Nýja dagblaðið - 06.12.1933, Blaðsíða 3
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
3
NYJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „BlaOaútgáfan h/f'
Ritstjóri:
Di-. phil. porkell Jóhannesson.
Ritstjómarskrifstofur:
Laugav. 10. Símar: 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 12. Sími 2323.
Framkv.stjóri:
Vigfús Guðmundsgon.
Áskriítagj. kr. 2,00 á mánuði.
f lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiðjan Acta.
Iðnaður og hBft.
Það er vitanlegt, að á síð-
ari árum hafa ýmsir víðsýnir
og þjóðhollir menn lagt fé og
starfsorku í það að efla ís-
lenzkan iðnað, og orðið vel á-
gengt, eins og t. d. iðnsýning-
arlslenzku vikunnar hafa bor-
ið vitni um. En hér eins og
annarsstaðar þar sem iðnaður
er á byrjunarstigi hefir hin
nýja framleiðsla átt örðugt
með að ryðja sér til rúms.
Sumpart af vanafestu fólks-
ins, sumpart vegna erlendrar
samkeppni gegnum verzlunar-
sambönd. verksmiðjanna við
hérlenda kaupmenn og sjálf-
sagt stundum vegna misbrests
á vöndun vörunnar. Þó hefir
það sýnt sig, að vöndun ís-
lenzku framleiðslunnar hefir
jafnan átt fyrir sér að batna
með aukinni reynzlu og tækni.
Hver sem kynnir sér t. d. rit
ÍSlenzku vikunnar, getur ekki
annað fundið en að hér sé af
alvöru og áhuga stefnt að settu
marki. Og almenningur hefir
skilið það, að stefnan var rétt
og léð henni lið sitt. Löggjaf-
arvaldið og fjárveitingarvaldið
hefir líka gert sitt. Og þótt
lögin um innflutningshöft sé
ekki eingöngu sett með hag
iðnrekandans fyrir augum, þá
hafa þau þó beinlínis orðið
honum til verndar.
Það skýtur því skökku við,
þegar sjálft iðnráðið lætur liafa
sig til þess af blindu fylgi við
íhaldið að höggva á þessa höf-
uðstoð íslenzkrar iðnfram-
leiðslu.
Það er blöskranlegt athæfi
hjá íhaldsmönnum, þótt kunn-
ugt sé, að flokkur þeirra á
mikinn styrk hjá verzlunar-
stéttinni, að þeir vilja nú fóma
hagsmunum þjóðarinnar íheild
fyrir að ýmsu leyti ímynd-
aða sérhagsmuni og njóta til
þess hjálpar manna, sem eink-
um eiga að gæta hagsmuna
iðnaðarins! Fórna iðnaðinum
og hagsmunum iðnaðarstéttar-
innar. Hagsmunum vinnandi
manna í landinu fyrir hags-
muni erlendra verkamanna og
iðnhölda.
Hverjir eiga nú að trúa á ein-
lægnina, þegar hrópað er: Not-
ið íslenzkar vörur og verið
Islendingar! I munni þeirra
manna, sem fallast á háttalag
íhaldsmanna á þessu þingi,
eru öll slík orð viðbjóðsleg
hræsni, svo ófeilin að furðu
gegnir, að annað eins blygðun-
arleysi skuli vera til, jafnvel
hjá foringjum íhaldsmanna.
Á hvað bendir það, þegar
úlfurinn þykist ekki þurfa gær-
unnar við?
Kröfur Austfirðinga
til Fisksölusambandsins.
Hingað er nýkominn til bæj-
arins Sigurður Vilhjálmsson
útvegsbóndi frá Seyðisfirði, í
þeim erindum, fyrir hönd fisk-
framleiðenda á Austurlandi, að
eiga tal við stjórn fisksölu-
sambandsins hér og bera fram
kröfur þeirra um afstöðu
Austfirðinga til samlagsins.
Það mun láta nærri, að
saltfisksframleiðslan á Aust-
fjörðum nemi 25—80 þús. skip-
pundum árlega. Skipulagning
sölunnar og innkaup salts og
veiðarfæra er nú víðast nokk-
uð á veg komin. I því skyni
hafa verið mynduð samvinnu-
félög á Seyðisfirði, Norðfirði,
Eskifirði og Fáskrúðsfirði.
