Nýja dagblaðið - 10.04.1934, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 10.04.1934, Blaðsíða 4
4 » Ý 3 A DAð BLAÐIÐ Annáll Suöurlandiö fer til Breiðafjarðar á morgun, en flutningi sé skilað í dag. ■ jJ Bruggari tekinn. Guðmundur Jónsson á Hverfisgötu 100 var á laugardagskvöldið tekinn fyrir bruggun. Fundust hjá honum nokkrar flöskur af heimabrugguðu áfengi. A1 veiðum komu í gœr Sindri með 82 föt lifrar. Hannes ráðherra með 130, Geir með 97 og Skalla- grímur með 130 föt. Farfuglaiundi sem vera átti í kvöld er frestað til næsta -þriðju dags. SáÖin. Brottför hennar var frest- að til kl. 9 i kvöld. Dráttur í happdrætti háskólans fer fram i annað sinn i dag. Bngin vinnustöðvun varð i gær við uppskipun kolanna. Brynjólí- ur Bjamason kom niður í verka- mannaskýli i gærmorgun og vildi l'á verkamenn til þess að hætta að vinna við koiauppskipun í kola- skipi, sem lnér er með kol til þórð- ar Ólafssonai', sökum þess að kola- kraninn var notaður. Brynjólfur fékk enga áheym og verkamenn vildu lialda áfram að vinna. Á matreiðslunámskeið það í Austurbæjarskólanum, sem ungfrú llelgu Sigurðardóttir auglýsir í dag, verður bætt við fáeinum námsstúlkum, vegna þess að nokkrar stúlkur sem ráðnar voru að taka þátt í námskeiðinu, hafa forfallast. þær stúlkur, sem áður liöfðu sótt og ekki fengið pláss verða nú látnar sitja fyrir öðrum. Skiðaierðir. Veðrið á sunnudag- inn var afbragðs gott, enda not- uðu það margir. Um 200 manns voru á skíðum á Heilisheiði og í Henglinum. Fjöldamargir gengu upp á Skáiafell, allmargir í Jós- efsdal og upp á Bláfjöll, og enn nokkrir fóru upp í Kjós og gengu yfir Kjöl. Alls munu um 300 manns hafa verið á skiðum á sunnudaginn. Sólskin var mikið allan daginn, enda er skíðafólkið dökkbrúnt í andliti. Dr. Ame Möller fór utan með Dr. Alexandrine í gær. Hefir hann dvalið hér um skeið og flutt fyrir- lestra við háskólann, aðallega um íslenzkan sálmakveðskap á mið- öldum. Frá stjórn íslenzku yikunnar á Suðurlandi Eins og kunnugt er, byrjar ísl. vikan að þessu sinni 22. þ. m., og eru það vinsamleg til- mæli stjómar ísl. vikunnar á Suðurlandi til skólastjóra og kennara í skólum landsins, að þeir noti tímann þar til næstu Isl. viku er lokið, til þess, að glæða áhuga nemenda sinna fyrir málefnum Isl. vikunnar með ritgerðum, fyrirlestrum og umræðum um þau. Síðastliðið ár, var dálítilli fjárhæð varið til þess að verð- launa beztu ritgerðir bama í bamaskólunum í Reykjavík og Hafnarfirði um málefni Isl. vikunnar. Nú hefir stjómin ákveðið að verja allt að kr. 200,00 til verð- launa fyrir beztu ritgerðir nemenda í gagnfræðaskólum Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Verður skólastjórum hlutaðeig- andi skóla síðar tilkynnt um það, hvar og hvenær ritgerð- imar eiga að afhendast, og hverjir fengnir verða til þess að dæma um þær. Frá Húsavík 8/4. Hér á Húsa- vík var góður fiskafli undanfama viku, eða venjulega um 6000 kilo- grömm i róðri, á stærri báta. Fisk- urinn er genginn á grunnið, og stutt sóttur. Smásíld til beitu veið- ist á höfninni og inn við Sand. FÚ Frá Ólaísvík 9/4. þrír opnir bátai- liéðan fóru til Búða á Snæ- fellsncsi 5. þ. m. og stunda þaðan sjóróðra, en alli heíir verið treg- ur. Hér og á Sandi var ágætur afli siðastliðna viku. — FÚ. Úr Rangárvallasýslu 9/4. Orma- veiki í sauðfé stingur sér niður á stöku stað, en miklu minni brögð eru að henni en í fyrra, enda not- uðu margir ormalyf í haust og vetur handa fé sinu, einkum töflur þær, sem Niels Dungal mælti með, og virðast þær hafa