Nýja dagblaðið - 07.12.1933, Síða 4
4
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Annáll.
Skipafréttir. Gullfoss fór frá
Leith i fyrrakvöld á leið til Vest-
mannaeyja. Goðafoss er á leið til
Hamborgar frá Hull. Brúarfoss fór
frá ísafirði í gærmorgun kl. 11
á leið Reykjavíkur. Dettifoss kom
frá Hull og Hamborg í fyrrakvöld.
Lagarfoss er á Akureyri. Selfoss
er í Reykjavík.
Vátryggingariélögin London og
Poenix eru geysistór og fjársterk
félög. Eins og sést í auglýsingu á
öðrum stað hér í blaðinu eru
eignir þeirra 853 milj. ísl. króna
virði. Til þess að fullvissa blaðið
um að tala sú væri rétt, er aug-
lýst er, kom umboðsmaður félag-
anna hér með skilríki er sýndu
það.
Skipulagsmál. Á bæjarráðsfundi,
sem haldinn var 17. nóv. var lagt
fram bréf frá atvinnu- og sam-
göngumálaráðuneytinu ásamt till.
skipulagsnefndar, um að stofna til
samkeppni um skipúlagsgerð.
Á síSasta byggingarnefndarfundi
voru 20 byggingarleyfi afgreidd.
Mest voru það smábreytingar sem
gera á á gömlum húsum og ýms-
ar viðbætur.
Loðdýrarækt. Á siðasta bæjar-
ráðsfundi var samþykkt að gefa
mönnum kost á að fá land til
loðdýraræktar í Krossamýri.
Bæjarstjómarfundur verður í
dag kl. 5. Til umræðu verður með-
al annars tillaga um lögreglunám-
skeið, og tillaga um kosningu 2
manna til þess að athuga reikn-
inga mötuneytis safnaðanna.
Kolaskip kom í fyrrinótt til
Sigurðar Ólafssonar.
Kópur fór til fsafjarðar í gær
til þess að taka bátafisk. Fer
hann síðan með fiskfarm til Eng-
lands.
íslandið kom í gærkvöldi frá
Kaupmanahöfn.
Bdda er á útleið með fiskfarm
en Hekla fór með saltfarm vest-
ur á Breiðafjörð og til Vestfjarða.
Verzlunarjöínuðurinn. Verðmæti
útflutnings í ár hefir numið 39.2
millj. kr., en innflutningurinn á
sama tima hefir numið 37.8 millj.
kr. Útflutningurinn er því 1.4
millj. kr. meiri en innflutningur-
inn. Á sama tíma í fyrra nam sá
munur 7.7 millj. kr. Innflutning-
urinn til októberloka í ár hefir
vérið 37% meiri en í fyrra og út-
flutningurinn á sama tíma 9%
meiri.
Samvinnumannablaðið Rewiew
of internatianal cooþeration, sem
Aiþjóðasamband samvinumanna
gefur út, var fyrir skömmu bann-
að í þýzkalandi. Blaðið hefir
verið prentað í Sviss og sent
þaðan til Sambandanna út um
heim og meðal annars til sam-
bandsins í Hamborg, en septem-
berblaðið var ekki sent út til
kaupendanna i þýzkalandi, en
kaupendunum 1 staðinn skipað að
hætta að kaupa blaðið. Ástæðan
fyrir þessari ráðstöfun er ekki
önnur en sú, að nefnt blað vinn-
ur að aukinni samvinnustarísemi.
Árvakur heitir dálítið fjölritað
blað, sem drengir þeir, er fóru til
Færeyja úr Austurbæjarskólanum
í íyrrasumar, gefa út. í því eru
nokkrar smáfrásagnir, sögur, vís-
ur og æfintýri. Sumt er þarna
býsna laglega sagt, eins og t. d.
æfintýrið u.m vatnsdropann.
Farþegar með Dettifossi frá út-
löndum í fyrradag: Geir Zoega,
Regína Jónasdóttir, Ingólfur Hin-
riksson.
Dagskrá bæjarstjómar í dag. 1.
