Nýja dagblaðið - 21.06.1934, Síða 3
N Ý J A
DAGBLABIB
8
I
NÝJADAGBLAÐIÐ(
Útgefandi: „Biaöuútgáfan h.í.”
Ritstjóri:
Gísli Guömundsson,
Tjarnargötu 39 Sími 4246.
Ritstjómarskrifstofur:
Laugav. 10. Símar 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
Austurstraeti 12. Simi 2323
Áskriftargj. kr. 2,00 á mánuBi.
{ lausasölu 10 aura oini
Prentsmiöjan Acta.
„Hinn dýri friður“
Kjósendur! Baráttan, sem
nú stendur um úrslitavaldið á
Alþing’i er baráttan um frelsi
þitt, um frelsi þjóðarinnar.
í ávarpi sínu til landsfund-
ar íhaldsmanna, lýsir Ól. Thórs
sem nú hefir tekið við for-
ystunni í flokknum, því hik-
laust yfir, að þrengja verði
prentfrelsið á íslandi. Það er í
fyllstu andstöðu við ákvæói
sjálfrar stjórnarskrárinnar og
lienni verður ekki breytt, nema
með samþykkt tveggja þinga
og kosningum á milli. íhaldið
mun ekki leggja til kosninga
að nýju, sigri það nú. Yfirlýs-
ing Ólafs Thors um skerðingu
eða afnám prentfrelsisins „með
löggjöf" þýðir ekki annað en
það, að íhaldið ætlar að brjóta
stjórnarskrána og banna alla
opinbera gagnrýni á ofbeldis-
verkum síuum.
Og Ólafur Thors, hinn nýi
foringi íhaldsmanna, gefur enn'
greinilegri yfirlýsingu, um
byltingarhug íhaldsins. Hann
segir, að „friðurinn geti verið
of dýru verði keyptur“ og
bætir síðan við, að áfonn
íhaldsins í sambandi við það
„sé ekkert tilhlökkunarefni“.
Þessi yfirlýsing núveranda
formanns íhaldsins þarfnast
ekki langra skýringa. Þessi
„dýiá friður“, sem hann talar
um, er umhugsunartími kjós-
endanna, til að átta sig á því,
hvað íhaldið sé skaðlegt um-
bótamálum almennings og lið-
sinni við það, sé fjandskapur
við hagsmuna vinnandi fólks í
landinu. Þennan „dýra frið“
vill hann upphefja, þó það sé
ekkert „tilhlökkunarefni“.
Þessvegna berjast íhalds-
menn með hrygluna í brjóstinu
fyrir seinustu sigurvoninni,
þeirri, að vinna meirihluta í
þessum kosningum. Ef hinn
„dýri friður“ fær að haldast í
næstu fjögur ár, þá er íhaldið
vonlaust um, að komast fram-
ar til valda á íslandi.
Og þó það nái völdum við
þessar kosningar, með hjálp
sprengiflokkanna, þá eru ófar-
ir þess jafnvissar við næstu
kosningar, ef hinn „dýri frið-
ur“ helst. Þessvegna verður
það að grípa til ráðstafana,
sem eru ekkert „tilhlökkunar-
efni“.
Kjósandi! Nú er það þitt
hlutverk, að segja til mu það,
hvort þú villt varðveita hinn
„dýra frið“, frelsið, mannrétt-
indin, menninguna), tryggja
umbæturnar og batnandi at-
vinnulíf í landinu.
Kjósandi! Svo tæpt stendur
Samvinnuhús og dýrtið
Eitir Hannes Jónsson
Vill Héðinn Valdimarsson heldur ábyrgð
ríkissjóðs á veðdeildinni, til að lána fé
til húsahygginga með 10-20°|,, afföllum,
en á lánum byggingarsamvinnufélaga,
sem lána affallalaust og fyrirfram, svo
hægt er að kaupa byggingarefnið gegn
staðgreiðslu.
