Nýja dagblaðið - 20.06.1934, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 20.06.1934, Blaðsíða 4
4 N Ý JT A DAGBLAÐIÐ t_DAG Sólaruppkoma kl. 2,01. Sólarlag kl. 10,57. Flóð árdegis kl. 10,35. Flóð síðdegis kl. 11,05. Veðurspá: Breytileg átt og hœg- viðri. Skúrir. Sfiín, akrUstofuz o. CL: Landsbókasafnið .... opið kl. 1-7 Alþýðubókasa. opið 10—12 og 1—10 þjóðskjalasafnið ........ opið 1-3 þjóðminjasafnið ........ opið 1-3 Náttúrugripasafnið ...... opið 2-3 Landsbankinn ......... opinn 10-3 Búnaðarbankinn opinn 10-12 og 1-3 Útvegsbankinn opinn 10—12 og 1—4 Útbú Landsb., Klapparst. opið 2-7 Fósthúsið: Bréfapóstst. .. opin 10-6 Bögglapóststofan ..... opin 105 Landssíminn ............ opinn 8-9 Skrifstofa útvarpsins kl. 1012 og 1-6 Búnaðarfélagið .. opið 1012 og 1-4 Fiskifól.... Skrifst.L 1012 og 1-5 Samb. ísl. samvinnufél 012 og 1-6 Skipaútg. ríkisina opin 912 og 1-6 Eimskipafélagið ......... opiö 9-6 Stjómarráðsskrifst .. 1012 og 1-4 Sölusamb. ial. fiskframiaiðanda opið 10—12 og 1—6 Skriíst. liæjarins opnar 9-12 og 1-4 Skriíst. lögreglustj. opin 1012 og 1-4 Skrifst lögrnanns opin 1012 og 1-4 Skrifst. tollstjóra opin 1012 og 1-4 Tryggingarst ríkisins 10-12 og 1-5 Hafnarskriístofan opin 012 og 1-6 Skipaskoöunar og skróningast. ríkisins 10-12 og 1-6 Hæstiréttur kl. 10. Hoimsóknartlmi sjúkrahúsa: Landsspítalinn ........... kl. 3-4 Landakotsspítalinn ....... kl. 3-5 Laugarnesspítali ...... kl. 12%-2 Vifilstaðahælið 12^-1% og Kleppur .................. kl. 1-5 Fseðingarh., Eiríksg. 37 ki. 1-3 og 8-9 Sólheimar...................kl. 3-5 Sjúkrahús Hvitabandsins .... 24 Farsóttahúsið ............... 2-4 Næturvörður í Reykjavíkurapóteki og Iðunn. Næturlæknir: Jón Norland Lauga- vcg 17. Simi 4348. Samgöngnr og pdstferðir: Goðafoss til Akureyrar. Selfoss til Kaupmannahafnar. Gullfoss frá Kaupmannahöfn. Dagskró útvarpslns: Ki. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há- degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,00 Tónleikar 19,10 Veðurfregnir. Tilkynningar. 19,30 Fréttir. 20,00 Iílukkusláttur. Stjórnmálaumræð- ur. Afgreiðsla Nýja dagblaðsins veit- ið viðtöku samskotafé til handa bágstöddu fólki norðanlands, er orðíð hefir fyrir tilfinnnnlegu tjóni af völdum jarðskjálftans. „peir sem aldrei njóta frelsis hætta að vera menn, en þokast niður á sama stig sljóleikans og vanaþræl- dómsins og húsdýrin standa á“ „Nái fiokkur okkar völtl- um eftir næstu kosnlngar, verður hann að taka til fyr- irmyndar þær þjóðir, sern rekið hafa rauðu hættuna af höndum sér“ (Knútur Arngrímsson 1 Stefni). Annáll Skipafréttir. Gulfoss kemur til Vestmannaeyja í dag snemma og hingað í kvöld. Goðafoss fer vest- ur og norður í kvöld. Brúarfoss fór til Leith og Kaupmannahafnar í gærkvöldi. Dettifoss fór frá Hull i fyrrakvöld á leið til Hamborgar. Lagarfoss var í gær á Akureyri. Selfoss var í gær í Reykjavík. Kjósið C-listann Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn, sem berst gegn dýrtíðinni hér í bænum. Fram- sóknarmenn byggja samvinnu- hús og styðja verkamannabú- staði. Þeir vinna að því, að allir, sem vilja geti byggt á ódýrum leigulóðum, að húsin verði ódýr og góð. Vegna áskorana verður sam- koman, sem huldin vai- i Betaníu síðastl. sunnudag, endurtekin annað kvöld kl. &y2. Ungfrú Ásta Jósefsdóttir syngur einsöng, bland- að kór syngur og erindi verður flutt um Uldine Utley, sem 9 ára gömui hóf predikunai-starf og verður flutt ein predikun, sem hún flutti 11 ára gömul. — Sam- koma þessi þótti með þeim ágæt- um og- erindið