Nýja dagblaðið - 08.07.1934, Side 2

Nýja dagblaðið - 08.07.1934, Side 2
2 N Ý J A DAGBLASIB 1 dag kl. 3 e. h. hefjasi kappreiðar á Skeið** vellinam; einnig Sundreiðar í Elliðaárvog. »Scientific Beauty Products«. Allt til viðhalds fdgru og hraustu hörundi. Vera Simillon Mjólkuríélagshúsinn. Sími 3371. Heimasimi 3084 Vísindaleg hörundssnyrtÍDg með nýtísku- aðfei’ðum: Andlitsnudd, sérstök aðferð til þess að ná burt hrukkum, hárœðum, bólum, nöbbum, flösu, hárroti o. s. frv. Hárvöxtur upprættur með Diathermie og Electrolyse. Háfjallasólar- og Sólar-geislun. — Kvölhsnyrting. Ókeypis ráðleggingar á mánud. kl. 6V»—7Va. Kristján Ág. Kristjánsson Þann 4. þ. mán. lézt á Landa kotsspítalanum, eftir uppskurð Kristján Ág. Kristjánsson frá Skóganesi í Miklaholtshi’eppi, sem um mörg undanfarin ár hefir verið skjalavörður á skrif stofu Alþingis. Er þar fallinn til foldar einn af nýtustu son- um landsins. Vel menntaður, góður drengur, sem hafði trú á framtíð íslenzkrar moldar og kunni að meta starf bóndans. Ungur lauk hann góðu prófi úr kennaraskólanum og stund- aði síðan barnakennslu hin næstu ár, þar til hann réðst skjalavörður á skrifstofu Al- þingis og reisti þá um svipað leyti bú á Skóganesi ytra, þar sem hann hefir stundað búskap síðan, jafnframt störfum sín- um við Alþingi. Er þeim, sem þetta ritar, kunnugt, að oft lá nærri að hann yfirgæfi bújörðina sína fögru og flyttist til Reykjavík- ur, þar sem hann hafði að nokkru ’leyti sitt aðal starf, en • jafnan sigraði átthagaástin og trúin á framtíð landbúnaðar- ins. Hann vildi ekki, þegar á átti að herða, víkja úr þeirri fylkingu, er hann hafði skipað sér í, þótt bardaginn væri oft harður. Kristján heitinn var annálað prúðmenni í allri framkomu, grandvar í orði en glaður í hópi vina sinna. „Mér finnst alltaf sólskin í Reykjavík þeg- ar Kristján er kominn í bæinn'* sagði einn vinur hans við mig. Þessi orð sögð í gamni lýsa manninum betur en iöng rit- gerð. Hávaxinn, ljós yfirlitum, broshýr og bjartur, þannig birtist hann vinum sínum og kunningjum. Bjart var yfir lífi hans og björt er minning hans hjá vinum og vandamönnum. Á laugardaginn kvaddi ég hann á sjúkrahúsinu, brosmild- an og vongóðan og ræddum við) þá um væntanlega heimferð hans um næstu helgi. — Nokkr_ um dögvim síðar er hann liðið lík. Andlát hans kom óvænt og snöggt, því að allt benti til að hann hefði fengið fulla bót á meini sínu og gæti haldið heimleiðis eins og áætlað var, en vonirnar brustu, því að dag- inn sem hann átti að klæðast, var hann í hendi dauðans. Kristján heitinn var fæddur hinn 4. ágúst 1889 og skorti því réttan mánuð til að verða 45 ára. Er fráfall hans því sár- ara, að hann er kallaður frá konu og níu börnum og því elsta 12 ára gömlu. Kona hans er Sigríður Gísladóttir, dóttir Gísla bónda í Ytra-Skógarnesi, sem hefir dvalið hjá dóttur sinni hin síðustu ár. Kristján heitinn var sonur Kristjáns bónda Kristjánssonar, er síðast bjó á Rauðkollsstöð- um í Eyjahreppi, Guðbrands- sonar á Hólmlátrum á Skógar- strönd, og er sú ætt all fjöl- menn og útbreidd um Dali, Snæfellsnes og víðar. Allmörg aukastörf hafði Kristján heitinn fyrir sveit sína og hérað og verða þau ei talin hér, en þess má geta, að ef velja hefði átt góðan dreng til starfs, er vel þurfti að inna af hendi, þá var valinn til þess Kristján á Skógamesi og voru þau störf honum ærið erfið, þar sem hann var jafnan liðfár á heimili og löngum stundum að heiman. Blessuð sé minning hins látna vinar. p. t. Reykjavík, 6./7. 1934 Stefán Jónsson. Derksm Smiðjustíg; 10 Jteykjauik Simi 4094 HBfinn fyririiggjandi í öllum stærðum og éerðum. Komið. Efni og yinna vaudað. Verðið lægst. • Sjáið. - Sannfærist. Alt tilheyrandi. Sjáum um jarðarfarir sem að undanförnu. Hringið í verksmiðjusímann og talið við mig sjálfan. Það mun borga síg. Virðíngarfyllst. pr. Trésmíðaverksmiðjan RUN. Ragnar Halldórsson. Aðrar kappreiðar ársins. b <? f dag kl„ 3 e. h. háir hesta- mannafélagið Fákur aðrar kapp reiðar ársins á Skeiðvellinum við Elliðaár. í þetta sinn verða reyndir allmargir ,hér áður ó- þekktir hestar á vellinum, og sumir það sprækir, að gömlu hlaupagarparnir mega vara sig. Það er ábyrgðarhluti fyrir n;ig að fara að benda á þessa hesta, sem vissa sigurvegara, en þó get ég ekki með öllu stillt mig um að nefna hér nöfn þeirra, svo sem Svip Páls Þor- bergssonar, Tvist Mag-núsar Árnasonar, Fálka Þorgeirs Jón- assonar og Litla-Brún Páls Pálssonar, sem nú er teflt fram á móti mósunum. Þá má ekki gleyma Reyk Jóns Guðnason- ar, sem áður hefir unnið hér fyrstu verðlaun á vellinum, en hefir ekki hlaupið nú síðustu þrjú árin, en þó hann sé lítill og orðinn fullorðinn, þá er víst um það, að mósarnir verða að teygja úr skönkunum ef þeir eiga að skilja hann eftir. Þá má geta þess, að í sambandi við þessar kappreiðar verða háðar sundreiðar í Elliðaárvog- um. Er það nýlunda hér, að sjá hesta synda og menn skipta um hesta á sundinu, þó ekkert væri annað en það að sjá á kappreiðunum, þá ætti það eitt að vera nóg til þess að þúsund- ir manna þyrptust inn á völl í dag. Þá er einnig í ráði, að á vell- inum verði sýnd smádrengja- reið. Það er gjört vegna barn- anna sem koma á völlinn. Reykvíkingar! Sleppið ekki þessu tækifæri, en komið inn á völl í dag og horfið á frækna hesta hlaupa og synda! Dan. Dan. I þið YÍIfrO mO teklO b* rti eftir *uglý»ingmn jrkk- ar, þá skuluQ þiO heixt auglýse i Nýja dagbaðinu. /

x

Nýja dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.