Nýja dagblaðið - 15.12.1933, Blaðsíða 4
4
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Annáll.
Skipafregnir. Gullfoss er í Rvík.
Goðafoss fór frá Hull 12. þ.m. á leið
til Vestruannaeyja. Brúarfoss kom
til Leith í gærmorgun. Dettifoss
\ár í Hrísey í gær. Lagarfoss fór
frá Leith í fyrrakvöld á leið til
Kaupmannahafnar. Selfoss er í
Reykjavík.
Kjörskrá til bæjarstjórnarkosn-
inganna, sem fram eiga að fara í
janúar liggur frammi á skrifstofu
bæjarins frá 15.—28. þ. m. kl. ,10—
12 og 1—5.
Fiskitökuskipið Lyngstad kom
liingað i gær til þess að taka
fisk hjá Fisksölusamlaginu.
Alden, línuveiðarinn frá Stykk-
ishólmi, fór til Bx-eiðafjarðar í
gæikvöldi, með flutning og póst.
ísland kom í gærkvöldi frá Ak-
ureyri og Ísaíirði, og fer áleiðis
til Kaupm.hafnar á laugardaginn.
Mun það vei’a hentugasta ferðin
til þess að koma pósti fyi-ir jól til
útlanda.
Togararnir. Geir kom írá Eng-
landi í gær. Otur kom af veið-
um og fór til Englands i gæi'.
Jónas Sveinsson læknir, sem áð-
ur var héraðslæknir á Hvamms-
tanga, er nýfluttur hingað til
bæjarins. Hefir hann um skeið
verið í Austurriki og Póllandi og
heíir þar sérstaklega kynnt sér
kven- og þvagfærasjúkdóma.
Kviknar í. í fyrrinótt kviknaði
í hálmi í portinu bak við hús
Ólaís Magnússonai' ljósmyndara i
Templarasundi. Varð þar töluvert
bál, en siökkviliðinu tókst strax
að slökkva eldixm.
Freymóður Jóhannsson málari
hefir stóra jólasýixingu á mál-
vei’kum sínum í Braunsverzlun
uppi, þar sem kaffihúsið Vífil)
var áður.
Innanílokkskeppni Glimufélags-
ins Ármann í glímu um verð-
launapening fyrir fegurðarglímu
íór fram í fyrrakvöld. Glímt er
um þennan pening einu sixmi í
mánuði. Hlutskarpastur varð Sig-
urjón Hallbjörnsson 16 ára, 2.
Ki’istján Guðmundsson og 3. Sig-
ui’ður Hallbjörnsson.
íslenzk-sænska félagið „Svíþjóð“
hélt skemmtifund að Hótel Skjald-
breið i fyrrakvöld. Er það orðinn
siður hjá félaginu að halda há-
tiðlegan Luciadaginn, sem er 13.
des. Luciadagurinn er haldinn
hátíðlegur í Svíþjóð og byrja há-
tíðahöldin með þeim hætti, að
stúlka klædd hvitum kirtli með
ljósakranz á höfðinu, kemur með
kaffi til heimilisfólksins. — Með
degi þessum er talið í Svíþjóð að
jóiin byi’ji. Á fundinum hélt frú
Brekkan stuttan fyrirlestur, lesin
voru upp nokkur kvæði á sænsku,
dregið um málverk eftir frú Gretu
Bjöi’nsson, danz o. fl.
Jólatrésskemmtun. Nokkrai’ kon-
ur í Framsóknarflokknum gang-
ast fyrir jólatrésskemmtun fyi’ir
börn, er haldirx verður í Oddfel-
low-húsinu 2. janúai’. Er þess
vænst að þeir, sem vilja taka þátt
í þessari skemmtun, gefi sig fram
sem allra fyrst, og ekki siðar én
þann 20. þ. m. á afgr. Nýja dag-
blaðsins eða Kaupfélagi Reykja-
víkur i Bankasti’æti Má búast
við mikilli aðsókn. Síðar verður
nánar auglýst urn verð, en eklci
mun það þó verða svo hátt, að
það standi i vegi fyrir nokkrum
um að sækja skemmtunina.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman aí lögmanni ungfr. Jóhanna
Björnsdóttir frá Fagui’eyri við
Fáski’úðsfjörð og þorsteinn Pét-
ursson fjölritari, Reykjavík.
Bnska verzlunarmálaráðuneytið
hefir gefið út skýi’slur um inn-
flutning og útflutning Englend-
inga í nóvembermánuði. Samkv.
