Nýja dagblaðið - 01.04.1934, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 01.04.1934, Blaðsíða 2
2 N Ý J A gefið mig“. 0g er unnt að hugsa sér dapurlegra tákn um ósigur, heldur en lok hans á ■ krossinum milli tveggja þjófa í og méð þyrnikórónuna sem ' merki um konungdóminn hans? 1 0g þó átti ósigur hans eftir að verða enn meiri. Þeir, er síðar hugðu hann konung him- insins, og þeir, er enn í dag hyggja hann konung himinsins og vilja reisa honum musteri hér á jörðu, meta lögmál méira en líf, yfirvarp meira en hjartalag, sið meira en kær- leika, skipulag meira en menn. I hans nafni er barizt fyrir sigri þess, er hann reis gegn með öllum þrótti vilja síns og hugdirfðar. 0g að lokum. Var ekki sá ósigur hans méstur, að við menn, ég og þú, bróðir minn og bróðir þinn, systir mín og systir þín, höfum ekki verið verð baráttu hans? Sannarlega hafa margir verið kallaðir og fáir útvaldir. Á öllum öldum hafa flestir þeir, er hann gaf sýn og heym og mál, læknaði o g reisti upp frá dauðum, brugðizt, þegar mest reið á. Og svo er enn. Enn er lífið dauðanum merkt, enn er hjartalagið sem logi af óhreinu ljósmeti, enn er kærleikur okk- ar hverfull og við mennimir lítt til að treysta á. En með yfirvarpi og sið má halda ó- heilindum í leyndum, með lög- máli og skipulagi má halda eyðingaröflum í böndum og jafnvel festa fylkingar til sókn- ar eftir verðmætum, er hafa eilíft gildi. Trú hans, trú hans var of bjartsýn á lífið, hjarta- lagið, kærleikaxm og — menn- ina. Og þó, og þó var trú hans sönn og sigur hans mikill. Trúr var hann lífinu og mönnunum, trúr var hann sjálfum sér, máli sínu, draum sínum, trú sinni til hinztu stundar. Þrautabik- arinn drakk hann með þreki, krossinn tók hann á herðar sér og þyrnikórónuna á höfuð sér fyrir trú sína á lífið, hjarta- lagið, kærleikann og mennina. Fyrir staðfestu trúar sinnar naut hann meiri þrauta heldur en allir aðrir menn, og fyrir þá staðfestu hlaut hann eilíft líf — síðasti ljóminn úr auga hans varpaði birtu lífsins í dýrð mannsins yfir alla jörð i um aldir fram. Svo undarlega var þraut hans og sigur saman ofið, að kross hans hefir orðið tákn hvors tveggja: mestu þjáningar og mesta sigurs — og jafnvel hiimar mesti; ham- ingju. 0g sjálft lífið í brjóstum veikra manna hefir hann reist upp frá dauðum. Við ljóma trúar hans á lífið og mennina höfum við fundið okkar trú á lífið og mennina og jafnvel á lögmálið og skipulagið. Trú hans á hjartalagið og kærleik- ann, „guðsríkið" manna meðal, hefir orðið salt jarðarinnar og súrdeigið, er sýrir allt brauð- ið. Og nú eftir 1900 ár getur ljóminn af fögnuði hans enn gert allt bjart umhverfis okk- ur, og í þrautum okkar og sorgum getum við enn fundið, ,D AGBLAÐIÐ Indverskt mnsteri Fimmtánda janúar í vetur gerði afarmikla landskjálfta á Norður-Indlandi. Margir bæir hrundu gjörsamlega, en víða urðu minni og meiri skemmdir. Manntjónið varð mjög mik- ið og ber skýrslum ekki saman. Segja sumar, að farizt hafi 3 þús., en aðrar 10 þúsundir. — Margar merkar byggingar hrundu eða skemmdust. Hið fræga Buddha musteri í Luch- now hrundi til grunna. í Dehli hrundu ýms merkileg minnis- merki og Taj Mahal grafhýsið í Agra skemmdist mjög. I Allahbad hrundi höll Maharajans af Benares og komst hann með naumindum undan. — Myndin hér að ofan sýnir eitt af hinum mörgu og skrautlegu