Nýja dagblaðið - 07.06.1934, Qupperneq 1
2. ár
Reykjavík, fimmtudaginn 7. júní 1934.
181. blað
Kosníngabomban „klikkaði
Hæsfaréffardómur í máli íhaldsinsgegn
Einari M. Einarssyni, skipherra á Ægi
féll kl. 10 f. h. í gær.
Málinu vísað frá fyrir ófullkominn
undirbúning í undirréfh.
Dómur var felldur í hæsta-
rétti í gærmorgun í máli vald-
stjórnarinnar gegn Einari M.
Einarssyni skipherra. Vísaði
rétturinn málinu frá vegna
ófullkomins og ónógs undirbún-
ings hjá undirréttinum. Verður
því að taka máhð fyrir að
nýju, ef dómur á að ganga í
því í hæstarétti. Kostnaður all-
ur, sem orðinn er af máli
þessu, skal greiðast úr ríkis-
sjóði.
í dómsforsendunum er und-
irdómari sá, er málið hafði með
höndum, víttur þunglega fyrir
að hafa gengið framhjá þeim
atriðum í máhnu, sem að dómi
hæstaréttar voru einna þýð-
ingarmest og á þeim ástæð-
um byggði hæstiréttur frávís-
un sína.
Undirréttardómarinn var
Garðar Þorsteinsson mála-
íærslumaður. Var hann til þess
skipaður af Magnúsi Guð-
mundssyni.- Hafði málinu fyrst
verið vísað til lögreglustjóra,
þaðan til lögmans og þar næst
til sjódóms Rvíkur. En þegar
íhaldsmönnum þótti sýnt, að á
engum á þessum þrem stöðum
væri líklegt, að Einar yrði
sakfelldur, var Garðari fengið
málið til meðferðar. Hafði
Garðar það undir höndum 1
næstum heilt ár.
Garðar þessi var þá um tíma
einskonar Arnljótur Jónsson
íhaldsins og notaði íhaldið
hann til margvíslegrar þjón-
ustu. Það var Garðar, sem
Ólafur Thórs fékk til að of-
sækja Lárus Jónsson og iriun
hann hafa fengið fyrir það
starf sitt um tvö þúsund krón-
ur. Var sú rannsókn á margan
hátt hin hneykslanlegasta og
gefst þess máske kostur, að
ræða það mál síðar.
Eftir að hafa haft mál
Einars skipherra með höndum
í heilt ár og talið sig hafa
fundið allt það, sem gæti stutt
hina tilfundnu ákæru, felldi
Garðar dómi í málinu. Dæmdi
hann Einar í 500 kr. sekt.
Morgunblaðið, sem vant er að
grípa slíka dómsúrskurði feg-
ins hendi og gleiðletra fyrir-
sagnir þeirra, fannst málsstað-
urinn svo aumur, að það gat
um dóminn mjög stuttlega á
lítið áberandi stað í dagbókar-
fréttum.
Einar áfrýjaði málinu þegar
til hæstaréttar, sem nú hefir
fellt sinn úrskurð. En sá dóm-
ur er ekki úrskurður um mál
Einars, heldur áfellisdómur um
lélega frammistöðu þess manns
sem íhaldið taldi hæfastan til
að dæma í máli pólitísks and-
stæðings! En Garðar mun þó
telja sig' sleppa vel, því fyrir
þetta verk hefir hann fengið
greitt um þúsund krónur.
Annars er þetta mál frá upp-
hafi eitt hið allra hneykslan-
legasta, sem þekkst hefir í ís-
lenzku réttarfari seinustu árin.
Sök Einars er sú ein, að hafa
sýnt mikla röggsemi í land-
helgisvörnum og bakað sér
þannig hatur og ofsókn þeirra
manna, sem hagnazt á lélegri
gæzlu.
Málsmeðferðin sýnir það öll,
að tilgangurinn, sem liggur á
bak við, er að halda Einari frá
landhelgisgæzlunni. Hann er á
fullum launum. Með því við-
urkennir íhaldið brot sitt. En
málið er tafið og dregið á
langinn. Því er vísað frá einum
dómstóli til annars. Garðar
hefir það í heilt ár. Hæstirétt-
ur næstum eins lengi. Loks
vísar rétturinn málinu frá,
Sami leikurinn getur því end-
urtekizt.
1 fyrrinótt fundust jarð-
skjálftakippir í Hrísey. Um
tvöleytið fundust þrír mjög
snarpir kippir, en eftir það
voru aðeins smáhræringar fram
eftir nóttunni og fram til kl.
5 í gær. Þá komj mjög snarpur
kippur. Verulegar skemmdir
hafa þó ekki orðið af þessum
hræringum, eftir því sem blað-
ið hefir frétt.
Frá Kristjáni Eldjárn að
Hellu í Svarfaðardal bárust út-
varpinu svohljóðandi skeyti í
gær:
Jarðskjálftarnir halda áfram,
en fara rénandi. Skemriidir eru
almiklar, einkum í ytra hluta
sveitarinnar. Sjö steinhús eru
talsvert skemmd og nokkrir
torfbæir að hruni komnir.
Námusprenging
ií Þýzkalandí
Allir, sem í námnnni
vorn, hala farizt
Berlfn kl. 8 6/6. FÚ.
Námuspreng'ing varð í gær-
morgun í Buckingen í Þýzka-
landi, og er talið, að allir þeir,
sem í námunni voru, muni hafa
fai'izt. Björgunartilraunir stóðu
yfir í allan gærdag, og höfðu í
gærkvöldi náðst lík af tuttugu
námumönnum. Rannsókn leiddi
í ljós, að gaseitrun hafði orðið
þeim öllum að bana.
