Nýja dagblaðið - 22.07.1934, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 22.07.1934, Blaðsíða 4
4 N Ý J A DAGBLAÐIÐ Alafosshlaupið verðnr í dag í sambandi við það verður stór og góð sund- skemmtun. Allir frægustu sundgarpar landsins mæta þar. — Kl. c6 hefst dansskemmtun í hinu stóra tjaldi. — Hljómsveít Bernburgs skemmtir. Allur ágóði til íþróttaskólans á Alafossi. ÍDAG Sólaruppkoma kl. 3.04. Sólarlag kl. 10.03 Flóð árdegis kl. 12.50. Flóð síðdegis kl. 1.40. Veðurspá: Hæg suðaustanátt, úr- komulaust að mestu. Söfn, skrifstofur o. fL Listasafn Einars Jónssonar .... 1-3 Höggmyndas. Ásm. Sveinss. 1—7 Ojóðminjasafnið ......... opið 1-3 Náttúrugripasafnið ...... opið 2-3 Pósthúsið...................10—11 Landssíminn .................. 8-9 Hefmsóknartími sjúkrahúsa: Landsspitalinn ........... kl. 2-4 Landakotsspítalinn ....... kl. 3-5 Laugarnesspítali .... kl kl. 12Vi-2 Vífilstaðahælið .. 12%-2 og 3Vi-4Vi Kleppur .................. kl. 1-5 Fæðingarh., Eiríksg. 37 kl.l-3og8-9 Siúkrahús Hvítabandsins ...... 2-4 Sólheimar .............. opið 3-5 Ellilieimilið ................. 14 Messa I dómkirkjunni kl. 11 (sr. Bjarni Jónsson). Landakotskirkja: Lágmessa kl. 01/2 árd. og söngmessa kl. 9 árd. Næturlæknir í Laugavegsapóteki og Ingólfsapóteki. Næturlæknir: Halldór Stefánsson, Lækjargötu 4, sími 2234. Næturlæknir á morgun: Hannes Guðmundsson, Hverf. 12. S. 3105 Samgöngur og póstferðir: Suðurland frá Borgarnesi. Island til Fœreyja og K.hafnar. Skemmtanlr og samkomur: Málverkasýning Jóns porleifsson- ar, Blátúni, opin 1—7. Dagskrá útvarpsins: Kl. 10.40 Veðurfregnír. 14.00 Messa i þjóðkirkjunni í Hafuarfirði (sr. Garðar porsteinsson). 15 00 Miðdeg isútvarp: Grammófóntónl. 1S.45 Barnatimi (Færeysk skólabörn syngja). 19.10 Veðurfregnir. Til- kynningar. 19.25 Grammófóntón- leikar: Lög úr óperunni „Eugen Onegin“ eftir Tschaikowki. 19.50 Tónleikar. — Auglýsingar.ö 20.00 Klukkusláttur. Grammófóntónl.: Chopin: Etudes Op. 10, nr. 1—12. 20.25 Erindi: Beethoven, II (Baldur Andrésson). 21.00 Fréttir. 21.30 Einsöngur: Danskir ljóðsöngvar (Marie Louise Ussing). 21.55 Dans- lög til kl. 24.00. Á m o r g u n: Kl. 10.00 Veðurfregnir. 12.15 Há- degisútvarp. 15.00 Veðurfregnir. 19.10 Veðurfregnir. Tilkynningar. 19.25 Grammófóntónleikar. 19.50 Tónleikar. — Auglýsingar. 20.00 Klukkusláttur Tónleikar: Alþýðu- iög (Útvarpshljómsveitin). 20.30 frá útlöndum (Vilhj. þ. Gislason). 21.00 Fréttir. 21.30 Tónleikar: a) Einsöngur (Pétur Jónsson). b) Grammófónn: Schubert: Pianósón- ata í A-dúr (Myra Hess). Annáll Tíminn kemur ekki út fyr en um miðja viku Verður nánar til- kynnt utn það síðar hér i blaðinu. Úrvalsliðið er keppti við H I. K. i gærkveldi, hefir'beðið blaðið að flytja úevai-psstjói-a og útvarps- ráði þakkir fyrir þá greiðvikni, að útvarpa frá kappleiknum í gærkveldi. Áttræðisafmæli á í dag Sigur- laug Guðmundsdóttir Lauganesi. Dánarfregn. Nýlega er látin að heimili sínu hér í bæ, Pálína þor- kelsdóttii-, systir þorkels veður- stofustjóra. Færeyski skólaflokkurinn skoð- aði þrjú iðnaðarfyrirtæki hér í bænum í síðustu viku: Sanitas, Nóa og Hreinsverksmiðjurnar. — Unga ísland liafði boðið honum eftir hádegi á föstudag í göngu- ferð upp á Esju, en sökum þoku og dimmviðris var hætt við það, en i þess stað farið upp að Tröllafossi og síðan að Ál^fossi og Reykjum. í gær var flokknum sýnd rafstöðin við Elliðaárnar, og siðari hluta dags var farið upp í skátaskála í Lækjarbotn- um og dvalið þar þangað til síð- degis í dag. ísfisksveiðar. Togararnir Bel- gaum og Gullfoss eru nú á is- fisksveiðum og Haukanes er farið til Vestfjarða, í þeim erindum að kaupa þar fisk til