Nýja dagblaðið - 13.01.1934, Qupperneq 1
NYJA DAGBIAÐIÐ
2. ár.
Reykjavík, laugardaginn 13. janúar 1934.
10. blað
ÍDAG
Sólaruppkoma kl. 10.04.
Sólarlag kl. 3.09.
Flóð árdegis kl. 3.25.
Flóð síðd. kl. 3.55.
Veðurspá: Minnkandi norðanótt.
Úrkomulaust. Kaldara.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl. 3.20
—9.50
Söfii, skriístofur o. fL:
Landsbókasafnið opið kl. 1-7 og 8-10
þjóðskjalasafnið ....... opið 1-4
Alþýðubókasafnið.......opið 10-10
Landsbankinn .... opinn kl. 10-1
Búnaðarbankinn .. opinn kl. 10-1
Útvegsbankinn .... opinn kl. 10-1
Útibú Landsbankans á Klappar-
stíg .................. opið 2-7
Sparisjóður Rvíkur og nágrennis
opinn 10-12 og 5-7%
Pósthúsið: Bréíapóstst. .. opin 10-6
Bögglapóststofan .... opin 10-5
Landsíminn ............ opinn 8-9
Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6
Búnaðaríélagið .. opið 10-12 og 1-4
Fiskifél...Skrifst.t. 10-12 og 1-5
Samband ísl. samvinnufélaga
opið kl. 9-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins opin 9-12 og 1-4
Eimskipafélag ísland .... opið 9-4
Sölusamb. ísl. fiskframleiðenda
opið 10-12 og 1-4
Stjórnarróðsskrifstofurnar
opnar 10-12 og 1-4
Skrifst. bæjarins .... opnar 10-12
Skrifst. lögreglustj. opin 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns opin 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra opin 10-12 og 1-4
Tryggingarstofnanir ríkisins
opnar kl. 10-12 og 1-5
Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-6
Lögregluvarðstofan
opin allan sólarhringinn.
Baðhús lleykjavíkur .... opið 8-8
Helmsóknartimi sjúkrahúsa:
Landsspítalinn ............ kl. 3-4
Landakotsspítalinn ........... 3-5
Laugarnesspítali ...... kl. 12%-2
Vífilstaðahælið 12y2-iy2 og 3y2-4y2
Kleppur ................... kl. 1-5
Fæðingarheimilið, Eiríksgötu 37,
1-3 og 8-9
Sólheimar ................. kl. 3-5
Næturvörður í Laugavegsapóteki
og Ingólfsapóteki.
Næturlæknir: Jón Noxdand
Laugav. 17. Sími 4348.
Skemmtanir og samkomur:
Nýja Bíó: Húsið á öðrum endan-
um kl. 9.
Gamla Bíó: Útvarpskvöldið mikla,
amerísk mynd, kl. 9.
66 nýja kaupendur
fékk Nýja dagblaðið í gær. - Innan
skamms verður það útbreiddasta og
víðlesnasta blað landsins.
Útbreiðsla Nýja dagblaðsins
hefir gengið mjög greiðlega
frá upphafi og er nú þegar
orðin miklu meiri en nokkur
maður hafði búizt við áður en
útgáfa blaðsins hófst. Blaðið
hefir nú kaupendur, fleiri og
færri, í öllum héröðum lands-
ins, en sérstaklega er það út-
breitt í Reykjavík og ná-
grannaþorpum hennar. örust
hefir þó útbreiðslan orðið síðan
um áramót. Er það meðal ann-
ars af því tvennu, að tímarit-
ið „Dvöl“, sem kemur út á
hverjum sunnudegi og áskrif-
endur fá ókeypis, hefir þegar
náð miklum vinsældum, og svo
af hinu, að blaðið hefir, að al-
manna dómi, rætt bæjarmálin
miklu ítarlegar og af meiri
vandvirlmi en Reykvíkingar
hafa áður átt að venjast í
gömlu dagblöðunum. Auk þess
er svipur blaðsins, niðurskipun
efnis, fjölbreytni og ritháttur
með meira nútíma sniði en
áður hefir þekkst í íslenzkum
blöðum.
1 gær gerðust 66 menn á-
skrifendur að blaðinu.
Blaðið þakkar hinar góðu
viðtökur almennings og mun
gera allt sitt að vera þeirra
verðugt. Enda eru því meiri
möguleikar til að gera blaðið
vel og glæsilega úr garði, sem
útbreiðslan er meiri.
r
Utvarpsumræðurnar
sem Framsóknarflokkurinn hefir genffizt
fyrir, um bæjarmál Reykjavíkur, hefjast á
mánudagskvöld og enda á miðvikudagskvöld.