Störf og stetnumál Fram-
sóknarflokksins
I gær hefir Héðinn skrifað
grein í Alþýðublaðið til þess að
skýra og verja andstöðu ,sína
á þingi gegn samvinnubygg-
ingarlögunum. Hann segir:
„Hitt er annað mál, að ég hefi
haldið því fram á Alþingi, að
ekki þurfi að eyða ríkisábyrgð
til að byg'gja hús handa efna-
mönnum . . . aðstoð ríkisins
eigi að nota handa þeim, sem
við verst húsnæði búa og ekki
geta fengið gott né ódýrt hús-
næði, nenia með aðstoð ríkis-
ins“.
Framsóknarflokku)'inn hefir
viðurkennt, að veita beri aðstoð
ríkisins — bein fjárframlög
úr ríkissjóði — handa þeim,
sem við verst húsnæði búa, með
því að samþykkja lögin um
verkamannabústaði. En það
eru ekki nema fáeinir af öllum
þeim fjölda, sem slíka aðstoð
þurfa, sem í tæka tíð geta
fengið húsnæði með þessum
hætti. Ríkissjóð og þá ekki
síöur bæjarfélögin brestur fjár-
magn til þess að styrkja alla
þessa menn.
Auk þess er það fjöldi
manna, sem ekki geta komist
undir ákvæði laganna um
verkamannabústaði og af eig-
in rammleik ekki geta byggt
yfir sig, nema þá með mjög
óhagkvæmum kjörum.
Öllum fjölda þessara manna
géta byggingarsamvinnufélög-
in orðið að liði. Þau geta veitt
þessum mönnum aðstöðu til
þess að koma sér upp húsi.
Þetta er annar aðaltilgangur
byggingarsamvinnufélaganna.
Hinn aðaltilgangur bygging-
ai'samvinnufélaganna er að
húsin séu byggð fyrir sann-
virði. Það lækkar allan bygg-
ingarkostnað og þá um leið
húsaleigu og þrýstir á þann
hátt niður dýrtíðinni.
j Er nú rétt að ríkissjóður
| eigi að ábyrgjast lán þau, sem
það um framtíðarheill þína og
allrar þjóðarinnar, að það get-
ur hægiega oltið á þínu at-
kvæði.
Kjósandi! Það er hvort-
tveggja svik við þig og þjóð-
ina, að sitja heima eða kjósa
' íhaldsflokkinn.
: Kjósandi! Hjálpaðu til þess
með atkvæði þínu og- vinnu
þinni að gera sem sterkastan
og áhrifamestan höfuðandstöðu
| flokk íhaldsins, Framsóknar-
flokkinn!
byggingarsamvinnufél. taka ?
Ríkið á að mestu leyti alla
bankana og ábyrgist fé þeirra
og þá einnig veðdeildina og
hefir orðið sjálft að taka framt
að einum tug milj. króna að
láni ‘til þess að kaupa verð-
bréf hennar. Veðdeildin lánar,
er húsbyggingunni er lokið
með 15—25% afföllum 2/5 af
virðingarverði húsanna, ef fé
er fyrir hendi.
Byggingarsamvinnufélögin
lána jafnóðum og húsin eru
byggð affallalaUst allt að 4/5
af byggingarkostnaðinum, þó
ekki meir en 15 þús. krónur
út á hvert hús. Við það, að
lánin eru affallalaus og þar
sem byggingarvörurnar eru
staðgreiddar, sparast mjög
mikið fé, sem gerir húsin
ódýrari. Verð þeirra verður
sannvirði, þar sem milliliða-
gróðanum, bæði um lánskjör
og efniskaup, er þrýst nið.ur í
það minnst mögulega.
