Nýja dagblaðið - 17.06.1934, Page 4
4
W Ý J A
DAGBLAÐXÐ
í DAG
Annáll
„Amatörar“, Athugið
# Odýrn #
Sólaruppkoma kl. 2.03.
Sólailag kl. 10.54.
Flóð ái'degis kl. 8.30.
Flóðsíðdegis kl. 8.45.
Veðurspá: Austankaldi. — Dálítil
rigning öðru hvoru.
Listasafn Einars Jónssonar kl. 1—3
Höggmyndasafn Ásm. Sv.s. .. 1-7
pjóðminjasafnið ........ opið 1-3
Náttúrugripasafnið ..... opið 2-3
Hósthúsið.................10—11
Landssíminn ........... opinn 8-9
Lögregluvarðst opin allan sólarhr.
Hoimsóknartími sjákrahúsa:
Landsspítalinn ........... kl. 2-4
Landakotsspítalinn ....... kl. 3-5
Laugarnesspítali .... kl kl. 12Vi-2
Vífilstaðahælið .. 12^-2 og 3^-4}4
Kleppur .................. kl. 1-5
Fæðingarh., Eiríksg. 37 kl. 1-3 og 8-9
Sjúkrahús IIvítabandsins ..... 2-4
Sólheimar ............... opið 3-5
Ellihwmilið .................. 1-4
Messnr:
í Fríkirkjunni kl. 5 sr. Ámi Sig-
urðsson. í Dómkirkjunni kl. 11
sr. Fr. Hallgrímsson.
Næturvörður í Reykjavíkurapóteki
og Iðunn.
Sunnudagslæknir Bergsv. Ólaís-
son. Suðurg. 4. Sími 3677.
Næturlæknir: Ólafur Helgtison,
lngólfsstr. 6. Sími 2128.
Skemmtanir og samkomnr:
Skemmtun Bjarna Björnssonar i
lðnó kl. 9 s,ðd.
Ahsherjarmót í. S. í. á íþrótta-
vellinum
Samgöngur og póstferðir:
Suðurland frá Borgarnesi.
Dagakrá átvarpalna:
Kl. 10,40 Veðurfregnir. 10,50 Er-
indi: Agnes og Nathan (Grétar
Ó. Fells). 15,00 Mið-
degisútvarp: a) Tónleikar frá Hó-
tel ísland b) Grammófónn: ísl-
enzk lög. 17,00 Messa í Frikirkj-
unni (sr. Árni Sigurðsson). 18,45
Barnatími (Aðalsteinn Sigmunds-
son). 19,10 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. 19,25 Grammófónn: íslenzk
kórlög. 19,50 Tónleikar. Auglýs-
ingar. 20,00 Klukkusláttur. Fréttir.
20,30 Upplestur: Sögukafli (Hall-
dór Kiljan Laxness). 21,00 ísl.
hljómleikar: Útvarpshljómsveitin,
Iíristján Kristjánsson, pórarinn
Guðmundsson og Emil Thorodd-
sen leika og syngja íslenzk lög.
Danslög til kl. 24.
Mánudagur 18. júní:
Ki. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
19,00 Tónleikar. 19,10 Veðurfregn-
ir. — Tilkynningar. 19,30 Fréttir.
20,00 Klukkusláttur. — Stjóm-
málaumræður.
Bæjarbúar, sem verðið fjarrer-
andi á kjördegi, kjósið áður en
þér farið (hjá fulltrúa lögmanns í
Pósthússtræti, gömlu símastöð-
Skrifstofa Framsóknarmanna er
i Sambandshúsinu, sími 2979, op-
in 9—7 daglega. par fást allar
uppl. viðvíkjandi kosningunum.
íþróttakennsla vestra. Sundnám-
skoið standa yfir Súgandafirði og
Bolungarvík, en þar verða þrjú
mánaðarnámskeið i sumar. pátt-
takondur í yfirstandandi nám-
skeiðum er milli 50 og 60. íþrótta-
skólinn i Reykjanesi byrjar um
mánaðamótin. Verður fyrst mán-
aðarnámskeið, sem er þegar full-
skipað. Síðan er ákveðið að halda
að það er ekki nóg að filman yðar sé rétt lýst, hún
verður líka að vera rétt framkölluð, og pappírstegund-
irnar rétt valdar. Trygging fyrir því verðnr ávallt ör-
uggust hjá mér. því allt er unnið af þaulvönu starfsfólki
Munið! Framköllun, kopiering, stækkanir.
