Nýja dagblaðið - 25.08.1934, Blaðsíða 4

Nýja dagblaðið - 25.08.1934, Blaðsíða 4
< N Ý J A DAGBLAÐIÐ 1 DAG Axmáll Sólaruppkoma kl. 4.4Ö. Sólarlag kl. 8.09. Flóð árdegis kl. 5.40. Flóð síðdegis kl. 6.00. Veðurspá: Hæg norðaustan átt. Sennilega bjart veður og úr- koinulaust. Ljósatiini iijóla og bifreiða kl. 9.00—4.00. Sðfm, skrifstofur o. fL I.andsbókasafnið .... opið kl. 1-7 Alþýðubókasafnið .. 10-12 og 1-10 Landsbankinn..............opinn 10-1 Búnaðarbankinn .. .. opinn 10-1 Útvegsbankinn.............opinn 10-1 Útbú Landsb., Klapparst. opið 2-4 Sparisj. Rvk og nágr. 10-12 og 3-4 Skrifstofa útvarpsins kl. 10-12 og 1-6 Búnaðarfélagið ........ opið 10-12 Fiskifélagið ....... Skrifst.t. 10-12 Samband ísl. samvinnufélaga 9-1 Skipaútgerð ríkisins .... opin 9-1 Iíimskipafélagið ........ opið 9-1 Sljórnarráðsskrifst. .. opnar 10-12 Skrifst. bœjarius .... opnar 10-12 Skrifst. lögreglustj....opin 10-12 Skrifst. lögmanns .... opin 10-12 Skrifst. tollstjóra .... opin 10-12 Tryggingarst. rlkisins ....... 10-12 Hafnarskrifstofan opin 9-12 og 1-3 Ríkisféhirðir ........... opið 10-2 • Hohnsóknartfmi sjúkrahúsa: Landspítalinn .................. 3-4 Landakotsspítalinn ........ kl. 3-5 Laugarnesspítali .... kl kl. 12Vi-2 Vífilstaðahœlið .. 12V£-2 og 3V4-4VÍ Kleppur ................... kl. 1-5 Fæðingarh,, Eiríksg. 37 kl.l-3og8-9 Sjúki-ahús Hvítnbandsirís ...... 2-4 Sólheimar ............... opiö 3-5 í .ihi.ininilið ............... 1-4 Næturvörður í Ingólfsapóteki og Uiugavegsapóteki. Næturlæknir Gísli Fr. Peterseu, Barónsstíg 59. Simi 2675. Skemmtanir oy samkomur: Meistaramót í. S. í. á íþróttavell- inum kl. 5.45. Samgöngur oa póstferðtr: Droiming Alexandrine norður um. Botnía til útlanda. Suðurland til Borgarness. Dettifoss ffá útlöndum. Dagskrá útvnrpsins: Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há- degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir. 19,10 Veðurfregnir Tilkynningar. 19,25 Grammófóntónleikar. 19,50 Tónleikar. Auglýsingar. 20,00 Klukkusláttur. Tónleikar: Dvorák: Dumky-Trio (Útvarpstríóið). 20,30 Upplöstur (frú Sofila Guðlaugs- dóttir). 21,00 Fréttir. 21,30 Ein- söngur (Sig. Skagfield). Danslög til ki. 24. Hafnargerð á Húsavík. Við bryggjugerð 4 Húsavik vinna i snmar um 20 manns. Bryggjan lengist um 70 metra til viðbótar 83 metrum á árinu sem leið. Alls á bryggjan að vera 280 metra löng <>ða ein lengsta br'yggja á landinu. Eiga skip á stærð við Eimskipafélagsskipin að geta leg- ið við hana fullgerða. Súðin fór í hringferð vestur urn í gærkvöldi. Farþegar voru milli 40 og 50. Knattspyrnufél. Valur, 1. flokk, h.efir verið boðið til Akraness á morgun, til að keppa við Akur- n'esinga. Farið verður með m/s. Fagranes kl. 9*4 að morgni Æski- legt væri að sem flestir Vals- menn tækju þátt í förinni. Skipaíréttir. Guilfoss fór frá Siglufirði í gær. Goðafoss er á leið til