Nýja dagblaðið - 25.03.1934, Side 3

Nýja dagblaðið - 25.03.1934, Side 3
n t s a ðaoblaðib 3 I NÝJADAGBLAÐIÐ I Útgefandi: „Blaðaútgáfan h.f.“ | Ritatjóri: Dr. phil. porkell Jóhannesson. | Ritstjómarskrifstofur: Laugav. 10. Símar 4373 og 2353. | Afgr. og auglýsingaskrifstofa: § áusturstræti 12. Sími 2323. j Framkv.stjóri: Vigfús Guðmundsson. Áskriftargj. kr. 2,00 A mánuði. | í lausasölu 10 aura eint. Prentsmiðjan Acta. Kreppulánin Það er að myndast töluverð óánægja með framkvæmd kreppulaganna. Það var áður mikil og réttmæt óánægja með undirbúning niálsins. Tveir af þrem stjómendum sjóðsins, Jón Jónsson og Pétur Magnús- son hafa kosið sig sjálfa eða hvor annan, sem þingmenn og nefndarmenn í þingnefnd, inn í þetta vel launaða starf. Og allir þrír nefndarmennirnir unnu að því sem þingmenn, að halda völdunum yfir sjóðnum í höndum fámennrar stjórnar, sem segja má að hafi skapað sig sjálf. Þetta eru að vísu miklar og fordæmafáar misfellur í ís- lenzkri þingsögu. En það heyr- ir fortíðinni til. En það sem nú er efst uppi á baugi, er það, að ofan á erfiðleika kreppunnar bætast þeir erfið- leikar, að sumir bændur, sem ætla að fá bót á fjárhags- kjörum sínum, óttast, að þeim muni vegna ver í þeim viðskiptum, ef þeir haldi póli- tískri sannfæringu sinni. Þá grunar, að skoðanakúgun komi til greina við lánveitingarnar. Það má telja fjarstæðu, að nokkrir af hinum þrem stjóm-. endum sjóðsins láti sér konía til hugar, að beita hlutdrægni. Þeir eru ekki að fara með eig- in fé, heldur fé, sem þjóðin á. Allur tilgangur laganna bygg- ist á því, að stjóm sjóðsins sýni fyllsta réttlæti. Ef stjóm Kreppulánasjóðs léti velvild eða óvild til einstakra manna ráða gjörðum sínum, þá væri það afbrot sambærilegt við það, að dómari misnotaði stöðu sína og dæmdi ranga dóma í hagsmunaskyni fyrir sig eða sína nánustu. Kreppusjóðsstjórnin á vafa- laust ekki gkilið þá tor- tryggni í þessu efni, sem vart hefir orðið á ýmsum stöðuni á landinu. En hún má þó kenna sjálfri sér um, að slík skoðun er til í landinu. Er þar fyrst um að kenna hinni eigingjömu baráttu um völd í sjóðnum, seinlæti nefndarinnar að birta reglur þær, sem hún ætlar að fylgja í störfum sínum og loks pólitískum umbrotum og flokksmyndunarbraski stjóm- enda sjóðsins. Það er nauðsynlegt fyrir alla, sem leita til Kreppulána- sjóðs, að ganga að því verki með fullri djörfung. Hér er ekki um sveitarstyrk að ræða, heldur hallærishjálp. Hér á Skípulagning afurðasölunnar Framh. af 1. síðu. út. — Landinu er skipt í verð- jöfnunarhéröð. Ríkisstjómin skipar mjólkur- nefnd. Hún á að fylgjast með markaði fyrir mjólk og mjólk- urafurðir, gera tillögur um mjólkurskatt, sjá um að stjórn- ir mjólkurbúa og sambanda þeirra haldi lög og reglur, hafa eftirlit með verðskráningu mjólkur og mjólkurafurða, að sjá um að mjólkurbúasambönd- in innheimti skattinn. Nefndin hefir ennfremur umsjón með innflutningi á níjólk og mjólk- urafurðum (sjá lög um einka- sölu á mjólk og mjólkurafurð- um 10./2. 1933). Samkvæmt einkasölulögunum ber að borga skatt af innfluttri mjólk og mj ólkurafurðum til mjólkurbúa sambandsins. 2. Lög um sláturf járskatt 2Ö./6. 1933. Skattur greiðist af öllu slát- urfé, sem við skoðun reynist góð verzlunarvara. Hann er notaður til að greiða fyrir sölu sláturfjárafurða. — Skatturinn má mest vera 3 kr. fyrir stórgripi, 2 kr. fyrir svín og 1 kr. fyrir önnur sláturdýr. Innheimtu skattsins annast nefnd, sem lögum (lög 10/10. 