Nýja dagblaðið - 22.12.1933, Side 3
V ♦ J A
DABBLABIB
3
NYJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „Blaöaútgéfan h/f‘
Ritstjóri:
Dr. phil. porkell lóhannesson.
Ritstjómarskrifstofur:
Laugav. 10. Símar: 4373 og 2353.
Afgr, og- auglýsingaskrifstofa:
Austurstrœti 12. Sími 2323.
Framkv.stjóri:
Vigfús Guðmundsson.
Áskriftagj. kr. 2,00 á mánuöi.
í lausasölu 10 aura eint
Prentsmiöjan Acta.
■ Inn vígðí. Innlend þýðing af hinni frægu bók
■ »The Initiate«, sem margir kannast við. ----------
Fiskverzlunin
Ftokksfundurinn
I Borgarnesi.
Eins og annarsstaðar er
skýrt frá hér í blaðinu, héldu
margir af leiðandi mönnum
Framsóknarflokksins í Mýra-
og Borgarfjarðarsýslu fund í
Borgarnesi 20. þ. m. Ályktanir
fundarins sýna hug flokks-
manna í þessu héraði. Og það
þarf ekki að taka það fram að 1
þessir flokksmenn eru lang- 1
flestir búandi menn 1 sveit. 1
Ályktanir fundarins bera j
með sér að ílokksmenn vilja
ekki hafa neitt pólitískt sam-
neyti við íhaldið. Þeir telja að
þingflokkurinn hafi verið á
réttri leið að leita samvinnu
um landstjórn og málefna-
samstarf við Álþýðuflokkinn.
Það má líta svo á, að þessi
íundur sé góður spegill af því
hvemig samvinnubændur líta á
fráhvarf nokkurra manna úr
ílokknum. Þeir taka burtför
þeirra með festu og stillingu.
Þeir ámæla ekki sínum fyrver-
andi samherjum, en þeir
ákveða jafnframt að láta burt-
för þeirra ekki hafa áhrif á
stefnu eða starf flokksins í
héraðinu. Og alhr fundarmenn
lýstu yfir mjög eindregnu
fylgi við Bjarna alþm. Ás-
geirsson. Það var ekki óskað
breytingar um fulltrúa fremur
en um stefnu.
Einn af þekktustu atorku-
og efnabændum í héraðinu hélt
mjög eftirtektarverða ræðu
um samstarf bænda og verka-
manna í landsmálum. Hann
hélt því fram, að milli þessara
stóru og þýðingarmiklu stétta
í þjóðfélaginu yrði að vera
skynsamlegt samstarf um
marga hluti. Hann vék að af-
urðasölunni á hinn sama frjáls-
mannlega hátt. Hann sagði að
hið nýja skipulag um afurða-
söluna innanlands, sem bændur
þyrftu að koma á, yrði fyrst
og fremst að miða að því að
draga úr milliliðakostnaðinum,
en ekki að því að gera vöruna
dýrari fyrir neyteftdur við
sjóvarsíðuna. Verðið, sem neyt-
endur yrðu að borga nú, væri
oft mjög hátt, en þó bóndinn
bæri skarðan hlut frá borði.
Þannig líta frjálslyndir
og stórhuga bændur á. Þeir
vita, að með endalokum kjör-
dæmamálsins er úrskurðar-
valdið um landsmál flutt úr
sveitunum til strandar. En þeir
ætla að halda svo á málum, að
mikill hluti bæjamanna sýni
bændastéttinni réttlæti og
drengskap við lausn hinna
stóru atvinnumála.
***
H.
Islenzki fiskurimi er aðal-
lega seldur saltaðm’ og þurrk-
aður eða ísvarinn. Saltfisk-
markaðui’inn er eins og kunn-
ugt er, algerlega bundinn við
Miðjarðarhafslöndin. Þar er
saltfiskurinn neyzluvara fá-
tæks fólks. ísfiskurinn er aftur
á móti aðallega seldur í
Englandi, og verður að selja
hann, meðan togararnir liggja
í höfn. Hvorki saltfiskurinn
né ísfiskurinn er því mark-
aðsvara af beztu gerð. En ef
Islendingar gætu komið fiski
sínum nýjum eða jafngóðum
og nýjum á markaðinn, mundi
ísland verða fiskiforðabúr allr-
ár Evrópu og útgerð lands-
manna borgið um langa fram-
tíð.
