Nýja dagblaðið - 30.08.1934, Page 1

Nýja dagblaðið - 30.08.1934, Page 1
ÉiniiiÉÉIim stAnr lefnd samkvæmt 1. grein samningsíns um stjórnarsamvinnu Framsóknarflokks- ins og jafnaðarmanna Jónas Jónsson. Atvinnumálaráðherra hefir í gær skipað nefnd samkv. 1. lið samnings Framsóknar- flokksins og Alþýðuflokksins urn stjómarsamVinnu „til að gera tillögur og áætlanir um aukinn atvinnurekstur, fram- kvæmdir og framleiðslu í land- inu, svo og aukna sölu afurða utan. og innanlands. Sé lögð áherzla á að efla þann atvinnu- rekstur sem fyrir er á heil- brigðum grundvelli, enda kom- ið á opinberu eftirliti' með hverskonar stórrekstri til tryggingar því, að hann sé rekinn í samræmi við hags- muni almennings“. Er starfs- svið nefndarinnar ákveðið af atvinnumálaráðherra í sam- ræmi við ofanritaða grein samningsins. Tveir landskunnir Framsókn- armenn, Jónas Jónsson form. Framsóknarflokksins og Stein- grímur Steinþórsson skóla- stjóri á Hólum eiga sæti í nefndinni. Jónas Jónsson er þekktastur núlifandi íslenzkra stjórnmálamanna fyrir fram- sýni og viturleg úrræði, enda Emil Jónsson. Steingrímur Steinþórsson. er hann upphafsmaður margra þeirra umbótamála, sem Fram- sóknarflokkurinn hefir barizt fyrir. Steingrímur Steinþórs- son er yngri maður, en tæpast mun völ á manni, sem betur þekkir mál landbúnaðarins en hann. Ásgeir G. Stefánsson. Aðrir nefndarmenn eru: Héðinn Valdimarsson, forstjóri Olíuverzlunar Islands, Emil Jónsson bæjarstjóri og Ásgeir G. Stefánsson framkvæmdar- stjóri í Hafnarfirði. Héðinn Valdimarsson. Heimwehrmenn berj&st nm heydýxmr London, 29./8. FÚ. Lögreglan í Vín var í nótt kvödd til þess að skakka leik- inn í deilu, sem kom upp í höf- uðstöðvum Heimwehrliðsins. Ein fréttin sagði, að ungir T Teimwehrmenn hefðu gert uppreisn gegn foringjanum, og hefði þá hafizt bardagi, og upp_ réisnarmennirnir verið teknir fastir. Síðari fregnin segir, að engir bardagar hafi orðið og eru deilurnar þá skýrðar svo, að tveir flokkar hafi deilt, vegna þess að annar átti að sofa á heydýnum, en hinn í hreinum rúmum. Qrierson kominn til Oanada London, 29./8. FÚ. John Grierson hefir nú loks tekist að ljúka flugi sínu milli Englands og Canada um norð- urleiðina. Hann kom í Hudson- flóa í morgun. Baktjaldasamn' ingar Þjöðverja N aziatanppr eisnir skipnlag’dar í mörgum löndum London, 29./8. FÚ. Evrópublað, sem talið hefir verið áreiðanlegt fréttablað, segir frá því í dag, að Þjóð- verjar og Jugo-Slavar hafi gert roieð sér leynisamning um land- auka, m. a. ætti að gera Tri- est að sameiginlegri hafnar- borg. Þetta á að gerast þannig, segir fréttin, að í Jugo-Slaviu á að koma nýju skipulagi á austurríska Nazista, og eigi þeir svo að gera árás á stjóm- ina í Vín í október, og enn- fremur eigi í haust að verða fasistauppreisn í ýmsum lönd- um, m. a. í baltisku löndunum og Irlandi. I Vín undrast menn þessar fréttir stórlega. Utanríkisráð- herra Jugo-Slaviu hefir lýst því yfir tafarlaust, að enginn fót- ur sé fyrir þessari frásögn, og segir hann, að Jugo-Slavar hafi enga löngun til landvinninga, og að enginn leynisamningur hafi verið gerður, eða sé í ráði, og Jugo-Slavar ætli á engan hátt að ásælast það, sem þeir eigi ekki. Loks segir ráðherr- ann, að stjómin í Jugo-Slaviu j standi ekki í neinu sambandi við austurríska Nazista. Skólamál Revkjavíkur Viðtal við form. skólanefndar Reykja- víkur, frú Aðalbjörgu Sigurðardóttur. Bæjarbúum