Nýja dagblaðið - 13.05.1934, Page 1
NYJA DAGBIAÐIÐ
2. ár. i Reykjavík, sunnudaginn 13. maí 1934. 110. blað.
íþróttasamlbands lelands
Til móður minnar
Andante.
' T
Fini Henriques ■
‘-r ^ 1
kær - leiks óm - ar
r
Morg un-klukk-ur klyngj
08
h I ,
4.+ £, JL jL J
* «—-—s
"»/
11
:^Er^EfeÍE
«r=f1FV-
lag.
Móð
i
þér syngj
P>
I
a
má
méámmá
r,
-.tó«*.
I r, H rr i
rit.
PPrts
ISI
rrr
ég
J
ljóð
£
'-U
*—J*W—J—j-þJ—-
dag.
mm
fc
Hlýja læt ég hljóma
frá hjartans innslu rót,
rödd, með unaðs-óma
ætíð þér í mót.
Þér ég hér í heimi
skal heiðurs flétta krans.
Minning mæta’ ég geymi
móðurkærleikans.
G. K.
Dagurinn í dag er í enskumælenda löndum og víðar helg-
aður móðurinni og nefndur mæðra dagur. í Ameríku tíðkast
það á þeim degi, að þeir, sem hafa misst móður sína, beri í
barminum merki til minningar um hana. Einnig tíðkast það,
að börn, sem eiga móður á lífi, en farin eru frá heimilum
sínum, heimsæki hana þennan dag. Hér á landi er hreyfing
uppi um að taka upp þessa erlendu venju um mæðradaginn,
þótt með nokkuð öðru sniði kunni að verða.
Landi framleiddur
í íiskimjölsverksmiðju
Viðtal við Bjðru Blöndal
Árið 1858 var byrjað að
kenna fimleika í Latínuskólan-
um í Reykjavík og hefir það
haldizt svo síðan; en ekki verð-
ur þess vart, að almennur á-
hugi vakni fyrir fimleikum fyr
en um aldamót og ekki svo að
nokkru nemi fyr en 1907 að
íþróttafélag Reykjavíkur er
stofnað, en það má segja, að
alla tíð síðan hafi. það verið
aðalviðfangsefni félagsins að
vinna að framgangi og eflingu
þessa máls og um langt skeið
var það eina íþróttafélagið í
Reykjavík, sem lagði verulega
rækt við fimleikana. Það er
ekki fyr en eftir 1920, að Ár-
mann og K. R. fara að sinna
þessu máli af alvöru og 1927 er
svo mikill áhugi orðinn fyrir
fimleikum, að einstaklingar
fara að keppa. Á 15 ára afmæli
London kl. 16,00 12/5. FÚ.
ógurlegt moldrok hefir gert
í Bandaríkjunum. Eru upptök
þess í miðvestur ríkjunum, þar
sem undanfarið hafa verið
langvarandi þurkar og hitar,
og er akurmoldin því svo laus
fyrir þegar hvessir. Moldrok
þetta er á rúmlega 1440 kíló-
rnetra breiðu svæði, 2400 kíló-
metra löngu, og er ætlað að
það nái rúmlega 3 kílómetra í
loft upp. I New York er nú að
í. S. í. er sambandinu gefinn
Silfurbikar til þess að verð-
launa með þann einstakling,
sem bæri sigur af hólmi í ein-
menningskeppni í fimleikum og
hefir verið keppt um þann bik-
á hverju ári síðan.
Sunnudaginn 6. þ. m. fór
þessa árs keppni fram og tóku
4 menn þátt í henni, 3 frá
Glímufél. Ármann og 1 frá
Knattspyrnufél. Reykjavíkur.
Úrslit urðu þau er hér segir
(reiknað í stigum):
1. Sigurður Nordal (Á). 521,72
2. Gísli Sigurðsson (Á.) 520,89
3. Karl Gíslason (Á.) 510,90
4. Ingvar ólafsson (KR) 507,53
Til gamans fyrir þá, sem
áhuga hafa á þessum málum er
hér yfirlit yfir úrslitin þau 7
ár, sem keppnin hefir farið
Framh. á 2. síðu.
heita má eins dimmt af mold-
rokinu og í London gerist þeg-
ar þokan leggst yfir borgina.
Efstu hæðir skýskafanna eru
huldar í moldarmekkinum.
Það er sagt, að skepnur hafi
beðið bana af völdum moldroks-
ins í miðríkjunum, og uppsker-
an er víða algerlega eyðilögð,
ýmist sökum þess að skafið
hefir bæði jarðveg og útsæði
upp úr ökrunum, eða fokið of-
an á þá.