1913) samkvæmt á að sjá um framkvæmd á kjötskoðun. Skattinn greiða eigendur slát- urhúsa, hann er lagður í sjóð. Ríkisstjómin skipar nefnd til að sjá um framkvæmd laganna, gera tillögur um skatthæðina og hvernig skattinum skuli var- ið, svo tilgangi laganna væri náð. III. Noregur. Bráðabirgða lagafyrirmæli til að greiða fyrir sölu landbúnað- arvara 6/6. 1930 og 24/6. 1931. Eftir lögunum skipar ríkis- stjómin viðskiptanefnd (Om- sætningsraad). Tilnefning l nefndina er ákveðin í lögunum. Tilgangurinn er með samvinnu að bæta verzlun með flesk, mjólk, smjör, ost og egg. Við- skiptanefnchn á að vinna að því að ná þessum tilgangi, og samkvæmt tillögum hennar get- ur konungur lagt skatt á flesk, mjólk og egg eitt ár í senn. Á lögum þessum eru svo byggð fyrirmæli landbúnaðarráðu- neytisins um skatt af þessum vörum og fleira sem snertir verzlun með þær. 1. Mjólk: Bréf frá landbúnaðarráðuneyt- inu 25/ 7. 1931. Mjólkurskatturinn er ákveð- inn 2 au. pr. kg. af kúa- og geitamjólk. Viðskiptanefndin (Omsætningsraadet) veitir skattinum móttöku. Þar sem mjólkurbúasambönd og mjólk- urframleiðendafélög, sem hafa með höndum mestan hluta mjólkurframleiðslu í hlutaðeig- andi héraði leggja til að skatt- leggja neyzlumjólk, skal það gert, og innheimtir viðkomandi félag skattinn. Skatturinn er notaður til verðuppbótar á mjólk, sem notuð er til vinnslu. 2. Flesk: Samkvæmt tillögum við- skiptanefndar er lagður skatt- ur á öll svín, sem seld eru eða afhent til slátrunar og skoðuð og stimpluð af dýralækni. Við- skiptanefndin veitir skattinum móttöku og ráðstafar honum samkvæmt 1. gr. laga 6. júní 1930 til að greiða fyrir sölu á fleski. Hefir viðskiptanefndin, eftir að Norges Flæskecentral 'tók til starfa, 19. apríl 1932, látið mestan hluta skattsins ganga til Flæskecentralen og má nota féð sem rekstursfé, til auglýsingastarfsemi, skipu- lagningar á markaði fyrir flesk, umbóta á fleskmeðferð o. fl. (Ársskýrsla viðskiptanefnd- ar 1931 og 1932). Á aðalfundi N. F. í apríl 1933 var ákveðið að starfsemin skyldi einnig ná til sölu á kjöti. (Bréf 30./12. 1933 og Instilling fra Komiteen til organisering av sauekjöt- omsætningen 1933). IV. Danmörk: Landbúnaðarframleiðsla í Sví- þjóð og Noregi gerir ekki bet- ur en fullnægja þörf lands- manna. I Danmörku aftur á móti er geysimikill útflutning- ur á landbúnaðarvörum. Um 80% af vérðmæti útflutnings í ekki að vera um dutlungaverk að ræða, né nokkra tegund af verzlun. Bændastéttin á að krefjast réttlætis og fullrar „hreinskilni“ í öllum skiptum Iíreppulánasjóðs. Það ætti engum að vera það ljósara en þeim þrem mönnum, sem hafa svo að segja útvalið sig sjálfa til að stjórna þess- ari hallærishjálp, að á þeim hvílir þung ábyrgð, fyrst og fremst um réttlæti og dreng- skap í skiptum við bænda- stéttina. Verk kreppunefndar verður fyrir opnum tjöldum. Fjöldi manna veit um hinar einstöku niðurstöður. Þar verður gerð- ur samanburður og gagnkröf- ur. Ef nefndin villist óviljandi, eins og komið getur fyrir alla menn, þá verður það opinbert mál. Þá koma til greina end- urbætur og leiðréttingar. Blöð- in eiga í þessu sem öðru að vera málsvarar almennings. Stjórn Kreppulánasjóðs hef- ir sýnt dirfsku í því hvernig hún skapaði sjálfa sig. Bænd- urriir eiga að sýna dirfsku 1 kröfum um réttláta og óhlut- dræga framkvæmd kreppulag- anna. Og takist það ekki í fyrsta leik, þá eru eftirmál til um alla mannlega hluti. Danmörku er fyrir landbúnað- arvörur. Ráðstafanir Dana til verð- hækkunar eru því miklu örð- ugri viðfangs en annarsstaðar á Norðurlöndum, þar sem þeir eiga svo mikið undir því, hvern. ig gengur með sölu á fram- leiðsluvörum þeirra til útlanda. 