Nýja dagblaðið - 12.08.1934, Síða 3
N Ý J A
DAGBIAÐIB
l
I Iihíiíu nazisla
Hokkrir kaflar úr bók þýzka ríkis-
þingsmannsins Gerhart Seger, sem
hann netnir Oranienbnrg.
^4«^ Xsi#r
/tc AÆ+W&'
Ég sver, að segja eftir beztu vitund og samvizku, hreinau
sannleikann, allan sannleikann og ekkert nema sannleikann.
Gerhart Seger.
i NÝJA DAGBLAÐIÐ
| Útgefandi: „Blaðaútgáfan h.f.“
Ritstjóri:
Gísli Guðmundsson,
| Tjarnargötu 39. Sími 4245.
Ritstj órnarskrifstofumar
| Laugav. 10. Símar 4373 og 2353.
| Afgr. og auglýsingaskrifstofa:
| Austurstrœti 12. Sími 2323.
| Áskriftargj. kr. 1,50 á mánuði.
i í lausasölu 10 aura eint.
| Prentsmiðjan Acta.
Hlutverk
íhaldtblaðanna
Það er ákveðið og afmarkað.
Það er ekki einungis í því fal-
ið að níða sérhverjar fram-
kvæmdir umbótamannanna, og
halda uppi vömum og eggjun-
um fyrir síngjörnum hlut-
drægum athöfnum íhalds-
manna þeirra, er liafa átt þess
kost að ráða um framkvæmd-
ir í hagsmuna og menningar-
málum almennings, heldur
einnig að dásama bein lögbrot
þeirra og skaðsamlega og
heimildarlausa eyðslu á fé rík-
isins. Nægir í því sambandi að
minna á vein íhaldblaðanna
yfir því, að lögbrot Magnúsar
Guðmundsonar um stofnun og
viðhald heimildarlausrar vara-
lögreglu skuli ekki fá að
halda áfram, sem hingað til.
Um lögreglumálin sem veiga-
mikinn lið í mönnuðu þjóð-
félagi skiptir íhaldið engu.
Það vill Oddgeirs Bárðarsonar
lið; hóp manna með ákveðnar,
pólitískar skoðanir, er því séu
þóknanlegar og tiltækir eru
þegar hagsmunum íhaldsins
kemur vel. Sönnunin fyrir
þessu blasir hverjuni manni
við augum. Sjálfur æðsti mað-
ur þeirra mála, fyrv. t fulltrúi
íhaldsins í ríkisstjórninni,
leggur það á sig að þríbrjóta
lögin á einu ári, til þess að
koma lögreglumálunum í þókn-
anlegt íhaldshorf.
Framsóknarflokkurinn mun
iiér eftir sem hingað til vinna
á móti spillingu íhaldsins á
þessu sviði sem öðrum. Fyr-
verandi lögreglustj. í Reykja-
vík og núverandi forsætisráð-
herra, Hennann Jónasson,
hefir öllum mönnum fremur
unnið að því, að hér komi upp
myndarlegt og æft lögreglulið,
ekki í líkingu við æfintýra-
kenndar málaliðssveitir, eins
og íhaldið vill, heldur fast
gagnmenntað og nægilega fjöl-
mennt lið, sem hefði fullkomna
tiltrú borgaranna. Þetta hefir
tekizt, nema að því leyti, sem
fasta lögregluliðið kann að
vera fámennara en æskilegt
væri. Fyrirmyndirnar að slíkri
skipan eru teknar úr riá-
grannaríkjum okkar, en eink-
um þó frá Svíþjóð, sem stend-
ur framarlega um skipun
þeirra mála, og þar sem ákvæði
eru um 2 fasta lögregluþjóna
á hverja 1000 íbúa.
Eitt það, sem lögreglu bæj-
arins vantar er lögreglustöð
með þeim útbúnaði og skilyrð-
um, er gera verður kröfu til í
sStormaveitarliðið
og langfabúðirnar
Varðmenn fangabúðanna
voru oftast milli 80 og 100.
Það voru stormsveitarmenn, er
voru að mestu leyti úr ná-
grenni Berlínar, en nokkrir frá
ýinsurn öðrum hlutum lands-
ins. Langfæstir þeirra voru úr
hinum svokölluðu „menntuðu
stéttum“.