Dagskrá útvarpalns:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
Iindurtekning frétta o. fl. 18,45
Bamatími (Bjanii Bjai’nason
kennari). 19.10 Veðurfi’egnir. 19,20
Tilkynningai’. 19,25 Tónleikar (Út-
vai’pstríóið). 19,50 Tilkynningar.
20,00 Klukkusláttur. Fréttir. 20,30
Leiki'it: „Bi’úðuheimili" Ibsens
(Soffía Guðlaugsdóttir, Gestur
Pálsson, Hjörleifur Hjói’leifsson,
Nína Jónsdóttir, Tómas Hallgrims-
son), 22,00 Danslög til ki. 24,00.
Framsóltnarfélögin í Reykja-
vík gengust fyrir því í fyrra-
vetur, að hafðar væru um-
ræður í útvarpið um bæjarmál
Reykjavíkur. Ihaldsflokkurinn
var mjög á móti því, og sagði
Jón Þorláksson, að hann væri
mótfallinn því að ræða mál-
efni „einstakra hreppsfélaga“
í útvarpið fyrir öllum lands-
lýð. Fyrir atbeina Framsóknar-
manna er þetta þó orðin sið-
venja, að ræða bæði landsmál
og bæjarmál Reykjavíkur í út-
varpið. Má það og telja nauð-
syn, þar sem ekkert fundar-
hús er hér til, þar sem allir
I þeir, er óska að hlusta á um-
ræður um þessi mál, geta rúm-
ast í, og útifundir ómöguleg-
ir, bæði sökum veðráttu og
háreysti, er hópar óróaseggja
gera á slíkum fundum, þegar
þeir þola ekki að hlusta á rök.
Fulltrúaráð Framsóknarfélag-
anna í Reykjavík gekkst einn-
ig fyrir því nú, að umræður
um bæjarmál færu fram í út-
varpið, fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar. Ritaði stjórn
fulltrúaráðs Framsóknarfélag-
anna í Reykjavík hinum flokk-
unum bréf strax þegar listi
flokksins var ákveðinn, og
óskaði eftir, að þeir tækju þátt
í útvarpsumræðum þessum.
Ákveðið er nú, að umræður
þessar fari fram næstkomandi
mánudag, þriðjudag og mið-
vikudag. Umræðurnar byrja
j kl. 8l/2 og verður ræðutími
hvers flokks 35 mínútur.
Fyi-sta kvöldið verður ein 35
mínútna ræða frá hverjum
flokki. Annað kvöldið 35 mín-
útur, tvískipt og ræður hver
flokkur hvernig hann skiftir
tímanum. Þriðja kvöldið verða
umferðir flokkanna tvær, 20
mínútur fyrri umferðin en 15
mín. sú síðari, en frjálst er
flokknum að skifta tíma þess-
j um eftir vild og láta eins
marga tala og þeir óska.
Röð flokkanna í umræðunum
verður þannig: 1. Alþýðu-
flokkurinn, 2. Framsóknarfl.,
3. þjóðernissinnar, 4. kommún-
istar og 5. Sjálfstæðisfl. —
Verður röðin eins öll kvöldin.
Æsíngar
í franska þinginu
út af Staviski-
hneykslinu.
Normandie kl. 0.05 12/1. FÚ.
Þegar franska þingið kom
saman í gær til þess að ræða
um Staviski fjársvikin í Bay-
onne, var meiri mannfjöldi við-
staddur á áheyrendasvölunum
en nokkru sinni í síðastliðin
4—5 ár, og fyrir utan þing-
húsið hafði einnig safnast sam-
an múgur manns. Forsetinn
hélt fyrstur ræðu, og lofaði
Frh. á 4. síðu.
Nazistar neita
að afhenda iík
van der Lubbe.
Kalundborg kl. 17 12/1. FÚ.
Þýzk yfirvöld hafa neitað
um, að lík van der Lubbe yrði
flutt úi’ landi og jarðað í Hol-
landi, en um það hafði beiðni
komið fram.
Brezkt orustuskíp
strandar.
Kalundborg kl. 17 12/1. FÚ.