þessurn skýislum hefir hvort-
tveggja aukizt í mánuðinum, i'rá
því sem var í október, og enn-
íremur frá þvi sem var á sama
tíma 'síðastliðið ár. í skýrslunni
segir ennfremur, að þeesar tölur
megi taka sem fullgilda sönnun
þess, að ástandið í viðskiptalifinu
sé að batna, því að þetta sé
fimmti mánuðurinn í röð sem
batinn haldi áfram í viðskipta-
málum Englands. — þrátt fyrir
það, þótt allshei’jarútkoma verzl-
unarskýrslnanna sé sífellt að
batna kvarta ýmsar enskar iðn-
greinar mjög um erfiða sam-
keppni, einkum aí hendi Japana.
Til dæmis hafa enskir leirkera-
smiðir nýlega látið það í ljós, að
í þeirra iðngrein sé samkeppni
Japana mjög tilfinnanleg. þeir
nefna það t. d., að í Ástralíu selji
Japanar nú tylftina af tepottum
á einn shilling í heiidsölu, en það
er ekki nema brot af því, sem
Englendingar segist þurfa að fá
fyrir sömu vöru. — FU.
Lebrun, forseti Frakklands, opn-
aði- sl. föstudag nýtt Hjálpi’æðis-
hersskýli í París, og hefir bygg-
ingin kostað hálfa níundu xnilljón
franka, og er talin fullkomnust af
sinni tegund í heimi. Skýlið á að
geta hýst rúml. 400 næturgesti. FÚ.
Frá Siam. Óeirðum þeim, sem
í Siam hófust í októbermánuði,
vii’ðist nú vera lokið að fullu, og
komu konungar og drottning til
Bangkok í dag, en þaðan höfðu
þau farið litlu áður en óeirðirnar
brutust út. — Á sunnudaginn var
í Síam haldinn hátíðlegur afmæl-
isdagur stjórnarskrárinnar, og
þing landsins sett sett af konungi.
Sjálf þingsetningai’stundin hefir
verið ákveðin af stjörnuspeking
konungs. — F.Ú.
Sæiiska samvinnusambandið hcf-
ir nýlega gert samning við Pól-
land um vöruskipti. Sambandið
selúr iðnaðarvömr sínar eins og
Lunaperur, skóhlífar, bílagúmmí,
peningakassa o. fl. og fær í stað-
inn hrávörur frá Póllandi eins og
t. d. olíur, kol, salt, áburð, zink-
livítu o. fl. Gert er ráð íyrir að
viðskipti þessi , vei’ði mikil,
séx'staklega þar sem töluverö sam-
tök eru um það í Póllandi, að
kaupa ekki þýzkar vhrur. þetta er
alveg nýr markaður sem Svíþjóð
fær þarna og vafalaust ekki svo
lítill, þur sem Pólverjar ei’u nú
um 32 milljónir að tölu.
í Kobe á Japan réðust Fascistar
í fyrradag á bókasafn verkalýðs-
félaganna og eyðilögðu þar mikið
af bókunx unx þjóðfélagsmál, en
iielztu jafnaðarmannaritin brenndu
þeir opinbei’lega á báli, sem kynt
var á toi'gi einu.
Dönsk útgerð er nú nokkuð að
glæðast, að því er skýxslur segja,
og skipum þeim fækkar nú í
hveri-i viku, sem liggja aðgerðar-
laus í höfnum. Tuttugu og sex
dönskum skipum er þó ennþá lagt
upp. Danska herskipið Herluf
Ti’olle lieíir nú verið tekið úr flot-
anunx, og verður selt til niðui’-
rifs. Skipið var byggt 1895, og fór
síðustu ferð sína 1930 undir stjórn
Gyldenkrone baróns. — F.Ú.
Sendiherra Belgíu í París hafði
fund með franska utanríkisráð-
hei-ranum síðastl. föstudag, og
segja frönsk blöð, að þeir haíi
rætt unx víggirðningar á austur-
landamærum Belgíu. — Er búizt
við, að Frakkar og Belgir geri
með sér samninga um að víggirð-
ingar á belgisku landamærunum
skuli vera framhald af víggirðing-
um Frakka á austurlandamærun-
um. — F.Ú.
Skúlablaðið heitir færeyskt
skólablað, gefið út af kennarafé-
laginu í Færeyjum. það skrifar
alllangt mál um skólaferð ísl.
drengjanna. til Færeyja i sumai’.
Höfðu di-engirnir með sér ýmsa
rnuni er þeir höfðu gert hér í
skólanum og sýndu þá þar. Lætur
blaðið mjög af því hve smekklegir
þessir munir hafi verið, og óskar
eftir að slík vinna verði einnig
tekin upp i færeyskum skólum.