útflutnings. Heimdallur segir i fyrradag, að annar framljjóðandinn í Norður- Isafjarðarsýslu hafi ætlað sér að sigra með 2000 atkv. meirahluta. Væri gaman, ef Heimdallur skýrði frá því, hvað mikið þessi maður hafi ætlað mótframbjóð- anda sínum að fá Happdrætti 6. bekkjar B í Aust- urbæjarskólanum. Dregið var í happdrættinu 16. þ. m. og kom upp nr. 1016. Vinningsins á að vitja til Aðalsteins Eiríkssonar kennara, Sogablettl 1, Sogamýri. þorbergur JJórðarson rithöf. fór með Bráarfossi selnast áleiðis til Stokkhólms og ætlar að sitja þar allsherjarþing Esperantista. Freyju kaffibætir ryður sér nú óðfluga til rúms. Segja margar húsmæður, sem hafa reynt hann, að hann taki öllum öðrum kaffi- Itæti fram. Gleðilegt þegar ís- lenzkur iðnaður nýtur vinsælda þeirra, sem kynnast honum og notar hann. Dánardægur. Nýlega lézt í VVinnipeg þuríður Long, kona Bergsveins M. Long, 75 ára að aldri. Hún var ættuð úr Laxár- i dal i þingeyjarsýslu. Sildveiðin gengur mjög erfið- lega nyrðra og má kalla, að hafi \crið síldarlaust undanfarna daga og útlitið því mjög slæmt, ef slíku heldur áfram. Ríkisverk- smiðjurnar á Siglufirði liafa ekk- ert eða sama og ekkert haft að starfa frá því fyrir helgi, en síld- arverksmiðjan á Raufarhöfn hef- ir getað starfað með því að kaupa síld af Norðmönnum, en þeir hafa yeitt hana á þistilfirði og mun þar hafa verið sæmilegur afli. Nenntasköíanem- endurnir dönsku fara í kvöld 22 menntaskólanemendur héðan undir stjórn Ein- ars Magnússonar kenn- ara slást með í förina. Eins og- kunnugt er komu hingað til landsins 6. þ. mán. 22 nemendur frá „Östre Borg- erdydskole“ í Kaupmannahöfn. Fararstjórinn er Einar Ander- sen, rektor skólans. Það er menntaskólinn í Reyk- javík sem stóð fyrir móttökun- um hér. Hafði hinum dönsku nemendum verið útvegaðir dvalarstaðir á einkaheimilum, en skólinn sjálfur hefir kostað ferðalög um nágrennið. Farið hefir verið út á Reykjanes, þriggja daga ferð um Suður- landsundirlendið og skoðaðir þar helztu merkisstaðir, austur á Þingvöll og víðar. Hefir ver- ið reynt að gera dönsku nem- endunum þessa hálfsmánaðar- dvöl þeirra sem skemmtileg- asta, en þeir fara heimleiðis með íslandi í kvöld. Með þeim fara 22 mennta- skólanemendur héðan, undir leiðsögu Einars Magnússonar kennara. Mun „östre Borger- dydskole“ sjá um1 dvöl þeirra í Danmörku á líkan hátt og Menntaskólinn hefir annast mót töku hinna hér. Gert er ráð fyrir að koma aftur 15. næsta mánaðar. Þeir sem fara, eru allir nem- endur úr 5. bekk. Fimmtu bekk ingar hafa venjulega farið á vorin í nokkurra daga ferðalag um ýms héruð, en nú verður þetta ferðalag látið koma í þess stað. Eins og menn sjá, er hér um nemendaskifti að ræða milli skólanna og er þetta í fyrsta sinn, sem slík skifti fara fram milli íslenzkra og erlendra menntaskóla, en ytra er þetta algengt og þykir gefast vel. Flug Griersons Hann bjóst við að leggja af stað frá írlandi í gær en mun hafa hætt við það. Svohljóðandi skeyti barst De Foteneay, sendiherra, Dana frá utanríkisráðuneytinu í Kaup- niannahöfn: „Enski flugmaðurinn John Grierson legur af stað á laug- ardaginn frá Londonderry í flug sitt um Færeyjar og ís- land til Grænlands, og þaðan til Kanada. Ætlun Grierson er að rann- saka loftslag og segulmagns- kraft á þessari leið“. Loftskeytastöðin hérna hafði ekkert frétt af honum í gær- kvöldi og má því búast við að enn hafi fluginu verið frestað. Kappleikurinn í gærkvöldi Framh. af 1. síðu. menn urðu ekki fyrir vonbrigð- um. Að frá töldum örfáum mín_ útum höfðu íslendingar greini- lega yfirhöndina allan leikinn, og niðurataðan varð sú, að þeir unnu meö fimni rnörkum gegn einu. Það mátci heita, að