Nýja dagblaðið - 23.01.1934, Side 3

Nýja dagblaðið - 23.01.1934, Side 3
N B s NÝJA DAGBLAÐIÐ Utgefandi: „Blaðaútgáfan h.f.“ Ritstjóri: Dr. phil. ]Jorkell Jóhannesson. Ritstjórnarskrifstofur: Laugav. 10. Símar 4073 og 2353. Afgr. og auglýsingaskrifstofa: ■Vusturstrœti 12. Sími 2323. Framkv.stjóri: Vigfús Guðmundsson. Áskriftargj. kr. 2,00 á mánuði. fj í lausasölu 10 aura eint. ^^^^^rentsmiðjai^Acta^^^^J Hitler ræður! Ihaldið í Eeykjavík hefir tapað meirahlutafylginu meðal reykvískra kjósenda. Höfuðvíg- ið er fallið. Hinar gömlu að- ferðir duga ekki lengur: Ekki peningar, ekki bílar, ekki gjaf- ir til fátækra daginn fyrir kosningar, ekki álygar um ein- staka menn, ekki hótanir. Ekk- ert af þessu dugir, því að Thorsara- og sements-íhaldið er flokkur fortíðarinnar. Fram- tíðin heyrir til hinni nýju kyn- slóð. Þess vegna varð nú að grípa til nýrra ráða. Jón Þorláksson — þetta stóra Ég íslenzkrar eiginhagsmunastefnu, varð að kyssa á klæðafald hinnar „brúnu“ ófreskju, sem nú býr sig til atlögu gegn lýðræði og mannréttindum. Til mikils var að vinna og mikið var lagt í sölurnar. Jóni tókst að kljúfa óaldarliðið og nota annan hlut- ann sér til brautargengis. En til þess varð að taka nazista í öruggt sæti á listann. Það er þessi maður, fulltrúi nazistanna, sem nú hefir úr- slitavaldið í bæjarstjórn Reykjavíkur. Gegn atkvæðum hinna flokkanna getur íhaldið engu máli komið fram nema með hjálp þessa manns. Það getur ekki kosið Jón eða Garð- ar í borgarstjórastarfið nema með hans hjálp. Nazistinn get- ur með öðrum orðum ráðið því, hver verður borgarstjóri. Hann getur heimtað, ef honum sýnist, að t. d. Pétur Halldórs- son víki sæti og nazistinn, sem er varamaður, koml ixm í hans stað. Engri kröfu frá þessum manni má íhaldið neita, því að þá er það um leið búið að tapa meirahlutavaldinu í bæjar- stjórninni. Mikil eru þessi tíðindi. Af miklum meirahluta þjóðarinn- ar munu þau verða talin hörmuleg. Mikill hluti þeirra manna, sem vitandi vits (kosn- ingafénaður hér ekki meðtal- inn) greiddu íhaldinu atkvæði, mun iðrast þess, þegar stund- ir líða. Sambandið við nazistana hefir verið orðað svo, að í- haldið hafi gengið „brún- skjótt“ til kosninganna. Brún- skjótt mun það verða í augum alþjóðar héðan í frá. Baráttan gegn íhaldinu verður héðan í frá annað og meira en hún hef- ir áður verið. Það er baráttan gegn fascismanum á íslandi. Barátta fyrir frelsi og mann- réttindum, barátta fyrir hinu þúsund ára gamla Alþingi. í þeirri baráttu er Fram- Bæ j ar st j ór narkosningarnar og úrslit þeirra. Úrslit bæj arstj órnarkosning- arinnar hér í Reykjavík eru nú að vonum helzta umtalsefnið í bænum. Enda eru þau úrslit mjög eftirtektarverð. Nýir flokkar. Síðan bæ j arst j órnarkosning- ar fóru fram í janúar 1980, eru tveir flokkar fram komnir og tóku þátt í baráttunni nú. Það eru kommúnistar og naz- istar. En afstaða þeirra þriggja flokka, sem áður hafa tekið þátt í bæjarstjórnarkosn- ingum, er sú, að Alþýðuflokk- urinn hefir unnið á, en Fram- sóknarflokkurinn og Sjálfstæð- isflokkurinn tapað. E-listinn. Nazistalistinn fékk ekki nerna um 400 atkvæði. „Hreyf- ingin“ var svo sem kunnugt er klofin og fylgdi annar ai*mur- inn íhaldinu gamla. Þessari lágu atkvæðatölu nazista er því, af þeirri ástæðu og öðrum varlega treystandi. Ofbeldis- flokki þessum verður að gefa nánar gætur, og vinna að því að