LJósmyndastofa Sig. Guðmundssonar
Lækjargötu 2 — Sími 1980
Skipafréttir. Gullfoss fór frá
Kaupm.höfn i gærmorgun á leið
til Vestm.eyja. Goðafoss kom frá
Hull og Hamborg í gær. Brúnr-
foss kom að vestan og norðan í
gæi'. Dettiíoss er á leið til Hull
frá Vestmannaeyj um. Lagarfoss
var á Hólmavík í gær. Selfoss er
á leið til Vestm.eyja frá Leith.
Allsherjarmót í. S. í. verður haf-
ið i dag á íþróttavellinum. —
íþróttirnar hefjast með fimleika-
sýningu kvenna úr íþróttafélagi
Reykjavíkur. Svo verður 100 m.
hlaup og þá hástökk. Síðan 5
km. hlaup. Meðal keppenda í því
\erða Borgfirðingarnir, þeir er
iinnu víðavangshlaupið í vor. par
næst verðui' keppt í 4X100 m.
boðhlaupi. Síðan í 800 m hlaupi.
Að þessu loknu verður hlé. Kl.
8y2 um kvöldið verður mótið haf-
ið á nýjan leik. Til skemmtunar
þá verður reipdráttur, hnefa-
leikar, söngur hjá Karlakór
Reykjavíkur og dans. Auk þessa
verður ýmislegt fleira iiaft til
skemmtunar á vellinum.
Sigurður Eggerz bæjarfógeti á
Ísaíirði hefir nýskeð yerið skip-
aður bæjarfógeti á Akureyri og
sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu frá
i. n. m. að telja.
Fyrirlestur flytur Sæmundur G.
Jóhannsson kennari í Vaiðarhús-
inu kl. 5 í dag. Efni: „Gerði Jes-
us- Kristur kraftaverk í raun og
veru?“ Allir velkomnii og skorað
á kennara að koma.
Á bókamarkaðinum er rétt kom-
in út ný þýðing aí Davíð
syggna eftir Jónas Lie. Sagan
heitir „Den fremsynte", á norek-
unni. Davíð skygni er íslending-
um að góðu kunnur frá eldri þýð-
ingunni, er kom í sögusafni ísa-
foldar á dögum Björns Jónssonar.
þýðing sú er nú löngu uppgengin
og mun þvi yngstu kynslóðinní
sagan fremur lítið kunn. þýðing-
in er gerð af Guðmundi Kamban.
Hæstu útsvör á Akranesi hafa:
Haraldur Böðvarsson útgerðarm.
14.265 kr., Bjarni Ólafsson skipstj.
2.613 kr., þórður Ásmundsson út-
gerðarmaður 1.614 kr., Oliuverzl-
un íslands, B. P. útsala 1.320 kr.,
Bjarni Ólafsson og company 1.259
kr., Frón, verzlun 1.117 kr., Olíu-
verzlun Shell, útsala 1.110 kr.,
Ólafur Pétursson, kaupm. 1.036
krónur.
Frá' Norðfirði. 13. þ. m. var
hleypt af stokkum á Norðfirði
vélskipinu Stellu, sem byggt hef-
ir verið þar að nýju úr eik og
brenni, og stœkkað mjög. Kjöl-
lengd þess er 72 fet, og er eitt
hið stærsta skip, sem smíðað hefir
\ erið hér á landi. Dómhæfir
menn telja skipið fallegt og á-
gætlega smíðað og vel vandað til
þess að öllu leyti. Eigandi skips-
ins er Sigfús Sveinsson kaup-
maður, en yfirsmiður Pétur Wige-
lund skipasmiður á Norðfirði.
(Samkv. útvarpsfi'étt).
Frk. Ásta Jósefsdóttir syngur
einsöng á samkomnuni í Betaníu
(Laufásveg 13) í kvöld kl. 8Yz,
sem haldin er itl ágóða fyrir hús-
sjóð kristniboðsfélaganna. Auk
þess syngur blandað kór og er-
indi verður flutt, eins og getið
\ ar um í blaðinu í gær. — Að-
gangur er ein króna.
