Nýja dagblaðið - 16.09.1934, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 16.09.1934, Blaðsíða 2
% N Ý J A DAOBLABIB Hamixig1 jan biður yðar í K.-R.-húsinn i dag, á hinni stórkostlegrn HLUTAVELTU sem Knattspyrnufélag Reykjavíkur heldur í dag í K.-R-húsinu hl. 4 e. h. Far tíl Stóra-Bretiands á 1. farrými med ágætu skipi I einum drætti 100 kr. í peningum Að telja upp hina ágætu drætti yrði of langt mál, en nefna má: Nokkrar tunnur af kjöti. Sykur í kössum Matvörur til vetrarins Nýtt dilkakjöt í kroppum Mikið af saltfiski til vetrarins Mikið af kolum Nýr fiskur Nokkrir sekkir kartöflur Sláttuvél V efnaðarvörur Margskonar búsáhöld, leiryörur, nýir ávextir, allskonar brauðvörur, gosdrykkir og öl, sement, hveiti og aliskonar korn- vörur, smjörlíki, rafmagnsvörur, kaffi, myndir og yfirleitt allt, sem fáanlegt er hér í verzlnnum. — Eitthvað fyrir alla. Ekki má gdeyma þvi að hin íjöruga hljömsveit P. O. Bernburgs skemmtir 4 hlutaveltunni. Hlé milli 7 og 8. — Aðgangur kostar aðeins 50 aura og drátturinn 50 aura. — Eitthvað af núllum sem gei-a allar hluta- veltur meira spennandi. Allir í K.-R.-húsid i dag. Virðingarfyllst Knattspyrnuiélag Reykjavikux @) @) @) A) Hóíel Borg Tónleikar í dag frá kl. 3 til 5 e. h. % 4 Dr. Zakál með báðar fón- og hljómsveitir sameinaðar Einungis ungversk músík. Leikskrd lögð á borðin. Komið á Borg Borðið á Borg - Bú.ð á Borg Happdrætti Háskóla Islands Eudurnýjun til 8. flokks hefst 17. sept. 450 vinningar, samtals 90200 kr. Hæsti vinningur 20 þús. kr. I 8.—10. fl. eru 2950 vinningar, samtals kr. 643 þús. Vinningar verða greiddir á skrifstofu happdrættisins kl. 2 —3 daglega frá 18. sept. Vinningsmiðar skulu áritaðir af umboðsmanni. Hlusíið nú á íslendingar! Kelvín-Diese] fer nú sigurför um allan hnöttinn. Kelvin stefnisrörin eru vei- þekkt um allt ísland, og Lodge kveikikertin gjöra mót- orinn öruggan, þögulan og sparneytinn. Spyrjið þá, sem reynt hafa. Ó L. EINARSSON Sími 4340. Vg. 53B. Rvík. Selfoss fer væntanlega á morgun til Antverpen, Leith, og þaðan heim aftur. G'ullfoss fer annaðkvöld í hraðferð vestur og norður. Aukahaf nir: Patreksf jörður og Þingeyri. Farseðlar óskast sóttir fyrir hádegi á morgun. Goðafoss fer á miðvikudagskvöld (19. sept.) um Vestmannaeyjar til Hull og Hamborgar. Nokkrar aíhuga- semdír um kenn- araskólann I grein frú Aðalbjargar Sig- urðardóttur í Nýja dagblaðinu 14. þ. m. eru nokkur atriði viðkomandi kennaraskólanum, sem mér finnst ekki rétt að láta ósvarað með öllu. Frúin gefur í skyn, að ekki sé um hæfa kennara í handavinnu og söng að ræða frá kennaraskól- anum. Um handavinnu í skól- anum er ])að að segja, að hún hefir verið kennd þar frá byrjun og þar til nú fyrir fjórum árum, að hún féll nið- ur um þrjú ár af lítt viðráð- anlegum orsökum. í fyrra var byrjað á henni aftur, og verð- ur haldið áfram nú og reynt að sníða hana sem mest eftir þörfum nútímans. Frá því árið 1922—1930 var handavinnu- kennslan í höndum einnar hinnar þjóðkunnustu konu þessa lands, frk. Halldóru Bjarnadóttur. Langsamlega mestur hluti starfandi kennara nú hefir því notið handavinnu- kennslu í skólanum. Aðeins þrír árgangar af 25, hafa út- skrifazt án hennar. Söngkennsla hefir líka verið í skólanum frá upphafi og ár- lega útskrifazt nokkrir með söngkennaraprófi, s. 1. vor luku því prófi 10 nemendur. Vitanlegt er það, að þeir sem siíku prófi ljúka eru misjafn- lega færir til þess að taka að sér söngkennslu. En ekki er það sök kennaraskólans. Það ætti að Vera nokkurn veginn I augljóst mál, að ekki er hægt að gera alla, sem hingað sækja, færa söngkennara. Hitt þori ég að fullyrða, að þeir, sem! hafa hæfileika og sæmileg- an undirbúning, þegar þeir koma í skólann, þeir fá hér kost á að verða sómasamlega búnir undir söngkennslu, þeg- ar þeir fara. Frú A. S. þykist komá hnífi sínum í feitt, þar sem hún vitnar í hina almennu óánægju kvenna á landsfund- inum með kennaraskólann. En gallinn er sá, að bæði lands- fundur kvenna og frú A. S. sjálf, tala um þessi mál af meira kappi en kunnugleika. Þær virðast ekki hafa hug- mynd um þær breytingar, sem nú eru að gerast á kennara- skólanum. Þegar búið er að vinna að því í þrjú ár að breyta fyrirkomulagi skólans og samræma starfshætti hans nýjustu kröfum1, koma konum- ar með kröfur sínar og áskor- anir. Það má segja, að seint koma sumir, en koma þó. Ann- ars væri fróðlegt að vita, hvaðan landsfundur kvenna hefir vitneskju sína um kenn- araskólann. Ekki var hún sótt í skólann sjálfan. Eftir kröfum þeim, sem nú eru gerðar í kennaraskólan- um, þarf meðalnámsmaður fimm ára undirbúning til kennarastarfsins. ' Auðvitað væri æskilegt að hægt væri að gera frekari kröfur um kenn- aramenntun í ýmsum greinum en gert er. En er þess kostur, meðan kjör kennara batna ekki ? Hvað segir kennara- stéttin sjálf um það? Freysteinn Gunnarsson.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.