— þá talar blaðið um spjaldskrá,
sem drengirnir hafi gert yfir
ýmsa hluti, sem þeim hafi þótt
sérkennilegir. Hrósar það nxjög
þessai’i lifandi kennsluaðferð Að-
alsteins Signxundssonar kennara,
Jólatrén
eru kotnín.
Bera aí öðrutn að
skrauti og íegurð.
Gunnl. Stefánsson
Haínarfiröi. Simi 9260
að láta börnin sjálf vinna svo
nxikið sjálfstætt.
Sjöburar. I danska blaðinu
„Politiken" er sagt frá því ekki
alls fyrir löngu, að kona ein i
George Town á Guyana lxa.fi fætt
sjöbui-a og lifðu þeir allir og eins
inóðirin, oftir fæðinguna. Allt voru
þetta drengir. í sambandi við
þessa frétt rifjar blaðið ýmislegt
upp um fleirburafæðingar. Er það
talið vera nærri sanni, að á hverj-
ar 80—90 fæðingar komi 1 tví-
burafæðing. þríburafæðingar eru
það miklu fátíðari, að talið er að
ekki komi nema 1 á hver 8000.
I Kaupmannahöfn héfir svo mun-
að sé, ekki komið fyrir nema I
þríburafæðing. Fjórburar og fimm-
burar hufa aldrei þekkst þar á
landi. — Svo lengi senx menn
hafa sagnir af, er ekki vitað
um nenxa 30 fimmburafæðing-
ar í það lieila tekið. Ein sexbura-
fæðing átti sér stað í þýzkalandi
1888 og sjöburarnir frá Hameln,
sem fæddust 1834 hafa hingað til
verið taldir einsdæmi. í hvorug-
um síðastneíndu tilfellununx lifðu
böi-nin. í tilefni af þessu birtir
blaðið nxynd af íjórum ungum
stúlkum, sem eru fjórburar. þæi'
eru allar hraustlegar að sjá og
blaðið segir, að þær standi jafn-
öldrunx sínum fullkomlega jafn-
fætis, bæði hvað snertir likams- og
sálarþi’oska.
Landilótta Gyöingar. Fyrir
skömmu liéldu Gyðingar fund í
London, þar sein mættir voi’u íull-
trúar frá flestum þeim löndum,
þar sem Gyðingar eru búsettir.
þar var upplýst, að síðan Hitler
komst til valda í þýzkalandi, vœru
flúnir þaðan 65 þús. Gyðingar.
Flestir þeirra hafa farið til Frakk-
lands eða 25 þús. til Gyðinga-
lands hafa farið 6500. þar næst
eru Pólland og Tékkoslovakia í
röðinni. Aí þessum mönnum er
um 8 þús., sem ekkert hafa fyrir
sig að leggja og margir hinna
hafa yfir takmörkuðum fjármun-
um að ráða. Víðtæk söfnunar-
9 Ódýrn 9
auglýsingarnar.
KJARNABRAUÐIN
Iiafið þið reynt hið holla og
ljúffenga kjamabrauð frá
Brauðgerð Kaupfél. Reykjavík-
ur?
Tryggið yður bökunaregg í
tírna.
Kjötbúð Reykjavíkur,
Vesturgötu 16. Sími 4769.
Varanleg jólagjöf er stækk-
uð ljósmynd. Ljósmyndastofa
Alfreðs, Klapparstíg 37, sími
4539.
[[ Húsnæði n
Sólríkt herbergi til leigu Bergstaðastræti 82. á
Bílskúr til leigu. Uppl. síma 1895. í
n Atvinna II
Tveir vanir bílstjórar óska
eftir atvinnu við bifreiðaakst-
ur yfir hátíðina. Tilboð sendist
á afgreiðslu Nýja dagblaðsins
fyrir laugardag merkt „Bíl-
stjóri“.
Tilkynningar
Munið gullsmíðavinnustofuna
Þingholtsstræti 8. Guðl. Magn-
ússon.
Munið að sími Herðubreiðar
Fríkirkjuveg 7 er 4565. Þar
fæst allt í matinn.
Nýja dagblaðið
birtir smáauglýsingar fyrir
eina krónu. Þær þurfa að vera
komnar á afgr. fyrir kl. 7 eða
í Acta fyrir kl. 10 e. h.
sstarfsemi til hjálpar landflótta-
mönnunum hefir verið hafin víðs-
vegar um lieim og hafa þegar
safnast um 12 milj. kr. Hafa of-
sóknir nasistanna á móti Gyðing-
um hvarvetna mælzt illa fyrir og
þótt sanna vel það siðleysisástand,
sem nú er ríkjandi í þýzkalandi.
