Nýja dagblaðið - 08.04.1934, Side 3
W Ý 4 A
dasblasib
3
NÝJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „Blaöaútgáfan h.f.“
Ritstjóri:
Dr. phil. þorkell Jóhanneason.
Ritstjómarskrifstofur:
Laugav. 10. Símar 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Austurstrœti 12. Simi 2323.
Framkv.stjóri:
Vigfús Guömundsson.
Áskriftargj. kr. 2,00 á mánuði.
1 lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiöjan Acta.
Atvinna og lýðrsði
I fyrradag- voru kommúnist-
ar að reyna að undirbúa verk-
fall við kolakranann. Þeir orða
það svo, að slíkt skuli gert til
að mótmæla „vinnuhraðanum“
við höfnina.
Það er vitanlega engin
ástæða, sem til þess liggur, að
slíkt verkfall skuli hafið. Kaup
er ekki lækkað. Vinnutími ekki
lengdur. Það eru engar venju-
legar verkfallsástæður fyrir
hendi. Það eina, sem fyrir ligg-
ur, er að leggja niður vinnu,
við fyrirtæki, sem búið er að
starfræk.ia við sömu kringum-
stæður mörgum sinnum áður.
Sjálfar meina kommúnista-
„sprauturnar“ ekkert með
þessu. Þetta er þeirra venju-
lega aðferð, til að látaast vera
að leika forystumenn í augum
verkamanna.
Samt munu það vera nokkrii'
verkamenn, sem féllust á til-
lögur þeirra.
Þegar kringumstæður þeirra
manna eru athugaðar, er af-
staða þeirra skiljanleg. Margir
eru búnir að ganga á eyrina
dagiega og hafa . ekki fengið
neina vinnu. Sumir eiga fyrir
heimili að sjá og hafa ekkert
fyrir að leggja. Aðrir eru ung-
ir menn, fljóthuga og óþolin-
móðir, eins og æskunni er títt.
Hvorutveggjum finnst biðin
óþolandi og eitthvað verði til
bragðs að taka.
Slíkt er ástandið í Reykja-
vík um þessar mundir. Hundr-
uð manna hafa ekkert að gera
á þeim tíma, sem atvinnan er
mest.
Þegjandi er horft á það af
stjórnarvöldum bæjarins. Ekk-
ert hefir verið gert til að glæða
atvinnulífið í bænum. Atvinnu-
tækin ganga úr sér og atvinn-
an minnkar. Það er engin furða
þó slíkt verði til að skapa fylgi
hinum fáránlegustu hugmynd-
um.
En íhaldið veit hvað það ætl-
ar sér. Þetta ástand gerir
verkamennina sundurþykka, og
gremja knýr suma, til álíka til-
rauna og verkfalls við kola-
kranann. Slíkir atburðir gera
það réttlætanlegra að stofnað
sé til aukinnar lögreglu, sem
hægt er að efla svo með tíð
og tíma, að hægt verði að bæla
niður verkföll. Þessi tilraun
kommúnista og aðrar álíkar eru
alveg eftir óskum íhaldsins. En
þegar það hefir eignast sinn
stéttarher, þá leggst sú venja
niður við kosningar, að auð-
valdið horfi auðmjúkt og kjass-
andi framan í vinnandi fólkið
á íslandi.
Sundlaugarnar og
sundhöllin
110 ár.
110 ár eru liðin síðan
byrjað var að kenna sund í
laugunum hér fyrir innan bæ-
inn. Það hefir tekið Reykvík-
inga 110 ár, að koma Sund-
laugunum í það ástand, sem
þær eru nú í, en eins og allir
vita, eru þær ónýtar nú sem
stendur og hafa verið það í all-
an vetur. Ennþá eru að vísu
margir menn, sem vonast eftir
því að gert verði við hita-
vatnsleiðsluna einhverntíma í
sumar, svo að þær verði not-
hæfar.
