Nýja dagblaðið - 31.12.1933, Blaðsíða 3

Nýja dagblaðið - 31.12.1933, Blaðsíða 3
* * 3 A DAOB LABIB 3 ósfum dí& öllum corum rn&sfiftamönnum 09 þöffum fyrir þa& gamla. E>ibtcefjat>er3lun rtftsins Atyinnuvegir og viðskipti á árinu 1933. Eftir Guðlang Bósinkrauz. Þegar horft er til baka yfir liðna árið, fer ekki hjá því, að manni íimiist, að bjartara hafi verið yfir því en næsta ári á undan. Við nánari athugun kemur líka í ljós, að svo hefir verið yfirleitt. Atvinna hefir verið meiri og vöruverð hækk- andi. Þessi staðreynd gefur okkur góðar vonir, bjartsýni og framfarahug, þrátt fyrir það þótt viðskiptajöfnuðurinn sé ekki eins góður og við hefði mátt búast. Skal hér nú nokk- uð drepið á helztu atriði í at- vinnulífi voru og verzlun á liðna árinu. Tiðai’farið. Tíð var góð um land allt, spretta var ágæt alstaðar og nýting góð á heyjum að Suður- landi og Borgarfirði undan- teknum. Á Suðurlandi var úr- koma meiri en á undanfömum árum og rigndi sumstaðar meira en áður eru dæmi til hér á landi. Voru s. a. s. stöðugir óþurrkar á Suðurlandi. Eigi gat heitið að snjór félli á jörðu allt haustið, fram að nýári, gránaði aðeins snöggvast, en tók fljótlega upp aftur, og mun það vera éinsdæmi að svo sé. Blóm sprungu út um jól og íólk fór jafnvel á grasafjall. Hey voru yfirleitt mikil og góð og litlu búið að eyða af þeim um nýár, þar eð hestar og sauðfé víðasthvar hefir gengið álgjörlega úti fram að nýári. Bústofninn. Búpeningi hefir alltaf verið að fjölga hér á landi síðustu 3 árin. Seinustu tölur hagstof- Unnar eru fyrir árið 1932. 1 fardögum það ár var sauðfé alls á landinu 706.415, naut- gripir 29.925, hross 46,318, gfeitfé 2644 og hænsn 54.694. Sérstaklega hefir sauðfé og hænsnum fjölgað mikið. Mörg stór hænsnabú hafa risið upp í grennd við Reykjavík og í grennd við þorp og bæi víða u'm land. 1 fyrrahaust var fleira fé sett á en undanfarið, sökum þess, hvað kjötverðið var lágt, og hinsvegar mikil hey. Á þessu ári mun því bústofn landsmanna hafa verið mun meiri en hann hefir nokkuru sinni fyrr verið. Siáturfé var því með flesta móti í haust. Hjá Sláturfélagi Suðurlands var t. d. slátrað hér í Reykjavík, Hafnarfirði og Akranesi 50 þúsundum fjár, og er það mun meira en nokkuru sinni fyrr. Fé var þó heldur rýrt. Var veikindum kennt um, því óvenjumiklir kvillar voru í fé á síðastliðnu ári, sérstak- lega illkynjuð ormaveiki, er mest bar á í landléttari sveit- um, þar sem fé gengur mikið úti og lítið er gefið. Síðastliðið haust mun hafa verið sett álíka margt á og í fyrrahaust. Garðyrkjan. Jarðeplauppskeran var miklu meiri í ár en á undanförnum árum. En kartöflusýki gerði mjög vart við sig á Suðurlandi og í Borgarfirði, svo mikill hluti af uppskerunni í þessum héruðum varð ónýtur. Sérstak- lega bar mikið á sýkinni á Akranesi, Eyrarbakka og Stokkseyi'i. Reynt var að verj- ast kartöflusýkinni með því að sprauta með blásteinsupplausn og dufti, og varð það töluvert til bóta, ef það var gert nógu snemma. Verðið á kartöflum var frá 14—18 kr. tunnan í heildsölu. Sennilegt er talið að framleitt sé nú svo mikið af kartöflum hér á landi, að nægi- legt sé með sömu neyzlu og á undanförnum árum hefir verið. Mjólkurbúin. Framleiðsla mjólkurbúanna var með minnsta móti. Smjör varð að flytja inn síðari hluta sumars og í haust. Lögin, sem samþykkt voru á síðasta reglu- legu þingi, um að blanda smjör- líkið með ísl. smjöri í ákveðn- um hlutf.llum (5%), gátu ekki komið til framkvæmda, sökum smjörskorts. Heildsöluverð rjómabússmjörs hefir verið kr. 3,30 pr. kg. Sjávarútvegurinn. Samkvæmt skýrzlu Fiskifé- lagsins hefir fiskaflinn í ár verið mun meiri en í fyrra. 