Brunabótavirðingar. 2. Fundargerð
byggingarnefndar 30. nóv. 3. Fund-
argerð bæjarráðs 17. nóv. 4. Fund-
argerð bæjarráðs 21. nóv. 5. Fund-
argerð bæjarráðs (2. og 3. liður)
24. nóv. 6. Tillaga um lögreglu-
námskeið. 7. Tillögur bæjarfull-
trúa Stefáns Jóh. Stefánssonar frá
bæjarstjórnarfundi 22. nóv. III.
lið. 8. Tillaga um kosning tveggja
manna til að athuga reikninga og
rekstur Mötuneytis safnaðanna.
Leikfélögin. Frv. um eftirgjöf á
skemmtanaskatti leikfélaganna
var fellt í efri deild í fyrradag.
Gestir í bænum: Guðmundur
Davíðsson, þingvöllum, Helgi
Benónýsson, Vestmannaeyjum.
Kosningarnar 16. júlí. 1 seinustu
Hagtíðindum er gefið yfirlit yfir
síðustu alþmgiskosningar, þátt-
töku í þeim o. fl. Á kjörskrá voru
rúml. 53 þús. kjósendur, en aðeins
69% þeirra neyttu atkvæðisréttar
síns. Hafa alþingiskosningar
aldrei verið eins illa sóttar síðan
1919. Mest þátttaka hefir verið í
kosningunum 1931, þá kusu 78.2%
kjósendanna. Bezt voru kosning-
arnar nú sóttar i Hafnarfirði, þar
var þátttakan 92.9%, en verst
voi’u þær sóttar í Eyjafjarðar-
sýslu, þar var þátttakan 51.5%.
Utan kaupstaðanna var kosningin
bezt sótt í Vestur-Skaptafellssýslu,
þátttakan 89.2%. Kvenfólkið er i
meirahluta meðal kjósendanna
(52%), en hinsvegar var þátttaka
þess í kosningunum miklu verri
en karlmannanna. Af karlmönn-
unum neyttu 79% atkvæðisréttar
síns, en af kvenkjósendum aðeins
61.9%.
Atvlnnuléysið. Áður hefir verið
hér í blaðinu sagt frá atvinnu-
leysingjatalningunni í Reykjavík,
sem fram fór 1. nóvember. Á
sama tíma fór fram skráning at-
vinnulausra á ísafirði, Vestmanna-
eyjufn og Seyðisfirði. Á Seyðis-
firði voru skráðir 31 atvinnuleys-
ingjar, í Vestmannaeyjum 90 og á
ísafirði 141. Að frátöldum ísafirði
virðist talningin hafa verið illa
sótt, því víst er það, ef öll kurl
hefði komið til grafar, að ástand-
ið hefði ekki virzt betra annars-
staðar.
Veðurblíða. Nýútsprungin Sóley
sást á Hvanneyrartúni við Siglu-
Dálaglegur andbanningur. Am-
ei’íkublað eitt hefir átt tal við
Spike O’Donnell, sem er alkunnur
bófi, og kunnur að því að hafa
rekið óleyfilega vínsölu, og spurt
hann álits á afnámi bannlaganna.
O’Donnell sagði, að hann væri
meðmæltur því, að lögin voru
felld úr gildi, ekki sízt vegna
þess, að nú gæti félitlir verka-
menn fengið sér ódýrt bjórglas á
frjálsan hátt eins og áður hefði
verið. — F.Ú.
Byrd pólifarl og félagar hans
komu í dag til Wellington í Nýja
Sjálandi, og leggja þaðan af stað
næstkomandi þriðjudag í rann-
sóknarför sína suður í höf á skipi
sínu, Jakob Rupert. þeir hafa með
sér fjórar flugvélar, og ýmisleg
rannsóknartæki, og ætla að fljúga
yfir svæði, sem ekki hafa verið
rannsókuð áður. Meðal annars
hafa þeir með sér þrjár kýr, og
eru það fyrstu kýrnar, sem flutt-
ar hafa verið til suðurheimskauts-
landanna. — F,Ú.
Zionista leiðtoginn Weizman
flutti í gær í-æðu á fundi nefnd-
arinnar til hjálpar þýzkum útlög-
um. Hann sagði þar meðal ann-
ars, að hann teldi vænlegast fyrir
Gyðinga, að setjast að í Banda-
ríkjunum, í sumurn hlutum Breta-
veldis, svo sem í Ástralíu, og í
Suður-Ameríku ríkjum og Pale-
stínu. — F.Ú.
