Nýja dagblaðið - 13.05.1934, Síða 4
4
W Ý J A
DAGBLAÐIÐ
Norður á Holtavörðuheiði
verða ferðir sunnudaginn 13., þriðjudaginn 15. og fimmtu-
daginn 17. maí. Burtfarartiími kl. 8 árdegis. Aðeins nýjar og
traustar 1. flokks bifreiðar verða í förum.
Pá.11 Sig'urðsson
Bifreiðastöð Islands.
Sími 1640.
ATHS. 1 síðustu ferð reyndist færð norður ágæt.
1 DAG
Sólíiruppkoma kl. 3,25.
Sólarlag kl. 9,24.
Flóð órdegis kl. 5,05.
Flóð síðdegis kl. 5,25.
Veöurspá: Austan og norðvestan
krapi. Úrkomulítið.
Ljósatimi hjóla og bífreiða 9,45—
3,05.
Alþýðubókasafnið .. .. opið 4-10
Listasafn Einars Jónssonar kl. 1—3
þjóðminjasafnið ........ opið 1-3
Náttúrugripasafnið ...... opið 2-3
Pósthúsið.................10—11
Landssíminn ........... opinn 8-9
Lögregluvarðst. opin allan sólarhr.
Messur:
i Dómkirkjunni sr. Bjarni Jóns-
son. Kl. 2. sr. Friðrik Hallgríms-
son (barnaguðsþjónusta) og kl. 5
sr. Fr. Hallgrímsson.
í fríkirkjunni kl. 2: sr. Ámi Sig-
urðsson.
Heimsóknartími sjúkrahúsa:
Landsspítalinn ........... kl. 2-4
Landakotsspítalinn ....... kl. 3-5
Laugamesspítali .... kl kl. 12%-2
Vífilstaðahœlið .. 12%-2 og 3%-4Vi
Kleppur ................. kl. 1-5
Fæðingarh., Eiríksg. 37 kl. 1-3 og 8-9
Sólheimar ............. opið 3-5
Sjúkrahús Hvitabandsins ..... 2-4
ElliliMmilið ................. 1-4
Næturlæknir: Daníel Fjeldsted,
Aðalstræti 9, sími 3272.
Nætu^vörður í Laugavegsapóteki
og Ingólfsapóteki.
Skemmtanlr og eamkomur:
Maður og kona i Iðnó kl. 8.
Dagakrá útvarpsdns:
Kl. 10,40 Veðrufregnir. 14,00 Messa
i fríkirkjunni (sr. Árni Sigurðs-
son). 15,00 Miðdegisútvarp: a) Er-
indi: Um hlátur (Ragnar E. Kvar-
an). b) Tónleikar (frá Hótel ís-
land). 18,45 Barnatími (sr. Friðrik
Hallgrímsson). 19,10 Veðurfregnir.
Tilkynningar. 19,25 Tónleikar:
Eduard Schiitt: Suite, op. 44 (J.
Felzmann og C. Billich). 19,25 Tón-
leikar. Auglýsingar. 20,00 Klukku-
sláttur. Fréttir. 20,30 Upplestur:
Sögukafli (Halldór Kiljan Lax-
ness). 21,00 Grammófóntónleikar:
Dvorók Symphonia no. 5 í E-moll
Op. 95; Verdi: Lög úr óp. „OteIlo“;
Stormurinn (kvartett og kór); Ora
e per sempre addio, santa me-
morie (Renato Zanelli); Bei des
Himmels ehernem Dache (Marcel
Wittrisch og Hans Reinmar). —
Danslög til kl. 24.
Skipafréttir. Gullfoss er ó leið
til Leith fró Vestmannaeyjum.
Goðafoss fór frá Hamborg í gær.
Brúarfoss fór til Breiðafjarðar og
Vestfjarða í gærkvöldi. Dettifoss
kom til Akureyrar i gærmorgun.
Lagarfoss var á Húsavik í gær-
morgun. Selfoss kom til Ant-
vverpen í fyrradag, Bisp var i
Reykjavík í gær. Sigrid var í gær
á leið til Reykjavíkur frá Hull
Natja, sænskst timburskip, kom í
gær með farm til Völundar. Von
er á sementsskipi næstu daga til
.1. þorlákssonar & Norðmann.
Hafrannsóknaskipið Dana kom i
gær.
