tir. Margt utanbæjaríólk kom til þess að hlusta á kantötuna. — Afli hefir verið dágóður undanfar- ið, en skort hefir nýja beitu, þvi lítil sild hefir veiðst. — Skarphéð- inn Asgeirsson, ungur maður, hef- ir um hrið stundað leikfangagerð hér og þykja leikföng þessi smekkleg og ódýr. — Jiessar bæk- ur eru nýkomnai- út hjá þor- steini Jónssyni bóksala: Gríma, 9. hefti; Kristrún í Hamravik, eftir Guðmund Hagalín; Fótatak manna, eftir Halldór Kiljan Lax- ness og Nýjar Kvöldvökur, síð- asta ársfjórðungshefti. Ennfremur íullprentuð ljóð ,)þú hlustar Vör“, eftir Huldu, útgefin sem handrit í fáum eintökum. — FÚ. .. Flotamálaráðherra Bandaríkj- anna hefir farið fram á það, að fé verði veitt í fjárlögunum til þess að auka mannafla flotans um 5300 háseta og 2000 sjóliða. Mundi þá lið flotans alls verða 85000 hásetar og 17000 sjóliðar. — FÚ. Gestir í bænum: Níels Stefáns- son bóndi i Húsey i Norður-Múla- sýslu. — Með Suðurlandi komu i gær frá Borgarnesi meðal annara þessir, er dvelja hér i bænum um tima: þórður Pálmason, kaupfé- lagsstjóri með frú, Ingólfur Gísla- son, læknir og frú, Ari Guðmunds- son, verkstjóri með frú, Hervald Björnsson, skólastjóri, þorkell Teitsson, simstjóri, Magnús Jóns- son, sparisjóðsgjaldkeri, Ásgeir Ólafsson, dýralæknir, Davíð Jior- steinsson, bóndi, Arnbjarnarlæk, Guðmundur Jónsson, bóndi, Hvít- árbakka, Friðjón Jónsson, bóndi, Hofsstöðum, Pétur Jiórðarson, bóndi, Hjörey, Tómas Hallgrims- son, bóndi, Grímsstöðum, Jón Steingrimsson, sýslumaður, Stykk- ishólmi, Ólafur Ólafsson, læknir, Stykkisliólmi, Sigurður Steinþórs- son, kaupfélagsstjóri, Stykkis- hólmi. Saga Hafnarijarðar, 4. hefti, með íjölda mynda, er nýkomin út. Sig- urður Skúlason magister liefir sainið rit þetta. Verður þess nán- ar getið. Ingimundur Guðmuudsson, sá sem varð fyrir skotinu um dag- inn er ennþá á spitalanum og líð- ur eftir öllum vonum. Fundur sá í Stúdentaráðinu, þar sem rætt var um blöðin og sagt var frá í gær, var á sunnu- daginn, en ekki á laugardaginn. Fisksaian. í fyrradag seldu tog- ararnir Karisefni í Grimby, 95 smálestii' af bátaíiski að vestan, fyrir 1400 strelingspund, M&x Pembei'ton, 1400 kröfur, fyrir 732 sterlingspund, Snorri goði seldi í Hull 1000 kit fyrir 742 pund. í gær seldu Hannes ráðherra í Grimsby, 2600 körfur, íyrir 686 sterlingspund og Walpole, 2400 körfur fyrir 600 sterlingspund. Áheit á Strandarkirkju kr. 5,00 frá Benna. Sjávarútvegsneindin hefir nú sent út skýrzluform sín til þess að fá upplýsingar um útgerðina. Var búizt við að það mundi taka ailiangan tíma að fá skýrslumar útfylltar aftur eins og sagt hefir verið frá áður í blaðinu. En nefnd- in biður þess getið, að hún leggi mjög mikla áherzlu á að fá skýrslurnar sem fyrst og að hún hafi þegar íengið nokkrar aftur. Rekur nefndin mikið á eftir mönn- um með að senda aftur skýrslurn- ar, svo hægt sé að byrja að vinna úr þeim strax upp úr há- tíðum, og væntir