1. des. 1932 var fiskaflinn 56 þús. smálestir en á sama tíma í ár er hann 68.440 smálestir af þurrum fiski. Aflinn er því 1. des. í ár 12.440 smálestum meiri en í fyrra. Síldveiðarnar. Síldveiðamar gengu ágæt- lega framan af sumri, en síld- in hvarf snögglega síðast í á- gústmánuði. Síldaraflinn, talinn í tunnum, var í ár sem hér segir: Söltuð síld............. 71.820 Matjesíld.............. 109.728 Kryddsíld............... 21.166 Sykursöltuð síld . . .. 3.234 Sérverkuð............... 13.098 Samtals 219.046 I fyrra var öll sérverkaða (þar í innifalin matjesíld, sykursöltuð og kryddsíld) og saltaða síldin 247.053 tn. — Bræðslusíldin er aftur á móti miklu meiri í ár en í fyrra. 1932 voru 525.752 hl. látnir í bræðslu, en í ár 758.198 hl. eða 226.446 hl. meira brætt í ár en í fyrra, síldarmjölið og olían hefir og verið meiri. Skip, sem gengu til veiða. í ársbyrjun voru 38 togarar en 2 fórust á árinu, Skúli Fó- geti í fyrravetur og Geysir í haust. Þá mánuði, sem flest skip voru á veiðum hér, voru 37 togarar (22 frá Reykjavík, 11 úr Hafnarfirði, 2 frá Pat- reksfirði, 1 frá ísafirði og 1 frá Önundarfirði), 22 línuveið- arar, 213 vélbátar yfir 12 tonn, 264 vélbátar undir 12 tonn, 406 opnir vélbátar (trillubát- ar) og 60 róðrarbátar. Skip- verjar á öllum þessum flota voru á sama tíma 6615. Iðnaðui'. Á undanförnum árum hefir iðnaður færzt allmikið í vöxt hér á landi. Þau iðnfyrirtæki sem áður hafa verið starfrækt, hafa verið rekin með svipuð- um hætti í ár og undanfarið, en flest nokkuð verið aukin. Ríkið keypti Pauls-síldarverk- smiðjuna á Siglufirði og starf- rækti hana, (en hún var ekki starfrækt í fyrra). Smjörlíkis- verksmiðjurnar hafa heldur aukið framleiðslu sína og mun hér nú vera framleitt nægilega miðið smjörlíki til neyzlu í landinu. Sjóklæðagerðin hefir verið aukin. Vinnufata- og veiðarfæragerðir hafa verið settar á laggirnar og virðast ganga ágætlega. Mj ólkurniður- suðuverksmiðja Kaupfél. Borg- firðinga hefir heldur aukið framleiðslu sína. Súkkulaði- verksmiðjan Freyja hefir og töluvert fært út kvíarnar og sömuleiðis efnagerðirnar. Ull- arverksmiðjurnar hafa unnið úr meiri ull í ár en undanfar- ið. Verið er að byggja við og auka ullarverksmiðjuna Gefj- un á Akureyri. Vélarnar hafa verið bættar og er verið að koma fyrir ullarþvottavélum og kamgarnsvélum. Getur þá verksmiðjan aukið framleiðslu sína að miklum mun, og fram- leitt nýjar og miklu betri og áferðarfallegri dúka en hingað til hefir verið hægt. Gæru- verksmiðjan á Akureyri hefir verið rekin með svipuðu fyrir- komulagi og í fyrra, og í ár hefir garnaverksmiðjan í Rvík verið starfrækt. Þenna tiltölulega hraða vöxt iðnaðarins má sjálfsagt mikið þakka innflutningshöftunum. 1 Hinsvegar má og sjálfsagt nokkuð þakka bættri fram- leiðslu, sem fengizt hefir við meiri þekkingu og reynslu. i ♦ Verzlun og viðskipti. Utlit er fyrir að viðskipta- jöfnuðurixm, þrátt fyrir góð- æri, mikla framleiðslu og hækk- andi vöruverð, muni verða mjög óhagstæður, og er þar um að kenna miklum inn- flutningi á árinu. Verðmæti innfluttrar vöru á árinu til 1. ' desember var kr. 41.264.000. Á sama tíma í fyrra var verð- j mæti innfluttrar vöru krónur ! 32.052.431. Innflutningurinn er l þannig 9.212.569 kr. meiri í ár | en í fyrra. Gleðilegt nýár og þökk fyrir viðskiítin á liðna árinu. Kjötbúð Reykjavíkur Vesturgötu 16.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.