slíkur ófögnuður nái ekki meiri þroska en orðið er og mun þó þegar fullmikill reyn- ast eins og síðar verður að vikið. Kommúnlstar. Fylgi kommúnista er álíka, miðað við kjósendatölu, og það var við alþingiskosningarnar í sumar, þó ívið meira. Væntan- lega hefir nú útbreiðsla komm- únismans náð hámarki hér í höfuðstaðnum. I Vestmanna- eyjum, Hafnarfirði, Siglufirði og Akureyri liafa kommúnistar tapað fylgi síðan í sumar. Á Isafirði hafa þeir hinsvegar bætt við sig nokkru eins og hér. Þar hefir nú svo kynlega farið, að þeir hafa fengið oddamanninn í bæjarstjórn og hafa því aðstöðu til að ráða úr- slitum allra mála. Þannig hafa þeir nú fengið þá aðstöðu að hægt er að krefja þá ábyrgðar verka sinna, og efast fáir um, að dagar kommúnismans séu þar með taldir á ísafirði. Framsóknarílokkurinn 1930 og 1931. Framsóknarflokkurinn hefir tapað atkvæðum miðað við bæ j arstj órnarkosningarnar 1980 og alþingiskosningarnar 1931. Síðan hefir flokkurinn ekki fyr en nú tekið þátt í kosningum sóknarflokkurinn sjálfkjörinn til forystu. Sú barátta er hafin strax í dag. Ilún mun verða háð í hverju héraði og hverj- um bæ um endilangt ísland. Og þeirri baráttu skal aldrei linna fyrr en síðustu vígi of- beldisstefnunnar eru jöfnuð við jörðu og bókabrennuandinn frá Berlín upprættur úr ís- lenzku hugarfari. hér í bænum, þ. e. a. s. hvorki í aukakosningum í fyrrahaust né í alþingiskosningunum í sumar. Það hafði því nú nokk- uð á þriðja ár engin reynsla fengizt um almennt fylgi flokksins í bænum. Hitt var vitað, að starfandi áhugamönn- um í flokknum hefir farið fjölgandi í seinni tíð, en það er sá styrkurinn, sem hverjum stjórnmálaflokki er drýgstur til frambúðar. Framsóknarmonn beittu rðk- ræðum. » Það var almennt viðurkennt af mönnum úr öllum flokkifm nú fyrir kosninguna, að mála- f lutningur F ramsóknarmanna hefði borið langt af málaflutn- ingi hinna flokkanna, að blað flokksins hefði verið betur rit- að, að það hefði rætt málin af meiri alúð með meiri nákvæmni og rökum en önnur blöð. Það var líka ómótmælanlegt, að Framsólmarmenniniir voru einu ræðumennirnir, sem i út- varpsumræðunum héldu sig við málefnin og reyndu að gera áheyrendum ljóst, hvemig hög- um bæjarins væri háttað og hvaða úrræði væru fyrir hendi. Og það var Framsóknarflokk- urinn, sem gekkst fyrir því, nú eins og fyr, að almenningi gæfist kostur á að hlýða á slík- ar rökræður um málin. íhaldið notaði „gömlu að- ierðina“. Þannig hagar lýðræðisflokk- ur baráttu sinni. Þannig á að haga baráttunni í þvi landi og í þeim bæ, þar sem dómgreind- in ein og óþvinguð ákvörðun á að hafa úrskurðarvaldið. Á móti kom frá andstæðing- unum persónulegt níð og leynilegur slúðurburður um frambjóðendur Framsóknar- flokksins. Engin tilraun gerð til að rökræða málin. 130 bílar og sjúkravagnar á kjördegi! Kaffi og exporti útbýtt hjá fá- tæku fólki! Launaður atkvæða- smali í hverri götu. Á kjörstaðnum birtist hin ömurlega sýn, hin hruma sveit íhaldsins— hundruð og þús- undir af skoðanalausu fólki, sem er „þrýst til að koma". Þar fá daufir heyrn og haltir ganga. Þannig hefir íhaldið stjórnað hingað til í þessum bæ. „Einkaíyrirtækið". Engan þarf að furða á því, þegar allt er athugað, þó að at- kvæðamagn Framsóknarflokks- ins hafi nokkuð minnkað hér í Rvík. 1 Reykjavík hafa flokks- mennirnir verið nákunnugastir þeirri starfsemi, sem hinir brottviknu