musterum Buddhatrúarmanna í Allahbad, sem nú.eru meira og minna í rústum. Skáldið Jakob Gandsbuvgh \ Allmiklum tíðindum þykir það sæta, að Jakob Gansburg, einn af bezt látnu nýju skáld- unum í Rússlandi, maðurinn, sem skrifaði einna fallegast um vélaöldina upprennandi og hetj udáðir kommúnistanna, hefir verið tekinn fastur og dæmdur í tveggja ára fangels- isvist. Og ástæðan er sú, að það var ekki hann sjálfur, sem skrifaði sögurnar, sem haxm hefir hlotið frægð sína fyrir. Hinn rétti höfundur er Lu- bich-Koshurof, þekktur borg- aralegur rithöfundur frá keis- aradögunum. Haxm er nú 63 ára gamall og hefir hafst við í kofa í skógunum hjá Moskva, síðan byltingunni lauk og lif- að hann er bróðir okkar og bróðir systra okkar. Og þó að við höfum aldrei séð ljóma fagnaðarins í augum hans eða sorgina og kvölina í svip hans, og jafnvel þó að við hvorki þekkjum sporin hans frá annara sporum né höfum hugdirfð til að ganga á vegi hans, vegi mikillar baráttu, mikillar þrautar og mikils fagnaðar, þá eru orðin, sem hann skxáfaði í sandinn enn guðspjall gleði okkar og sorga, að við sult og seyru. Gans- | burg kúgaði hann til að rita | sögumar fyrir sig, með því, að | láta hann að öðrum kosti í hendur lögreglunnar. Koshu- i rof skrifaði og skrifaði og Gansburg varð frægur. En svo þreyttist Koshurof og setti inn ' í eina söguna langan kafla úr einni af hinni fyrri bókum sín- um. Gansburg varaðist ekk- ert. En rússneska lögreglan komst á snoðir um prettinn og allt varð opinbert. Nú er það Gansburg, sem, situr í fangelsi, en Koshurof, sem er frægur og hefir unnið sér fé og álit aftur. Þannig skiftist það stundum. því að hann er bróðir minn og bróðir þinn, bróðir systur þinnar og systur minnar. Amór Sigurjónsson. Iþið vitrið að tekið §é rd eftir auglýsingum ykk- ar, þá gkuluö þið helzt auglýsa í Nýja dagbiaðinu Ásgvímur Jónsson málavi i. Ásgrímur Jónsson er vorboði í list sinni. Ár eftir ár síðan laust eftir aldamót hefir hann opnað málverkasýningu fyrir höfuðstaðarbúa um páskaleyt- ið, þegar vorbirtan er að byrja að leggja undir sig landið. Og í öðru lagi er hann vor- maður í íslenzkri listasögu. Hann og Þórarinn Þorláksson eru fyrstu fullkomnu málararn- ir á íslandi. Þeir byrja bar- áttu sína fyrir sjálfstæðri ís- lenzkri málaralist, með 20. öldinni. Þeir eru böm hins nýja tíma. Þeir sigla í kjölfar fyrsta myndhöggvarans, Ein- ars Jónssonar, frænda Ásgríms málara. Heilsuleysi og erfið lífskjör drógu úr Þórarni Þor- lákssyni sem málara. Þó mun hann ætíð standa við hlið Ás- gríms Jónssonar, sem annar af tveim brautryðjendum og upp- hafsmönnum íslenzkrar mál- aralistar. n. Ásgrímur Jónsson er Ámes- ingur og Þingeyingur að ætt- erni, en alinn upp á Suðurlandi. Og Suðurland hefif mótað skapgerð hans og vinnubrögð á alveg óvenjulegan hátt. Suð- urlandssléttan er ekki einungis mesta undirlendi á Islandi, heldur eitt hið fegursta hérað. Hin miklu frjóu og grasgefnu sléttulönd, sundurskorin af voldugu stórfljótum, eru um- kringd með kranzi af jöklum, sumum hinum fegurstu, sem til eru í nokkru landi. Menn, sem ekki eru aldir upp á Suð- urlandi heldur í lokuðum döl- um eða þröngum fjörðum, eiga í fyrstu erfitt með að átta sig á hinu víðfaðma, jöklum kringda útsýni á Suðurlandi. Þeir ná ekki, fyr en eftir mikla kynningu, út yfir hina miklu víðáttu. En