Nýja dagblaðið - 12.07.1934, Side 1
Færeyski skólaflokkurinn
í fremstu röð á miðri myndinni eru þau Rikard Long rithöfundur og Elisabet Rasmussen.
Á mánudagskvöldið komu
með Lyru frá Færeyjum 28
færeyskir skólanemendur með
tveim kennurum, þeim Rikard
Long og Elisabet Rasmussen.
Eru þau boðin hingað af fé-
laginu Færeyjafarar, en það
eru drengir, sem Aðalsteinn
Sigmundsson fór með til Fær-
eyja í fyrra og er su för alkunn.
Nýja dagblaðið hefir snúið
sér til Aðalsteins Sigmundsson-
ar, sem manna mest hefir unn-
ið að þessari heinlsókn og feng
ið hjá honum eftirfarandi upp-
lýsingar:
Börnin eru 28, 22 drengir og
6 stúlkur. Hefir þeim' verið út-
veguð gisting hér í bænum,
einkum hjá foreldrum Færeyja-
faranna. Þau dvelja hér til 26.
þ. mán. og fara þá heimleiðis
með Lyru.
Þessa tvo daga, sem þau hafa
dvalið hér, hafa þau notað til
þess m. a. að sjá skólasýning-
una í Austurbæjarskólanum,
sem þeim fannst mjög merkileg.
í gærmorgun syntu þau í laug
Austurbæjarskólans og er það
í fyrsta sinn, sem þau hafa
komið í heita og yfirbyggða
laug og fannst það að vonum
æði mikil nýjung. Flest eru
þau synd. Seinna um daginn
skoðuðu þau söfn Einars Jóns-
sonar og Ásmundar Sveinsson-
ar og vinnustofu Guðmundar
frá Miðdal.
í dag fyrir hádegi skoða þau
Ölgerðina Egill Skallagrímsson.
tJm hádegi eru þau boðin til
Sch. Thorsteinsson lyfsala,' en
kona hans er dóttir Joannesar
Patursonar, hins nafnkunna for
ingja í sjálfstæðisbaráttu Fær-
eyinga. Síðar vun daginn verð-
ur þeim sýnt útvarpið og land-
símastöðin. Kl. 5 eru þau boð-
in á Elliheimilið af forstöðu-
konu þvottahússins þar, sem er
færeysk.
Sennilega verður þeim sýnd
íslenzk glímá í kvöld og er það
fél. Ármann, sem gengst fyrir
því. %
Á morgun skoða þau ein-
hverja verksmiðju fyrir hádeg-
ið. Eftir hádegið er þeim boðið
til Vífilsstaða af frú Signhild
Konráðsson, konu Bjöms ráðs-
manns Konráðssonar.
Á laugardaginn fara þau| í
fimm daga ferð austur yfir f jall
og skoða Þrastaskóg, Kerið,
Geysi og Gullfoss þann dag, tvo
næstu daga dvelja þau um kyrt
í Biskupstungum. Hefir ver-
ið útveg-uð þar gisting á 15
bæjum. Á þriðjudaginn múnu
Tungnamenn reiða þau til
Laugarvatns, en þar verður
gist um nóttina og komið hing-
að til bæjarins daginn eftir.
Þeim tímá, sem þá er eftir,
hefir þegar verið ráðstafað að
mestu.
Aðalsteinn Sigmundsson og
þeir sem hafa aðstoðað hann
við móttökur þessara ungu og
kærkomnu frænda okkar eiga
þakkir skildar fyrir það, að
gera þeim dvölina hér sem
skemmtilegasta og fróðlegasta.
Sundmótið
á Akureyri
Sundmeistaramótinu á Akur-
eyri lauk í fyrrakvöld.
Keppt var í 400 m. bringu-
sundi og 1500 m. sundi.
I 400 m. bringusundinu varð
fyrstur Þórður Guðmundsson
úr Ægir, 7 mín. 0,5 sék. Ann-
ar Magnús Pálsson úr sama fé-
lagi, 7 mín. 20,6 sek.
1 1500 m. sundinu varð fyrst-
ur Jónas Halldórsson úr Ægi,
23 mín. 10 sek. Annar Hafliði
Magnússon úr Ármann, 26 mín.
40,4 sek.
í fyrradag var þreytt sund
yfir Oddeyrarál. Fyrstur varð
Haukur Einarsson, 19 mín. 21
sek. Annar Sigurður Runólfs-
son, 20 mín. 6 sek. Báðir úr
K. R. Metið í þessu sundi var
21 min 20 sek. og átti það ung
, stúlka, Sigríður Hjartar frá
Siglufirði.
