Nýja dagblaðið - 28.12.1933, Side 1

Nýja dagblaðið - 28.12.1933, Side 1
1. ár. ÍDAG Sólaruppkoma kl. 10.28. Sólarlag kl. 2.30. Háflóð árdegis kl. 2.50. Háflóð síðdegis kl. 3.15. Veðurspá: Stinningskaldi norð- austan, úrkomulaust. Ljósatími hjóla og bifreiða k!. 3 —10. Söin, skrifstoíur o. íl.: Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10 pjóðskjalasafnið ....... opið 1-4 pjóðminjasafnið ........ opið 1-3 Náttúragripasafnið ...... kl. 2-3 Alþýðubókasafnið ...... opið 10-10 Landsbankinn .......... opinn 10-3 Búnaðarbankinn ........ opinn 10-3 lítvcgsbankinn ........ opinn 10-4 Útibú Landsbankans á Iílappar- stíg .................. opið 2-7 Sparisjóður Rvíkur og nágrennis opinn 10-12 og 5-7% Pósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6 Bögglapóststofan .... opin 10-5 Landsíminn .............. opinn 8-9 Búnaðarfélagið .. opið 10-12 og 1-4 Fiskifél....Skrifst.t,. 10-12 og 1-5 Samband ísl. samvinnufélaga opið kl. 9-12 og 1-6 Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-6 Eimskipafél. íslands......opið 9-6 Sölusamb. ísl. fiskframleiðenda opið 10-12 og 1-6 Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10-12 og 1-4 Skrifst. bæjarins opnar 9-12 og 1-4 Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4 Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4 Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4 Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6 Tryggingarstofnanir ríkisins opnar kl. 10-12 og 1-5 Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6 Lögregluvarðstofan opin allan sólarhi'inginn. Heimsóknartími sjúkrahúsa: Landsspítalinn ............ kl. 3-4 Landakotsspítalinn ............ M Laugarnesspítali ...... kl. 12%-2 Vífilstaðahælið 12y2-l% og 3%-4% Kleppur .................... kl. 1-6 Næturvörður í Laugavegsapóteki og Ingólfsapóteki. Næturlæknir: Bragi Ólafsson Ljósvallagötu 10. Sími 2274. Skemmtanir og samkomur: Nýja Bíó: Cavalkade kl. 9. Gamla Bíó: Leikfimiskennarinn kl. 9. Jólaskemmtun Menntaskólans í Menntaskólanum kl. 9. Jólaskemmtun U. M. F. Velvak- andi (sjá. auglýsingu). Dagskrá útvarpsins: Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há- degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. Endurtekning frétta o. fl. 19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregnir. 19,20 Tilkynningar, 19,25 Lesin dagskrá næstu viku. Tónleikar. 19,50 Til- kynningar. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Erindi: Kveðja frá fjarlægum frændum (þorst. p. Þorsteinsson skáld frá Winnipeg). Reykjavík, fimmtudaginn 28. des. 1933. 52. blaö Listi Framsóknarflokksins vib bæjarstjórnarkosningarnar í næsta mánuði var ákveðinn í gærkveldi: • 1. Hermann Jónasson lögreglustjóri, Laufásveg 79. 2. Aðalbjörg Sigurðardóttir frú, Lauganesi. 3. Guðmundur Kr. Guðmundsson skrifstofustj., Bergst.str. 82. 4. Björn Rögnvaldsson byggingameistari, Hringbraut 110. 5. Hallgrímur Jónasson kennari, Hörpugötu 4, Skildinganesi. 6. Magnús Stefánsson verkstjóri, Laugahvoli. 7. Eysteinn Jónsson alþingismaður, Hellusundi 7. 8. Sigurður Baldvinsson póstmeistari, Freyjugötu 32. 