Með íslandi síðast kom Jóhann
Kallsoy kennai'i og lögþingsmað-
ur í Gjógv á Færeyjum. Var
hann sendur sem fulltrúi Fær-
eyinga á kennaranámskeiðið. Mun
hann flytja fyrirlestur síðar á
námskeiðinu. Kallsoy er einn af
þingmönnum Færeyinga og annar
lielzti sjálfstæðisforingi þeirra.
„Neyðarflaggið“
örfarnar þrjár, baráttu-
merki jafnaðarmanna, sem
staðið hafa aftan við nafn Al-
þýðublaðsins á framsíðunni,
eru nú horfnar með öllu. 1
stað þeirra setur nú blaðið
auðmjúka bænarskrá til Fram-
sóknarmanna og sinna gömlu
samherja, kommúnistanna, um
að þeir veiti sér lið og kjósi
jafnaðarmenn. — Fúslega skal
það viðurkennt, að Alþýðu-
blaðið hefir rétt fyrir sér í
því, að óhugsandi er að jafn-
aðarmenn komi að nema tveiin
mönnum í Reykjavík. Einu
líkindin til þess að fella fjórða
mann íhaldsins eru þau, að
Framsóknarflokkurinn fái einn
mann kosinn. Hver kjósandi
sem aumkvaði sig yfir Alþ,-
blaðið og yrði við bænarskrá
þess, mundi með þvi einung-
is styðja að kosningu fjórða
manns íhaldsins. Bænarskrá
Alþýðublaðsins er almennt
kölluð „neyðarflaggið“ og þyk-
ir ekki sigurvænlegt og nokkuð
seinheppilegt, að hafa dregið
það að hún einmitt þar sem
baráttumerkið var áður.
Nazistar
handsatnaðir
Berlin kl. 8.00, 16/6. FÚ.
I Salzburg í Austurríki voru
í gær handsamaðir fimm naz-
istar, sem grunaðir eru um, að
hafa varpað sprengjum á kat-
ólskum æskulýðsfundi. Þeim
var stefnt fyrir skyndirétt, en
dómur var ekki fallinn þegar
síðast fréttist.
Pólskur ráðherra
myrtur
London kl. 17, 16/6. FÚ.
Pólski innanríkisráðherrann
Piraki dó í gærkvöldi af til-
ræði því er honum var sýnt,
er hann var að ganga inn í
klúbb sinn í Warschau í gær-
kvöldi. Hann var skotinn með
skammbyssu, og er gert ráð
fyrir því, að morðið hafi ver-
ið framið af stjómmálaástæð-
um, sennilega að undirlagi
hins nýja nazistaflokks í Pól-
landi.
Þjóðverjar
hafa í hótunum
London kl. 17, 16/6. FÚ.
Svar Þjóðverja við yfirlýs-
ingu Chamberlains um stofn-
u.n viðskiftabanka til þess að
annazt viðskifti Breta og
Þjóðverja var birt í dag hjá
þýzku fréttastofunni. í svar-
inu er sagt, að yfirlýsingin sé
Sundhöllin
í Reykjavík
Framh. af 1. síðu.
Öll þjóðin verður synd á
næsta mannsaldri.
Um skilning almennings og
áhuga hér í Reykjavík, má
nefna hina óhemjumiklu að-
sókn að sundlaugunum, ekki
burðugri en öll aðbúðin þar
er. Konur, og það jafnvel
margra bama mæður, keppast
um að komast á sundnám-
skeið, sem stofnað er til við
litlu laugina í Austurbæjar-
skólanum. Álafosslaugin er
mjög fjölsótt af Reykvíking-
um, ekki ódýrara en það er
að komast þangað.
Allir verða eins og nýir og
betri menn. Nýtt skap, ný
gleði og- bætt heilsa fylgir
þessari dásamlegu íþrótt inn í
heimilin.
Ellegar börnin!
Er nokkur námsgrein sem
eykur þeim meiri gleði og
sjálfstraust en einmitt sundið.