H. I. K. næði aldrei sínum venjulega leik, stuttu, öruggu spörkun- um og samleiknum. íslendingar voru alltaf viðbúnir, ef Danir náðu knettinum, þá voru þeir óðara búnir að taka hann af þeim aftur. Hraðinn og dugn- aðurinn hjá úrvalsliðinu var al- veg frábær og oft náði það þeim bezta samleik, sem sýndur hefir verið móti Dön- unum á þesum kappleikjum. Um íslenzku knattspyrnu- mennina má segja, að engum undanteknum, að leikur þeirra var prýðilegur. Það verður varla sagt að einn hafi borið af öðrum, a. m. k. skal ekki farið í það uppgjör hér. Þó einhverjir þeirra hafi „brennt af“ eða ekki gætt nægilega vel að halda samleiknum, þá er slíkt ’fyrirgefanlegt, þegar leik- urinn er dæmdur í heild. Þá verður útkoman góð hjá þeim öllum. Dönsku knattspyrnumennirn- ir léku einnig vel, þó hraði og dugnaður íslendinganna yrði þeim of örðugur viðfangs. Mik- ill skaði hefir það áreiðanlega verið fyrir þá, að missa mið- framherjann, Börge Petersen, úr leiknum. Meiddist hann í baki, fekk vöðvatognun. Settu þeir þá TielSen fyrst í hans stað, en hann náði sér aldrei verulega og fór á sinn gamla stað aftur. Mun sá ruglingur hafa spillt fyrir þeim nokkuð. En á úrslitin hefir það þó ekki haft nein áhrif. Ósigurinn var þeim alveg viss. Markmaður þeirra, Rupert Jensen, stóð sig með mikilli prýði og bjargaði oft markinu á aðdáanlegan hátt. Sízt má saka hann um það, hvernig fór. Þeir leikmenn, sem hafa ef til vill dregið að sér mesta at- hygli, voru Thielsen og Hrólfur. Það mátti segja, að þar mætt- ust „tveir seigir“. Og víst mætti Hrólfur vera upp með sér af leik sínum í gærkveldi móti ,bezta knattspyrnumanni Dana'. Rúm blaðsins að sinni leyfir ekki frekari frásögn um leik- inn. En ekki er ólíklegt, að hanns verði betur minnst síðar. Mark Dana setti Börge Pet- ersen. Mörk Islendinga settu Jón Sigurðsson, Ilans Kragh, Agnar Breiðfjörð, Þorsteinn Einarsson og Gísli Guðmunds- son.Munu þess ekki mörg dæmí að allir framherjar hafi skorað mark. Odýru an.g’lýamg^arnar. Kaup og sala Freyju kaffibætir er beztur. Ef þið hafið ekki notað hann áður, þá reynið hann nú um helgina, því ekki er sízt þörf að fá gott kaffi á sunnudögum. Kassar til að geyma í kökur. Nestiskassar. Berjafötur. Kaupfélag Reykjavíkur. Saltfiskbúðin er vel birg af nýjum fiski. Sími 2098. Túnþökur fást keyptar. Sími 4435. Notuð eldavél óskast til kaups. Uppl. á Frakkastíg 15 uppi eft ir kl. 6 síðd. Vegna flutnings er tvísettur klæðaskápur úr birki til sölu með tækifærisverði. Uppl. í síma 2773. Hús og aðrar fasteignir til sölu. Hús tekin í umboðssölu. Skrifstofan í Austurstræti 14, þriðju hæð, opin kl. 11—12 og 5—7. Sími 4180 og 8518 (heima). Helgi Sveinsson. Tyggigúmmí, Disseto, Át- súkkulaði o. fl. ítalskt sælgæti nýkomið. Kaupfélag Reykjavíkur. Til sölu nokkrir hestar af góðri töðu. Uppl. í síma 1768. Rauður rabbarbarí til sölu í Hólabrekku. Sendur heim ef óskað er. Sími 8954. STÓRHÖGGIÐ kjöt af dilkum og fullorðnu fé fyrirliggjandi. S. í. S. — Sími 1080. Chevrolet vörubíll til sölu ó- dýrt. Upplýsingar hjá Sigurði Guðmundssyni. Lindargötu 14. D IV A N A R (og viðgerðir) með góðu stoppi og mörgum fjöðrum, verða beztir og sterkastir, ódýrastir og fallegastir. — Húsgagna- vinnustofan Skólabrú 2 (hús ól. Þorsteinssonar læknis). Tilkynningar 1 Beztu og ódýrustu sunnu- dagaferðimar verða nú eins og áður frá Vörubílastöðinni í Reykjavík. Sími 1471. Tapað-Fundið Það ráð hefir fundizt, og skal almenningi gefið, að bezt og öruggast sé að senda fatn- að og annað til hreinsunar og litunar í Nýju Efnalaugina. Dómari var Guðjón Einars- son og virtist dómur hans góð- ur.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.