svo fróðlegt, að fjöldi þeirra, sem hlýddu á, liafa óskað eftir að hún yrði endurtek- in í stærra húsi. Má því búast við húsfylli annað kvöld i K. F. U. M. — Aðgangur er seldur á eina krónu og verður ágóðanum varið (il kristilegrar starfsemi utan bæjarins. Er hér því tækifæri til að styðja gott málefni og njóta ánægjulegrar kvöldstundar. Kjósið G-listann Hér var enginn unglingaskóli fyrir bæinn. Framsóknarflokk- urinn stofnaði Ingimarsskólan svokallaða. Mörg hundruð foreldrar hafa átt þar böm sín sem nutu þar góðrar fræðslu. Munið hvaða flokkur það var, sem bætti úr þessari vöntun í bænum. Afhent blaðinu til fólksins á jarðskjálftasvæðinu: V. Ö 5 kr., K. og A. 10 kr„ H. B. og H. 3 kr„ B. S. 5 kr„ B. G. 15 kr. Trúloíun sína opinberuðu síð- astl. sunnudag ungfrú Ilanna Karlsdóttir kennari og herra Steinn Ásbjörnsson sjómaður. Sólskinið í Reykjavík í apríl- mánuði var 191,9 st. eða 42,8% af þeim tíma sem sól er á lofti. Tíu ára meðaltal fyrir aprílmán- uð er 156.8 st. Á Akureyri var sólskinið 180,0 st. eða 39,5%. í Reykjavík var sólskinslaust 2 daga, en 8 daga á Akureyri. Menntaskólanum verður sagt upp kl. 1 í dag. 37 nemendur hafa lokið stúdentsprófi. Auk þess voru nokkrir nemendur er ekki luku prófi, en geta lokið að hausti. Héraðshátíð var haldin á Húsa- vík þ. 17. þ. m. Hófst hún með guðsþjónustu kl. 11, en kl. 1 e. h. hófust ræðuhöld og sungu tveir kórar, karlakór og blandaður kór, á undan og eftir hverri ræðu. Ræðumenn voru Benedikt Björns- son skólastjóri, Egill þórláksson kennari, Júlíus Havsteen, Einar Reynir, Sigurður S. Bjarklind las upp nýja smásögu eftir konu sína, Huldu skáidkonu. Einnig voru sýndar íþróttir og að lokum var stíginn dans. Allur ágóði af skemmtuninni rennur í spítala- sjóð þorpsbúa. (Eftir útvai'psfrétt). Rökvillur og reynsluskortur lagaprófessorsíns Framh. af 3. aíBu stefna mér þangað af ástæðu- lausu. Það er talið að B. B. hafi lesið talsvert í lögum. En þessi grein hans ber þess ljósan vott, að hann skortir algjör- lega þekkingu á framkvæmd laga, sem vonlegt er. Þessi skortur á reynsluþekkingu skín svo greinilega gegnum alla greinina, að ég héfi rekið mig á alveg ólöglærða menn, sem hafa haft orð á þessu. Greinin hlýtur því að vekja mann til umhugsunar á það, hvað það er fráleitt, að láta pilta, sem aðeins hafa bóknámsþekkingu en enga reynslu á framkvæmd laganna fást við lagakennslu í Iíáskóla íslands. Hermann Jónasson. Laun hjá íhaídinu í Reykjavík Rafveitustjóri 22 þús. Hafnarstjóri 20 þús. Borgarstjóri 16.800. Bæjarritari 9—10 þús. Bú- ið að samþykkja embættið og ákveða bak við tjöldin að Tóm- as nokkur Jónsson íhaldslög- fræðingur fái það. Þessi maður á að gera hina daglegu vinnu fyrir Jón Þorláksson sem borg- arstjóra. Knútur Zimsen 10 þús. Það eru eftirlaun, sem borgar- stjóri. Auk þess hefir hann 5000 kr. frá Albingia fyrir að sjá um að bærinn standi í skil- um með brunabótagjöld. Lögtaksménn við innheimtu á útsvörum í Rvík: Steindór Gunnlaugsson 7200. Adolf Bergsson 7200. Yfirinnheimtumaður Garðar Þorsteinsson 6 þús. Auk þess hefir hann sérborgun hjá bæn- um fyrir að flytja mál hans, og getur gert allt þetta í hjá- verkum, því að aðalstarf hans er alménn málfærsla og inn- heimta á skuldum fyrir sjálfan hann. Jóhann Möller bókari hjá raf- veitunni. Embættið búið til í vetur. Laun 6 kr. og eftir- launaréttur. Einar Sveinsson verkfræð- ingur. Embætti hans líka búið til í vetur. Mánaðarkaup 500 kr. Það eru hjáverk. Auk þesa rekur hann sjálfstæða skrif- stofu fyrir sig. Það nægir að benda á