Nýja dagblaðið - 06.12.1933, Side 2
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
s
ungra Framsóknarmanna
heldur fund í Sambandshúsinu kl. 8(4 í kvöld. —
Umræðuefni: Framsóknarflokkurinn fyr og nú.
Aiþingi.
Mál aígreidd á Alþingi.
Málshefjandi: Gísli Guðmundsson.
Félagar sýni skírteini við innganginn. Mætið stund-
víslega.
Félagsstjórnin.
Annáll.
Fiskiþing Sunnlendingafjórð-
ungs hefir nýlega verið lialdið A
Akranesi. Á því mættu þrír full-
trúar.
Fréttir írá pórshöfn. Laugar-
dagsmorguninn 25. fyrra mánaðar
kom upp eldur í dúnhreinsunar-
vél á Syðra-I.óni á. Langanesi. Var
vélin í hesthúsi, sem er áfast við
fjós bóndans. Læsti eldurinn fljótt
um sig og komst í timburskilrúm,
sem er á milli fjóssins og hest-
hússins og þegar menn komu að
voru tvær kýr dauðar í fjósinu,
en eldurinn varð brótt slökktur.
Tjón bóndans Guðmundar Vil-
hjólmssonar fyrv. kaupfélags-
stjóra, er þó tilfinnanlegt, þar
sem hann missti þarna 2 kýrnar
af þremur, dúnhreinsunarvélina
og húsin eru fyrir skemmd-
um. — í sumar og haust fiefir
verið einmunagóð tíð og hlý.
Heyfengur bæði mikill. og góður.
Aftur var sauðfé í haust með
rýrasta móti til frólags. — Fisk-
afli á Langanesi var nokkuð mis-
jaín í sumar. Var mjög rýr á
Skálum, en á þóráhöfn fengu
trillubátar 80—210 skippund yfir
sumarvertíðina. Eru því hæstu
bátarnir með góðan afla og betri
en í meðallagi. Nú er dágóður
fiskafli (skrifað seint í nóvember)
þegar á sjó gefur, en flestir bátar
liættir róðrum fyrir nokkru.
(Fréttaritari Nýja dagbl.).
Jólapóstarnir. Margir munu hafa
í hyggju að senda frændfólki og
kunningjunum út á landi gjafir,
kort o. fl. fyrir jólin. Ferðir héð-
an úr bænum fyrir jól verða
þessar:
7. des. Norðan og vestanpóstur.
8. — Dettifoss til ísafj., Siglu-
fjarðar og Akureyrar.
8. — Suðurlandspóstur.
11. — Esja austur um land i
hringferð.
14. — Dettifoss til Hull og
Hamborgar.
20. — Suðurland til Borgarn.
20. — Norðan og vestanpóstur.
22. — Suðurlandspóstur.
Fyrir þá, sem senda þurfa til
staða, er illa liggja við samgöng-
um, skal vakin athygli á þvi, að
öruggara er að nota póstferðina
norður og vestur um, sem verður
þann 7., heldur erv hina, sem verð-
ur 20. þ. m., því vafalaust mun
margt af því, sem sent verður
þann 20. des., ekki komið til við-
takenda fyrir jól.
Verðlag á útge'rðarvörum. Á
fjórðungsþingi fiskdeilda Vest-
fjarða var samþykkt m. a. svo-
hljóðandi tillaga: „Fjórðungsþing-
uð skorar á stjórn Fiskifélagsins
að birta i tímariti félagsins
skýrslu með samanburði á verð-
lagi á útgerðarvörum hér og í
Noregi og öðrum nógrannalönd-
um, svo sem olíu, koli, saiti, ben-
zíni og véiðarfærum".
Kigningar í október voru' all-
miklar, 36% umfram meðallag,
eða 1* 1 2/-j sinnuin meðalúrkoma á
öllu landinu. Tiltölulega mest var
hún á Akureyri, 137% umfram
meðallag eða ‘l1/* sinnum meðal-
fu'koma. Úrkomudagar voru 4
ílciri en venjulega. Mest mónaðar-
úrkoma mældist í Vík í Mýrdal,
283.6 mm. og mest sólarhringsúr-
koma á sama stað, 74,4 mm.