úr Framsóknar- flokknurn, hafa rekið í flokkn- um á síðasta kjörtímabili. Hér, þar sem þingið er háð, fylgdust menn bezt með því, hvernig samstarfinu við íhaldið var í raun og veru háttað. Þeir, sem hér hafa mest starfað fyrir flokkinn, vissu það og vita enn, að traustið á flokknum út á við þvarr vegna íhaldsáhrif- anna í flokknum. Menn voru að hætta að líta á Framsóknar- flokkinn, sem höfuðandstæðing íhaldsins og vígi hinnar frjáls- lyndu umbótastefnu. Nú hafa verið teknir npp aðrir starfs- hættir. En engan þarf að undra, þótt ekki hafi tekizt að vinna upp þriggja ára niður- lægingu á einum mánuði. — „Einkafyrirtæki" Jóns í Stóra- dal & Co. getur nú notið á- nægjunnar af því að hafa hrundið a. m. k. 1000 Revkvík- ingum — sem annars myndu nú fylgja Framsóknarflokkn- um — inn á aðrar og ógæfu- legri brautir. Eísti maður viss, íleiri kom- ast ekki að, sögðu andstæð- ingamir. Það er verðugur eftirleikur á viðskilnaði þessara manna við Framsóknarflokkinn, að þeir í blaði sínu „Framsókn", sem út kom á kjördaginn, gerðu það sem frekast var hægt til að spilla fyrir því, að listi Fram- sóknarmanna yrði kosinn. Mikil áhrif hefir það líka haft, að af öllum andstöðu- flokkunum var því óspart hald- ið fram, að Framsóknarflokk- urinn gæti ekki komið að nema einum manni, en sá maður væri viss. Það er vitað nú, að ýmsir, sem annars standa næst Framsóknarflokknum, kusu af þessari ástæðu með Alþýðu- flokknum. Þeir óttuðust, að at- kvæðin yrðu ónýt, og vildu þá frekar greiða Alþ.fl. atkvæði, ef það mætti verða til áð fella íhaldsmeirahlutann. íhaldið tapaði meirahlutan- um. Höfuðbaráttan í kosningun- um stóð um það, hvort íhaldið ætti að vera í meirahluta á- fram eða hvort það ætti að tapa þessum meirahluta. Og í því sambandi hafa orð- ið eftirtektarverð tíðindi. íhaldið er búið að missa meirahlutann meðal kjósend- anna. 1 bæj arstj órnarkosningunum 1980 hafði listi Sjálfstæðis- flokksins um 800 atkvæði i fram yfir atkvæðatölur hinna i listanna samanlagðar. Nú hefir listi Sjálfstæðis- flokksins um 200 atkvæðum minna en aðrir listar fengu samanlagt. Þrátt fyrir hinn gífurlega fjáraustur, sem tvímælalaust nemur mörgum tugum þús- unda, þrátt fyrir 130 bíla, þrátt fyrir öll þau ósærnilegu kosningameðöl, sem bæjarbúar vita vel hver voru — þrátt fyr- ir allt þetta — er hann nú loksins úr sögunni, meirihluti í- haldsflokksins meðal kjósend- anna — og sá meirihluti kem- ur aldrei aftur. Jarðarmen Jóns kaupmanns porlákssonar. En minnihluti kjósendanna hefir í þetta • sinn fengið meirahluta í bæjarstjóminni. Af þessum mixmahluta kjós- Framh. á 4. síðu. fylgirit Nýja dagblaðsins kemur út á hverjum sunnudegi, 16 síður á góðum pappír í fallegri lit- prentaðri kápu. Dvöl verður stærsta íslenzka tímaritið, um 800 blaðsíður á ári og að efni til það langfjölbreytt- asta og skemmtilegasta. Hún flytur smásögur eft- ir beztu höfunda, frásagnir og ritgerðir ýmiskonar, sagnafróðleik, skrítlur o. fl. Þeir, sem gerast nýir áskrifendur Nýja dagblaðs- ins nú, fá Dvöl frá byrjun og blaðið ókeypis til 1. febrúar. Notið tækifærið áður en upplagið þrýtur. Beztu dgarettumar í 20 stk. pökkum, wn kouta kr. 1.10 — Commander Westmlnater Virginia dgarettur Þessi ágæta cigarettutegund fæst ávalt í heildsölu hjá Tðbakseinkasölu rildsins Bðnar tii af London

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.