hún þá að geta lokið störfum í vor og birt þá heildarniðurstöður sínar. Spikfeitt Norðlenzkt dílkakjöt, Hangikjöt, Rjúpur o. m. fl. VERZL. KJÖT & GRÆNMETI Laugaveg 58. Sími 3464. Nýkomið: Spikfeitt sauðakjöt af Hóls fjöllum, Nautabuffkjöt af ungu, Rjúpur og kjúklingar, Slikpurer á 25 aura stk. Kjötverzl. Herðubreið Frikirkjuveg 7. Sími 4565. Nýtt lirossabuíf w Kjötbúð Reykjavikur Sími 4769. „Fullorðnir elga að ganga fjn-ir börnum“. Niú ára telpa var ný- lega send all-langan veg í búð til þess að kaupa lítilræði. Ein eða tvær konur voru aðkomandi fyrii' í búðinni þegai- hún kom. En á eftir hcnni komu allmargar mann- eskjur í húðina. Allar fengu þær afgreiðstu á undan litlu stúlkunni. Jiegar hún loksins bar sig upp uiídan þessu, sagði ein afgreiðslu- konan af þremur, sem þarna unnu: „Fultorðnir eiga að ganga fyrir börnum“. Litla stúikan var það lengi í þessari sendiferð, að móðir hennar var orðin óróleg heima, þegar hún loksins kom. Verndartollur í Frakklandi. Fmmvarp liggur nú fyrir franska þinginu um að heimila stjórninni að lækka innflutningstolla með reglugerð. Hafa mjög margar kvartanir borizt frá viðskiftaþjóð- um Frakka um það, hve tollarn- ir séu ósanngjarnir. í heimild þeirri, sem gert er ráð fyrir að stjórninni verði veitt, er tekið fram, að lækkunin megi þó ekki fara fram úr 4% á hálfunnum vörum, og 6% á fullunnum vör- um. — FÚ. • Ódýru 0 auglýsingarnar. Kennsla ÖKUKENNSLA. Steingr. Gunnarsson Bergst. stræti 65, heima. Sími 3973 eða á Aðalstöðinni. Sími 1383. Kaup og sala SAUMASTOFAN TÍZKAN Austurstræti 12. ÓDÝRASTAR vörur fáið þið aðeins á Vest- urgötu 16. VERZLUNIN BRÚARFOSS Sími 3749. KJARNABRAUÐIN Hafið þið reynt hið holla og ljúffenga kjarnabrauð frá Brauðgerð Kaupfél. Reykjavík- ur? Tilkynningar Reiðhjólaverkstæðið „óðinn“ Bankastræti 2. Allar reiðhjólaviðgerðir fljótt og vel af hendi leystar. Tök- um hjól til geymslu yfir vet- urinn. Gerið svo vel að hringja upp 2266 eða 4262, þegar ykkur vantar nýjan fisk. Atvinna Ungur maður óskar eftir at- vinnu í bænum. Kaupódýr. Til- boð merkt „12“ sendist Nýja dagblaðinu. Mótorbátur ca. 12 tonna mótorbátur ósk- ast keyptur eða leigður nú þeg- ar. Tilboð merkt „Bátur“ legg- ist inn á afgreiðslu Nýja dag- blaðsins. Auglýsið í Nýja Dagblaðinu. RAUÐA HUSIÐ. „Lof sé guði! Ég var hræddur um að það væri Mark“. En hversvegna hefði hann átt að vilja gefa Robert tíma til þess að komast undan? Og enn einu sinni — hversvegna að h 1 a u p a ef hann vildi í raun og veru gefa honum tíma til að flýja? Antony gekk aftur út úr húsinu; hann gekk kringum húsið og kom nú á grasbalann að húsa- baki. Hann settist á bekk, sem þar var, og virti íyrir sér gluggann á vinnustofunni. — Jæja þá, sagði hann við sjálfan sig, látum okkur rekja hugsanaferil Cayleys og prófa, að hvaða niðurstöðu maður kemst. Cayley situr í forsalnum þegar Robert er vísað inn í vinnustofuna. Þjónustustúlkan fer að