Þann 15. nóv. sl. mættu á
fundi í Neskaupstað fulltrúar
frá fisksölufélögunum og ein-
stökum fiskframleiðendum á
Austfjörðum. Verkefni fundar-
ins var eftir því sem í fund-
argerðinni stendur, „að ræða
um ýms málefni fiskframleið-
enda í Austfirðingafjórðungi“.
Þessir fulltrúar voru mætt-
ir á fundinum:
Frá Fáskrúðsfirði:
Marteinn Þorsteinsson kaup-
maður.
Kristinn Bjarnason kaup-
maður.
Frá Eskifirði:
Ólafur H. Sveinsson kaup-
maður.
Sigurður Magnússon for-
maður.
Frá Norðfirði:
Kristján Sigtrvggsson kaup-
maður.
ölver Guðmundsson útgerð-
armaður.
Sigurður Hinriksson útgerð-
armaður.
Páll G. Þormar kaupmaður.
Gísli Kristjánsson útgerðar-
maður.
Sveinn Sigfússon verzlunar-
maður.
Frá Seyðisfirði:
Sigurður Vilhjálmsson út-
vegsbóndi.
Sigurður 1. Guðmundsson
framkvæmdastjóri.
Svohljóðandi fundarályktanir
voru gerðar:
„I. Fundurinn leggur til, að fiskframleiðendur á Austurlandi
feli Sölusambandi íslenzkra fiskframleiðenda í Reykja-
vík einkaumboð til sölu fiskjar þeirra fyrir næsta ár,
með eftirfarandi skilyrðum:
1. Að fiskframleiðendur á Austurlandi kjósi fulltrúa
fyrir sig í fisksölunefndina, sem starfi að sölu á
austfirzkum fiski og hafi atkvæðisrétt í nefndinni
um allt sem lýtur að sölu á honum. Fulltrúi þessi sé
launaður af Sölusambandi íslenzkra fiskframleiðenda.
2. Að fiskur Austfirðinga fái að njóta eðlilegs verð-
munar framvegis borið saman við sunnlenzkan fisk
og að útflutningur fiskjar frá Austfjörðum fari fram
sem reglulegast og hagkvæmast fyrir framleiðendur.
3. Að fiskurinn sé greiddur við útskipun.
4. Að Fisksölunefndin sendi frá sér sem oftast skýrslur
um markaðshorfur og starfsemi sína.
II. Fulltrúi Austfirðinga í Fisksölunefndinni sé valinn af
fulltrúafundi fisksölufélagann a á Austurlandi til eins
árs í senn.
III. Fundurinn æskir eftir að Fisksölunefndin boði til al-
menns fulltrúafundar um allt land og fundur þessi verði
haldinn í Reykjavík í janúarmánuði n. k„ til þess að
ræða um skipulag fisksölumála í landinu."
Ályktanir þessar náðu, seg-
ir í fundargerð, „samhljóða
samþykki fundarmanna". Og
nú er Sigurður Vilhjálmsson
hingað kominn til að ræða þær
við samlagsstjórnina eða
„Fisksölunefndina“, eins og
hún líka er kölluð
St j ómarf yrirkomulag fisk-
sölusamlagsins er ákveðið svo
í 8. gr. „bráðabirgðafyrirmæla
um starfsemi Sölusambands
íslenzkra fiskframleiðenda" frá
2. ágúst 1932. En sú grein
, ,bráðabirgðaf yrirmælanna"
hljóðar svo:
„Stjóm félagsins er skipuð 5
mönnum og eiga þessir sæti í
henni: Formaður: Richard
Thors, framk væmdarstj óri.
| Meðstjómendur: Kristján Ein-
arsson, framkvæmdarstjóri, Ól-
afur Proppé, framkvæmdar-
stjóri og bankastjórarnir
Magnús Sigurðsson og Helgi
Guðmundsson. Hinir 3 fyrst-
nefndu annast allar daglegar
framkvæmdir félagsins, en
æðsta vald í öllum málefnum
þess er hjá stjórninni í heild
sinni. Stjórnarfundur er álykt-
unarfær ef 3 stjómendur em
mættir og ræðúr afl atkvæða
úrslitum. Ef atkvæði eru jöfn,
ræður atkvæði formanns."