„MaSur o§ kona“ verður sýnt í
kvöld í siðasta sinn. Er það al-
þýðusýning. Hefir þá leikurinn
verið sýndur 36 sinnum.
Anisáll
Hermann Jónasson lögreglu-
stjóri kom heim í fyrrinótt úr ferð
sinni um Strandasýslu.
Framboð af hálfu Framsóknar-
flokksins eru nú ákveðin í flest-
um kjördæmum. Eftir eru þó m.
a. Reykjavík og Gullbringu- og
Kjósarsýsla, en í bóðum þeim
kjördæmum verður framboð ákvæð-
ið innan fórra daga.
Eysteinn Jónsson og Póll Zo-
phoniasson fóru austur með Esju
i gærkveldi til fundahalda í kjör-
dæmum sínum.
Meðal farþega með Esju austur
um land í gærkveldi voru:
Bergný Magnúsdóttir til Horna-
fjarðar, Kristinn Bjarnason til Fá-
skrúðsfjarðar, Laufey Kristinsdótt-
ir, Lára Kristinsdóttir, Ágúst
Böðvarsson og frú, Magnús Gísla-
son sýslumaður, Stella Sigurjóns-
dóttir til Eskifjarðar, Eysteinn
Jónsson alþm., Páll Zóphóníasson
ráðunautur, Júlíus Jónasson, Emil
Walter, Guðni þorsteinsson til
Reyðarfjarðar, Sigurbjörg Magnús-
dóttir til Norðfjarðar. Guðríður
Pálsdóttir, Bergljót Guttormsdóttir,
Jón Sveinsson, Jakob Jónsson,
Agústa Forberg, Bergþóra Guð-
mundsdóttir, Sigrún Helgadóttir,
Stefanía Vilhjólmsdóttir, Margrét
Lárusdóttir, Magnús Guðmunds-
son, þórhallur Vilhjálmsson, 01-
geir og Sigurður Sveinssynir til
Seyðisíjarðar, Hinrik Jóhannsson
og Haraldur Jónsson að Skálum,
Guðný Pálsdóttir, Ásdís Aðalsteins-
dóttir og Björg Björnsdóttir til
Húsavíkur. Alls um 100 farþegar.
Farþegar með e.s. Brúarfoss
vestur um land i gær: Svanhild-
ur Hjartar, Margrét Magnúsdóttir
með 2 börn, frú Tulinius, frú Fin-
sen, Samúel Pálsson og frú,
Hanna Proppé, Kamilla Proppé
með barn, Sigríður Helgadóttir,
Ágúst Sigurðsson og frú, Hálfdán
Sveinsson ög frú með barn, Sigurð-
ur Magnússon, Vilhjálmur Skúla-
son, Bryndís Guðjónsdóttir, Ragn-
heiður Karlsdóttir, Daðína Guð-
jónsdóttir, Lóló Ingvarsdóttir með
barn, Ríkey Eiríksdóttir með bam,
Hjördís Hall, Albert Kristjánsson,
Arni Gíslason, Oddgeir Jóhanns-
son, þormóður Hjörvar, Rafn
Sveinbjömsson, Erlingur Tulinius,
Elías Kristjánsson o. fl.
Byggingarsamvinnufélag Reykja-
víkur hefir símanúmer 2987.
Opinbera samkomu heldur Art-
hur Gook í Varðarhúsinu í kvöld
kl. 8. Blandaður kór syngur. Allir
velkomnir.
„Drottningin" fór til útlanda í
i gærkvöldi. Meðal farþega voru:
Póll B. Melsted, Stefán Thoraren-
sen og frú, frú Bernhöft, frú Alma
Leifsson, frú Fríða Sigurðsson,
Hans Herzfeld og frú, Unnur
Árnadóttir, frú Helgason, frú Sig-
Mogensen, frú Helgason, frú Sig-
urðsson, frú Olsen, frú Möller,
Nathan heildsali, „Young Atlas“
og fleiri.
Vorskóli ísaks Jónssonar. Börnin
mæti í kennaraskólanum mónu-
dag 14. maí, drengir kl. 2—3 og
stúlkur kl. 3—4.
Iðnsamband byggingamanna
opnar skrifstofu í Mjólkurfélags-
húsinu í Hafnai-stræti 5 3. hæð
næsta þriðjudag, sbr. auglýsingu
á öðrum stað i blaðinu.