Ofl þessi leiö stendur nú op-
in með því að hraðfrysta
fiskinn.
Ekki er fagurt frá að segja,
að það eru Svíar, sem opnað
hafa þessa leið, en ekki íslend-
ingar sjálfir. Sænska frysti-
hússfélagið hefir að þessu
haft forgöngu þessara mála.
Þau eru að vísu ekki langt
komin ennþá. Fyrstu tilraun-
imar misheppnuðust eins og
oft vill verða. Það var fyrst í
fyrra, sem sænska frystihúsið
býrjaði að senda liraðfrystan
flakaðan fisk til Englands með
sæmilega góðum árangri. Seldi
það þá 300 tonn af fiski þang-
að. I ár hafa verið pöntuð
1400 tonn hjá félaginu, en það
hefir ekki fengið svo mikinn
fisk til frystingar, að þeirri
eftirspurn hafi verið fullnægt.
önnur hraðfrystistöð, miklu
smærri, er að koma upp hér í
bænum um þessar mundir.
Það er
hraðfrystistöð Ingólfs G. S.
Esphólin.
Espholin átti frumkvæði að
sænska frystihúsfélaginu, en
var þar bolað frá, löngu áður
en frystihúsið tók til starfa.
Hraðfrystingin í Sænska
frystihúsinu er eftir svokall
aðri Ottesens aðferð, og er
fiskurinn samkvæmt henni
hraðfrystur í pæklinum, sem
til hraðfrystingarinar er not-
aður. Espholin hraðfrystir
hinsvegar eftir sinni eigin að-
ferð, og er hún að því leyti
frábrugðin Ottesensaðferðinni,
að fiskurinn er hraðfrystur í
skúffum úr þunnum málmi,
er pækillinn leikur um án þess
að snerta vöruna. Enn er ó-
reynt, hvort sá fiskur, sem
þannig er hraðfrystur, hefir
betri skilyrði til að vera mark-
aðsvara en hinn, sem er hrað-
frystur samkvæmt Ottesensað-
ferðinni. Hvorttveggja er mjög
falleg vara.
Hraðfrystur fiskur heldur
alveg nýja bragðinu og er jafn
góður sem nýr fiskur, a. m.
k. 2—3 mánuðina eftir að hann
kemur til hraðfrystingarinnar.
Hann er því hvorki bund-
inn við einstök lönd sem
markaðsvara eins og salt-
fiskurinn, né við það að
vera seldur á stuttum tíina
eins og ísíiskurinn.
Á síðari árum hefir gerzt
fullkomin bylting á kjötverkun
okkar íslendinga til útflutn-
ings og þar með á kjötverzlun-
inni. f stað þess að kjötið var
áður allt flutt út saltað, er nú
megin þess flutt út fryst. Með
því hefir ketinu skapast miklu
rýmri og betri markaður.
pessi sama bylting hlýtur
að verða á fiskverkuninni
og iiskverzluninni
á næstu árum, og því betur
sem það verður fyrr og á
styttri tíma. En til þess verð-
ur að koma upp nokkrum hrað-
frystihúsum víðsvegar um
landið, og er þá auðvitað æski-
legt, að unnið verði að því að
sameina sem mest frystingu á
fiski og kjöti. Frysting fiskj-
arins verður að vera í nánu
sambandi bæði við framleiðslu
hans og sölu. Styður það enn
að því,
að hvert fiskiveiðahverfi
hafi sitt fisksölusamlag, og
að samlögin öll séu i einu
„fisksölusambandi“.
Þau skip, sem flytja út
frysta fiskinn, verða að koma
á hverja útflutningshöfn
nokkrum sinnum á ári, en
hvert skip á fleira en eina
höfn.
Frysting fiskjarins mundi
hafa marga hluti góða í för
með sér. Eitt er það, að með
því að flytja fiskinn flakaðan
til Englands, er 1 reyndinni
hægt að flytja meiri vöru
þangað að óbreyttum öllum
samningum. í verzlunarsamn-
ingnum við England er miðað
við magn fiskjarins að þyngd
en ekki tölu eða verðmæti. En
við að flaka fiskinn gengur
50—60% af þyngd hans frá.
