Nýja dagblaðið - 12.08.1934, Blaðsíða 4
I
N f J A
DAGBLABIÐ
ÍDAG
Annáll
Bráðabirgðalög
Stefnubrepting
% Odýrn
Sólaruppkoma kl. 4,10.
Sólarlag kl. 8.53.
Flóð árdegis kl. 6.25.
Klóð síðdegis kl. 6.40,
VoðurSpá: Norðankaldi, bjartviðri.
I.jósatími hjóla og bifreiða kl.
9.50—3.15.
Söfn, skrilstofur o. fL
pjóöminjasafnið .......... opið J-3
Náttúrugripasafnið ....... opið 2-3
Listasafn Einars Jónssonar .... 1-3
Fóstliúsiö..................10—11
Landssíminn ............. opinn 8-9
l.ögregluvarðst. opin allan sólarhr.
Messa
í dómkirkjunni kl. 11 (sr. Bjarni
Jónsson).
í tríkirkjunni kl. 2 (sr. Árni Sig-
urðsson).
Haimsóknartimi sjúkrahnsa:
Landsspítalinn ........... kl. 3-4
Landakotsspítalinn ........... 3-5
Laugarnesspítali ........... 12^-2
Vífilstaðahælið 12%-l% og 3J4-4J4
Kleppur ...................... 1-5
Fæðingarh., Eiríksg. 37 1-3 og 8-9
Sólheimar .................... 3-5
Sjúkrahús Hvítabandsins .... 2-4
Farsóttahúsið ................ 3-5
Næturvörður í Reykjavikurapóteki
og Ivfjabúðinni Iðunn.
Næturlæknir Gísli Fr. Petersen,
Barónsstíg 59. Sími 2675.
Næturlæknir aðra nótt Gpðm. Kari
Péeursson, Sími 1774.
Samgöngur og póstferöir:
Suðurland fró Borgamesi.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10.40 Veðurfregnir. 14.00 Messa
i fríkirkjunni. 15.00 Miðdegisútvarp.
19.10 Veðurfregnir — Tilkynningar
19.25 Grammófóntónleikar. 19.50
Tónleikar — Auglýsingar 20.00
Klukkusláttur. Grammófóntónleikar
(orgei). 20.30 Upplestur: Sögukafii
(Halldór Kiljan Laxness). 21.00
F’réttir. 21.30 Danslög til kl. 24.00.
Á m o r g u n:
Kl. 10.00 Veðitrfregnir. 12.15 Há-
degisútvarp. 15.00 Veðurfregnir
19.10 Veðurfregnir. — Tilkynning-
at 19.25 Grammófóntónleikar. 19.50
Tónleikar. — Auglýsingar. 20.00
Klukkusláttur. Tónleikar: Alþýðu-
iög (Útvarpshljómsveitin). 20.30
Frá útlöndum (sr. Sigurður Einars-
son). 21.00 Fréttir. 21.30 Tónleikar:
a) Einsöngur (frú Elísabet Einars
dóttir). b) Grammófónn.
Flugheimsókn
Rússa í Frakklandi
Berlín, 11./8. PÚ.
Hópur flugvéla frá Sovét-
Rússlandi er nú í heimsókn í
Frakklandi. Frönsku blöðin
birta langar greinar um heim-
sóknina. „Le Joumale“ hrósar
nijög gerð flugvélanna og tel-
ur þær útbúnar samkvæmt öll-
um kröfum -nútímans. Bendir
blaðið í þessu sambandi á það,
að vináttusamningur á milli
Rússa og Frakka mundi mjög
auka öryggið í álfunni, þar
sem hin órólegu lönd í Mið-
Evrópu yrðu þá innilukt af
sterkum herafla.
Tíminn kemur út næstkomandi
þriðjudag. Auglýsingum sé sldlað
i Prentsm. Acta í dag nða á morg-
un.