gefizt mjög vel að dómi þeirra, sem reynt hafa. Hey hafa reynzt létt og beit sömuleiðis, og hefir því verið gefið mjög mikið í vetur, þó jörð hafi oftast verið auð, enda hefir beit ekki notast sökum hrak- viðra. Kýr hafa mjólkast með lakasta móti. — FÚ. Blatreidslnnámsskeid i Ansturbæiarskólanum Sökum forfalla annara geta nokkrar stúlkur komist að á námsskeiðinu í kvöld. IJppl. í síma 2151. Helga Sigurðardóttir. Stórbruni Loncíon kl. 20,50 8/4. FÚ. Seint í gærkvöldi kom upp eldur í bifreiðaskýli eins stærsta flutningafélagsins í Liverpool. Á tíma var óttast um, að hár reykháfur, sem á því var, myndi falla á nærliggj- andi hús, en svo varð þó ekki. Slökkviliðinu tókst að ná tökum á eldinum snemma í morgun. Fjörutíu vagnar eyðilögðust, þar á meðal 18-hjóla bifreið, sú eina af þeirri tegund, sem til var í Englandi. 10 þús. hundar drepnir. í Ok- luhama í Bandaríkjunum hefir komið upp hættulegur faraldur af hundaæði. Til þess að stemma stigu fyrir útbreiðslu þess, hefir verið tekið það ráð, að lóga 10 þús- und hundum í ríkinu, — FÚ. pegar Ungverjar sömdu lrlðlnn. Titulescu, utanríkisráðherra Rúm- eníu, hélt þvi fram i ræðu nýlega, að Ungverjar heíðu ekki gert skyldu sína gagnvart Dónárríkj- unum, er þeir sömdu friðinn i París 1919, og taldi að hin erfiða aðstnða Dónárríkjanna væri að miklu leyti vanrækslu þeirri að kenna. þessu svaraði þingmaöur, sem tók þátt í friðarsamningun- um, í efri málstofu ungverska þingsins, og sagði m. a., að ung- verska friðarsamninganefndin hefði sætt sömu meðferð í Paris og stríðsfangar, og væri það algjör misskilningur að ætla, að samið liefði verið um friðarskilmálana, heldur hefði nefndin orðið að skrifa undir það, sem fyrir hana var lagt. — FÚ. Frá Vestmannaoyjum 9/4. Und- anfarna daga hefir verið stöðugt blíðviðri og afli ágætur. Nokkrir smábátar hafa stundað síldveiði í lagnet og veitt mjög vel. Fimm færeysk fiskiskip komu í gær til þess að kaupa nýveidda beitusíld. — FÚ. „Brúarfoss“ fer á föstudagskvöld (13. apríl) um Vestmannaeyjar, til Hull og Hamborgar. Farseðlar óskast sóttir fyrir hádegi samá dag. „Dettiloss“ fer á fimmtudagskvöld 12. apríl til Vestfjarða og Breiða- fjarðar. Fer fyrst beint til Isafjarðar. Farseðlar óskast sóttir fyrir hádegi sama dag. rmm Vl 1 ^ Ci r X * S u ð i n fer kl. 9 í kvöld. K YNNIÐ ykkur hvern- ig þið getið notið arðs hjá Kaupfélagi Reykjavíkur til jafns við félagsmenn. Sími kaupfélagsstj. 1245. • Ódýrn % anglýsmgamar. Kaup og sala 5 hestafla Trumph-mótorhjól í ágætu lagi, er til sölu fýrir tækifærisverð. Upplýsingar á Grettisgötu 22 D frá kL 4—7 á kvöldin.________________ Tækifærisverð á nýtízku svefnherbergishúsgögnum, vegna burtfarar, ásamt fleiri húsgögnum. Einar Carlsson, Vatnsstíg 3 eða á Laugaveg 141. Símar 4587 og 2672. limvötn, hárvötn og hrein- lætisvörur fjölbreytt úrval hjá Knupfélagi Reykjavíkur. Hús og aðrar fasteignir til sölu. Hús tekin í umboðsaölu. Skrifstofan í Aðalstræti 9 B opin kl. 11—12 og 5—7. Sími 4180 og 3518 (heima). Helgi Sveinsson. „Komi ríki þitt“ fæst hjá öllum bóksölum. Kostar aðeins 4 kr. bundin, en 3 kr. óbundin. SPAÐKJÖT af úrvalsdilkum alltaf fyrir- liggjandi. S. í. S. — Sími 1080. Húsnæði Lítil íbúð á góðum stað í bænum til leigu frá 14. maí. Uppl. á skrifstofu I. S. I. Sími 1080. Fremur lítið snoturt herbergi nálægt miðbænum óskar karl- maður eftir 1. maí. Fyrirfram greiðsla. A. v. á. Sólríkt herbergi með sérinn- gangi óskast 14. maí fyrirkarl- mann í fastri atvinnu. Tilboð merkt „Sólríkt“ leggist á afgr. blaðsins. 