sækja Mark og Cayley heldur áfram að lesa. Mark kem- ur ofan af lofti og biður Cayley að fara ekki frá, ef hann skyldi þurfa á honum að halda, og fer svo að hitta bróður sinn. Hvað hugsar Cayley um ef til vill að Mark muni vilja spyrja hann ráða, t. d. ef það kæmi til orða að borga skuldir Roberts, eða borga fyrir hann fargjald til baka til Ástral- íu; og ef til vill þarf hann að reyna á krapta Cayleys til þess að fleygja Robert á dyr, ef hann gerðist ósvífinn. þetta? Ef til vill, að sín muni alls ekki þurfa með; Nú, hann situr þama dálitla stund, og svo geng- ur hann inn í bókaherbergið. Ja, því ekld það? Hann er samt ekki lengra frá en svo, að hann get- ur heyrt ef kallað er á hann. Allt í einu heyrir hann skammbyssuskot. Skot- hvellur er nú þessháttar hljóð, sem maður á sízt af öllu von á að heyra svona úti í sveit, svo að það er alveg eðlilegt, að hann átti sig ekld strax á því, hvað þetta er. Hann leggur hlustimar við — og heyrir ekkert meira. Nú, ef til vill var þetta alls ekki skammbyssuskot. Eftir litla stund gengur hann aftur að dyrunum á bókaherberginu. Þessi dauðaþögn gerir honum órótt fyrir brjósti. Var þetta skammbyssuskot? Það var skrítið! Og — nú, það sakaði ekki að líta inn í vinnuherbergið og biðja þá afsökunar, bara til þess að friða sjálfan sig. Hann snýr handfanginu á hurðinni — og finnur að dyrnar eru lokaðar! Hvernig verður honum við þetta? Verður órótt og veit ekki hvað gera skal. Eitthvað er á seiði þarna inni. Þótt ótrúlegt sé þá hlýtur það að hafa verið skothvellur, sem hann heyrði. Hann ber á dyrnar og kallar á Mark, en enginn svarar. Óróleg- ur — já, auðvitað. En um hvern óttaðist hann? Auðvitað óttaðist hann um Mark. Robert þekkti hann ekkert, en Mark var nákominn vinur hans. Robert hafði sent bréf þennan. sama dag; það er bréf frá manni, sem er í viðsjárverðu sálarástandi. Robert er þrjótur, Mark fágað prúðmenni. Ef hér hafði kastazt í kekki, þá var það áreiðanlega Robert, sem hafði skotið á Mark. Hann hamrar aftur á hurðina. Þegar Antony svo allt í einu kom fram á sjónar- sviðið, fannst honum vitanlega háttemi Cayleys æði skrítið, en auðvitað var haxm þá tæpast með sjálfum sér af æsingu. Og myndi ekki hafa farið svo fyrir flestum? En strax og Antony stingur upp á því að þeir skuli reyna gluggann, sér Cayley, að það er það skynsamlegasta sem hægt er að gera. Þess vegna vísar hann leiðina til gluggans — lengstu leiðina. Hvers vegna? Til þess að gefa morðingjanum tíma til þess að flýja? Hefði hann haldið að Mark væri morðinginn — ja ef til vill þá. En hann hélt að Robert væri morðinginn. Hann h 1 a u t að halda það, ef hann leyndi þá ekki einhverju. I raun og veru segir hann þetta sjálfur, þegar hann finnur líkið: „Ég var hræddur um að það væri Mark“, sagði hann, þegar hann sér, að það var Robert, sem drepinn var. Það var því alls engin á-

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.