Bandalag íslenzkra listamanna
lu-fir nýlega gerl ráðstafanir til
þess, að „Kirkjuráð hinnar is-
lenzku þjóðkirkj u“, sem gaf út
hókina „Viðbætir við sálmabók",
og nefnd sú, sem sá um útgáfuna,
verði látin sæta ábyrgð að lögum
lyrir meðferð sína ó Ijóðnm, sem
tekin voru í bókina. Höfundar
þessara sálma hafa skorað á
Bandalag íslenzkra listamanna ð
gera réðstafanir til þess að bókin
verði gerð upptæk. Byggja þeir
kröfur sinar á eftirfarandi atrið-
um: 1) Sálmar liafa verið teknir
í viðbætinn án vitundar og leyfis
liöfundanna. 2) nefndin hefir víða
fellt úr sálmunum og réttri röð
erinda hefir verið raskað. 3) Nefnd
in befjr gert stórkostlegar breyt-
ingar á sumum þessara’sálma án
vitundar og leyfis höfunda. Hafa
„Bandalaginu“ þegar birizt áskor-
nnir frá átta iilutaðeigendum, En
það eru Steingrímur Matthíasson
v.egna föður síns, Davíð Stefáns-
son, Huida, Kjartan Ólafsson, Ólína
Andrésdóttir, Brynjólfur Dagsson
vegna Brynjólfs frá Mimia-Núpi,
Jón Magnúson og Ólína þorsteins-
dóttir, ckkja Guðm. Guðmundsson-
ar skólaskálds.
Síldveiði á Akranesi. í fyrradag
komu þrír útilegubátar inn til
Akraness íneð síld, „Aldan" með
yfir 100 tunnur, „Báran'* og „Ver“
með milli 50 og 60 tn. hvor. Einn-
ig kom „Sæfarinn**, sem veiðir i
dragnót, inn með góðan afla. Ný-
i'arnir eru á síldveiðar ,,Hafþór“ og
„Víðir“. — Síldin veiðist í Jökul-
djúpinu.
Miss Mc. Cord, ameríksk drátt-
listarkona og málari, dvelur nú
hér í bænum. Hingað kom hún frá
Frereyjum, þai- sem hún hafði
dvalið um nokkurra mánaða skeið.
l’orðaðist hún um eyjarnar og dró
og málaði þar fjöida mynda. Við-
dvöl hennar hér mun verða frem-
ur stutt.
Ægir, 7. tbl. yfirstandandi árg.
er nýlega kominn út. Efni: Sjó-
minjasafn, eftir ritstj, skýrsla er-
indreka Fiskifélagsins í Austfirð-
íngafjórðitngi frá 1. apríl til 1. júlí
1934, sjóferðareglur, harðfiskur eft-
ir St. Sigurfinnsson, ísrek við
Grænland og ísland árið 1933 eftir
dr. Bjarna Sæmundsson, vél til
fjSkmjölsframleiðslu í fiskiskipum
o. fl.
Innflutningurinn i júlímánuði sl.
nam að verðmæti kr. 3.350,139 kr.,
samkvæmt tilk. fjármálaréðuneytis
ins 10. þ. m.
Jan.—júli 1934 nam útflutningur
ísl. afurða kr. 19.744.840, en inn-
ílutningurinn á sama tíma nam
kr. 28.193.000.
Fiskafli licfir verið mikill við
Langanes og Melrakkasléttu það
sciri af er þessum mánuði og síð-
ari hluta fyrra mánaðar. Einnig
liefir vcrið mikill síldarafli um
þessar slóðir.
Sildarverksmiðjan á Raufarhöfn
licfir tckið á móti um 37000 hi.
síldar. Síldarsöltun hófst þar í
fyrradag og voru saltaðar um 300
tunniir.
Gufuskipið Kolumbus kom til
Siglufjarðar í fyrrakvöld með
túnnufarm. Er þetta fyrsta ferð
skipsins þangað. — Skipið er 1200
smál. cð stærð og eru eigendur
þess nokkrir menn í Reykjavík.
Skipstjóri er Árni Gunnlaugsson
liéðan úr bænum.
Framh. af 1. síðu.
í skólfcmáhuii
aug’lýsmganaar.
8. gr.
Skylt er öllum, sem verzla |
með sláturfjárafurðir, að láta
kjötverðlagsnefnd í té allar
upplýsingar og skýrslur, er
hún óskar eftir, viðvíkjandi
sölu og söluhorfum á slátur-
f j áraf urðum, bæði innanlands
og utan.
9. gr.
Landinu skal skipta í verð-
lagssvæði eftir aðstöðu til
markaðs og flutninga. Nefnd-
in skal ákveða verðlag á
hverju verðlagssvæði fyrir
sig.
