Nýja dagblaðið


Nýja dagblaðið - 28.12.1933, Qupperneq 4

Nýja dagblaðið - 28.12.1933, Qupperneq 4
4 N Ý J A DAGBLAÐIS Annáll. Skipaíregnii: Gullfoss er á leið til Kaupra.hafnar. frá Rvík. Goða- foss kom til Vestm.eyja um hádegi i gæi'. Brúarfoss er í Kaupm.höfn og fer þaðan 9. janúar. Dettifoss kom til Hull í fyrradag. Lagar- foss er í Kaupm.höfn. Selfoss er í Reykjavík. Frá höfninni. Sindri kom frá Englandi á aðfangadag jóla. Snorri goði og Gulltoppur á jóla- daginn. Belgaum og Tryggvi gamli fóru á veiðar á jóladaginn. Nýja danblaðið kostar 2 krónur yfir janúarmánuð. þeir, sem ger- ast kaupendur strax, fá það ó- keypis frá 15. þ. m. til 1. janúar, meðan upplagið endist. þar á meðal er margfalt jólablað og fylgiritið „Dvöl“, sem kemur út á sunnudögum. Silfurbrúökaup áttu í gær Sig- ríður Ólafsdóttir og Guðmundur Magnússon Freyjugötu 9. Leikhúsið. „Maður og kona“, út- | dráttur úr sögu Jóns Thoroddsen ‘ var leikinn á annan í jólum. Stóð í leikurinn í 414 tíma, svo flestum J mun hafa þótt heldur langt. Að- sókn var mikil, hvert sæti og stæði skipað. Verður síðar nánar sagt frá leiknum. Hjónaefni. Á þorláksmessu opin- beruðu trúlofun sína frk. þorbjörg Guðlaugsdóttir og Páll Wium mál- ari, bæði til heimilis á Bjargar- stíg 7. — Á aðfangadag jóla birtu trúlofun sína ungfrú Emma Samúels, Laugavegi 53, og Sig- urður Möller, Tjamargötu 3. — Á aðfangadaginn opinberuðu trú- lofun sína, ungfrú Sigríður Jóns- dóttir, Sigmundssonar gulismiðs og Ilalldór Halldórsson frá Hnifs- dal. Hjúskapur. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af sr. Fr. Hallgrímssyni ungfrú Guðbjörg Gisladóttir frá Nýjabæ í þykkva- bæ og Marís Kr. Arason Ingólfs- stræti 21. Skemmtun heldur Félag ungra Framsóknarmann% i Oddfellow- húsinu föstudaginn 29. des. Til skemmtunar verður, auk dansins, einsöngur: ungfrú María Markan, danssýning: frk. Helene Jónsson og Eig. Carlsen o. fl. Hin ágæta spánska hljómsveit spilar, og verður dansað til kl. 4. Skemmti- nefndin segir að þetta verði mjög fjölmenn og ánægjuleg samkoma. Farþegar með e.s. Goðofoss frá j Reykjavík til Kaupm.hafnar á 2. í jólum: Helga Björnsdóttir, Anna þorláksson, Ásta Andrésdóttir, Ar- ent Claessen og frú, Sigfús Blön- dahl, þorv. J. Blöndahl, Jóna þórðardóttir, Jóhann þorkelsson, Olsen, Alm, Pétur Johnson, Om Johnson, Pétur Benediktsson og frú, þorsteinn Gislason og frú, Anna Sigurðardóttir, Hally Hans- en og 4 þýzkir sjómenn. Jólatrésskemmtun fyrir börn verður eins og áður hefir verið auglýst hér i blaðinu, i Oddfel- lowhúsinu 2. í nýári. Skemmtun- in byrjar kl. 5 fyrir bömin og stendur til kl. 10 og kostar með veitingum kr. 2.75 fyrir hvert barn. Fyrir íullorðna byrjar dan-s inn kl. 10 og stendur til kl. 3. Fyrir fuilorðna kosta aðgöngu- miðarnir 2 krónur. Félag róttækra háskólastúdenta heldur fund í Oddfellowhöllinni uppi kl. , i kvöld. Pálmi Hann- esson rektor talar: Ýmsar kenn- ingar um uppruna lifsins. — Kaffidrykkja. Farþegar með e.s. Guilfossi 26. þ. m. til Kaupm.haínar og Petcr- head: Frú Elín Guðmundsson, Frk. Elín Guðmundsson, Sigm. Sigmundsson, 4 sjómenn