Hull. Brúarfoss fór frá Kaupmannahöín í gær á leið til Leith. Dettifoss kemur hingað fyrripartinn i dag. Lagari'oss var a Ainaríirði í gær. Selfoss er á leið til Austfjarða frá Leith. Brauðbúðum verður lokað kl. 1 í dag vegna hátiðahaldanna í tilefni af 100 ára afmæli bak- aiaiðtiarinnar á Islandi. Ivar Wennerström hermálaráð- herra Svía og frú hans komu hingað með Dronning Alexand- rine í fyrrakvöld. Ætla þau að dvelja hér til 2. sept Einar Jónsson inyndhöggvari óg frú hans eru nýkomin úr ut- anlandsför. ísfisksalau. Maí seldi í Grímsby í gær 1150 vættir fyrir 1650 sterl- ingspund. Gyllir er á leið til pýzkalands og Bragi, Jupiter og Geii' tii Englands. Sundlaugamar. Einliverskonai' viðgerð er nú verið að gera á sundlaugunum og stendur hún fram í næstu viku. Verður sagt frá þvi í blaðinu, þegar henni er lokið. Gísli Albertsson, hinn góð- kunni horgfirski hlaupari hafði ætlað sér að taka þátt í lang- hlaupunum á meistaramótinu, en hefir orðið að hætta við það. Spjótkast verður ekki þreytt á meistaramóti í. S. í. að þessu sinni. Er leitt til þess að vita og kemur vonandi ekki fyrir oftar. Grierson. Samkvæmt frétt frá danska sendiherranum varð Grierson að nauðlenda 20 mílum suður frá Angmagsalik og komu honum fyrst til hjálpar prestur og þrír Eskimóar. — Næsti á- fangi Grierson verður til Godt- liaah. Frá Haínarfirði. Walpole fór A ísfisksveiðar í gær. Eru þá átta Hafnarfjarðartogarar á ísfisks- veiðum: Maí, Júní, Sviði, Júpíter, Venus, Garðar, Haukanes og Wal- pole. Andri fór í gærkvöldi áleið- is til Eyjafjaxðar til þess að kaupa bátafisk til útflutnings. Fiskitökuskipin. Katla og Heklá eru fyrir austan að taka fisk og koma hingað í næstu viku. Sado er hér að taka fisk. Columbus, sem nokkrir Reykvíkingar hafa keypt til fiskflutninga, byrjar að hlaða á næstunni. Knútur skammast sín. Knútur uppgjafaprestur Arngrimsson var einn í sálmabókamefndinni, sem gaf út viðbætirinn fræga. Er svo komið, að Knútur er farinn að skamrnast sín fyrir verk sín þar, skrifar langa afsökunargrein í Moggann í gæi- og kennir biskup- iiuun um allt. Kemur þar í ljós hinu venjulegi íhaldsmanndómur, að þora aldrei að kannast við verk sín og skriða að baki öðrum, þegar í óefni er komið. Útlendu skipin. ísland er í Kaúpmannahöfn. Lyra er á leið ti! Noregs. Frá Dronning Alex- andrine: og Botníu er sagt í dags- dáiki. Thielsen beztur. Eitt sterkasta knattspyrnufélagið í Austurríki, „Austria" seudi nýlega úrvalslið sitt til Kaupmannahafnar, sem keppti við úrvalsliðin þar. — I iyrsta kappl.eiknum tapaði úrvals- iið Kaupmannahafnar með 8:1. Eigil Thielsen, sem Reykvíking- um er vel kunnur, tók þátt í leiknum. Samkvæmt blaðadómum hefir hann verið hezti maður Dananna. Segir svo i Politiken: „það var aðeins einn af okkar mönnum sem lék viðunandi og IVXuxiid skemmtiferðína 1 Vatnaskóg ámorgun kl. 8% Farseðlar í Verzl. Foss, Laugaveg 10, Tóbaksverzl. London, Austurstræti, Verzlun Björns Jónssonar, Vesturgötu og á Ferðaskrifstofu Islands, til kl. 8 í kvöld. þnð var hinn ungi Thielsen. Hann var eins og venjulega fljótiir, á- hugasamur og vakandi". „Aust,- ria“ er talið eitt sterkasta félae;- ið í Mið-Evrópu og i fyrrasumar vann það kappmót, sem þátt tóku í beztu kappliðin frá Ítalíu, Ungverjalandi, Tékko-Slovakíu og Austurríki. 