er kunnugt, hversu mjög hefir skort á það, að fullnægt væri þörfum út- hverfa bæjarins til fræðslu barna, hvað aðbúnað snertir. I Skildinganesi, við Lauganesveg og í Sogamýri hafa verið notuð lítt viðunandi húsakynni til skólahalds og aðstaða að öðru leyti verið erfið. Sérstakan skóla fyrir veikluð börn vantar alveg, sem þó er brýn nauðsyn Aðalbjörg Sigurðardóttir. á að komið verði upp. Engin varanleg skipun hefir gerð ver- ið um meðferð vangefinna barna, þeirra sem siðferðilega og vitsmunalega eiga ekki sairi- stöðu með öðrum bömum. Umbætur á húsakynnum og leikvelli Miðbæjarskólans hafa dregist mjög úr hömlu og margt fleira í þessum efnum kallar eftir skjótum fram- kvæmdum til menningarlegra hagsbóta fyrir reykvíska æsku. Nýja dagblaðið sneri sér ný- lega til formanns skólanefndar, frú Aðalbjargar Sigurðardótt- ur, og spurði hana um þessi mál. — Hvað líður byggingu skólahúss fyrír umhverfið austan bæjarins? — Fyrir skömriiu hefir ver- ið gert útboð á þeirri byggingu og verður nú hafizt handa um framkvæmd hennar. En þetta hefir dregizt lengi fram eftir sumrinu og verður skólinn því ekki tilbúinn til kennslu fyr en eftir áramót. — Hvað veldur því að ekki var byrjað á verkinu í vor, svo að skólinn gæti verið tilbúinn í haust? — Ég býst við að því valdi að ekkert fé var ætlað til bygg- ingarinnar á fjárhagsáætlun bæjarins, það var fellt í bæjar- stjórninni, og síðan þurfti að fá lán til þess. — Gat bærinn ekki lagt fram fé í svipinn, þótt dregist hefði um nokkrar vikur að fá lánið ? — Því get ég ekki svarað, því að skólanefndin hefir ekki fé til ráðstöfunar, sem þarf til þeirra framkvæmda í skólamál- um, er hún leggur til að gerð- ar séu. Það hefir borgarstjóri, f. h. bæjarstjórnar. — Þurfa þá börnin, sem þenna skóla eiga að sækja, ekki að stunda neitt nám niðri í bæ? — Nei. Kennslan fer öll fram þarna, nema að matreiðsla verður sennilega fyrst í stað í Austurbæj arskólanum. — Hvað verða mörg börn í þessum skóla? — Þau verða eitthvað yfir 100, sem eiga sókn að honum í vetur. En húsið verður þann- ið byggt, að tiltölulega ódýrt verður að stækka það, þegar börnum fjölgar. — Hvenær verður byggt skólahús í Skildinganesi ? — Ég vona að það dragist alls ekki lengur en til næsta vors. Skólanefndin er sammála um að húsið þurfi að vera til- • búið til notkunar að hausti 1985, og hygg ég að fé verði ætlað til þess á næstu fjár- hagsáætlun. Húsnæði það, sem nú er notað þar, er alls ekki svo gott sem skyldi, sem jafn- an verður þegar tekin eru á leigu hús, sem byggð eru í allt öðrum tilgangi. — Hvað umbætur verða gerðar í Miðbæjarskólanum? — Auk þess sjálfsagða við- halds á skólahúsinu, sem með þarf, verður sérstakt herbergi tekið til læknisskoðunar bam- anna, en fram að þessu hefir > hún verið í sama herbergi og tannlækningar. En það er að- kallandi þörf á meira húsnæði fyrir skólann, kennarastofu, vinnustofu, salernum o. fl. og má það ekki dragast að fé fá- ist til þeirra umbóta. — Þá voru veittar 15 þús. kr. til breytinga og endurbóta á leiksvæðinu, og mUnu þær verða framkvæmdar fyrir haustið, en ég sé að það er þó ekki byrjað á þeim enn. — Verður ekki moldarbrekk- an, sem er innan leiksviðsins, flutt á brott? — Um leið og leiksvæðið verður lagað, má brekkan auð- vitað ekki verða eftir, enda hefir réttilega verið á það Framh. á 4. síðu

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.