9. Guðrún Hannesdóttir frú, Ránargötu 6 A. 10. Aðalsteinn Eiríksson kennari. Laugaveg 84. 11. Eiríkur Hjartarson rafm.fræðingur, Laugadal v/Engjaveg. 12. Guðmundur Ölafsson bóndi, Austurhlíð. 13. Friðrik Á. Brekkan rithöfundur, Smáragötu 12. 14. Júlíus Ólafsson vélstjóri, Öldugötu 30. 15. Þórhallur Bjarnarson prentari, Ásvallagötu 29. 16. Eyþór Árnason sjómaður, Bergstaðastræti 9 B. 17. Jóhann Eiríksson verkstjóri, Bergstaðastræti 35. 18. Aðalsteinn Sigmundsson kennari, Nýja barnaskólanum. 19. Eðvard Bjarnason bakari, Bjarnarstíg 7. 20. Magnús Björnsson fulltrúi, Skólastræti 4. 21. Páll Hallgrímsson stud. jur., Bjarkai'götu 14. 22. Páll Pálsson skipasmiður, Lokastíg 4. 23. Bjarni Bjarnason bílstjóri, Þórsgötu 5. 24. Aðalbjörg Albertsdóttir frú, Klapparstíg 27. 25. Sveinn G. Björnsson póstfulltrúi, Njálsgötu 39 B. 26. Gunnar Árnason búfræðikandidat, Grundarstíg 8. 27. Guðbrandur Magnússon forstjóri, Bergstaðastræti 54. 28. Gísli Guðmundsson ritstjóri, Tjarnargötu 39. 29. Jónas Jónsson alþingismaður, Sambandshúsinu. 30. Jón Árnason bankaráðsformaður, Laufásveg 71. Listinn var samþykktur, þannig skipaður, á fundi í full- trúaráði Framsóknarfélaganna í gærkveldi. í dag ritar stjóm fulltrúaráðsins útvarpsráðinu og stjórn- um annara flokka, sem væntanlega hafa frambjóðendur í kjöri við bæjarstjórnarkosningarnar. Er þar farið fram á, að út- varpsráðið leyfi útvarpsumræður í næstu viku, um bæjarmál Reykjavíkur, og skorað á hina flokkana að taka þátt í þeim umræðum. Framsóknarflokkurinn mun opna kosningaskrifstofu þeg'ar upp úr nýárinu. En þangað til eru þeir, sem ætla að starfa fyrir flokkinn í kosningabaráttunni, beðnir að gefa sig fram við einhvern úr fulltrúaráðinu eða á afgreiðslu Nýja dagblaðs- ins í Austurstræti 12. Þjóðverjar neita að koma til Genf. London kl. 17 27/12. FÚ. Franska ráðuneytið kom saman á ráðherrafund í dag, til þess að taka ákvörðun um afstöðu Frakklands til stefnu Þjóðverja í afvopnunarmálum. Hafði undirbúningsviðræða far- ið fram í gærkvöldi, milli þeirra Chautemps forsætisráð- herra, utanríkisráðherrans og flotamálaráðherrans. Talið er líklegt, að opinber tilkynning verði send út loknum þessum fundi í dag, og þykir miklu varða hvernig hún verður, þar sem ákvarðanir fundarins hljóta óhjákvæmilega að verka á afvopnunarsamniuga í fram- tíðinni. Þjóðverjar hafa ákveð- ið hafnað frekari umræðum um afvopnunarmálin í Genf, en Frakkar hafa aftur á móti hingað til haldið því fram, að Genf væri sjálfsagður fundar- staður til slíkra umræðna. Yfirhershöfðíngi Hitiers hefir sagt af sér. London kl. 17 27/12. FÚ. Ilammerstein herforingi, yf- irmaður ríkishersins þýzka, hefir sagt af sér embætti sínu frá 1. febrúar næstkomandi. Það er sagt, að ástæðan til þessa sé sú, að honum ,hafi ver- ið erfitt um embættisstörf sín sökum þess, að hann hafi hald- ið því fram, að Ríkisherinn ætti að standa ofan og utan við átök stjórnmálaflokka. Rússland-Ameríka London kl. 17 27/12. FÚ. Trianovsky, hinn nýskipaði sendiherra Sovétríkjanna í Bandaríkjunum, lagði af stað frá Moskva í dag áleiðis til Washington. Slysíð míkla í Frakklandi á aðfangadag. 