Nýja dagblaðið - 12.07.1934, Side 2
2
N Ý J A
DAGBLABIB
Snmartötin og
S v iffl ug
Snmartrakkana
íáið þér fallegast og- bezt hjá
GEF JUN
LUAGAVEG- 10 SIMI 2 8 3 8
SláttuvéSar
Bændur um land allt eru beðn^
ir að athuga:
Að vér seljum einungis nýjustu
gerð af sláttuvélum —
i
Herkúles og De^riog
- með sjálfvirkri
smurningu,
Vélarnar eru með öllum nýjustu endurbótum.
Samband ísl. samvinnufélaga
Hötnm til
Heyvagna
at beztu gerð, bæði tveggja hesta og eine heats.
Samband ísl- samvinnuíéSaga
RÉYKIÐ
TYRKNESKAR
CIGARETTUR
Ú(DSTK-
PAKKINN
KOSTAR
FAST
OLLUM V E RZLUNUM
Það hefir löngum fylgt mann
kyninu sú þrá, að geta flogið.
Geta tekið sig upp líkt og fugl-
inn og svifið yfir láð og lög.
Þetta hefir mönnunum tékizt.
Flugvélar hafa verið fundnar
upp, sem flytja okkur yfir
fjöll og fimindi og yfir úthöf
landa á milli á skömmum tíma.
Áður en flugvélar þær voru
fundnar upp, sem nú eru not-
aðar og ganga fyrir vélakrafti,
voru menn að búa sér til vængi,
er þeir festu við sig og ætluðu
þeir að íljúga á þann hátt.
Það eru til gamlar íslenzkar
sagnir um unglingsdreng, er
bjó sér til flugham úr fugls-
vængjum og flaug yfir Hvítá
á •Skálholtshamri, eftir að hann
hafði getað lyft sér lítilshátt-
ar frá jörðu áður. En hamur-
inn var tekinn af honum og
brenndur.
Wright bræðumir heims-
kunnu, er fyrstir manna byggðu
og stýrðu flugvél (1909), sem
knúin var af vélaafli, höfðu! áð-
ur byggt svifvélar, er voru án
hreyfils, og ferðuðust þeir um
og sýndu listir sínar í þeim
laust eftir aldamótin og höfðu
þá ýmsir verið búnir að sýna
af sér mikil afrek í þessu efni
á^iur, allt frá miðri 19. öld. ’
Síðan flugvélamar ruddu sér
til rúms, hefir svifflug alltaf
verið dálítið stundað, sérstak-
lega í Þýzkalandi, og þykir góð-
ur undirbúningur undir annan
fluglærdóm.
Svifvélarnar eru aðallega
bomar uppi á loftstraumum og
með því að „blaka“ vængjun-
um, breyta um legu þeirra í
loftinu, verður vélinni beint
upp eða niður á við, eftir hæfi.
Svifvélar þessar eru léttar,
100—200 pund án mannsins og
mestmegnis vængir.
Svifflugi er þannig hagað,
að valinn er til þess allhá hæð,
en misfellulítil. Einnig þarf að
vera nokkur vindur. Þegar
þetta er hvorutveggja fyrir
hendi, er vélin dregin upp
eftir hæðinni af tveim eða
fleiri mönnum, í vindinn. Er
upp á hæðina kemur, mætir
hún vindinum af kasti nokkru
og hefur sig á loft með byr
undir báðum vængjum, ef
lukkan er méð. Einnig má
koma henni upp af sléttu með
því að koma henni á allmikla
ferð, t. d. dreginni af bifhjóli
eða þ. h. tækjum. Hefir á síð-
ari árum farið mikið í vöxt
svifflug, sérstaklega í Banda-
ríkjunum og þá um leið kom
það af sjálfu sér, að farið var
að setja met í þessu eins og
hverju öðru sem að er keppt
nú á dögum.
Fyrir stuttu síðan var sett
heimsmet í svifflugi af Banda-
ríkjamanni Richard C. du
Pont. Flaug hann 249,50 km.
og er það langlengsta flug,
sem enn hefir verið flogið á
þennan hátt. Flaug hann yfir
Alleghanyfjöllin í 3000 feta
hæð.
Hlýtur það að vera æði ó-
líkt venjulegu flugi, að vera í
þessum vængjaða smádreka og
vera borinn áfram af vængj-
um vindanna nær einvörð-
ungu. ifl
Þótt undarlegt megi virðast,
er nú orðið furðu lítið um slys
af svifflugi þótt það hafi eins
og aðrar uppfyndingar og
framfarir, oft valdið slysum.
Tveir brautryðjendur svifvél-
anna, Otto Lilienthal og Percy
Pilcher, töpuðu lífinu við til-
raunir sínar um 1870—1880, á
eftir þeim komu Wright-bræð-
urnir og fleiri.