Bimi Blöndal Jónssyni lög-
gæzlumanni barst í hendur
bréf í fyrradag þar sem hon-
um var skýrt frá því að brugg-
að hefði verið í allan vetur í
fiskmjölsverksmiðju í Keflavík,
og búið væri að „leggja í“ að
nýju. Var skýrt frá því í
bréfinu, að þessu væri fyrir
komið upp í rjáfrinu, og væri
allt vafið pokum, svo ekkert
sýndist athugavert í fljótu
bragði. Fór Bjöm samstundis
með bréfið til sýslumanns Gull-
bringu og Kj ósarsýslu, og fékk
úrskurð hans til leitar. Síðan
fór Bjöm ásamt 4 lögreglu-
þjónum suður í Keflavík.
Fundu þeir verksmiðjuna 'ok-
aða og mannlausa. „Birkuðu“
þeir upp lásinn og komust svo
inn, og fundu allt, svo sem frá
hafði verið skýrt. Var það allt
svo dúðað í pokum, að enga
tortryggni vakti. Þama uppi í
rjáfrinu fundu þeir olíutunnu
' sem næst fulla af áfengi í gerj-
I un. EnnfremUr fannst þar um
130 lítra suðupottur með til-
heyrandi pípum. Sömuleiðis
olíuvél og pottur sem notaður
hafði verið til að bera gerjun-
ina úr tunnunni og í suðu-
áhaldið.
Forstjóri verksmiðjunnar,
Karl Runólfsson, var veikur og
náði Björn ekki tali af honum,
en eigandi hennar, Elías Þor-
steinsson, var í Sandgerði. Er
því enn óupplýst hver er eig-
andi bruggunnartækjanna, en
málið hefir þegar verið afhent
sýslumanni til rannsóknar.
Drykkjuskapur hvað hafa
verið með mesta móti í Kefla-
vík síðastliðinn vetur að kunn-
ugra rhanna sögn og sáust
glögg merki eftir drykkjuskap
og ryskingar frá deginum áður
á veitingahúsi þorpsins, dag-
inn sem Björn og þeir félagar
sóttu Keflvíkinga heim, segir
hann.
Þessar upplýsingar eru eftir
viðtali, sem blaðið átti við
Björn í gær.
Qunnar Leijstrðm
varði doktorsritgerð sina
i Uppsölum i gær
Margir íslendingar kannast
við sænska málfræðinginn
Gunnar Leijström. Hann hefir
fjórum sinnum komið hingað
til lands, og í hvert sinn dval-
ið hér í marga mánuði og ferð-
ast um landið, mest fótgang-
andi. Hefir hann þannig kynnst
landi og þjóð betur en flestir
útlendingar, er hingað hafa
komið. Fyrir fimm árum gaf
Leijström út kennslubók í
sænsku, sem kennd er í öllum
þeim skólum hér á landi, er
sænsku kenna. Leijström hefjr
mikinn áhuga fyrir íslenzkum
málefnum. Fylgist hann jafnan
mjög vel með öllu hér heima,
svo vel, að fáir íslendingar
fylgjast betur með öllu því, er
gerist hér á landi í þjóðmálum,
en Leijström.
Nær því allir íslendingar,
sem komið hafa til Stokkhólms
og dvalið hafa þar, þekkja Leij-
ström, hafa notið gestrisni
hans og hinnar einstöku hjálp-
semi og alúðar. Ekki munu
margir íslendingar koma til
Stokkhólms án þess að heim-
sækja Leiström.
Við háskólann hefir Leij-
ström aðallega lagt stund á ís-
lenzk fræði, enda er hann
mjög fróður um allt, er lýtur
að sögu máls vors og menning-
arsögu. Hefir hann nú nýlega
lokið við doktorsritgerð, sem
fjallar um notkun óákveðna
greinisins í Norðurlandamálun-
um, og þá aðallega í íslenzk-
unni. Telur hann upp í ritgerð
sinni fjölda dæma um notkun
óákveðna greinisins í ritmálinu,
allt frá elztu tímum og fram
á síðasta ár.
I gær varði Leijström dokt-
orsritgerð sína við háskólann í
Uppsölum. G1.R.
Framboð
í Baröastrandarsýslu og
Austur- Skattaf ellssýslu
Framboð af hálfu Framsókn-
arflokksins eru ákveðin í
Barðastrandarsýslu og Austur-
skaptafellssýslu.
í Barðastrandarsýslu verður
Bergur Jónsson alþm. í kjöri.
í Austur-Skaptafellssýslu
verður í kjöri Þorbergur Þor-
leifsson bóndi í Hólum, sonur
Þorleifs núv. alþingismanns.
Þorleifur hefir beðizt undan að
vera í kjöri áfram. Hefir hann
nú átt 26 ár sæti á Alþingi.
Talið frá vinstri: ICarl Gíslason, Ingvar Ólafsson, Sigurður
Nordal, Gísli Sigurðsson.
Dimmt al moldroki á
götum New-York-borg'ar