það eru ein- mitt þessi einkenni, þessi feg- urð, sem hefir mótað Ásgrím Jónsson, og verið hans bezti kennari. Svo að segja öll hans listaverk eru túlkun og dýrk- un á hinu göfuga, stórfengi- lega og hátíðlega í náttúru landsins. Ásgrímur Jónsson hefir sennilega gert meira en nokkur annar Islendingur til að opna augu samlanda sinna fyrir fegurð og yndisleika ís- lenzkrar náttúru. I myndum hans kemur fram hin mikla dýpt, hin mikla víðátta, og venjulega eitthváð af hinum miklu jöklum landsins. Ásgrím- ur elskar jöklana alveg sér- staklega, af því að þeir eru ó- aðskiljanlegur hluti sunn- lenzkrar náttúrufegurðar. En jöklarnir eru honum líka nauð- synlegir. Þeir eru ljós- og lita- gjafi í mörgum myndum hans. Jöklarnir koma Ásgrími Jóns- syni í þeim efnum nokkuð í stað hinnar dularfullu, undur- samlegu listar, sem einkennir málverk Rembrands. III. Enn hefir enginn skrifað æfisögu Ásógríms málara. • Sjálfur er hánn fámáll og yfir- lætislaus í mesta lagi. Hann mun að líkindum aldrei segja eða skrifa sjálfur mikið um þroskaferil sinn og æfistarf. En málverk hans, sem nú skifta mörgum hundruðum, rnunu fyrst og fremst verða heimildir um þennan merki- lega manh. Annars vita menn með vissu nokkur atriði um upphaf Ás- gríms og störf hans. Hann er alinn upp í fátækt, við venju- leg heimilisstörf og litla skóla- göngu. En þegar á barnsaldri kemur fram í drengnum sterk löngun til að mála og teikna, þó að engin væri kennsla og engin skilyrði til að nema þá list í landinu. Þegar hann er fullorðinn, kemst hann til Dan- merkur á málaraskóla, dvelur þar nokkur missiri, og beitir allri orku til að sjá og nema sem mest á sem styztum tíma, því að lítil voru fararefnin. Síðan tekst honum, fyrir heppilega tilviljun, að fá ofur- lítinn styrk til Parísarferðar. Kemur hann síðan heim, legg- ur á hverju vori af stað upp í sveit, þar sem er mikil feg- urð og miklir jöklar og málar náttúru landsins allt sumarið. Ásgrímur er búinn að glíma við alla jökla landsins, við Vatna- jökul úr Hornafirði, við öræfa- jökul úr Landbroti, við Eyja- fjallajökul frá Múlakoti, við Heklu úr Þjórsárdal og Hrepp- um, við Kerlingarfjöll uppi í öræfum, við Skjaldbreið frá Þingvöllum, við Eiríksjökul frá Húsafelli, Við Snæfellsjökul úr Staðarsveit. Lengra norður og vestur á bóginn fer Ásgrímur ekki. Hann vantar jöklana og ljósmagn þeirra. Jöklarnir verða að vera leiðarstjarna, og í skjóli þeirra og í nánd við þá lætur hann sér lynda, að taka önnur verkefni: Garðinn í Múlakoti, skóginn í Húsa- felli með silfurtærri bergvatns- á. Hengilinn frá Þingvöllum, eða kvöldroðann í Reykjavík. En allt er þetta sunnlenzkt, og tilheyrir þeim heimi, sem hefir mótað Ásgrím og gert hann að miklum listamanni. En þegar fer að hausta, kemur Ásgrímur úr fjallferð- um sínum, og sezt að heima í Reykjavík. Þá byrjar vetrar- vinnan, að fullgera og endur- skapa myndir þær, sem hann hefir byrjað á í tjaldi sínu eða á afskekktum sveitabæ um sumarið. Vetrarvinnan er erf- ið fyrir íslenzka málara. Skammdegið hvílir þungt á þeim. Ljósið, sem er undir- staða í listastarfi málarans, er þá torfengið, en myrkrið yfir- gnæfandi. Þegar koma ein- stakir heiðríkjudagar, flytja þeir sólskin inn í sál málar- ans. Þá getur hann flutt úr heimi endurminninganna mikið

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.