Flestir voru synir bænda og
verkamanna og oft í andstæðri
stjórnmálastöðu við foreldra
sína. Fæstir höfðu þeir notið
menntunar né stundað neina
sérstaka iðjugrein. Og nær all-
ir ókvæntir.
Flestir þessir menn til-
heyrðu þeirri kynslóð, er vaxið
hafði upp eftir ófriðinn mikla,
menn, sem höfðu naumast
kynnzt öðru en atvinnuleysi og
sem í fullkominni vanþekk-
ingu uni hagfræðilegt og
stjórnarfarslegt ástand gleyptu
við falskenningum nazismans.
Það væri fullkomlega rangt
myndarlegum1 bæjum. Og
þannig mætti fleira nefna.
En þessir hlutir skipta engu
í augum íhaldsins. Það gerir
ekki kröfu til myndarlegra
manna, sem hafa kunnáttu í
sínu starfi. Því er sama, hvort
þeir eru sæmilega eða illa laun-
aðir. Því kemur ekkert við,
hvernig að þeim er búið, hvort
búnaður þeirra er snotur eða
afkáralegur. Og því er sama
hvort nokkur sæmileg lög-
reglustöð er til eða ekki. Það
óskar einungis eins: Verið til
þegar við þurfum á ykkur að
halda.
En íhaldið fær ekki óskir
sínar uppfylltar. Lögbrotaráð-
hei-rann M. G. var dæmdur úr
stóli og þjónkuninni við íhaldið
lokið.
Framsóknai’flokkurinn vill
skipa þessum málum sem öðr-
um eftir þörfum almennings.
Hann vill fasta og nægilega
fjölmenna lögreglu, lið, sem
eigi sér traust og tiltrú. Lög-
reglu, sem skapi réttlæti.
að halda því fram, að venju-
legur S.A.-maður hafi nokkra
sjálfstæða pólitíska skoðun.
Þar sem þessir gæzlumenn
gáfu sig á tal við fangana —
er helzt kom fyrir úti á vinnu- |
stöðvunum —, kom það í ljós,
að þátttaka þeirra í storm-
sveitunum var — með fáum
undantekningum — af atvinnu-
þörf. Þeir höfðu gengið inn í
nazistahreyfinguna eins og
æfintýn, æfintýri, sem tengd
voru nætursvalli, ræningja- og
hennannaleikjum, rómantísk-
um blekkingjaleikjum við lög-
regluna og sem leiddust út í það
að hleypa upp mannfundum.
Smátt og smátt breyttust svo
þessir hópar í launaðar varð-
sveitir Iiitlers með liðsmanna-
form og heniaðarblæ, er féll í
skap þessum ungu mönnum.
Vöntun á stjórnmálaáhuga
— svo ekki sé minnst á stjórn-
málaþekkingu — er alveg
furðulega mikil hjá S.A.-mönn-
unum.
Þegar kosningar til ríkis-
þingsins og þjóðaratkvæða-
greiðslan fór fram 12. nóvem-
ber, heyrðum við aðeins S.A.-
gæzlumennina minnast stutt-
lega á væntanleg úrslit at-
kvæðagreiðslunnar — og það
einungis fáa. Flestir, sem á
það mál minntust, töluðu um
það líkt og knattspymukapp-
leik eða hnefaleika. Að kosn-
ingunum loknum: var yfirleitt
ekki á þær minnzt, þrátt fyrir
þann sigur, sem Hitler vann.
Umræður S. A. - mannanna
snerust einungis um laun
þeirra, skuldir þeirra, drykkju-
svall og kynferðismál. Lifnaði
þessara stormsveitarmanna er
réttilegast líkt við málaliðs-
menn miðaldanna og þeirra
framkomu.
Stormsveitarforingi Kriiger
lét dag nokkurn mála eftirfar-
andi „djúpúðuga" setningu á
herbergisvegg sinn: „Lofum
hermönnunum að drekka, spila
og kyssa — hver veit hvenær
þeir eiga að deyja“. Og það
má fullyrða, þetta voru þau
eirikunnarorð, sem þeir lifðu
eftir.