En , í 4. gr. áðurnefndra
„bráðabirgðasamþykkta" eru
taldar skyldur fiskframleið-
enda gagnvart samlaginu:
„1) að gefa stjóm félagsins
ótakmarkað einkaumboð til að
selja allan fisk, er þeir eiga
eða eignast kunna á ári þessu,
og er ætlaður til útflutnings.
2) að hlíta reglum og sam-
þykktum, er félagsstjómin
setur um rekstur félagsins.”
Það sem í „bráðabirgðasam-
þykktunum" frá 2. ágúst 1932
er nefnd „félagsstjórnin“, er
það, sem í ályktunum Aust-
firðinga er kölluð „fisksölu-
nefndin“.
I þessari „félagsstjóm" eða
fisksölunefnd h afa Austfirð-
ingar aldrei átt neinn fulltrúa,
enda er það lagaákvæði lijá
samlaginu, hvaða menn í
stjórninni skuli vera.
Þegar Ámi Jónsson frá Múla
fékk atvinnu hjá „Sölusam-
bandi ísl. fiskframleiðenda* ‘ í
%
fyrra, var Austfirðingum hins-
vegar gefinn kostur á því, að
hann yrði skoðaður sem full-
trúi Austurlands við fisksöl-
una.
En nú fara Austfirðingar
fram á það meðal annars að
mega velja þann mann sjálfir
sem á að gæta hagsmuna
þeirra í sambandi við fisksöl-
una. Og þeir vilja að fulltrúi
þeirra fái aðstöðu til að ráða
einhverju, og að hann þá eigi
sæti í stjórn Sölusambándsins.
Af hálfu Austfirðinga eru
þetta eðlilegar kröfur. Um
það er ómögulegt að deila.
Og yíirleitt mælir öll sann-
girni með því að fyrirkomulagi
fisksölusambandsins sé breytt
og- fært til frjálslegra horfs en
nú er.
AnnáJLl.
Skipaíréttlr. Dettiíoss kom í
gœrkveldi fré útlöndum. Goðafoss
er í Hull. Brúarfoss var á leið til
Önundarfjarðar frá þingeyri í
gœrmorgun. Lagarfoss var á Ak-
ureyri í gœr. Gullfoss fór í gær
frá Leith áleiðis hingað. Selfoss
er hér.
Félag ungra Framsóknarmanna
lieldur fund i Sambandshúsinu
kl. 9 i kvöld. Mikilsvarðandi mál
til umræðu.
Sóleyjar í HrútaiirSi. Á túninu
á Reykjum i Hrútafirði sást í gær-
morgun nýútsprungin sóley. —FU.
Kærumar. Mbl. ,er tvisar sinn-
um búið að ala á því, að atvinnu-
rógskærurnar frá útgáfustjórn
Nýja dagblaðsins séu enn ekki
komnar í dómsmálaráðuneytið.
Út af þessu getur Mbl. snúið sér
til Kristjáns Kristjánssonar full-
trúa, sem af M. G. var skipaður
setudómari í hótanabréfamálinu,
því að kærumar voru honum
sendar 27. nóv. s. 1.
Frá Sigluiirði í gær. Kappskák
hefir staðið yfir undanfarið milli
Siglfirðinga og Akureyringa. Ur-
slit urðu þau að Siglfirðingar
unnu með 8% gegn 5%. — Bæjai’-
stjómarfundur hófst í fyrradag á
Siglufirði kl. 4% síðd. og stóð til
! kl. 4 um nótt. Fundurinn hófst að
nýju kl. 10 í gærmorgun og stóð
enn yfir kl. tæplega 6 siðd. í gœr.
Fjárhagsáætlun bæjarins var aðal-
mál á dagskrá. — F.Ú.
Frá Álasundi í Noregi kom í
gær sú fregn, að stórar síldargöng-
ur séu nú að hefjast þar fyrir al-
vöru og muni mikið af sild vera
þar útifyrir. — F.Ú.