Það er líka augljóst, að
ábyrgð ríkissjóðs á lánum
byggingarsamvinnufél. er engu
lakar trygg’ð en ábyrgð hans
á veðdeildinni. Hjá samvinnu-
byggingarfélögunum, eru liús-
in reist fyrir sannvirði, ekki
má hækka verð þeifra við sölu
og ekk veðsetja þau fyrir öðr-
uml lánum en þessu eina. Þá
er ]/5 hluti af andvirSi þeirra
lagður fram af eigendum húss-
ins. Ábyrgð ríkisins er tryggð
með fyrsta veðrétti í húsun-
um og samábyrgð allra þeirra
félagsmanna, er að sama lám
standa.
Nú vil ég spyrja Héðinn.
Hafa ekki efnamenn fengið
lán í veðdeildinni og bönkun-
um?
Hefir ríkið ekki þannig
ábyrgzt lán til húsbygginga?
Álítur Héðinn Valdimarsson,
að ábyrgð ríkisins sé bygging-
armálum hagkvæmari þannig,
en með ábyrgð á lánum bygg-
ingarsamvinnufélaganna ? Álít-
ur Héðinn, að lán Byggingar-
félagsins sé ver tryggð heldur
en lán veðdeildarinnar, sem
eru miklu óhagstæðari ? Held-
ur hann að lánaaðferð veð-
deildarinnar geri húsin ódýr-
ari?
Fær ekki Héðinn Valdimars-
son skilið, að ef efnamenn fá
lán og byggja undir ákvæðum
samvinnubyggingarlaganna, þá
byggja þeir sannvirðishús, og
þar sem þeir fá ekki hærra
lán en 15 þús. kr. út á húsið
Framh. af 2. síðu.
hefir skilið þetta mál. En bæði
íhaldsmenn og jafnaðarmenn
hafa ekki skilið þýðingu dýr- 1
tíðarinnar. Vond verzlun og há
húsaleiga hefir hækkað kaup-
ið. En hverri nýrri kauphækk-
un hefir verið mætt af hálfu
ihaldsins með hækkuðu vöru-
verði og hækkaðri húsaleigu.
Báðir þessir flokkar hafa því
jafnt og þétt unnið að því að
skapa dýrtíð í bænum og nú
er komið svo langt, að fram-
leiðslutækjunum er að fækka I
og framleiðslan að minnka, j
þrátt fyrir það að fólkinu
fjölgar stöðugt í bænum.
Dýrtíðin í Reykjavík orsak-
ast einkum af tvennu: Fyrri
orsökih er óhæfilegur kostn-
aður við verzlun og vöru-.
dreifingu, en sú síðari erfið
aðstaða til húsabygginga og
dýrari lóðir, sem skapa óhæfi-
lega háa húsaleigu.
Úrlausnir Framsóknar-
flokksins.
Ráð okkar Framsóknar-
manna til að lækka dýrtíðina,
ev samvinna um verzlun og'
vörudreifingu, sem mundi
lækka vöruverðið með því að
útiloka óþarflega háan milli-
liðagróða, sem nú lendir
einkum hjá heildsölum. Þetta
myndi takmarka verzlana-
fjöldann þannig, að smásalar
gætu haft sæmilega útkomu,
en nú má svo heita, að hver
smásali éti annan út sökum
þess hvað þeir eru margir. í-
haldsmenn hafa orðið að við-
urkenna yfirburði samvinnu-
skipulagsins. Fisksölusamlag'-
ið er byggt á þeim grundvelli,
þótt stórra umbóta þurfi á
skipulági þess, ef það á að
geta náð öllum þeim kostum,
sem samvinnan hefir upp á að
bjóða.
Við viljum skipuleggja sölu
landbúnaðarafurðanna til hags-
muna fyrir framleiðendur og
og mega ekki veðsetja það, þá
numu þeir í fæstum tilfellum
byggja „lúxus“-hús. Því fleiri,
sem ganga í byggingarsam-
vinnufélögin, þess betur næst
annar aðaltilgangur þeirra, að
þrýsta niður húsaleigunni og
þá um leið hinni óeðlilegu dýr-
tíð.