I minni sex mánaða fanga-
vist í Oranienburg, kynntist
ég mörgum S.A.-mönnum. Og
engan þeirra vissi ég nota svo
mikið sem eina klukkustund af
löngum, daglegum frítíma, til
þess að lesa nokkuð né læra af
eigin hvöt.
Þegar maður úr reynslu síns
eigin lífs veit um það vilja-
magn og elju„sem æska verka-
mannaflokkanna hefir lagt
fram til aukinnar þekkingar og
menntunar að loknu skólanámi
— oft eftir langan starfsdag í
verksmiðjum og vinnustöðvum
— og ber það svo saman við
S.A.-fólkið — drottinn minn
dýri, hVílíkur munur. Hversu
margir stormsveitarmenn hafa
ekki við kynni sín af okkur
föngunum, fengið í fyrsta
skipti hugmynd um, að til væru
fleiri hugðarefni en byssur,
kylfur, spil og kynferðismál.
Það er ekkert undrunarefni,
þótt í slíkum lýð hittist nægi-
lega mörg mannhrök, er til
þess séu búin að taka að sér
hlutverk böðuls og böðuls-
þjóna. En órétt væri að dæma
alla S.A.-menn á þennan hátt.
Meðal gæzlumannanna í fanga-
búðunum í Oranienburg voru
til sæmilegir menn, sem höfðu
viðbjóð á glæpaathæfi félaga
sinna og sýndu það í breytni
við fangana. Það fundust þar
góðviljaðir menn og dreng-
lundaðir, sem við fangamir
eigum marga bærilega stund
að þakka. Og þess mega þeir
menn vera vissir, er auðsýndu
okkur mánnúð mitt í siðleysi
og þrælmennsku fangabúðanna,
að slíku gleyma. fangamir
ekki.
En þegar ég ætla að vera
eins réttlátur og mér er fram-
ast unnt og ræða um andstæð-
inga mína algerlega hlut-
drægnislaust og ætla ekki að
fylgja ljótum dæmum nazista
gagnvart okkur, þá hlýt ég að
fullyrða þetta: Þessir síðast-
nefndu S.A.-menn eru undan-
tekning — gleðileg, athyglis-
verð undantekning. Innan
stormsveitanna er ruddaháttur
langtum algengari en mannúð,
tillitsleysið almennara en nær-
gætni, misþyrmingar stórum
tíðari en réttlát framkomá.
Þetta er ekki einungis af-
leiðingar af upplagi manna,
heldur — það sem. er enn við-
Kominn heim
Jónas Sveiasson
iæknir.
„Amatörar"
Verið vandlátir með vinnu
þá er þér kaupið. — Látið
mig framkalla, kopiera og
stækka myndir yðar og berið
það saman við það, sem þér
áður hafið reynt.
Ljósmyndastofa
SIG. GUÐMNUDSSONAR
Lækjargötu 2 Sími 1980
Takið eftir!
Dvergasteinn, Smiðjustíg 10
tekur að sér viðgerðir á alls-
konar landvélum, gerir tilboð í
smíði á handriðum, grindum og
rörurn.
Brúnsuða á stálmunum, svo
sem byssuhlaupum.
Munið að líkkistuhandföngin
eru framleidd í
Dvergasteini
Sími 2049 Pósthólf 3885
bjóðslegra — árangurinn af
skipulögðu „uppeldi“ til of-
beldis og morða. Þegar foring-
inn dáir hið hræðilega morð í
Potempa, þegar hann sendir
samúðarskeyti þeim! dýrslegu
glæpamönnum, sem fimm í
flokk troða mann til bana með
stígvélahælunum — að móður
hans ásjáandi, hvers er þá að
vænta af undirmönnum hans?
Þegar yfirmennimir skemmtu
sér við píslir fanganna, hví
skyldu þá ekki óbreyttir S.A.-
menn leika sama leikinn?
Og ýmsir þeirra hafa líka
morð á samvizkunni, aðrir
hafa aðstoðað við pyndingam-
ar í no. 16, en þó langtum
fleiri gert sig seka um mis-
þyrmingar og ofbeldisverk á
ýmsum öðrum stöðum fanga-
búðanna. Og afarmargir hafa
látið fangana sæta siðferðileg-
um misþyrmingum, sumir af
heimsku og óviti, en miklu
fleiri af ódrengskap og hrak-
mennsku. Framh.