Útlendingar ílýja. Útlendingar
eru nú farnir að flýja i stórhóp-
um frá FuKien. Margir Ameríku-
menn komu í gær frá Yen Ping
til Nanking.
Umferðin í bænum
• Ódýru f
15. Ökumenn.
auglýsmgarnar.
Nemið aldrei staðar á miðri
akbraut, fast við gatnamót eða
á krossgötum. Það má einung-
is gera út við gangstétt eða
á götujaðri til vinstri handar.
Ferming og afferming farar-
tækja skal fara fram gang-
stéttarmegin. Farþegar skulu
og þeim megin stíga upp í far-
artæki og út úr þeim.
16. Ökumenn.
Kennsla
ÖKUKENN SLA.
Steingr. Gunnarsson Bergst.
stræti 65, heima. Sími 8973
eða á Litlu bílastöðinni. Sími
1380.
Kaup og sala
37. gr. lögreglusamþykktar-
innar hljóðar svo:
„Ef vegfarandi veldur slysi,
hvort sem það er hans sök eða
ekki skal hann þegar nema
staðar, skýra frá nafni sínu
og heimilisfangi, ef þess er
krafizt, og hjálpa þeim, sem
slasast hefir, ef þörf gerist“.
Að hraða sér burt eða hlaupa
í felur að afstöðnu slysi eins
og stundum hefir átt sér stað,
er engum ærlegum manni sam-
boðið, jafnframt því sem það
er brot á almennri reglu.
Hús og aðrar fasteiguir til
sölu. Hús tekin í umboðssölu.
Skrifstofan í Aðalstræti 9 B
opin kl. 11—12 og 5—7. Sími
4180 og 3518 (heima). Helgi
Sveinsson.
Hillupappír, mislitan og
hvítan selur Kaupfélag Reykja-
víkur. Sími 1245.
Rit til sölu. Nýjar kvöldvök-
ur frá byrjun. Einnig nokkrir
fyrstu árgangar Fálkans og
Spegilsins. A. v. á.
Munið
lága vöruverðið á
TÝSGÖTU 8
„Þarna fór bjðrinn
þinn Pétur".
Einu sinni auruðu tveir ná-
ungar saman og fór annar
þeirra inn í búð og keypti tvo
bjóra. Þegar hann hitti félaga
sinn . aftur brotnaði önnur
bjórflaskan. Varð honum þá
að orði: „Mikið h..... þama
fór bjórinn þinn, Pétur“. Það
er eitthvað líkur hugsanaferill
Valtýs, þegar hann er að lýsa
„skissunni“ með 700 krónumar
til nazistans Gísla Sigurbjöms-
sonar. V. segir að ferðastyrk-
urinn sé veittur „sama sem úr
bæjarsjóði“, þó vitanlegt sé
að á engan hátt verður greint
á milli þess fjár, sem ríkið,
bæjarsjóður og einstakir menn
gefa mötuneyti safnaðanna. Ef
Framsóknarmaður hefði átt í
hlut, hefði Valtýr áreiðanlega
kallað ferðastyrkinn þjófnað
og það án gæsalappa. x.
Ódýrastar og beztar vörur á
Vesturgötu 16. Sími 3749.
VERZLUNIN BRÚARFOSS
Ef yður vantar góð og ódýr
húsgögn, þá munið Trésmiðj-
una á Frakkastíg 10, sími
4378.
Tilkynningar
Sauma peysuföt, upphluti,
vendi fötum og fleira. Kögra
einnig peysufatasjöl. ódýr
vinna. — Upplýsingar á Braga-
götu 22 A III. hæð.
Gerið svo vel að hringja upp
2266 eða 4262, þegar ykkur
vantar nýjan fisk.
Munið Kjötbúð Reykjavíkur
Sími 4769.
Atvinna
Vetrarmann vantar í sveit.
Afgr. vísar á.
RAUÐA HÚSIÐ.
— Hvað áttu við?