Kaupendur blaðsins eru beðnir
að tilkynna bústaðaskipti sín til
afgreiðslunnar.
Kjúskapur. í fyrradag voru gef-
in saman í dómkirkjunni ungfrú
Svafa Bjarnadóttir Galtafelli og
Dr. Hans Herzfeld hagfræðingur,
til heimilis i Hamborg i þýzka-
landi. Síra Bjarni Jónsson fram-
kvæmdi athöfnina.
Dánarfregn. Hinn 5. þ. m. and-
aðist að heimili sínu Borgarhöfn
í Austur-Skaftafellssýslu, Gísli
Jónsson bóndi þar. Gísli sál. v'ar
maður á bezta skeiði, duglegur og
framtakssamur bóndi, og greindur
vel.
Frá Hæstarétti. í fyrradag var
felldur dómur í Hæstarétti í mál-
inu: Réttvísin gegn Adam Emil
Iíempf og Knud Busk. Var sá
fyrnefndi dæmdur í sex mánaða
fangelsi við venjulegt fangaviður-
væri, en hinn í 45 daga fangelsi
sömu tegundar. Dómur þess síðar-
nefnda var skilorðsbundinn.
pessi framboð hefir íhaldsflokk-
urinn nýlega birt: í Mýrasýslu
Gunnar Thoroddsen lögfr., ísafirði
Torfi Hjartarson lögfr., Vestur-
Húnavatnssýslu dr. Björn Bjöms-
son,
Afli er að glæðast á Siglufirði.
ETm miðja vikuna fékk bátur þar
il þús. pund i róðri.
Búfræðingurinn heitir rit ný-
komið út. það er fjölritað, 60 bls.
að stærð í heilarkarbroti og vel
frá gengið. Ritstjórar þess eru
þórir Guðmundsson og Guðmund-
ur Jónsson frá Torfalæk, kennarar
á Hvanneyri, og er meginhluti
ritsins skrifaður af þeim. það hef-
ir inni að halda rúmar þrjátíu
greinar um allskonar búnaðar-
framkvæmdir. Ritið er hið fróð-
legasta aflestrar og gagnlegt öll-
um þeim er stunda landbúnað. —
Verð þess er kr. 3.00.
Einkaskóli ísaks Jónssonar starf
aði í tveim deildum í vetur og
voru yngstu nemendurnir aðeins
5 ára. í dag verður opnuð sýning
á vetrarvinnu barnanna í Grænu-
borg kl. 1—8 mun hér vera um að
ræða sýningu á handavinnu
vngstu nemenda landsins.
Ársrit Skógræktarfélags íslands
er nýlega komið út. Ritið hefst á
grein, er heitir Á við og dreif,
eftir ritstj. M. Júl. Magnús. Ræðir
hann þar nokkuð um ástæður
fél. fyrir útgófu órsritsins og nauð-
syn þess. þá er grein: Um stofn-
Þakkarávarp
• Ódýru •
Ég þakka öllum Breiðvíking-
um fyrir þá rausnarlegu gjöf,
sem þeir hafa látið af hendi
við mig árið sem leið; en sér-
staklega Hamarsendahjónun-
um.
Július Sólbjartsson
Litlu-Hnausum.
auglýsings rnAr.
Kaup og nala
Smjör frá Mjólkursamlaginu
á Akureyri fyrirliggjandi. —
S. 1. S. Sími 1080.
Námseftirlit
Framh. af 3. siðu
kennslutækjum og öðrumhjálp.
armeðölum. Þar, sem farskólar
eru, er þeim holað niður á hin-
um ólíklegustu stöðum, og
ekki skeytt um þá hollnustu-
hætti, sem tilskildir eru, stund-
um jafnvel ekki um almennan
þrifnað.
(Meira).
Svartur þingmaður
látinn
Berlín kl. 11,45 11/5. FÚ.
. Negraþingmaðurinn Djamil,
sem var fulltrúi Senigal í
franska þinginu andaðist í gær
í París. — Enda þótt hann
væri negri, tók hann mikinn
þátt í pólitísku lífi í París og
var m. a. fulltrúi í nýlendu-
ráðuneytinu.