2—3 stofur og eldhús óskast í nýtízku húsi 14. maí. Fyrir- framgreiðsla. Sími 2092. t Ef þú villt að af sé máð óhreinkan í tíma: 3—1—8—3 er róð, þá að hringja í síma. RAUÐA HUSID. — Erum við ekki tilbúnir? — Jú. Það er bezt, að þú hengir treyjuna þína á sjötta staurinn og ég á þann átjánda, þá sjást þeir betur. Ætlar þú að klæða þig úr fötunum hérna eða í bátnum? — Að nokkru leyti hér og að nokkru leyti í bátn- um. En ertu nú viss um að þú viljir ekki helzt kafa sjálfur? — Alveg viss. En ég þakka þér nú samt íyrir hugulsemina! Þeir gengu fyrir endann á síkinu og yfir á hinn bakkann. Þegar þeir komu að sjötta staurnum fór Bill úr treyjunni og hengdi hana á staurinn. Því næst klæddi hann sig úr ytri fötunum, en Antony fór að athuga um átjánda staurinn. Þegar þessu var lokið stigu þeir í bátinn og Antony þreif ár- amar. — Segðu til, Bill, þegar ég er kominn á þitt mið. Hann réri hægt út á mitt síkið. — Þú ert nú hérumbil á staðnum, sagði Bill loks. Antony lagði upp árar og leit í kringum sig. — Já, það er eitthvað um þetta bil. Hann sneri bátnum svo, að framstefnið horfði að grenitrénu, sém Bill hafði falizt undir. Sérðu tréð mitt og treyjuna? — Já sagði Bill. — Það er ágætt. Nú ætla ég að róa hægt í þessa stefnu, þangað til við erum komnir nákvæm- lega á þeim stað, þar sem jakkinn þinn og tréð þitt ber saman í beinni línu. Athugaðu þetta eins ná- kvæmlega og þér er unnt — sjálfs þín vegna! — Ekki lengra, sagði Bill. ögn aftur á bak, ögn betur ... svolítið áfram, aftur. Þetta er gott. Ant- ony lagði nú upp áramar og leit í kringum sig. Að svo miklu leyti sem hann gat séð, þá voru þeir nú staddir þar sem bæði miðin sögðu til, að töskunni hefði verið sökkt. — Jæja Bill, nú skaltu kafa. Bill smokkaði sér úr skyrtu og buxum og reis á fætur. — Þú mátt ekki steypa þér úr bátnum, karl minn, sagði Antony ákveðinn. Þú myndir hrynda bátnum úr horfi. Láttu þig síga hægt og rólega niður í vatnið. Bill lét sig síga niður í vatnið úr skut bátsins og synti svo rólega fram með bátn- um. — Hvemig er vatnið? sagði Antony. — Kalt. Jæja, vertu þá sæll! Hann spymti við, það sást til hans augnablik í vatnsskorpunni. Svo hvarf hann. Antony hélt bátnum í horfi og leit nú eimþá eftir miðunum. Bill kom nú upp úr á bak við hann og blés og spýtti ákaflega. — Það er fjandans for í botninum, sagði hann í ásökunarróm, eins og Antony ætti sök á þessu. — Slý? — Nei, því er nú betur. — Jæja. reyndu aftur. Aftur kafaði Bill og Antony kom bátnum aftur í sitt rétta lægi. Og aftur skaut Bill upp, í þetta skipti framan við bátinn. — Þú ert eins og selur útlits, sagði Antony og brosti. Ef ég fleygði síld til þín myndirðu grípa hana 'fimlega með munninum. — Það er enginn vandi fyrir þig að gera að gamni þínu. Hvað á þetta annars að ganga lengi? Antony leit á úrið. — Svona þrjá klukkutíma. Við verðum að halda heim þegar byrjar að daga. En hertu þig nú, því mér verður kalt að sitja hér. Bill jós á hann vatni og kafaði enn. I þetta skipti var hann nærri mínútu í kafi og hann glotti þegar honum skaut upp aftur. — Ég náði taki á töskunni, en hún er fjandi þung. Það gæti verið, að ég réði ekki við hana einn. — Það er ágætt, sagði Antony. Hann náði í dig- urt snæri úr vasa sínum og fékk Bill það. Þræddu þetta í gegnum hankann á töskunni, ef þú getur. Svo drögum við hana upp báðir. — Ágætt! Eftir tvær mínútur voru þeir búnir að töskunni upp í bátinn. Bill klifraðist upp í og Ant- ony réri að landi.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.