150 jurtaréttir eftir Helgu Sig- urðardóttur er nú komin út í 2. útgáfu. Fyrri útgáfa bókar þess- arar seldist upp á mjög skömm- mn tíma og hefir verið mikil eft- ii'spurn eftir henni siðan. Höfund- urinn liefir nú breytt nokkru frá því sem var i fyrri útgáfunni og bætt við nokkrúm nýjum upp^ skriftum. Ahugi fyrir gai'ðyrkju og grænmetisræktun fer nú mjög i vöxt hér á landi, því nú er vissa fengin fyrir því, að fjölda- margar hollar og ljúffengar græn- metistegundir geta þrifizt hér á landi, og víðast er auðvelt að fá lilett til ræktunar. — í „150 jurta- réttir" eru uppskriftir af réttum, sem liægt er að búa til úr mat- jurtum þeim, sem hér eru rækt- aðar nú. Ætti bókin þvi að vera kærkomin hverri þeirri húsmóð- ur, sem vill framreiða á heimili sínu í'jölbreytta og bætiefnaríka fæðu úr íslenzku efni. En víða liefir grænmetisneyzla verið minrii en ella hefði orðið, af því að fólk hefir ekki kunnað að matreiða jurtalæðu, þó liinsvegar að flest- um sé ljóst gildi hennar og holl- usta. Aðrar bækur eftir Helgu Sigui'ðardóttur eru Bökun í lieimáhúsum og Kaldir réttir og smurt brauð. Lúðrasveit og Karlakór Rvíkur fara skemmtiferð upp i Vatna- skóg með e/s. Columbus á morg- un. Lagt verður af stað kl. 8% árd. Um borð í skipinu verða veitingar: kaffi, kaldir drykkir o. fi. Fólk er beðið að hafa með sér nesti, því að veitingar verða cngar, þegar í land er komið. Knattspymumót II. fL hófst í gærkvöldi og kepptu þá Víkingur og Fram. Úrslitin urðu þau, að hvorúgt félagið skoraði mark og virðist það ætla að fara að verða „móðins" að gera jafntefli í kappleikjum. K. R. og Valur taka einnig þátt í mótinu. Mótið heldur ilfram á mánudagskvöld. Sundmót Keflavikur fer fram sunnudaginn 26. þ. m. kl. 4 e. h. við sundskálann þar. Séra Eirík- ur frá Útskálum talar. Keppt verður í mörgum flokkum. Einn- ig stakkasundi, björgunarsundi, kafsundi o. fl. 50—60 keppendur frá Keflavik, Grindavík og Vatns- leysuströnd. Danzleikur verður í samkomuhúsinu um kvöldið. Síöasta laugardagsferð Suður- landsins tii Borgarness á þessu sumri er í dag. Farið héðan kl. 5 e. h. Menn eru minntir á að lesa augl. um skemmtiför Framsókn- armanna á öðrum' staH í blaðinn. Svefnfriður aukinn. í London er nú verið að gera tilraun til þess að koma á þagnartímum. Frá því kl. 11,30 á kvöldin til kl. 7 á morgnana á áð banna að blása bílahom á fimm mílna Pantið í tíma! Nýtt dilkakjöt Nautakjöt af ungu í buff og steik Alikálfakjöt Lifur og hjörtu Nýreykt