10. gr.
Kjötverðiagsneínd gerir þær
ráðstafanir, er hún telur þurfa
til þess að innlendi markaður-
inn notist sem bezt. Hún hefir
eftirlit með því, að gætt sé
hagsýni og spamaðar við
slátrun og í allri meðferð slát-
urfjárafurða og verzlun með
þær. í því skyni getur nefnd-
in takmarkað fjölda útsölu-
staða, þar sem henni virðist
þurfa.
11. gr.
Kjötverðlagsnefnd er heim-
ilt, ef hún telur þess þörf, að
láta ákvæði þessara laga um
sölu og verðjöfnunartillag gilda
um nautakjöt og fleiri slátur-
f j áraf urðir.
12. gr.
Landbúnaðarráðherra setur
með reglugerð nánari ákvæði
um framkvæmd laga þessara.
I reglugerð má ákveða sektir
við brotum gegn henni.
13. gr.
Brot gegn 3. gr. varða sekt-
um -allt að 10.000 krónum.
Brot gegn öðrum ákvæðum
laga þessara verða sektum allt
að 1000 krónum, nema þyngri
refsing liggi við samkvæmt
lögum. Sektir renna í verð-
jöfnunarsjóð.
14. gr.
Með mál út af brotum á
lögum þessum skal farið sem
almenn lögreglumál.
15. gr.
Lög þessi öðlast gildi þegar
í stað.
Milli Krisuvíkur og Grindavikur
hefir verið lagaður vegurinn fyrir
bila nú nýlega. Er hann sæmilega
góður í þurru veðri. Vegalengdin er
um 24 kílómetrar.
Resolut kom liingað í gær að
norðan með frysta síld.
Talstöðin á Siglufirði cr tekin til
starfa. Hún afgrciðir viðtöl við
skip frá ki. 7,50 ti lkl. 23.00 dagl.
í fyrradag var búið að salta 104
þús. tn, síldar alls á landinu. Á
siima tíma. í fyrra vor búið að
salta alls tæplega 135 þús. tn.
Útflutningur ísl. afurða í júlí
sl. nam, samkv. skýrslu frá Geng-
isnefnd, kr. 3,571.550.
Framh. af 2. síðu.
ast svo í minni hans, ]?ar til
hann kann að þurfa að nota
þá, eins og hey geymist í hlöðu
— ef þeir gleymast þá ekki og
týnast. Nýju skólastefnunni er
það ljóst, að börnin eru verur
í sköpun, mótun, vexti. Að þau
búa yfir miklum hæfileikum,
óljósum og blundandi, og þessa
hæfileika þarf að finna, vekja
og veita þeim tækifæri og hvöt
til stælingar. Hlutverk skóla-
starfsins er líkt og hliðstætt
þeim æfingum, sem íþrótta-
rnaður iðkar til að verða fær í
íþrótt sinni. Við æfinguna
stælast vöðvar hans og hann
æfist í að beita réttum vöðv-
um til hverrar hreyfingar og
nær með því valdi yfir líkama
sínum og evkur afkastagetu
hans. Slíkar æfingar fyrir anda
og líkama nemandans og alla
hæfileika hans telur nýj a skóla-
stefnan skólastarfið eiga að
vera. Af því leiðir, að nemand-
inn verður sjálfur að vera að
verki, en ekki aðgerðarlítill
viðtakandi þess, sem í hann er
troðið. íþróttamaðurinn stælist
ekki á að heyra um íþrótta-
leikni og sjá hana, heldur af
því, sem hann gerir sjálfur —
af sjálfri áreynslunni.
Nýja skólastefnan leitast því
við að veita bömunum sern
fjölþættust tækifæri til starfs
í skólunum. Hún vill láta huga
og hönd vinna saman að því,
að brjóta til mergjar viðfangs-
efni tilverunnar í kringum
barnið. Nýju skólarnir láta
börnin fá efni til rannsóknar,
og þá gjarnan efni, sem draga
að sér hugi þeirra og áhuga.