Önnur námusprenging varð
síðari hluta dagsins í gær ná-
lægt Pilsen í Tékkóslóvakíu.
Sprengingin varð þremur mönn.
um að bana, en allir aðrir hafa
bjargast úr námunni.
Meiri þurkar í
London en dæmi
eru til áður
London kL 21,15 5/6. FÚ.
Þurkar þeir, sem nú standa
yfir í London, eru hinir mestu
sem sögur fara af, síðan farið
var að halda skýrslur um úr-
komu í borginni. Þrátt fyrir
það, er búið að búa svo í hag-
inn, að ekki er óttast að skort-
ur verði á neyzluvatni, ef spar-
lega er á haldið, en borgarbúar
hafa verið varaðir við að eyða
vatni að óþörfu, t. d. við bíla-
þvotta eða á garða sína, og
verður það látið varða sektum
ef út af er brugðið.
Margir hafast við í tjöldum.
Fénaðarhús og hlöður hrundu
á 10 þæjum. Hræringarnar
virðast koma úr vesturátt.
Skemmdir í Þingeyjar-
sýslu.
í jarðskjálftunum á laugar-
daginn urðu skemmdir á lækn-
issetrinu í Grenivík. Mestur
hluti læknislyfja eyðilagðist.
Ibúðarhúsið stórskemmdist.
Utihús ónýttust meira og
minna.
í Höfðahverfinu urðu einnig
nokkrar skemmdir, en þó eng-
ar stórvægilegar. Reykháfar
hrundu af húsurri og steinar úr
húsgrunnum. Ýmsar bygging-
ar skekktust lítilsháttar. '
Nýjap jarðskjálflafrélNp
I gazn fundusf japðskjálffakippin bæði
í Hrísey og Svapfaðapdal
Borgarís á skipaleiðum
Seinnihluta vetrar og fram á vor berast oft risavaxnir
ísjakar norðan frá Grænlandi, úr skriðjöklunum þar, og suð-
ur á skipaleiðir Atlantshafsins. Stendur þar af þeirn hin
mesta hættu fyrir siglingar milli Evrópu og Ameríku. Á ein-
um slíkum fjalljaka fórst stærsta skip heimsins 1912, Titanic,
eins og enn er í minnum. Bandaríkj amenn halda úti mörg-
um skipum til þess að fylgja hreyfingum fjalljakanna, skjóta
þá niður og vara skip við þeim.
Myndin er af einum slíkum jaka af 74, sem nýlega kom,
tilkynning um að væru á reki nærri skipaleiðum á Atlants-
hafi.
Knattspyrnumót íslands
Knattspyrnufélag Reykjavlkur keppti í gærkveldi við Knatt-
spyrnufélag Vestmannaeyja og vann með 5 : 1
W
í gær hófst knattspyrnumót : í seinni hálfleik voru miklu
íslands og kepptu þá K. R. og
K. V. Veður var ágætt allan
tímann, nerna hvað þoku gerði
í seinni hálfleik, er spillti
nokkuð fyrir.
Fyrri hálfleikur var fremur
daufur. Voru yfirburðir K.R.-
nlanna svo yfirgnæfandi, að
hálfgerð leiðindi voru að horfa
á. Lauk fyrri hálfleik með sigri
K. R. 3 : 0.
Jafnaðarmenn í
Austurrfki vopnast
Berlín kl. 8 6/6. FÚ.
Varnarlið jafnaðarmanna í
Austurríki eykur nú starfsemi
sína með degi hverjum, og hafa
nýlega, samkvæmt heimildum
ýmsra austurrískra blaða, ver-
ið stofnaðir 800—1000 manna
sóknarflokkar, sem eiga að vera
til taks í ýmsum helztu borg-
um, og eru látnir æfa sig í
vopnaburði. Enda þótt æfingar
þessar fari fram með leynd, er
fullyrt, að yfirvöldin viti um
þær, en láti þær afskiptalausar.
Blöð Nazista í Austurríki
halda því fram, að flest hinna
mörgu sprengitilræða, sem
framin hafa verið í Austurríki
upp á síðkastið, séu verk jafn-
aðai-manna, en yfirvöldin eru
annarar skoðunar, og gefa Naz-
istum sökina.
fjörugri tilþrif hjá K. V. og
leikurinn allur stórum jafnari
og oft skemmtileg upphlaup af
beggja hálfu. Endaði hann með
því að K. R. hafði 2:1 og vann
því með 5:1.
I kvöld keppa Valur og Fram.
B. B.
Gjðf frá konungi
IsEands
x Forsætisráðherra hefir borizt
skeyti frá konungi, þess efnis,-
að hann og drottningin gefi
5000 kr. til hjálpar bágstöddu
í fólki á jarðskjálftasvæðinu
norðanlands.
Fe.libylur á Kóreu
350 sjómenu tórust
Berlín kl. 8 6/6. FÚ.
Fellibylur hefir gengið yfir
Koreaskagann og valdið miklu
tjóni á lífi og eignum. Allir
fiskibátar voru á sjó, þegar
bylurinn skall á, og fórust 350
sjómenn, en 1800 öðrum tókst
aðeins að bjarga lífinu með
naumindum. Hérumbil 200 bát-
ar og smáskip fórust, og brotn-
uðu flest þeirra í spón af veð-
urofsanum.