Sólskin i Reykjavík. í október-
mánuði var sólskin töluvert skem-
ur en verið hefir undanfarin ár
og ekki nema 24% - af því, sem
mest gæti verið. Alls naut sólar
við yfir októbermánuð í 73.2 st.,
en meðaltai 10 undanfarinna ára
er 98.3 st.
Stjörnuhröp. 9. okt. kl. 19—20.30
sáust óvenjulega mikil stjörnu-
hröp i Vestmannaeyjum. Stjörnu-
hröp þessi sáust einnig erlendis
og eru slæðingur úr halastjörnu,
s'em sást árið 1900 af þeim Gia-
cobini og Zinner. Samskonar
stjörnuhröp í minni stíl sóust 9.
okt. 1926. — (Veðráttan).
Austurríska stjórnin hefir gert
upptækar allar eignir Nazista-
flokksins þar í landi. Áður hefir
flokkurinn verið úrskurðaður ó-
löglegur og bann lagt við því, að
bera merki hans. — FÚ.
Vitnaleiðslum i mólinu út af
þinghússbrunanuni verður lokið
á miðvikudaginn. Verður þá hlé
á réttarhöldunum um óákveðinn
tíma, svo að verjendururnir fái
næði til að undirbúa varnarræður
sínar. -r FÚ.
pýzka loítvamafólaglð hefir gef-
ið .út áskorun til almennings um
að láta byggja herbergi í hverju
húsi, sem sé tryggt gegn loftó-
rásum. Segir í óskoruninni, að
þetta sé ekki aðeins nauðsynlegt
til tryggingar gegn loftárásum,
heldur mundi það og veita tug-
um þúsunda manna atvinnu, ef
það væri gert í öllum húsum
þýzkalands, en þau erú tvær milj-
ónir að tölu. — FÚ.
Þessi mál hafa nú fengið
fulinaðarafgreiðslu á þinginu:
Stjórnarfrumvörp samþykkt:
1. Frv. til stjómarskipunar-
laga um breyt. á stjórnarskrá
konungsríkisins íslands, 18.
maí 1920 — Samþ. sem lög
22/11.
2. Frv. til laga um samkomu-
dag reglulegs Alþingis árið
1934. — Samþ. sem lög 24/11.
3. Frv. til laga um afnám
laga nr. 81 19. júní 1933 og um
framlenging á gildi eldri laga
um verðtoll. — Samþ. sem lög
24/11. •
4. Frv. til laag um breyt. á
lögum nr. 52 8. sept. 1931 og
á lögum nr. 15 14. júní 1929
(Útflutningsgjald af síld o.
fl.). — Samþ. sem lög 24/11.
Þingmannafrumvörp felld:
1. Frv. til 1. um strandferðir.
— Fellt í Nd. 23/11 frá 2. umr.
Þingsályktunartillögur sam-
þykkiar:
1. Till til þál. um rannsókn
á húsnæði fyrir íornmenja- og
málverkasafnið. — Samþ. sem
ályktun efri deildar 21/11.
2. Till til þál. um húsnæði
handa Tónlistarskóla Islands í
Þjóðleikhúsinu. — Samþ. sem
ályktun neðnri deildar 22/11.
3. Till. til þál. tmr endurskoð-
un á lögum um kosningar í
málefnum sveita og kaupstaða.
— Samþ. sem ályktun neðri
deildar 22/11.
4. Till. til þál. um heimild
fyrir ríkisstjórnina til að
ábyrgjast lán handa rafveitu
Austur-Húnavatnssýslu. Samþ.
sem ályktun Alþingis 25/11.
5. Till til þál. um greiðslu-
frest á fasteignaveðslánum
bænda. — Samþ. sem ályktun
Alþingis 25/11.
Jónas Jónsson flytur fjórar
svohljóðandi tillögur til þings-
ályktunar í efri deild:
1. Verzlunarrekstur opln-
berra stnrfsmnnna.
Efri deild Alþingis ályktar
að skora á stjómina að undir-
búa fyrir næsta þing löggjöf,
sem bannar og leggur við em-
bættismissi, ef starfsmaður í
opinberri þjónustu ríkis eða
bæjarfélaga verzlar fyrir land-
ið eða bæjarfélag við verzlun,
sem starfsmaðurinn á sjálfur
eða hefir eignarhlutdeild í.