Skíp strandar
Síðastliðinn fimmtudag slitn-
aði upp skip er lá við bryggju
í Borgarnesi og rak upp í
fjöru. Var það norskt flutn-
ingaskip, „Brakall“, er komið
hafði með kolafarm.
Verður reynt að ná því á
flot næstu daga, en óvíst þykir
hvemig muni takast.
un skóglendis og trjágarða, eftir
Kofoed-Hansen. þar eru gefnar
leiðbeiningar um sáningu ýmissa
trjáfrœja og undirbúning jarð-
vcgsins. Næst er ritgerð eftir Hó-
kon Bjarnason: Framtíðartré ís-
lenzkra skóga; m. a. lýsing á trjá-
vexti, vaxtarskilyrðum á mismun-
andi stöðum o. m. fl. þá ritar Sig.
Sigurðsson um Trjórækt kringum
bæi og hús. Enn eru greinir eftir
1-Iákon Bjarnason: Starfsskýrsla
og Skógræktin og fjárframlag rík-
issjóðs. Loks er svo félagaskrá
og félagsstarfsemi, fró ritstj. Fé-
lagar eru alls 46 eftir því sem þar
segir. Fjöldi mynda er i ritinu
frá ýmsum skógsvæðum landsins.
Ef til vill vekur mynd af skógar-
hríslu úr Vaglaskógi einna mesta
athygli. Tréð er furðu beinvaxið
og 9,5 m. hátt. Ársritið er hið
snotrasta og vinnur stórþörfu
málefni.
Vatnavextir í Noregi. Stórflóð og
skriðuföll liafa verið undanfarna
daga í Noregi, sökum bráðra
leysinga. Hafa orðið stórskemmd-
ir á Dofra-, Raum- og Röraas-
járnbrautunum. í Röraas hefir
llætt yfir stórt svæði og hefir
fólkið orðið að flytja á braut. í
Mjösen og Lærdal hafa flóðin og
\aldið mjög miklu tjóni. Er talið
að tjónið nemi mörgum milljónum
króna.
Ný peysuföt til sölu með
tækifærisverði á Ljósvallagötu
32.
Nýkomið fjölbreytt úrval af
fataefnum. Lágt verð. Vönduð
vinna. Móðblöð fyrir 1934.
Bjarni Guðmundsson, klæð-
skeri, Hverfisgötu 71.
Nýleg eldavél emeleruð til
sölu. — Bjöm Rögnvaldsson,
Hringbraut 110.
Ódýr útungunarvél til sölu
(250 egg), Sólstöðum í Lang-
holti.
Kalkun-egg til sölu í Lauga-
dal við Engjaveg.
Ilmvötn, hárvötn og hrein-
lætisvörur fjölbreytt úrval hjá
Kaupfélagi Reykjavíkur.
Saltfiskbúðin er vel birg af
nýjum fiski. Sími 2098.
Húsnæði
Kjallaraherbergi til leigu á
Laufásvegi 79.__________
Gott herbergi til leigu með
sérinngangi, rétt við miðbæinn.
Upplýsingar hjá Þórhalli Bjam-
arsyni prentará í Gutenberg.
Mig vantar 2 herbergi
og eldhús á hæð eða góðum
kjallara, 14. maí. Jörgen Þor-
bergsson tollþjónn. Sími 3088.
Herbergi og eldhús til leigu
a Framnesveg 40.
Atvinna
Vormaður óskast upp í Borg-
arfjörð. A. v. á.
Röskan dreng, 12—14 ára,
vantar til snúninga í sveit. A.
v. á.
Telpa 13—14 ára óskast til
að gæta barns á 3 ári. Upplýs-
ingar í Þingholtsstræti 3, hjá
Kristjáni Sólbjartssyni.
Unglingspiltur á aldrinum
frá 11—14 ára óskast á gott
heimili í sveit. A. v. á.
Tvær stúlkur óskast 14. maí
á búið í Viðey. Sími 1949.
Stúlka óskast 14. maí eða
síðar. Gott kaup. A. v. á.
Tek að mér allskonar hrein-
gerningar. Sími 3467.
Bezta
rakblöðin
Þunn, flug-
bíta. Raka
hina skegg-
sáru tilfinn-
ingarlaust. -
Kosta að-
eins 25 aura
Fást í nær öllum verzlunum
bæjarins. -— Lagersími 2628.
Pósthólf 378.