180 manns fórust. Nú hafa borizt nokkuð nán- ari fregnir um hið ógurlega járnbrautarslys í Frakklandi á aðfangadaginn. Það er eitt- hvert hið mesta þessháttar slys, sem sögur fara af- Slysið varð á járnbrautarlest, sem var á ferð frá París, aðallega með jólagesti norður í land. Lestin var komin um 19 mílur frá borginni, og var mikil þoka á. Rann önnur lest aftan á hana, með svo miklu afli, að sex öft- ustu vagnarnir slengdust sam- an í eina kös. Um 180 manns biðu bana við áreksturinn, en um 300 særðust. Menn gera ráð fyrir því, að orsök slyssins hafi verið sú, að ljósmerki lestanna hafi misskilist, eða alls ekki sézt vegna þokunnar. London kl. 17 27/12. FÚ. Minningarathöfn var haldin í París fyrri hluta dags í dag, til minningar um þá, sem létu líf sitt í hinu mikla járnbraut- arslysi um helgina. Viðstaddir voru athöfnina forseti franska lýðveldisins og stjóm. Ræður voru haldnar af verkamálaráð- herranum og forseta jám- brautarfélagsins. Þrír fagrir sveigar voru lagðir á minnis- merki, sem reist hafði verið og tjaldað svörtu: einn frá stjórninni, einn frá flotamála- ráðherranum, og einn frá járn- brautarfélaginu. Rannsóknum á orsökum slyssins heldur enn áfram, og af vitnisburðum, sem þegar hafa verið fram bomir, er mjög erfitt að gera sér grein fyrir hvort að ljósmerki braut- arinnar voru í ólagi, eða hvort að þau hafa verið send um seinan. Vélamaður og kyndari Cherbourg lestarinnar, þeirrar, sem rakst á hina, voru teknir fastir eftir áreksturinn en voru látnir lausir í dag. Van der Lubbe biður ekki um líf. London kl. 17 27/12. FÚ. Hollenzki ræðismaðurinn í Berlín hefir nú lagt fram form- lega náðunarbeiðni fyrir van der Lubbe, og fer þess á leit, að refsing hans verði milduð. Einn örðugleikinn á því, að náðunarbeiðni þessi verði tekin til greina, liggur í því að slík beiðni á að koma frá sakbom- ingi sjálfum, en van der Lubbe hefir engar ráðstafanir gert til slíks. Jólaveðrið á Atlanzhafinu. Berlín kl. 11.45 27/12.FÚ. Mjög stormasamt hefir verið á norðan- og austanverðu At- lanzhafi nu um jólin. Við Ný- fundnaland fórst seglskip á að- fangadag, og drukknaði öll á- höfnin, 9 manns. í Suður-Af- ríku hafa einnig geysað óveður fyrir jólin, og hafa hvirfil- byljir valdið tjóni, aðallega ná- lægt Pretoria. Þar hafa 12 manns farizt af völdum óveð- urs. Erlendu skipbrotsmenn- irnir héldu jólin i Rvík. Kvedjuathöin vegna hinna látnu Þjóð- verja fór tram i dómkirkjunni 2. jóladag’ Svo einkennilega vildi til að , Þjóðverjunum, sem komust lífs skipshafnir af 3 útlendum tog- J af, er þeir ætluðu að bjarga urum, sem strandað höfðu hér J skipshöfnini af Margarete við land eða hlekkst á, voru . Clark. staddar hér í Reykjavík á jóla- \ I tilefni af þessu gekkst sjó- daginn. Voru það mennirnir af mannastofan, vetrarhjálpin o. togaranum Margarete Clai’k, fl. fyrir samkomu, sem haldin sem strandaði um daginn við var í Oddfellowhúsinu og hófst Skaptárós, skipshöfnin af ( kl. 8% á jóladagskvöldið. belgiska togaranum, er strand- Forsætisráðherra hélt þar aði við Reykjanestá og þeir af ræðu og var hún samstundis

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.