Ég Held að það sé mjög at-
hugandi hvort rétt sé að gera
við Laugarnar, þar sem þær
eru. Allar leiðslur að þeim virð-
ast ónýtar og það fer ekki hjá
því, að það kosti mikið fé, að
leggja nýjar leiðslur. Allir
klefar og girðingin er mjög
fúið og járnið víða lélegt. Auk
þess eru þær svo nærri vegin-
um, að ekki fer hjá því, að sú
hliðin, sem að veginum snýr,
verður alltaf fyrir skemmdum
af nmferðinni.
Hvar á að byggja nýjarlaug-
ar?
Ég álít því að réttara væri,
að byggja nýja laug, sem næst
hitaleiðslunni, sem til bæj-
arins liggur, því það er eng-
inn efi á því, að það er bein-
línis sparnaður. Gömlu Laug-
arnar eru alveg að verða úr
sér gengnar og ónýtar og það
verður ekki komizt hjá því að
kosta miklu fé til viðgerða á
þeim á næstu árum, ef þær
eiga að reynast nothæfar. Þá
mundi með þessu móti verða
hægt að nota heita vatnið mun
betur með því að taka það allt
í eina leiðslu og þá væri hægt
að skifta um vatn í Lauginni
á örskömmum tíma og velja
til þess þann tíma, sem ekki
væri þörf fyrir vatnið í bæn-
um.
En hvernig sem þessu verð-
ur hagað, þá má ekki dragast
að úr því ástandi sem nú er,
verði bætt tafarlaust. Það er
ófyrirgefanlegt að hafa þetta
svona lengur. Skólafólk sem vill
læra að synda, svo og allir aðr-
Þessvegna þarf vinnandi fólk
til lands og sjávar að gjalda
varhuga við öllum klofningstil-
raunum, hvort sem að þeim
standa kommúnistar eða
bændaflokksmenn. Vinnandi
fólkið á að standa saman.
Framsóknarflokkurinn kveður
hvern einasta vinnandi mann á
íslandi til sameiginlegrar bar-
áttu gegn atvinnuleysi, íhaldi
og einræði.
Framsóknarflokkurinn skor-
ar á hvern einasta kjósanda, að
fylkja sér fast um kröfu sína,
þá kröfu, sem markar allar
i þarfir alþýðunnar á íslandi. Sú
; krafa felst í tveim orðum: At-
I vinna og lýðræði.
»c*
ir bæjarmenn, verða að fara
upp að Álafossi til að læra
þetta og má nærri geta hvað
margir fara á mis við þá
kennslu, og auk þess eru svo
allir þeir sem syndir eru og
vilja baða sig og æfa sig, þeim
er fyrirmunað þetta beinlínis
af bæjarstjórn Reykjavíkur.
SundhallarfrumvarpiÖ 1923.
Á Alþingi árið 1923 bar Jón-
as Jónsson alþm. fyrst fram
frumvarp til laga um íþrótta-
sjóð Reykjavíkur. Honum átti
að verja til þess að byggja
sundhöll í Reykjavík. Þessu
máli var yfirleitt illa tekið,
fyrst og fremst af íhaldsmönn-
um, sem þá voru ráðandi flokk-
ur á Alþingi og svo einnig af
forráðamönnum íþróttamanna.
íhaldsmönnum þótti of mik-
iö gert fyrir Reykjavík.
Árið 1927 bar svo Jónas
Jónsson fram frumvarp til laga
um sundhöll í Reykjavík og þá
var það samþykkt, en þó voru
Sjálfstæðismenn á móti því og
báru þó einkum fyrir hve mjög
Reykjavík væri gert hærra
undir höfði en öðrum lands-
hlutum.
Hér er ekki rúm til þess að
rekja þessa raunasögu, en öll-
um er kunnugt hvar því máli
er komið og enn eru margir
sem muna það, hvernig öllum
brögðum var beitt til þess að
eyðileggja það mál, t. d. má
nefna það, að sumir menn álitu
sýkingarhættu yfirvofandi, ef
laugin væri yfirbyggð. Það var
þá sem dr. med. Halldór Han-
sen skrifaði grein um sundhöll-
ina í Morgunbl. og eftir það
báru menn kinnroða fyrir að
láta það uppvíst verða, að þeir
væru á móti sundhöll af heil-
brigðisástæðum. Ég ætla að
leyfa mér að taka hér upp
nokkur orð úr þessari grein H.