— Jú, sjáðu. Mark vill ráðstafa öllu. Hann rexar
og regerar og svo heimtar hann, að gestimir sam-
þykki allt sem hann vill. Ég skal nú segja þér eitt
til dæmis. Betty — miss Calladine — og ég hugs-
uðum okkur að fara tvö ein í tennis hér um dag-
inn. Hún er mesti vargur í tennis og vildi veðja
um það að hún skyldi vinna. Mark sá að við vorum
að fara út með áhöldin og spurði hvað við ætluðum.
Það var sem sé þannig, að hann hafði ráðgert að
við færum í tennis eftir te, og hafði reiknað allt út
og teiknað með bláu og rauðu bleki allan ganginn í
leiknum — með verðlaunum og öllu saman — ann-
ars nógu sniðuglega. Hann hafði látið slá grasbal-
ann og kríta hann bara fyrir þetta tækifæri. Nú,
ekki fyrir það, við Betty hefðum svo sem ekki
eyðilagt grasbalann, og við hefðum hæglega getað
farið í tennis eftir te — hún sló mig út eins og
að drekka — en hvað sem því leið .... Bill þagnaði
og ypti öxlum — þetta kom ekki heim við ráða-
gerðir hans.
— Það kom ekki heim við fyrirætlanir hans?
— Nei. Það myndi hafa ruglað áhrifin af þess-
ari nákvæmu áætlun hans. Svo að við hættum
við allt saman. Hann hló og bætti svo við: Ef við
hefðum ekki hætt við að fara í tennis, þá hefði
okkur aldrei framar verið boðið hingað.
— Hefði ykkur ekki verið boðið aftur?
— Sennilega ekki. Nú, ég skal ekki fortaka það,
en að minnsta kosti ekki fyrst um sinn.
— Ertu viss, Bill?
— Ójá. Það er fjandi að fara svoleiðis í gildr-
una. Þessi miss Norris — tókstu nokkuð eftir
henni ? H ú n hefir sannarlega gert fyrir sér. Ég
þori að veðja hverju sem vera skal um það, að hún
kemur ekki aftur hingað.
— Því þá það?
— Bill hló í kampinn.
— Við vorum reyndar öll með í því. — Minnsta
kosti ég og Betty. Það er sagt að hér sé reimt í
húsinu. Einhver lady Anne Patten. Hefir þú heyrt
minnst á hana?
— Nei, aldrei.
— Mark sagði okkur sögu af henni einu sinni
þegar við vorum að borða miðdegisverðinn. Hann
var afar hrifinn af því, að það skyldi vera draugur
í húsinu hans; ekki svo að skilja, að hann trúi á
drauga. En ég held að hann hafi viljað láta okkur
öll saman trúa á þennan kvendraug, og þó var hann
hálf-hneykslaður á þeim Betty og mrs Calladine
af því að þær eru í raun og veru hræddar við
drauga. Sá er góður! Nú hvernig sem þáð nú var,
þá bjó miss Norris sig — hún er leikkona og það
þekkt leikkona — eins og vofu — til þess að leika
á hann. Og Mark ræfillinn ætlaði að sálast úr
hræðslu. Auðvitað bara allra snöggvast.
— En hin?
— Ja, við Betty vissum nú um allt. Ég sagði
henni — miss Norris auðvitað, að gera nú enga
vitleysu. Því ég vissi hvernig Mark var. Mrs Calla-
dine var ekki með — Betty vildi ekki, að hún væri
neitt riðin við þetta. En hvað majórinn snertir, þá
hugsa ég að það þurfi nokkuð til þess að h a n n
verði hræddur.
— Hvar birtist vofan?
— Niðri á vellinum þar sem við höfum knatt-
leikinn. Það er sagt, að vofan sé þar á sveimi.
Þarna vorum við öll í tunglsljósinu og létum sem
við værum að bíða eftir því að vofan birtist. Veiztu
hvar völlurinn er?
— Nei.
— Ég skal sýna þér það þegar við erum búnir
að borða.
— Það vil ég gjarnan. Var Mark vondur á eftir?
— Heldur það. Hann var eins og naut heilan
dag á eftir. Já, svona er hann.
— Var hann reiður við ykkur öll ?