þessi 10 embætti íhaldsins í Rvík. Þau eru miklu launahærri en störf hjá landinu. Knútur fær raunverulega 15 þús. kr. eftir- j laun. Jón Þorl. nærri 17 þús. ! Tveir undirmenn hans við | höfnina og rafmagnið komast : ennþá hærra. Lögtaksmenn- irnir tveir hafa þreföld laun sveitapresta. Samt þarf að setja Garðar Þorsteinsson yfir þá með nálega vinnulausu starfi og hann fær 500 kr. á mánuði. Og í vetur, þegar allt af syritir meir og meir að, býr íhaldið í Rvík til em- Ny 6000 km. ferð um Sovétríkin Tekin af 15 dönskum sendi- nefndarmönnum. Sýnd í Iðnó fiiumtudaginn 20. júni kl. 9 e. h. Stutt erindi á undan sýningu. Hljómleikar. Aðgöngumiðar á 1 krónu soldir við innganginn frá kl. 8 og á skrifstofu Sovét- vinafélagsins Lækjargötu 6a 1 dag og á morgun. Valið og metið spaðsaltað dtlkakjðt í heilam og hálfum tunnum Sími 1080 Frá Akranesi Framli. af 1. síðu. um skeið, sem útvegar niönn- um vörur með ágætu verði. Samvinnufélagi hefir vei'iö komið á um fiskverkun með ágætum árangri. Mjólkurfélag er nýstofnað með um 100 félögum, er ætlar að annast sölu á mjólk í kaup- túninu og vinnslu hennar. Framsóknarmenn eru aðal- forgöngumennirnir eins og eðlilegast er, þeir Sigurður Sí- monarson, Svafar Þjóðbjarnar- son o. fl. Mjólkui-framleiðsla hefir mjög aukizt síðan Framsókn- armenn hjálpuðu kauptúnsbú- um til að ná yfirráðum yfir Garðalandi, hinu forna prest- setri. Fleygir Þar fram ræktun ár frá ári. Menn á Akranesi eru smátt og smátt að losna úr viðjum íhaldsins. Sjá þeir að innan- tómur hávaði Ottesens og eyðslu. og sparnaðarhjal hans þar efra, en blindur stuðning- ur við verstu eyðsluklær íhaldsins í Reykjavík er ekki til að uppfylla framsóknarþrá og nútímaþörf alls almennings. Nú eiga Akumesingar kost á að kjósa sér fulltrúa, Jón í Deildartungu, sem er einn hinn traustasti og víðsýnasti fram- faramaður landsins í bænda- og alþýðumannastétt. Væru það góð skipti fyrir þá, semi vilja heldur víðtækar umbæt- ur en fánýta eyðslu að hafa skipti á Ottesen og Jóni Hann- essyni. bætti handa þrem gæðingum sínum, Jóh. Möller, Einari Sveinssyni og Tómasi Jónssyni. íhaldið talar um spamað við opinberan rekstur. Þessi dæmi sýna heilindin. Vill þjóðin gefa þeim lands- sjóðinn til ávöxtunar 24. júní nsestkomandi ? 9 Odýrn § auglýsingarnar. Kaup og sala Fréknukrem, Niveakrem, Igemokrem og Sportskrem fæst hjá Kaupfélagi Reykjavíkur. Sími 1245. Aktýgi, sem ný, til sölu við Hafnarsmið j una. Sanngjarnt verð. 13—15 ára gömul stúlka óskast á gott sveitaheimili.. Upplýsingar á Laufásveg 46, niði’i. SPAÐKJÖT af úrvalsdilkum alltaf fyrir- liggjandi. S. í. S. — Sími 1080. Hillupappír, mislitan og hvítan selur Kaupfélag Revkia- víkur. Sími 1245. Baðhús Reykjavikur .... opið 8-8 Ungur fjölskyldumaður ósk- ar eftir bílkeyrslu eða rukkun- arstörfum. Upplýsingar Urðar- stíg 8. Tilkynningar Símanúmer mitt er 4259. Ari Guðmundsson garðyrkj umaður. Símanúmer Ilannesar Jóns- sonar, dýraiæknis, er 2 0 9 6. Hreinsa og geri við eldfæri og miðstöðvar. Sími 3183. Atvinna Duglegur og reglusamur bíl- stjóri óskar eftir atvinnu. Til- boð leggist í pósthólf 833. Goðafoss fer í kvöld (20. júní) 1 hrað- t'erð vestur og norður. Kem- ur við á Hesteyri á suður- leið. Farseðlar óskast sóttir fyrir hádegi í dag. fer héðan föstudaginn 22. þ. m. kl. 8 síðd. austur um land til Siglufjarðar, snýr þar við og kemur sömu leið til baka. Tekið verður á móti vör- um í dag og á morgun. Pantaðir farseðlar óskast sóttir daginn áður en skip- ið fer.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.