RAUÐA HtJSIÐ.
urinn hafði farið þar upp og ofan þúsund sinnum,
en hann hafði aldrei látið sér til hugar koma að
telja þær, en það hafði Holmes gert eins og það
væri sjálfsagður hlutur og reiknaðist honum, að þær
væri 17 talsins. Þetta töldu menn í þann tíð sýna
athugunargáfu og skort á athugunargáfu. Watson
fann enn einu sinni til vanmáttar síns, og honum
fannst meira til um Holmes en nokkru sinni fyrr.
Nú hefir mér alltaf fundizt, að í þessu tilfelli hafi
Holmes verið asninn og Watson sá vitri maður. Því
hvaða meining er eiginlega í því að minnast svo
ómerkilegra staðreynda. Vilji maður vita, hvað
margar tröppur sé upp til manns, þá er að hringja
á húsmóðurina, sem maður leigir hjá og spyrja
hana. Ég hefi gengið út og inn í klúbbnum ótal
sinnum. En ef þú spyrðir mig að því núna, hvað
tröppurnar væri margar, þá myndi ég ekki geta
avarað því. Myndir þú geta það.
— Nei, síður en svo, sagði Bill.
— En ef þér væri annt um að vita það, sagði
Antony og skipti nú allt í einu um málróm, þá
myndi ég geta komizt eftir því án þess að ómaka
mig til þess að .hringja á dyravörðinn.
Bill var ekki meira en svo gefið um þetta skraf
um klúbbtröppurnar, en honum fannst hann verða
að segja það, að nógu gaman væri að vita hvað
tröppumar væri margar.
— Það er gott, sagði Antony. Ég skal reikna það
út.
Hann lokaði augunum.
— Ég kem eftir St. James Street, sagði hann, og
dró við sig orðin. Nú er ég kominn á móts við
klúbbinn og fer framhjá glugganum á reykingaher-
berginu — ein — tvær — þrjár — fjórar. Nú er
ég við tröppurnar. Ég byrja að ganga upp. Ein —
tvær — þrjár — fjórar — fimm — sex. Svo kemur
breið trappa. Sex — sjö — átta — níu, aftur breið
trappa. Níu — tíu — ellefu. Ellefu — og nú er ég
kominn alla leið. Góðan daginn, Rogers. Gott er
veðrið í dag. Hann opnaði augun og leit brosandi
á Bill. Ellefu, sagði hann. Teldu þær næst þegar þú
kemur. Ellefu — og nú vona ég að ég gleymi því
aftur.
Bill varð hrifinn.
— Þetta var laglega gert, sagði hann. Segðu mér
nú hvernig þú ferð að þessu.
— Tja, það get ég ekki sagt, hvort það er eitt-
hvað í augunum eða í heilanum, eða hvað það er,
en ég hefi þann einkennilega vana, að setja á mig
allskonar hluti, án þess að vei’a mér þess meðvit-
andi. Þú kannast við leikinn, þegar maður er látinn
horfa á borð með ýmsa smáhluti í þrjár mínútur,
snúa sér svo undan og reyna að telja upp, það sem
maður hefir séð. Það þarf fjandans mikinn ein-
beitingarhæfileika hjá fólki eins og gerist til þess
að geta talið allt upp, og gleyma engu, en á ein-
hvem undanrlegan hátt tekst mér þetta án þess
að einbeita huganum nokkuð. Ég á við það, að augu
,mín virðast geta þetta án þess að heilinn starfi
nokkurn hlut. Ég myndi geta horft á borðið með
öllu dótinu og talað við þig um golfleik á meðan, og
þó myndi ég geta talið upp alla hlutina á eftir.
— Þetta hugsa ég að sé þarflegur eiginleiki fyrir
áhugaspæjara. Þú hefðir átt að slá þér á það
starf fyrir löngu síðan.
— Já, það e r ekki ónýtt og þeir, sem ekki
þekkja svona lagað, verða alveg undrandi. Eigum
við að reyna við Cayley?
— Hvernig þá ?
— Við skulum spyrja hann . . . Antony rétti úr
sér og’ leit lxvasst á Bill. Látum okkur spyrja hann.
hvað hann ætli að gera við lykilinn að vinnuher-
berginu!
Fyrst botnaði Bill ekki í neinu.
— Lykilinn að vinnuherberginu ? sagði hann hik-