aí botn- vörpungnum „Margaret Clark“, Mr. J. M. March, Mr. S. Bodham, Mr. Harold Iniroff, 15 sjómenn frá s.s. „Jan Valders" og 8 sjómenn irá b.v. „Margaret Clark". Nýja símaskráin. Nú er verið að bera símaskrána um bæinn, og eru aðalbreytingarnar á henni frá þvi sem áður var, þessar: Sérstök atvinnu- og viðskiptaskrá er nú í íyrsta sinni tekin upp i síma- skrána, en í henni er nöfnum símanotenda, sem reka atvinnu- eða verzlunarfyrirtæki, raðað í staírófsröð í þann atvinnu- eða vörutegundaflokk, sem þeir óska, svo sem tíðkast í erlendum síma- skrám. Til hægðarauka framvegis, er sérstakt eyðublað fyrir tilkynn- ingar í atvinnuskrána. þá er einn- ig sú nýbreytni, að í bókinni er sérstök skrá yfir ,bæi í sveitum, sem hafa síma, þ. e. a. s. sima- notendur í sveitum og jaínframt tilgreind sú landsímastöð, sem hver bær er í símasambandi við. Viðbótarskrá yfir nýja símanot- endur verður framvegis prentuð úrsfjórðungslega og send símanot- endum þannig útbúin, að auðvelt sé að líma hana inn í skrána. Víni stolið. Um jólin var brot- izt inn i víngeymsluna á e.s. Goðafoss og stolið þar 22 flöskum af sterkum vínum og 8 flöskum af likör. Málið er í rannsókn. Bæjarstjórnarkosningar á Akur- eyri eru ákveðnar 16. jan. þrír listar hafa nú verið lagðir fram, auk lista Alþýðuflokksins, er áð- ur er birtur. Fimm efstu menn á lista Verklýðsfélaganna eru: Nýja dagbldðið birtir smáauglýsingai' fyrir eina krónu. — Mörgum auglýsendum ber saman um að mestan árang- ur hafa auglýsingar þeirra borið, sem birzt hafa í Nýja dagbl. Steingiimur Aðaisteinsson verka- maður, þorsteinn þorsteinsson verkamaður, Elísabet Eiriksdóttir kennslukona, Magnús Gíslason múrari og Sigþór Jóhannesson raf- vélamaður. Á lista Sjálfstæðis- ílokksins eru þessir fimm efstir: Sigurður Hlíður dýi'alæknir, Stef- án Jónasson útgerðarmaður, Jón Guðmundsson yfirsmiður, Axel Kristjánsson kaupmaður og Gunnar Schram simstjóri. Á D- lista eru þessir fimm efstir: Jón Sveinsson bæjarstjói'i, Jón Guð- laugsson bókari, Helgi Pálsson út- gerðarmaður, Valdimar Steffensen læknir og Jón Kristjánsson út- gerðarmaður. Enn er von á ein- um eða tveimur listum. — FU. Ólundinn er enn Sigurlaugur Sigfinnsson í Hafnarfirði, sem hvarf þann 23. þ. m. Hefir verið slætt á höfninni og leitað með- fram ströndinni, en ekkert fund- izt nema sjórekin húfa, sem kunn- ugir fullyrða að Sigurlaugur hafi átt. Leitinni var haldið áfram í gær. Sigurlaugur var maður um þrítugt, og bjó við Garðaveg í Hafnarfirði. — FÚ. Kirkjan á Siglufirði. Á jóladag var rafstraumi veitt í fyi'sta sinn í rafofna kirkjunnar á Siglufirði. Ofnarnir eru undir endilöngum fótskemli hjá hverjum bekk, og auk þess eru 4 veggofnar í kór. Hitunartækin eru 40 þús. króna gjöf frá styrktamefnd kirkjunnar, en í þeirri nefnd eru allmargar bæjarkonur. Vatnsorkuvél bæjar- ins er notuð til hitunar á ofnun- um, á meðan ljósaþörfin er minnst í bænum. Tækin þurfa 40—50 kílóvött, og verður þá sæmi- lega lilýtt eftir 2 tíma. Ásgeir Bjarnason rafíræðingur kom tækj- unum fyrir. — FÚ. Glæpur að skjóta á þjóf? Hinn opinberi ákærandi i Danmörku