Börnin fá til afnota bækur og
önnur tæki til rannsóknarinn-
ar. Og ávöxtur rannsóknarinn-
ar kemur sýnilega í ljós í
teikningum ýmiskonar handa-
vinnu og í rituðu máli, sem
börnin afkasta. Bömin eru
þama að verki, sem hefir til-
gang og takmark í sjálfu sér,
eins og hvert annað starf. Þau
njóta vinnugleði, áhuga og
sköpunargleði við að framleiða
sýnilega hluti. Þeim festist
ósjálfrátt í minni það, sem
minninu þykir vert að geyma,
eins og gerist í eðlilegu hvers-
dagslífi, og er að því leyti engu
glatað af kostum lexíunáms-
ins. En þau fá að auki tamn-
ingu og leikni í að leita og
finna, rannsaka og vinna, vega
og meta staðreyndir. Slík
leikni er hverjum nútíðar-
manni meginnauðsyn.
Kaup og sala
Húseignir til sölu.
Enn hefi ég t.il sölu talsvert
af húseignum með lausum íbúð-
um 1. okt., t. d. l.Steinsteypu-
hús, þrjár íbúðir. 2. Nýlegt,
járnvarið timburhús, sérstætt,
eignarlóð, öll þægindi. 3. Stein-
steypuhús, þrjár íbúðir. 4. Snot
urt, sérstætt steinhús, her-
bergi og eldhús. 5. Hálf hús-
eign í austurbænum á götu-
horni. 6. Lítið steinsteypuhús,
tvær litlar íbúðir o. m. fleira.
Annast eignaskipti og sölu fast
eigna. Get tekið erfðafestu-
eða leiguland eða jörð hér nær-
lendis í skiptum fyrir hús á
góðum stað í bænum. Gerið svo
vel að spyrjast fyrir. Fast-
eignasalan, Austurstræti 14,
þriðju hæð. Símar 4180 og 3518.
Helgi Sveinsson
Úrvals hey til sölu ef keypt
er strax. Afgr. v. á.
Nýlegt orgel til sölu. Uppl.
gefur Brynjólfur Þorláksson,
orgelleikari.
Melónur
eru komnar aftur
Kaupfélag Reýkjavíkur.
Mótorhjól er til sölu í góðu
standi. Mjög ódýrt ef samið er
strax. A. v. á.
Nýtt hvalrengi daglrga í
Saltfisksbúðinni. Sím: 2098
Með tækifærisverði seljast
tveir klæðaskápar, tvíseitur og
þrísettur, úr birki. Uppi. Mið-
str. 5, niðri, kl. 7—9 síðd.
Freknukrem (Stilmans) Niv-
eakrem, Igemokrem og Sports
krem fæst hjá
Kaupfélagi Reykjavíkur.
5 manna bifreið
sérlega rúmgóð, til söiu með
góðum kjorum. Minni bifreið
gæti ef til vill orðið tekin í
skiptum. Afgr. v. á.
Beztu og ódýrustu sunnu-
dagaferðirnar verða nú eins og
áður frá Vörubílastöðinni í
Reykjavík. Sími 1471.*
Það ráð hefir fundizt, og
skal almenningi ^gefið, að bezt
og öruggast sé að senda fatn-
að og annað til hreinsunar og
litunar í Nýju Ffnalaugina.
Hannes Jónsson, dýralæknir.
Sími 2096.
Bragi Steingrímsson, dýra-
læknir. Eiríksgata 29 Sími 3970
Ég verð rúmsins vegna að
láta nægja þetta almenna yfir-
lit um stefnubreytingu þá, sem
nú er að gerast í skólamálum.
Hefði þó verið æskilegt, að
geta skýrt hina nýju stefnu
með einstökum dæmum um
vinnubrögð hennar. Þetta
stutta yfirlit vona ég þó að
nægi til að gera háttvirtum les-
öndum ljóst hvað vakir fyrir
þeim kennurum, sejn eru að
breyta til um vinnubrögð í
skólastarfi sínu.
Hásnæði
Tvö herbergi og eldhús með
öllum þægindum óskast 1. okt.
sem næst miðbænum, handa lít-
illi fjölskyldu. A. v. á.
1 herbergi og eldhús eða með
aðgangi að eldhúsi óskast strax
Uppl. í síma 3328.
4 herbergi og -eldhús með
öllum þægindum óskast í Mið-
eða Vesturbænum fyrir 1 .okt.
Afgr. v. á.