Og samt láta íhaldsöflin
sundhöllina í Reykjavík standa
ófullgerða árum saman.
Enginn veit hvað átt hefir
fyr en misst hefir.
En að þessu sinni hlýtur að
mega' snúa þesu spakmæli við.
Þegar sundhöllin verður full-
gerð, þá og þá fyrst skilja
Reykvíkingar það til fulls
hvers þeir hafa farið á mis.
Þá skilja þeir bezt hvaða
sakir þeir eiga á íhaldið, sem
hefir staðið í vegi fyrir þess-
ari framkvæmd.
Ætlar æskan í Reykjavík
að þola það öllu lengur, að í-
haldsöflin haldi sundhöllinni
fyrir henni.
Ætla borgararnir í Reykja-
vík ekki að minnast þess 24.
júní næstkomandi, að það er
ekki holt að hafa þann stjórn-
málaflokk við völd í þessu
landi, sem lætur jafndýrt og
jafn mikilsvert menningartæki
og sundhöllina standa ófull-
gert árum saman og það í
því ástandi, sem glöggt sézt
af myndinni, sem fylgir. Og
vart bætir það úr, þótt heita
vatnið, sem búið er með æm-
um kostnaði að dæla inn í bæ-
inn, sendi mekkina upp úr
skólpræsunum rétt utan við
veggi sundhallarinnar.
hótun um það, að hlutast til
um, viðskifti þjóðanna með
valdi, en þó að svo geti verið,
að Englendingar einir græddu
á þessu nú sem stendur,
gæti það einnig vel hugsast,
að viðskiftajöfnuðurinn yrði
þannig, að enska valdið í heild
sinni tapaði á þessu.
au^iýsinga rnar.
1
sala
Góðar varphænur til sölu.
Uppl. í síma 2506 og 2507.
Gæsir fullorðnar og ungar
til sölu . Laugardal við Engja-
veg.
Hafið þið reynt hið holla og
ljúffenga kjarnabrauð frá
Brauðgerð Kaupfélags Reykja-
víkur?
Atvinna
Stúlku vantar nú þegar hálf-
an daginn. Þarf helzt að
kunna eitthvað í ensku. Af-
greiðslan vísar á.
Kaupakona óskast upp í
Borgarfjörð. Góðar engjar og
sérherbergi. Kaup eftir sam-
komulagi. Uppl. á Lokastíg 5,
kjallaranum.
Tilkynningar
Rímanúmer mitt er 4259.
Ari Guðmundsson
garðyrkj umáður.
Símanúmer Hannesar Jóns-
sonar. dýralæknis, er 2 0 9 6.
Knattf pyrnumót
Islands
Framh. af 1. síðu.
son og fór honum það vanda-
sama en vanþakkláta starf vel
úr hendi.
Eftir kappleikinn afhenti
forseti í. S. I. leikmönnum K.
R. bikarinn og ellefu minnis-
peninga.
Vinningar og markafjöldi á
mótinu varð eins og hér segir:
K. R. vann K. V. með 5:1
K. R. vann Víking með 3:1
K. R. vann Val með 3:2
K. R. jafntefli við Fram 1:1
Valur vann Fram með 2:1
Valur vann K. V. með 6:0
Valur vann Víking með 13:1
Fram vann Víking með 6:1
Fram vann K.V. með 3:1
Frarii jafntefli við K. R. 1:1
K. V. vann Víking með 3:1
Mörk Mörk
K. R. vinnur 12 en tapar 5
Valur — 23 — - 5
Fram — 11 — — 5
K. V. — 5 — — - 15
Víkingur — 4 — — - 25
Samtals 55 55
Alls hafa þá verið skoruð 55
mörk á mótinu.
K. R. hefir fengið 7 stig,
Valur 6, Framl 5, K. V. 2 og
Víkingur 0 stig.
Knattspyrnubikar Islands er
gefinn 1912 af Knattspymu-
félaginu Fram og hefir Fram
unnið hann 10 ár, K. R. 9,
Valur 2 og Víkingur 2 ár. A
honum eru nú 22 silfurskildir
með nöfnum félaganna og
bætist nú sá 23. við með
nafni hins sigursæla K. R.
M. G.