Hve stórar íbúðirnar eru,
fer auðvitað eftir framlags-
: möguleikum þeirra sem
: byggja. Ég vil aðeins geta
þess, að af húsum þeim, sem
nú er verið að byggja, eru 6
tvíbýlishús og er hver íbúð
áætluð að kosta um 15 þús.
kr„ eru það 5 allstór herbergi
í hverri íbúð, eldhús og kjall-
ari. Einbýlishúsin eru áætluð
20—22 þús. kr. í þeim eru 6—
7 herbergi auk eldhúss, kjall-
ara og venjulegra þæginda.
Öðru í grein Iíéðins er
óþarft að svara. Því er svo far-
ið, að það er ekki svaravert.
Hannes Jónsson.
neytendur. Sézt bezt hverju
slíkt skipulag fær áorkað, þeg-
ar það er aðgætt, að á Akur-
eyri —- þar sem kaupfélagið
hefir skipulagt mjólkursöluna,
er hreinsuð mjólk seld heim-
komin til neytenda á 25 aura
lítrinn, en framleiðendur fá
18 aura fyrir lítrann. Dreif-
ingarkostnaðurinn á Akureyri
er því aðeins 7 aurar á lítra.
Við viljum koma neytendum
og framleiðendum í beint við-
skiptasamband, t. d. með því,
að bærinn útbúi sölutorg.
Við viljum vinna á móti
hárri húsaleigu með því að
styðja að byggingu verka-
mannabústaða og samvinnu-
bygginga. Með því móti fást
affallalaus, löng lán til bygg-
inganna og efnið er stað-
greitt, sem þýðir stórfellda
lækkun á öllum efnisvörum.
Við viljum vinna á móti
hækkun lóðanna með lóða-
skatti, sem rynni í bæjar-
sjóð. Er það sjálfsagt, þar sem
verðhækkun lóðanna hefir
skapast við umbætur þær, sem
bærinn hefir gert.
Ef þetta verður framkvæmt,
þá mundi húsaleiga og vöru-
verð stórlækka. En af þessu
leiddi, að þær tekjur, sem nú
reynast ónógar til þess að
lifa af, mundu hrökkva, og þá
væri sköpuð undirstaða undir
samkeppnisfærri framleiðslu.
Dýrtíðin er sjúkdómur, sem
hvílir á öllu viðskipta- og at-
vinnulífi og fyrr en hann er
læknaður, fæst engin bót.
Framsóknarfl. telur það mál
málanna að lækna þennan
sjúkdóm, sem þjáir Reykjavík
og um leið allt landið.
Framsóknarflokkurinn hygg'-
ur að svo bezt farnist alrnenn-
ingi til sjávar og sveita, að
smáframleiðendur séu sem
flestir — sem flestir vinni hjá
sjálfum sér. — En þeir verða
að skilja, að vinna saman,
mynda samvinnufélög. Bónd-
inn, sjómaðurinn, maðurinn,
sem tekur ákveðið verk að
vinna — allt eru þetta smá-
íramleiðendur, sem eiga að
mynda samstarfsheildir.
Efling atvinnulífsins í Rvík
viljum við byggja á þessari
lífsskoðun. Við viljum koma á
fót samvinnuútgerð, svipaðri
og reynd hefir verið á Isafirði
og víðar. Við viljum styðja
að auknum iðnaði í bænum,
bæði með skynsamlegri tolla-
löggjöf og beinni vernd á inn-
lendum iðnaði, meðal annars
með innflutnings- eða gjald-
eyrishömlum. Við viljum
styðja menn í nýbýlahverfum
kringum bæinn. Þeir, sem nú
hafa fengið lönd og stynja
undir dýrum húsum, þurfa að
fá aukið land til þess að hægt
sé að standa straum af bygg-
ingum og hafa sæmilega út-
komu. Ennfremur er það sjálf-
sagt að landleigu verði lækk-
að sama skapi, og afurðir hafa
fallið í verði.
Framh. á 4. aíðu.