kindabjúgu Agætt saltkjöt Grænmeti allskonar Andaregg Ódýrt bögglasmjör Kjðtbúð Reykjavíkur Vesturgötu 16 Sími 4769 Nýr lax og gjóbirtinguir Nýtt dilkakjöt Svið Lifur Hangikjöt Margskonar pylsur KJttt & FlskmetfegerðiR Reykhúsið Símar: 4467 og 2667 «r- Til Hólmavíker og Dala fer bíll næstk. sunnudag Bifreiðast. Islands Sími 1540 Verzlið að öðru jöinn við þá sem anglýsa í Nýja dagblaðiou svæði í allar áttir frá Charing (’.ross. Lögreglan væntir þess, að auk þess sem íbúar þessa bæj- arhluta fái svefnfrið, megi ráð- stöfunin einnig stuðla að því, að gera bílstjóra, varkárari en ella, þar sem þeir geti ekki treyst á það öryggi, sem þeir þykjast ann- ars hafa t því að hafa blásið i bílhornið. •— Nefnd hefir einnig verið skipuð, til þess að rannsaka það, hvernig unnt sé að geru bíla hávaðaminni en þeir eru nú. Sir Henry Fowler er formaður nefndarinnar. — FÚ. § Odýrn aaglýsingarnftr. Grænmeti veröur selt fyrri- partinn í dag á Lækjartorgi. Sérstaklega góðar rófur og kartöflur. í nestið: Sælgæti, tóbak, öl, ávextir, nýjir og niðursoðnir. Niðursoðið kjöt, fiskur og sar- dínur. Einnig góður harðfisk- ur, riklingur o. m. fl. Kaupfélag Reykjavíkur Sími 1245. Freyju kaffibætir er beztur. Ef þið hafið ekki notað hann áður, þá reynið hann nú um helgina, því ekki er sízt þörf að fá gott kaffi á surrnudögum. Tyggigúmmí, Disseto, Át- súkkulaði, innlent og útlent. Kaupfélag Reykjavíkur. Hús og aðrar fasteignir til sölu. Hús tekin í umboðssölu. Skrifstofan í Austurstræti 14, þriðju hæð, opin kl. 11—12 og 5—7. Sími 4180 og 8518 (heima). Helgi Sveinsson. Tilkynningar Beztu og ódýrustu sunnu- dagaferðirnar verða nú eins og áður frá Vörubílastöðinni í Reykjavík. Sími 1471. Til Ólafsvíkur hvern mánu- dag. Bifröst. Sími 1508. Húsnœði Trésmiður óskar eftir tveim herbergjum og eldhúsi m'eð ];ægindum. Mætti vera í góð- um kjallara. Þrennt í heimili. Sími 3948. 1 miðbænum er til leigu strax eða 1. október, ein stofa stór, ásamt einu eða tveimur herbergjum og eldhúsi í timb- urhúsi, með þægindum. Gjörið svo vel og sendið strax nöfn og heimilisfang í pósthólf 996 og getið um fólksfjölda og at- vinnu. Herbergi, lítið og snoturt, óskast 20. sept. eða 1. okt. Uppl. í síma 1248. Förstofustofa til leigu mlán- aðartíma. Gott tækifæri fyrir ferðamánn. A. v. á. Múrari óskar eftir íbúð með öllum þægindum, 3 í heimili. Upplýsingar á afgreiðslu Nýja dagblaðsins. 1 herbergi og eldhús óskast til leigu í Vesturbænum. Uppl. í síma 2664. 1—2 herbergi og eldhús með þægindum óskast 1. okt. Uppl. í síma 4259. Ibúð óskast 1. okt. 3—4 her- bergi með öllum þægindum. Upplýsingar í síma 2775. Tapað-Fundið Gleraugu í gullumgjörð glöt- ivð í gær, líklega í einhverri verzlun frá Nönnugötu að Ánanaustum. Vinsamlega skil- ist á afgreiðsluna eða til Sig- urðar Sigurðssonar frá Amar- holti. *

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.