1. Flesk: Þegar Englendingar, sam- kvæmt Ottawasamningunum, sem undirskrifaðir voru 20/8. 1932, tóku að takmarka inn- flutning á landbúnaðarvörum frá útlöndum, kom þetta eink- um hart niður á fleskinnflutn- ingi Dana til Englands. Með samningunum milli Dana og Englendinga skyldi ákveðið fyrir stuttan tíma í senn, hve mikið Danir mættu flytja af fleski til Englands, en samtals skyldi það ekki vera undir 65% af fleskinnflutningi Englend- inga, var ekki nema eitt fyrir Dani að gera og það var að draga úr fleskframleiðslunni. Fleskverðið hækkaði stórkost- lega í Englandi. Þegar verðið var lægst í Englandi fengu Danir 50—60 au. fyrir kg. af fleski, en nú fá þeir kr. 1,50— 1,60 fyrir kg. Aftur á móti er fleskverðið í Danmörku nú ekki nema um 60 au. fyrir kg. fyrir það, sem notað er í land- inu. Nú vilja auðvitað allir selja flesk til útflutnings. En til þess að gera öllum rétt til, hafa verið settar reglur um út- hlutun á kortum til allra bænda í landinu, sem; stunda svína- rækt, og gefa þessi kort bænd- unum rétt til sölu á svínum til útflutnings. Samkvæmt þessu getur hver bóndi selt einhvern hluta til útflutnings, afgangin- um af framleiðslunni verður hann svo að ráðstafa sjálfur til innanlandssölu. Ráðstafanimar miða einnig að því að takmarka fleskfram- leiðsluna. Til að sjá um það hefir verið skipuð sérstök nefnd fyrir allt landið með und- irnefnd í hverju sveitarfélagi. Auglýsing 19/4. 1933 um takmörkun svínaframleiðslunn- ar samkv. lögum 21/2. 1933, kveður nánar á um það, hvern- ig framkvæma skuli takmörk- un svínaframleiðslunnar. 2. Kjöt: Til þess að halda uppi verði á kjöti í landinu voru gefin út lög. 11. febr. 1933. Helztu ! ákvæði þessara laga eru þau, að ríkissjóður leggur fram 1,2 milj. kr. til kaupa á kjöti handa atvinnuleysingjum. Lög | 30. apr. 1933 um ráðstafanir til að greiða fyrir sölu á naut- gripum og nautakjöti. Helztu ákvæði laganna eru í því fólg- in, að landbúnaðarráðherra, með samþykki landbúnaðarráðs, getur gert ýmsar ráðstafanir í þessu efni, einkum það að eyðileggja kjöt af mjólkurkúm og öðrum lélegum gripum. Til að standast kostnað við þessar ráðstafanir, er heimilt að inn- heimta 10 kr. gjald fyrir hvern nautgrip, sem við slátrun er viðurkenndur söluhæfur til manneldis. Ég hefi gert þetta stutta yfirlit um ráðstafanir ná- grannaþjóðanna til að halda uppi verði á landbúnaðarvör- um. Þessar þjóðir hafa lagt geysimikla vinnu í rannsókn þessara mála, og er engum vafa bundið, að við íslending- Framh. á 4. síðu. róðurvörur= Fóðurblanda Sís. Maísmjöl Hafrafóðurmjöl Rúgmjöl Hveifimjöl Hænsnakorn blandað Hænsnamjöl Jaðar Fóðursalt Athugið verð. Samband Isl. samvinnufélaga (xuðm. Karl Pétursson læknir Tek á móti sjúklingum í Austurstræti 14, 2. hæð (hús Jóns Þorlákssonar) kl. 41/)—6. — Sími 2781. Sigurður Sigurðsson læknir Veiti sjúklingum móttöku í Austurstræti 14, 2. hæð, kl. 2—3 daglega. — Símar 2781 og 2780 (heima). Sérgrein: Lyflæknissj úkdómar, einkum lungna og hjarta- sjúkdómar.

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.