hefir ákveðið að höfða skuli mál fyrir manndráp á hendur Hansen veitingamanni, þeim er fyrir skemmstu skaut á innl)ix)tsþjóf, svo hann hlaut bana aí sárun- um. — FÚ, Eldsvoði. Mikill bruni varð í Kaupmannahöfn í fyrrinótt. Eldur kom upp í stórhýsi á horninu á Nörrebrogade og Nörregade, og brann húsið að allmiklu leyti áð- ui' en ráðið varð við eldinn. — FÚ. 1 I Tveir konungar á ferð í París. Berlin kl. 11.45 27/12. FÚ. Franska blaðið, Le Matin, skýrir frá því, að í byrjun janúarmánaðar sé von á kon- ungshjónunum í Jugo-Slavíu í lieimsókn til Parísar. Sömu- leiðis mun konungur Rúmeníu vera væntanlegur til Parísar mjög bráðlega. Verður íaríð að rækta korn í Reykholtsdal? 1. des. sl. stofnuðu tíu Reyk- dælir kornræktarfélag, er nefn- ist Kornræktin í Reykholti. Framkvæmdanefnd var kosin og skipa hana bændurnir Jón Hannesson Deildartungu, Þor- gils Guðmundsson og Þórir Steinþórsson, Reykholti. Á- kvörðun um félagsstofnun þessa hafði raunverulega ver- ið tekin sl. haust, og var þá ákveðið land til ræktunar í Reykholti. En áður hafði Klemens Kristjánsson korn- ræktarmaður á Sámsstöðum verið fenginn til að koma og athuga landið og gefa ýmissar j leiðbeiningar viðvíkjandi fram- j kvæmd verksins. Kornræktin ! hefir allt að 15 ha. land til umráða, «g var tilætlunin sú, að það yrði að mestu brotið og unnið í haust, en eigi vannst tími til að vinna meira en ca. 4 ha. Landið hefir þegar ver- ið mælt, og strax og við verð- ur komið, verður byrjað á að gera þau mannvirki, sem nauð- synleg eru í sambandi við kornræktina. Sjóróðrar á Suðurnesjum. Garðbúar hafa róið í allt haust á opnum vélbátum með þorskanet og ýsulóðir og hefir fiskast óvenjulega vel framan- , af jólaföstunni. En gæftaleysi i hefir hamlað sjósókn síðan í I miðjum mánuðinum. Og eiga ; sumir net úti ennþá, sem þeir hafa ekki getað vitjað um síðan 15. þ. m. Eru menn nú orðnir hræddir um að sjá þau ekki aftur vegna ágangs tog- § Ódýrn %i augiýsingarnar. Hús og aðrar fasteignir til sölu. Hús tekin í umboðssölu. Skrifstofan í Aðalstræti 9 B opin kl. 11—12 og 5—7. Sími 4180 og 8518 (heima). Helgi Sveinsson. ÞURFISKUR sérlega ódýr, fæst í vættar- knippum hjá Hafliða Baldvins- syni Hverfisgötu 123. Sími 1456 (tvær línur). Ilmvötn, hárvötn og hrein- lætisvörur fjölbreytt úrval hjá Kaupfélagi Reykjavíkur. Sími 1245. Ef yður vantar góð og ódýr húsgögn, þá munið Trésmiðj- una á Frakkastíg 10, sími 4378. Tapiið-Fundið 25 krónur töpuðust í gær niður við fiskskúrana. Finn- andi skili á afgr. Nýja dag- blaðsins. Húsnæði Einhleypur maður óskar eft- ir litlu herbergi helzt í mið- 0bænum. A. v. á. Tilkynningar „Verkstæðið Brýnsla* Ilverfisgötu 4 (hús Garðars Gíslasonar) Brýnir öll eggjám. Sími 1987. Kennsla Kennum að taka mál og sníða kjóla. Einnig að flosa, stoppa og bródera á algengar saumavélar. ólína og Björg Hellusund 3 (uppi). ÖKUKENN SLA. Steingr. Gunnarsson Bergst. stræti 65, heima. Sími 3973 eða á Litlu bílastöðinni. Sími 1380. ara, sem sífellt eru að veiðum uppundir landsteinum. RAUÐA HÚSIÐ. hina veggina. Hann var of langur til þess að geta gengið uppréttur þarna