Það hefir ekki tekizt að
gera svifflugið verulega gagn-
legt, nema hvað það er góð æf-
ing fyrir flugmannaefni, og
raunar hvern sem er, en það
er dýr skemmtun og ekki
hættulaus, en þann kost hefir
það fram yfir margar aðrar
skemmtanir, að henni fylgir
ekkert spillandi. Það er hoil
•og hraustleg skemmtun.
Sumarhótelið
Svignaskarði
tekur dvalargesti og hefir
greiðasölu. í Svignaskarði
er fegursta útsýni yfir Borg-
arfjarðarhérað, góð húsa-
kynni og aðbúnaður.
Upplýsingar og afgr. hjá
Ferðaskrifstofu Islands
Sími 2939.
Mynda og
rammaverzl.
FREYJUG. 11 Sími 2105
ÍSLENZK MRLVERK
Flugvóíar knúðar
með gufnafli
í Klingenbérg verksmiðjun-
um í Þýzkalandi er verið að
smíða nýja tegund flugvéla.
Verða þær með gufuvél í stað
hinna venjulegu benzínvéla.
Það hefir lengi verið á-
hugamál flugvélafræðinga, að
geta notað gufuafl til að knýja
flugvélar, sökum þess að það
er miklu ódýrara, svo og, að
talið er, að hægt sé að fljúga
ofar í loftinu, þar sem mót-
staðan er minni. En gufuvél
hefir verið talin of þung til
þess, að hún yrði netuð í flug-
vélar.
Þýzkur verkfræðingur, að
nafni Húttner, þykist hafa
leyst vandann og kemur þessi
nýja flugvél til reynslu ixman
skamm'S.
Meðalhraði þessarar vélar er
áætlaður 380 km. á klst., en
eftir að komið er í 9—10 þús.
metra hæð, á meðalhraðinn að
verða 430 km. Á flugvél þessi
að geta flutt ca 1 tonn.
Væru flugvélar slíkar sem
þessar sérstaklega hentugar
til langflugs álfa á milli án
viðkomustaða.
„Danska Riviera"
Fjöldi þjóða hefir nú á síð-
ustu árum gert mikið til þess
að auka ferðamannastraum
hver til síns landá? og þrátt
fyrir kreppuna og vandræðin,
sem allsstaðar er um rætt, er
útlit fyrir að alltaf sé að
aukast ferðamannastraumur-
inn.
Danmörk er eitt þeirra landa
er fólk hefir á allra síðustu
árum tekið eftir sem ferða-
mannalandi. Er að aukast
mikið straumur fólksins þang-
að yfir vor- og sumartímann
og á þessu vori hafa yfir 3
þúsundir manna heimsótt Dan-
mörku fram yfir það sem verið
hefir undanfarin vor. Er sér-
staklega rómuð fegurð strand-
arinnar milli Kaupm.hafnar
og Helsingjaeyrar, sem farið
er að kalla „dönsku Riviera“.
Ferðaskrifsfofa
Islands
veitir ókeypis upplýsingar um
ferðalög og gististaði; útveg-
ar farartæki, og hefir af-
greiðslu fyrir flest helztu sum-
argistihúsin úti á landi.
Komið í Ferðaskrifstofuna í
Ingólfshvoli áður en þið farið
í ferðalög.
Tíl auglýsenda
Með vaxandi gengi Framsókn-
aríiokksins eru blöð hans meira
keypt og lesin, en við það vex
tryggingin fyrir auglýsendur.
að auglýsingar þeirra beri góð-
an árangur. —
Auglýsið í Nýja dagblaðinu
fyrir Reykjavík og kaupstað-
ina einkanlega Jiér á suður-
landi, en í Tímanum það sem
á að berast um allt landið'
Dvöl í frumskóguni
Miss L. E. Cheesemánn,
enskur skordýrafræðingur, er
nýlega komin úr heils árs
rannsóknarferð og dvöl í
frumskógum á eyjunni Papúa.
Flestir hvítir menn, er til
eyjarinnar fara, forðast að
hætta sér inn í hina villtu
skóga, sem eru alsettir eitruð-
um flugum og skorkvikindum
og höggormum, en hún fór
þangað einmitt til að safna
þessþáttar kvikindum.
Kom hún með hvorki fleiri
né færri en 42 þús. skorkvik-
indi, 15 mismunandi froska-
tegundir, og álíka margar
höggormategundir.
Hún elti skorkvikindin um
allar trissur. Eitt sinn kleif
hún upp 9 þúsund feta hátt
fjall. Plátt uppi í fjallinu lá
þokubelti, en ofan við það var
ofurlítil þokulaus rönd, og síð-
an þoka þar fyrir ofan á ný.
í þessu þokulausa bili sagði
hún að kynstrin öll af flugum
og fiðrildum hefðu safnazt
fyrir og þar bar vel í veiði.
Veiddi hún þar meira en í
nokkurt annað sinn.
Miss Cheeseman fór þessa
ferð á vegum brezka safnsins í
Lundúnum.