H., því þau eiga alltaf erindi
til þeirra manna, sem þetta
mál tefja. Hann segir m. a.:
Úr grein dr. Halldórs Hans-
cns um sundhöllina.
„Það eru erfiðir tímar, allt
þarf að spara, vér verðum að
kunna fótum vorum forráð,
satt er það.
En vér verðum að spara það
fyrst sem óþarfast er og kljúfa
þrítugan hamarinn til þess að
koma því upp sem ber marg-
faldan ávöxt.
Höfum við efni á að sólunda
heilsu almennings? Höfum við
efni á að rýra vinnuafl þjóðar-
innar? Höfum við efni á að láta
berklasjúklingum fjölga ár frá
ári, og útgjöld til berklavarna
aukast og margfaldast? Er það
rétt þegar hitt er vitanlegt, að
mörgum batnar með tiltölulega
litlum kostnaði, ef hjálpin kem-
ur nægilega snemma.
Nei. — Við höfum ekki efni
á að draga það, að byggja
Framh. á 4. síðu.
Hey vinnuvélar
Bændur og aðrir sem ætla að fá sór heyvinnuvólar
fyrir sumarið ættu að athuga:
Að HERKULES sláttuvélamar verða með alger-
lega sjálfvirkri smurningu og mikilvægum endur-
hótum framyfir það sem áður hefir þekkst.
Að DEERING- rakstrarvélarnar með stífu tindun-
um taka langt fram þeim rakstrarvélum, sem áður hefir
verið völ á.
Að LUNA snúningsvélar vinna sór nú óðum vin-
sældir allra þeirra er sjá og reyna.
Veljið réttar vólar, réttar stærðir og rótta gerð.
Samband isl. samvinnufélaga
Sínii no. 2697. Vesturgötu 16.
duðjóu Einarsson
Ég opna í dag matsölu með sérstaklega sniðugu fyrir-
komulagi. Opið frá kl. 6 f. h. til 11,30 e. m. Allt afaródýrt,
svo sem:
Steiktur fiskur m. kartöflum (Fish and Cheeps). 0,30
Heitir hundar (hot Dogs)............................... 0,25
Skyrhræringur m. mjólk................................. 0,50
Köld mjólk............................................. 0,20
Kaffi m. brauði........................................ 0,30
Hvítöl................................................. 0,25
Pilsner og gosdrykkir. — Cigarettur og neftóbak. — Sælgæti
fjölbreytt úrval.
Ég leyfi mér að vekja sérstaklega athygli bæjarbúa á
steikta fiskinum, og munu þeir fljótt sannfærast um, að það
margborgar sig að kaupa steiktan fisk m. jarðeplum, tilbú-
inn á borðið, og með því spara bæði tíma og ,peninga.
Öllum fyrirspurnum svarað mjög greiðlega. — Sérstakt
hreinlæti viðhaft. — Hringið í síma nr. 2697, og þér munuð
sannfærast um ágæti þessarar nýjungar.
Ennfremur leyfi ég mér að benda þeim verkamönnum,
sem vinna við höfnina, að koma á Vesturgötu 16, til Guðjóns.
Þar fá þeir bezta og ódýrasta aðhlynningu.
Virðingarfyllst.
Gnðfón Einarsson
Sími no. 2697. Vesturgötu 16.
Umíerðarbann
Umferð um Þing’vallaveginn frá Köldu-
kvíslarbrú að Þingvöllum, er bönnuð fyrst
um sinn, meðan klaka er að leysa.
Vegamálaskrifstolan
fæst leigð á Svalbarðseyri kom-
andi sumar, ásamt bryggju, fólks-
íbúð og ef til vill geymsluhúsi.
Listhafendur snúi sér til
Kaupféiags Eyfirðinga
Akureyri