Ofsarok var á Ermarsundi
síðdegis í gær, og varð skipið
„Mauritania", meðal margra
annara, er tafir hlutu af veðr-
inu. Eitt af stærstu orustu-
skipum brezka flotans, Nelson,
strandaði við Portsmouth í
veðrinu, og bar skipið svo
hátt á land upp að björgun er
talin óhugsandi. Nelson er eitt
af stærstu herskipum í heimi,
hljóp af stokkunum í sept.
1925. Áhöfn skipsins var 1300
manns.
Hverjir taka við völdum
í Noregi?
Hið nýkjörna Stórþing kom saman í fyrra-
dag. Vinstrimannaflokkurinn ræður úrslitum.
Við kosningarnar í haust
vann verkamannaflokkurinn
þar í landi stórfelldan sigur.
Hann jók þingmannatölu sína !
um 22 og fékk 69 þingsæti af j
150. Borgaralegu flokkarnir
hafa því alls 81 fulltrúa.
Verkamannaflokkurinn krafð
ist þess í fyrstu að taka við :
völdunum strax. En slíkt er ;
móti gildandi venju í norskum !
stjórnmálum. Stjórnarskifti ;
hafa aldrei farið fram í Nor- !
egi nema um þingtímann. Og i
Stórþingið kom ekki saman
fyrr en, þetta, 11. janúar.
Fyrst eftir kosningamar var
það þó af flestum talið sjálf-
sagt, að verkamannaflokkur-
inn tæki við völdunum, er þing
kæmi saman. Stjórnarflokkur-
inn einn, vinstrimenn, létu lít-
ið uppi um það, sögðu það eitt,
að hvað biði síns tíma. Þegar
frá leið og hugimir kyrrðust,
fóru líka að heyrast aðrar
raddir frá borgaraflokkunum
en að rétt væri að sleppa völd-
unum fyrirhafnarlaust til
verkamannaflokksins. Þá var
líka farið að gefa því gaum,
að verkamannafl. norski væri
mjög byltingasinnaður, stæði
nærri kommúnistum.
En nú er það stjórnarflokk-
urinn, vinstrimenn, sem allt
veltur á. Sá flokkur stendur
yzt til vinstri meðal borgara-
legu flokkar.na Þó að hann
biði nokkurt manntjón í kosn-
ingunum er hann enn nógu
mannsterkur í Stórþinginu til
að ráða þar úrslitum. Hann á
þar 23 fulltrúa. Öðru megin
við hann eru 59 fulltrúar
hægri flokkanna, vinstra meg-
in 69 fulltrúar verkamanna.
Með hægri flokkunum hefir
hann 81 fulltrúa af 150, með
verkamönnum 91,
í nóvember og framan af
desember var allmikið rætt uns
samsteypustjórn allra borgara-
legu flokkanna og sameiginlega
starfskrá og áætlún fyrir kjör-
tímabilið. Hægri flokkaniir
kenndu því um ósigurinn, að
þeir hefðu aðeins hugsað um
vörn en ekki sókn. Nú yrði
að hefja sóknina. Og markið
væri glöggt: Endurreisn hins
borgaralega þjóðfélags. Með
baráttu fyrir þeirri endurreisn
mundu borgaralegu flokkarnir
geta endurreist tiltrú sína.
Hinsvegar mundi þríggja ára
varnaraðstaða enn — auk þess
sem orðið var — verða bana-
biti allra borgaralegra stjórn-
mála og þjóðarinnar.
Vinstri flokkurinn á völina
og kvölina. Ef hann er nógu
sterkur og samstæður, er að-
staða hans góð. Og það skilur
hann. I blöðum sínum og alls-
staðar á opinberum vettvangi
setur hann dæmið, sem nú á
að leysa, fram á þennan veg:
Um 60% kjósendanna vill eins
mikla eða meiri gætni í þjóð-
félagsmálum og við vinstri-
menn, um 65% kjósendanna
vill eins miklar eða meiri um-
bætur, breytingar eða bylting-
ar en við. Einmitt við erum
bezti samnefnari þjóðarinnar,
og við eigum að fara með völd-
in áfram. Nú setjum við upp
okkar starfsskrá og stefnuskrá
fyrir kjörtímabilið. Og nú fáið
þið, bæði til hægri og vinstri,
að velja um, samþykkja eða
hafna. Vinstri menn tóku að
vísu til athugunar hugmynd-
ina um borgaralegu samsteypu-
stjórnina. En umræðurnar um
þá hugmynd eru nú með öllu
Framh. á 2. síðu.
Lesið kosningafrétt-
irnur fró Hafnarfirði
k 4. síðu.
/
lhaldið tapaði.