Mikill eldur kom upp.í fyrrinótt
í Istambul, og brunnu dómhallir
borgarinnar til kaldra kola, og
glataðist þar mikið af skjölum.
Eitt blað metur skaðann á eina
miljón sterlingspunda. — F.TJ.
{ Óeirðimar í Fu-Kíeu héraðinu
■ í Kína fara í vöxt og búizt er við
‘ 'að þá og þegar brjótist þar út
styrjöld. Bretar og Bandaríkja-
menn hafa sent þangað herskip
til aðstoðar borguruin sínum, og
Japanar hafa herskip á leiðinni.
— FÚ.
Danskur skurðlæknir látlan. Víð-
kunnur skurðiæknir, próf. Schal-
demose andaðist í fyrrinótt. Var
talinn afreksmaður í sinni grein.
Umferðin í bænum.
12. ökumenn
og bifreiðastjórar.
Munið jafnan að farartækj-
um er óheimil staða á götun-
um nema á meðan verið er að
ferma þau og afferma. Reynsl-
an hefir sýnt, að farartæki sem
standa kyrr, loka útsýni fyrir
vegfarendum bæði framundan
og til hliðanna, og eins fyrir
þeim sem koma frá húsum eða
úr húsasundum og ætla um
þvera götu. Dauðaslys hafa
hlotizt af þeim sökum.
13. ökumenn.
Það er bannað að aka fram-
fyrir hest eða ökutæki, sem á
undan fer á gatnamótum eða
fast við þau, slíkur akstur er
hættulegur vegna þeirra sem
koma frá hliðargötunum.
14. Bifreiðastjórar.
Hjólreiðamenn.
Það er hvorutveggja ógæti-
legt og ósiðlegt, að aka að
þarflausu um götur og svæði
þar sem fólk hefir safnast til
skemmtigöngu eða af öðrum1 á-
stæðum. Það er bannað að
aka eða ríða um götur, þar
sem fólk hefir safnast saman
til að hlusta á hljóðfæraslátt
eða þessháttar.
Ræningjaflokkum
útrýmt í Astraiíu.
Sambandsþingið í Ástralíu
hefir fyrir nokkru sett lög-
gjöf, sem til þess var ætluð að
útrýma ræningjaflokkum, sem
voru farnir að vaða uppi í
landinu og sífellt fór fjölgandi.
Lagaákvæðin eru um það, að
dæmdum glæpamönnum, sem
búnir eru að sitja í fangelsi, sé
óheimilt að hittast, og er lög-
reglunni skylt að taka þá fasta
og varpa í fangelsi á ný, hve-
nær sem tveir eða fleiri fyrir-
finnast saman. Hefir þetta þau
áhrif, að glæpamenn, sem koma
út úr fangelsum, skirrast við
að leita á fund fyrri félaga1
sinna. Hefir þannig tekizt að
eyða félagsstarfsemi glæpa-
mannanna, a. m. k. í borgun-
um, og hafa þær leyfar ræn-
ingjaflokka, sem eftir eru,
hörfað út á eyðimerkur eða
aðra fáfarna staði.
Við vesturströnd Portúgals fórst
í fyrradag portúgalst eimskip, sem
hét Contential, meö 12 manna
áhöfn. — F.Ú.
Lögreglustjórinn í Vin hefir skip-
að svo fyrir að aliar eignir Naz-
flokksins í Vín skuli gerðar
upptækar. — FÚ.
Enga Gyðinga á hrossasýning-
um. Seinustu ráðstafanir þýzku
stjórnarinnar gegn þýzkum þegn-
um, sem ekki eru af arísku kyni,
eru þær, að Göring gaf út tilskip-
un í dag, sem bannar hestaeigen-
um, sem ekki eru af ariskum kyn-
stofni, að taka þátt í hestasýning-
um, og ó-ariskum knöpum að taka
þátt í opinberum veðreiðum. —FÚ.
Mannfjöldi í Danmörku. Sani-
kvæmt dönskum manntalsskýrsl-
um voru íbúar landsins 1. júlí s.
1. ca. 3 milj. 323 þús. — FÚ.