Nýja dagblaðið - 21.06.1934, Blaðsíða 1
Störf og stefnumál Framsóknar-
flokksins í Reykjavík
Dýrtíðin er að eyðíieggja fjárhag og at-
vínnulif Reykjavíkur
Framsóknarflokkurínn er eini flokkurinn,
sem berst fyrír þvi, að útrýma dýrtiðínní,
skapa arðbæra framleíðslu, ódýrt húsnæði
og meirí likamsmenningu i Reykjavik
Ihaldsmenn og' jafnaðar-
menn lýsa því ótæpt yfir, að
þeir einir eigi Reykjavík —
fólkið eigi að fylgja þeim —
aðrir stjórnmálaflokkar hafi
hér í Reykjavík, engan til- ‘
verurétt.
Framsóknax'flokkurinn er |
annai1 mannflesti stjórnmála- '
flokkurinn. Sýnist það því al- :
veg óhugsandi, að jafn fjöl- J
mennur stjórnmálaflokkur hafi |
ekki fullkomið erindi, til höf- i
uðstaðarins, sem telur nálægt I
V3 hluta kjósendanna í land- i
inu. Það er auðsætt, að Fram- j
sóknarflokkurinn, sem hefir j
jafn almennt og eindregið fylgi '
um land allt, þarf og hlýtur að
fá fylgi í Reykjavík meðal
annars til þess að tengja
saman hagsmuni höfuðstaðar-
ins og alls landsins, svo ekki
verði tvö ríki í ríkinu. Hags-
munir alls almennings í höfuð-
staðnum og almenningur utan
Reykjavíkur, eru svo skildir,
að löggjafarstarfið þarf að
miðast jafnt við báða. Til þess
hefir Framsóknarflokkurinn
betri aðstöðu en nokkur annar
st j órnmálaf lokkur.
„Reykvíkingar** í gæsa-
löppum.
Daglega munuð þið, kjósend-
ur góðir, samt hafa heyrt
raddir um það, bæði frá jafn-
aðarmönnum — en þó einkum
frá íhaldsmönnum — að
Framsóknarflokkurinn .væri
fjandsamlegur Reykjavík. En
þá bið ég ykkur að gæta þess
vel, að þegar íhaldið talar um
Reykjavík og Reykvíkinga,
þá eiga íhaldsmenn við tiltölu-
lega fáa menn í Reykjavík,
sem eru máttarstólpar íhalds-
ins og raunverulega ráða öllu í
þeim flokki og sem hafa um-
ráð yfir mestum hluta af fjár-
Ettir Hannes Jónsson
Hannes Jónsson.
munum Reykjavíkur, atvinnu-
tækjum, húsum og lóðum.
Þessir máttarstólpar íhaldsins
eru Reykvíkingar, það skal
játað, en það eru aðeins ör-
fáir menn af öllum fjöldan-
um. — Það eru Reykvíkingar
í „gæsalöppum“, menn, sem
hafa allt aðra hagsmuni og
aðra aðstöðu en allur almenn-
ingur í bænum. Og Fram-
sóknarflokkurinn hefir orðið
að vinna gegn hagsmunum
þessara mánna, til þess að
geta verndað og unnið fyrir
hagsmuni almennings í Rvík.
Því að hagsmunir máttarstólpa
íhaldsins og alls almennings í
Reykjavík rekast á. Það verð-
ur að vernda allan almenning
i'yrir þessum máttarstólpum,
sem fyrst og fremst vinna
fyrir sína eigin hagsmuni og
hagsmuni flokks síns á kostn-
að hinna.
Verk flokksins taka af öll
tvímæli um það hvaða hug
Framsóknarflokkurinn ber til
alls almennings í Reykjavík.
Þau eru ekki svo fá málin,
sem Framsóknarflokkurinn
hefir beitt sér fyrir og hrund-
ið fram til hagsbóta fyrir all-
an almenning í Rvík.
V erk Framsóknarflokks-
ins í menningarmálum
Ég vil minna á menningar-
málin. Stjórn Framsóknar-
flokksins flutti frunivarp um
byggingu háskólans og það
var fyrir áhrif menntamála-
ráðherra flokksins, að komið
var í veg fyrir, að háskólinn
yrði reistur í Skólavörðuholt-
inu, þar sem strax hefði orðið
of þröngt um hann. Þar hafði
íhaldsmeirihlutinn í bæjar-
stjórn Reykjavíkur ætlað hon-
um stað, og mun enn mega
sjá þar í holtinu gryfju, sem
kostaði um 20 þús. kr., sem
átti að verða grunnur fyrstu
byggingar háskólans. Ihaldið
varð að játa, að þetta var
vanhugsað — allir sáu það,
eftir að Framsóknarmenn
höfðu bent á það — þangað
til var sem allir hefðu bundið
fyrir augun. Menn urðu sam-
dóma um, að skifta um stað.