inni. — Til þess er reyndar ekki nema ein ástæða, sem sé sú, að þá þyrftum við ekki að hafa fyrir því að leita að honum annars staðar. Mark hefir þó ekki látið ykkur fara í krokket á bawlingvellinum ? Hann benti á krokketáhöldin. — Hér áður fyrri hélt hann því alls ekki að okk- ur, að fara í krokket, en núna fyrst í sumar fór hann að komast á lag með það. Og satt að segja er þetta eini staðurinn, þar sem hægt er að fara í krokket. Hvað mig snertir hefi ég skömm á því. Mark var ekki sérlega góður í bowling, auðvitað, en honum fannst það eitthvað mikið í munni að kalla þetta bowlingvöllinn og demba því á kunn- ingja sína. Antony hló. Hann fór að leita í vösum sínum að pípunni og tóbakinu, en allt í einu snarhætti hann og stóð graf- kyrr og hlustaði. Hann lagði undir flatt og hélt fingrinum upp að eyranu til þess að gera Bill varan við. — Hvað er þetta? hvíslaði Bill. Antony benti honum að hafa hljótt um sig og hélt áfram að hlusta. Hann kraup með gætni niður og hlustaði enn. Ilann hleraði við gólfið. Svo stóð hann á fætur og dustaði í skyndi af sér rykið, gekk að Bill og hvíslaði að honum. — Fótatak. Einhver kemur. Þegar ég byrja að spjalla verður þú að talta undir. Bill kinkaði kolli. Antony gaf honum vænt oln- bogaskot í bakið til þess að hressa hann við og gekk svo föstum skrefum að skápnum, þar sem leikföngin voru geymd, og blístraði hástöfum. Hann tók á- höldin út úr skápnum, missti eitt á gólfið, svo að mikill hávaði varð af- „Hvert í logandi“, segði hann og svo hélt hann áfram: — Heyrðu Bill. Ég held ég nenni ekki að fara í bowling núna. — Því varstu þá að tala um það muldraði Bill. Antony leit til hans með örvandi brosi. — Ja, ég vildi það þegar ég sagði það, en nú vil ég það ekki lengur. — Hvað v i 11 u þá ? — Spjalla. — Áfram þá! sagði Bill ákafur. — Það er bekkur þarna úti á grasblettinum — ég leit svo til. Við skulum taka áhöldin með, ef ske kynni að við vildum fara í leik. Þeir gengu þvert yfir völlinn. Antony draslaði með sér áhöld- unum og náði nú í pípuna. — Hefir þú eldspýtur? sagði hann hátt. Þegar hann beygði sig yfir eldspýtuna hvíslaði hann: Það er einhver á hleri. Þú skalt látast trúa á skýringar Cayleys. Svo hélt hann áfram í venjulegum róm: — Hvaða fjandans eldspýtur ertu með Bill. Svo kveikti hann á annari til. Þeir gengu nú þangað sem bekkurinn var og settust. — Yndislegt veður í kvöld! sagði Antony. — Dásamlegt. — Gaman væri að vita hvar Mark er niður kom- inn. — Já, það er laglegt allt saman. — Þú ert altsvo á sama máli og Caylay — að þetta hafi verið slys. — Já. Sjáðu til, ég þekkti Mark. — Hm. Antony tók upp penna og pappír og fór að skrifa á kné sér, en hélt þó áfram að tala. Hann hélt þeirri skoðun fram, að Mark hefði skotið bróður sinn í reiðikasti, og að Cayley hefði vitað þetta, eða a. m. k. getið sér þess til, og reynt að gefa frænda sínum undanfa-íri að strjúka burt. — Og eins og þú skilur, þá álít ég að hann hafi breytt alveg rétt. Ég held að við hefðum farið al- veg eins að í hans sporum. Auðvitað mun ég ekki

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.