2. Hámarkslaun og land-
aurar.
Ræktunarframfarir á Akranesi.
Á þessu ári hafa Akurnesingar
aukið túnrækt sína um: sáðslétt-
ur 24,5 hektara, þaksléttur 0,45
hektara, framræsluskurði 3372
ten.m., loki'æsi 468 metra, girð-
ingar 4858 metra, áburðarhús og
safnþrær 554 dagsverk. Auk þess
hefir verið hafinn undirbúningur
á niikilli ræktunarviðbót ó næsta
vori.
Gestir í bænum: Ingþór Björns-
son bóndi Óspaksstöðum, Hjálmar
Vilhjólmsson bæjarstjóri Seyðis-
firði, Sigurður Vilhjólmsson út-
vegsbóndi Hánefsstöðum við
Seyðisfjörð, Sæmundur Eggerts-
son Akranesi.
Frakkar og Danir semja um
smjör og vín. Undanfarið hafa
staðið yfir samningaumleitanir
milli Fi’akka og Dana um aukna
vöruskiptaverzlun. Segja nýkomn-
ar fréttir, að þegar hafi náðst
samkomulag um nokkur atriði og
muni mega telja það sem undir-
stöðu frekari samninga. það, sem
náðst hefir samkomulag um, er, að
auka verzlun milli landanna
þannig, að Frakkar kaupi meira
smjör af Dönum, eða um 400 tonn
umfram það, sem áður hefir ver-
ið leyft, en Danir kaupi af þeim
í þess stað, járnbrautarteina og
vín, sem samsvari aukningu
smjörkaupanna.
Efri deild Alþingis ályktar
að skora á ríkisstjómina:
1. Að flytja fyrir næsta
þing frv. um hámarkslaun, þar
sem hver einstakur skattþegn
verði að greiða í ríkissjóð af
persónulegum tekjum sínum
80% af þeirri upphæð, sem er
fram yfir 8000 kr., þó að frá-
dregnum sköttum til ríkis,
bæjarsjóðs og þjóðkirkjunnar.
2. Að láta Hagstofu Islands
finna undirstöðu að nýjum
landaurareikningi, þar sem
verð á afurðum landsins yrði
grundvöllur undir öllum kaup-
QSófraemxttr - íþróttir - íietir
Jónas Rainar.
Þegar hænui gala.
Hunde bades.
Utgefandi Þorst. M.
Jónsson. — Ak. 1933.
Jónas Raínar er einna kunn-
astur af smásögum sínum.
Hið fyrsta af því tagi frá
hans hendi, sem eftirtekt
vakti, var smásaga er birtist
í tímaritinu Nýjar kvöldvökur
og hét hún: í lestinni.
Þessi litla smásaga hefir að
geyma bráðskemmtilega lýsing
á ferðalagi síldarkvenna og
sjómanna heim til sín úr sum-
arvinnunni — í lestinni á
Botníu. Þessi saga sýndi að
höf. kunni prýðilega að segja
frá smávægilegum atburðum
og lýsa hversdagslegum hlut-
um, þannig, að eftir því yrði
tekið. Síðar hefir höf. samið
fleiri sögur af líku tæi, og
tekizt það vel. Þær tvær sög-
ur, sem hér ræðir um, eru
sérprentaðar úr Nýjum kvöld-
vökum. Þær eru stuttar, önn-
ur 32, hin 39 bls., báðar vel
læsilegar, látlaust ritaðai' og á
góðu máli, og er yfirleitt allt
gott um þær að segja.
En annars gefa þessar tvær
smásögur enganveginn full-
komna hugmynd um höfund-
inn, sem von er. Hann hefir
með þeim ekki færzt í fang
annað eða meira en það sem
honum var mjög viðráðanlegt
þótt hann hefði ekki náð nærri
því eins miklum frásagnar-
hæfileika og raun er á. Af
sögum þeim er Jónas Rafnar
hefir ritað, er bókin Stakstein-
ar lang veigamest. Það er saga
hversdagsmannsins algerlega
látlaus frásögn um fábreytta
æfi manns, sem af flestum
myndi vera talinn lítilsigldur,
jafnvel ómerkilegur. Það er nú
svo, að æfikjör fátækra verka-
manna og efnalausra bænda
hér á landi hefir löngum verið
næsta fábreytt og æfisaga
þeirra viðburðasnauð, jafnvel
ómerkileg. Að minnsta kosti í
augum skáldanna er hugðu á
tíð viðíangsefni og glæsileg.