Því fer þó fjarri, að sá úrgang-
ur þurfi að verða ónýtur,
heldur eru einmitt þá betri
kostir til að gera hann að
nýtri vöru. Þegar húsmæður
kaupa heilan fisk, þá fleygja
þær jafnan úrganginum.
En ef fiskurinn er flakað-
ur i frystinguna, er gert
fiskimjöl úr úrganginum, og
er þannig í honum mikið
verðmæti.
Athugið
jólainakaupin
Epli, 3 tegundir, frá 75 aurum
Vi kg. (ódýrari í heilum
kössum).
Appelsínur, 10, 15, 20 og 30
aura stk.
Vínber, bezta tegund,
Bananar,
Hnetur, Krakmöndlur,
Konfekt í lausri vikt,
KONFEKTKASSAR, margar
tegundir.
Átsúkkulagi.
.Tó.lavindldar og aðrar tóbaks-
vörur í miklu úrvali.
Spil, margar tegundir.
Jólakerti,
Hálvötn og ilmvötn.
Brauðgerð kaupfélagsins selur
allskonar kökur og brauð-
vörur, með lægsta verði bæj-
arins. Tertur þarf að panta
með nokkrum fyrirvara.
Gefið börnunum yðar marsi-
pan-dýr og marsipan, sem
þar er á boðstólum í smekk-
legu úrvali
Sími brauðgerðarinnar er 4562.
Góðar vörur.
Sanngjarnt verð.
Kaupfélag
Reykjavíkur
Bankastræti 2.
Sími 1246 (tvær línur).
Hitt er þó merkilegra, að
með því að koma upp fyrsta
flokks hraðfrystingu á fiski,
mundum við Islendingar ekki
aðeins bæta okkar aðal mark-
aðsvöru stórlega og gera hana
miklu verðmætari en hún er
nú, heldur eru einnig miklar
líkur til, að við gætum, ef við
vildum, fengið til verkunar
mikinn hluta þess fiskjar, sem
veiddur er af útlendum fiski-
skipum á íslenzkum fiskimið-
um. Af því að íslenzku fiski-
miðin eru svo fjarri öllum
öðrum löndum, er erfitt að
koma fiskinum til annara landa
til þvílíkrar verkunar, sem er
sambærileg við hraðfrysting-
una.
á þenna hátt gæti þjóðin
notið sinna ágætu miða því
því nær til fullnustu,
og fjarlægð landsins frá öðrum
löndum orðið henni vopn í
hendi, sem að gagni má koma:
Hún fengi fisk hinna erlendu
fiskimanna bæði til iðnaðar og
ef til vill verzlunar.
Nokkur ný og vöndud
Eikar-
skrifborð
til sölu á
125 krónnr stk.
Sárstaklega góð til
jölagjafa.
Leirskálasett
tekin upp í dag, fallegri
en nokkru sinni fyr.
Sigurður Kjartansson
Laugaveg 41.
4 bollapör
4 smádiskar,
1 sykurkar,
1 rjómakanna,
hvítt með giltri rönd. Aðeins
kr. 6,95.
Sigurður Kjartansson
Laugaveg 41.
Jóla-ávexiir
Epli, Delicious fancy, % kg. 0,70
Kassinn á kr. 19,00.
Epli, extra fancy Vi kg. 0,85.
Kassinn á kr. 20,00.
Appelsínur, Jaffa á 0,25 stk.
Vínber og Bananar.
Spil (allsk.), Kerti, stór og smá
Páll Hallbjörns.
Laugaveg 55. Sími 3448.
Jólatré
þau, sem eftir eru, verða seld
í Austurstræti 6 (Amatörverzl)
Sími 4683. Trén eru mjög þétt
og eftirsótt. Þorl. Þorleifsson.
Opinberið um jólin
Kaupið
hringana
hjá mér.
Jón Sigmundsson
gullsmiður.
Laugavegi 8.
til sölu. Verð frá kr. 1000,00.
PÁLMAR ÍSÓLFSSON.
Sími 4926.