í blaðinu í gær var ranglega
sagt frá gamla metinu í 100
metra baksundinu. Það var 1
mín. 26,6 sek., sett af Jónasi
Halldórssyni í sundlaugunum
hér sumarið 1932 og staðfest
af í. S. í. Metið sem Jón D.
Jónsson setti í þessu sundi nú
er 1 mín. 25,2 sek.
Deilan um Memel
Berlín kl. 11,45, 11./7. FÚ.
Deilan harðnar milli Þýzka-
lands og Lithauen um Memel-
héraðið. Síðustu daga hafa enn
nokkrir þýzkir embættismenn
verið settir af, þar á méðal yf-
irborgarstjórinn í Memel.. Neu-
rath utanríkisráðherra kallaði
í gær sendiherra Frakklands,
Englands, Ítalíu og Japan í Ben_
lín á fund með sér og krafðist
þess, að stórveldin gripu í taum
ana gagnvart Lithauen. Hann
tilkynnti einnig að málið myndi
verða kært fyrir Þjóðabanda-
laginu.
Dolfuss segiv af sév og mynd*
av afíuv síjóvn.
Berlín kl. 11,45, 11./7. FÚ.
Dolfuss tilkynnti í gær for-
seta Austurríkis, að stjórnin
væri reiðubúin að segja af sér.
Forseti tók afsögnina gilda, en
fól Dolfuss að mynda nýja
stjórn og hefir ]uið þegar ver-
ið gert. Dolfuss verður sjálfur
kahslari, utanríkisráðherra og
landvarnarráðherra. VarakansL
ari verður Stahremberg fursti,
en Fey, fyrverandi varakansl-
ari, verður ráðherra án sér-
stakrar stjórnardeildar.
Austurríkska stjórnin Iiefir
gefið út nýja tilskipun um, að
þeir, sem finnast með sprengi-
c fni í vörslum sínum, eigi á
hættu að fá líflátshegningu, ef
ekki er búið að láta sprengi-
efnið af hendi til yfirvaldanna
•fyrir vissan tíma.
Orsök þess að austurríkska
stjórnin sagði af sér og Doll-
fuss kanslari endurskipuleggur
nú ráðuneyti sitt, er talin vera
sú, að landvarnarráðherrann í
hinu fyrra ráðuneyti hans sagði
af sér embætti sínu vegna örð-
ugleika þeirra, sem verið hafa
og stöðugt eru á sambúðinni
milli Austurríkis og Þýzka-
lands.
Fey, fyrv. varakanslari
Enska stjórnín veitir 3 milj. st.pd. til
eOínóar kvikfjárræktar í Bretlandi.
London kl. 16, 11./7. FÚ.
Walter Elliot, landbúnaðar-
ráðherra Breta, skýrði frá því
í dag, að landbúnaðarmálaráðu-
neytið myndi leggja fram 3
milj. sterlingspunda til viðreisn-
ar kvikfjárræktar í búnaði
Stóra-Bretlands. Hann skýrði
einnig frá fyrirætlunum þeim,
sem ráðgerðar væru til þess
að hjálpa við þessari atvinnu-
grein og sérstaklega með tilliti
til aukinnar fleskframleiðslu. í
fyrirætlunum ráðherrans er
gert ráð fyrir innflutningstolli
á allan kjötinnflutning, til þess
að styðja verðið innanlands. Er
það gert beint til hagsmuna
fyrir breska framleiðendur. í
fyrirætlunum ráðherrans er
einnig gert ráð fyrir skipulagn-
ingu kjötsölunnar innanlands.
Verðuppbót er ætlast til að
bændum verði greidd af hinum
fyrirhugaða innflutningstolli,
er nemi 5 shillings á hverja
vætt, sem1 selt er á fæti, en 9
shillings og 4 pence á hverja
vætt af kjöti.
Sambandsríkjunum hafa ver-
ið tilkynntar þær ráðstafanir,
sem stjófnin hefir í hyggju að
gera, og ef svo færi, að þau
yrðu ófús á að fallast á þessa
skipulagningu, þá kvað Elliot
stjórnina verða að grípa til þess
að takmarka enn innflutning-
inn frá brezkum löndum. I
morgun átti Walter Elliot fund
með fulltrúum sambandsland-
anna og samveldisráðherranum
í London og ræddi þessi mál.
Bannið i Bandaríkjunum.
Berlín kl. 11,45, 11./7. FÚ.
1 Bandaríkjunum mun vera í
ráði að afnema öll höft á inn-
flutningi og sölu áfengra vína
frá desember n.k., þar sem tal-
ið er að höftin hafi hvergi náð
tilgangi sínum.