Hér er ekki seilst eftir neinum
slíkum atburðum. Frásögnin
er alveg óvenjulega einföld og
sönn. Raunsæ frásögn, laus við
„rómantík“, en líka laus við
' flágjallandi ádeilu. I þessari
bók er lífi hinns fátækarí
hluta íslendinga lýst með af-
bi'igðum vel. Og þótt Jónas
Rafnar hefði ekki annað ritað,
ætti hann veglegan sess meðal
íslenzkra rithöfunda. Þessar
tvær smásögur gera það hvorki
af að taka né við að bæta.
greiðslum úr ríkissjóði næsta
ár á eftir.
3. Fjármálanefnd.
Efri deild Alþingis ályktar
að skipa þriggja manna nefnd,
ólaunaða, til að gera tillögur
um fjármál landsins fyrir
næsta Alþingi. Skal hver af
hinum þrem þingflokkum til-
nefna einn fulltrúa í nefndina.
4. Um vegamál.
Efri deild Alþingis skorar á
landsstjórnina:
1. Að láta vegamálastjóra
setja varnargrindur úr varan-
legu efni á sérstaklega hættu-
legum stöðum við brýr eða á
fjölförnum þjóðvegum, þar
sem annars kynni að vera hætt
við bifreiðaslysum, svo sem
austur við brú á Brúará í Ár-
nessýslu, Gljúfurá í Borgar-
firði og mörgum fleiri stöðum,
þar sem lík er aðstaða.
2. Að gefa öllum sýslunefnd-
um á landinu nú 1 vetur rétt
á að skipa þriggja manna
nefnd í hverri sýslu til að vera
til aðstoðar og ráðuneytis
vegamálastjóra og verkfræð-
ingum hans, er þeir ákveða
vega- og brúastæði í hlutaðeig-
andi sýslu, og skeri atvinnu-
málaráðherra jafnan úr, ef
ágreiningur verður milli slíkra
nefnda og starfsmanna vega-
málaskrifstofunnar.
3. Að gangast fyrir því, að
í hverri sýslu verði nú fyrir
vorið skipuð þriggja manna
nefnd til að ráða verkamenn
fyrir næsta sumar í vega-,
brúa- og símavinnu í því hér-
aði. Sýslunefnd skal velja einn
nefndarmanninn, kaupfélags-
stjórar í sýslunni annan, og
verkamannafélög í Alþýðusam-
bandinu hinn þriðja. Ef ekki
er verkamannafélag í einhverri
sýslu, skipar stjórn Alþýðu-
sambandsins mann í eitt sætið.
Ráðningarnefndir þessar skulu,
eftir því sem við verður kom-
ið, láta innanhéraðsmenn sitja
fyrir allt að % af vinnunni, og
einkum þá einstaklinga og
heimili, sem mest þarfnast
vinnunnar.
Landhelgisgæzlan.
Frá Vestmannaeyjum er nú
komin ný áskorun til Alþingis
viðvíkjandi landhelgisgæzlunni,
undirrituð af allmörgum þeirra
manna, sem áður höfðu ritað
undir áskorunina um að setja
Einar M. Einarsson aftur í
starf sitt. I þessu nýja skjali
er það tekið fram, að ekki sé
ætlast til þess, að Friðrik Ól-
afsson verði sviftur atvinnu
sinni og því bent á, að Einar
fari Þór og annist á honum
björgunarstarf við Eyjamar.
Hér er þá athugasemd að gera,
að Einar M. Einarsson var ráð-
inn skipherra á Ægi til sex ára
og að hann hefir verið sviftur
starfi sínu þar með rangs-
leitni um stundarsakir. Þó að
Friðrik færi nú af Ægi, er ekki
um það að ræða að svifta hann
starfi, því að hann var áður
á Þór og liggur beint við, að
hann taki við því aftur. Mun
Jóhann hafa blandað hér eitt-
hvað máium heima fyrir, og
hitt er líka skiljanlegt, að
Vestmannaeyingar vilji hafa
Einar hjá sér eftir fyrri yfir-
lýsingum þeirra að dæma.