Nú er fyrsta húsið — stúd-
entagarðurinn — byggður og
bjargað úr 20 þús. kr. gryfj-
unni í Skólavörðuholtinu. Og
þar sem háskólinn nú verður
reistur, er nóg landrými til
þess að hann geti vaxið eðli-
lega í aldaraðir, án þess að
landþrengsli kreppi að.
Reykjavík hefir fengið sinn
gagnfræðaskóla, sem hundr-
uð Reykvískra unglinga stunda
nám á vetrum. Enn vantar
þó húsnæðið — það er starf
fyrir flokkinn að bæta úr í
nánustu framtíð. Framsóknar-
flokkurinn endurbætti mennta-
skólann og kennaraskólann.
Áður var menntaslcólinn lé-
legast útbúinn af öllum sams-
konar skólum á Norðurlönd-
Framh. á 2. síðu.
I
Einræðisboðun foringjanna
„þeir, sem vilja vinna að framgangi stefnu
þjóðernislireyfingarinnar, geta ekki gert það
á annan hátt betur, en með því að kjósa
Sjálfstæðisflokkinn44.
Jón Þorláksson í útvarpsumrœðunum 1 gœrkvöldi.
Afnám
prentfrelsis
„Er þá m. a. vert að
drepa á hve skaðleg áhrif
ósvífin blaðamennska hef-
ir á andlegt líf þjóðaiinn- ,
ar, og hver nauðsyn er
að löggjöfin taki í taum-
ana“.
(Úr Ávarpi ólafs Thors
tii landsfundar íhalds- ,
manna 1934. Morgunblað-
ið 22. apríl).
„Hver maður á rétt á
að láta í ljósi hugsanir
, sínai- á prenti, þó verður
hann að ábyrgjast þær :
fyrir dómi. Ritskoðun og
1 aðrar tálmanir fyrir
prentfrelsi má aldrei í
lög- leiða*.
(67. gr. stjórnarskrár-
innar). ’
Hínn dýri
friður
„Friðurinn er dýimæt-
ur, já, líklega dýrmætari (
en menn gera sér grein
fyrir, meðan þeir hafa
Ialdrei haft kynni af öðru.
En friðurinn getur þó
verið of dýru verði
keyptur . . . Sjálfstæðis- ,
flokkurinn verður að
snúa sér að þessu verk-
efni með fullri alvöru, ,
festu og karlmennsku,
enda þótt það sé ekkert
tilhlökkunarefni“. ,
(Úr ávarpi Ólafs Thors
til landsfundar íhalds-
manna 1934. Morgunblað-
iið 22. apríl).
Ihaldsmenn deila
í Eyjum
Kolka læknir gerður
ómerkur gerða sinna.
Gunnar konsúll gefur út
pésa, þar sem hann fer
mörgum illum orðum um
Kolka og verk hans.
Fylgismenn Kolka svara
Tangavaldinu með því að
neita að kjósa Jóhann.
Páll Kolka hefir verið spít-
alalæknir í Vestmaimaeyjum
undanfarin ár. Jafnframt lækn-
isstörfum hefir hann verið
dyggur þjónn íhaldsins, full-
trúi þess í bæjarstjórn, bygg-
ingamefnd, gefið út blað o. s.
frv.
Þrátt fyrir dugnað sinn í
þjónustu íhaldsins hefir Kolka
aldi’ei fundið náð fyrir augum
Tangavaldsins (Jóhanns þing-
manns, Gunnars ólafssonar
konsúls) a. m. k. ekki seinustu
ái’in. Hafa þó ekki orðið af
mjög áberandi deilur, fyr en
. nú upp á síðkastið.
! Kolka gerðist héraðslæknir
| á Blönduósi í vetur, sem leið,
: og réði spítalalæknir í sinn
stað. Einar Guttormsson.
Þetta bar hann ekki undir
Tangavaldið, sem reiddist stór-
lega og fékk meii’ihluta spít-
alanefndar og bæjarstjórnar til
að afsegja Einar. Lauk svo, að
Einar varð að fara. Að spítal-
anum kom maður, sem áður
hefir stundað lækningar í Eyj-
um, en ætlun Gunnars konsúls
mun sú, að koma syni sínum
að spítalanum. Hefir hann
þessvegna eytt til miklum
tíma og fyrirhöfn, að ógilda
ráðstöfun Kolka.
En liðsmenn Kolka í Eyjum,
sem eru nokkuð margir, hafa
tekið þetta óstinnt upp og
Framó. 4. síðu.