Nýja dagblaðið - 08.10.1934, Side 1
Ankablad
NYJA DAGBIAÐIÐ
2. ár. Reykjavflk, mánudaginn 8. október 1934. 238. blað
Fjárlagaræðan í dag
Eysteinn Jðnsson fjármálaráðherra gerír grein fyrír fjárlagafrumvarpí
stjórnarinnar fyrir árið 1935 og fjárhagsafkomu kreppuáranna.
Eysteinn Jónsson fjármálaráðherra.
Áður en ég vík að frum-
varpi því til fjárlaga fyrir ár-
ið 1935, sem lagt hefir verið
fyrir Alþingi, mun ég, svo
sem venja hefir verið undan-
farið, fara nokkrum orðum um
afkomu ríkissjóðs og fjár-
málaástandið í landinu yfii •
leitt. Sá inngangur er alveg
nauðsynlegur, til þess að menn
geti áttað sig til fulls á þeim
grundvelli, sem fjárJagafrur-v-
varpið fyrir árið 1935 hlaut að
hyggjast á.
Kreppuárín
Nú stendur svo sérstaklega
á að Alþingi er háð að hausti,
og að fyrverandi fjármálaráð-
herra hefir í sérstöku útvaips-
erindi, 6. marz s. 1., gert grein
fyrir afkomu ársins 1933, að
svo miklu leyti, sem þá var
um hana vitað. Erindi þetta
hefir og komið fyrir almenn-
ingssjónir og sé ég því ekki á-
stæðu til að gefa skýrslu um
einstök atriði í afkomu þess
árs. Hinsvegar te: ég mjög'
vel viðeigandi, að rifja hér
upp höfuðatriðin í fjarhagsaf-
komu vorri undanfarin kreppu-
ár. Með því móti fæst áreiðan-
lega gleggst mynd af þeim
erfiðleikum, sem við hefir ver-
ið að stríða og sem! þjóðin á
óneitanlega enn í höggi við.
Hagur þjóðarinnar
út á við
Þótt þetta yfirlit sé gefið í
sambandi við fjárlagaumræðui-
og umræður um afkomu rík-
issjóðs, hlýtur það að verða
tvíþætt. Afkoma þjóðarinnar
út á við, út- og innflutningur
og greiðslujöfnuður við útlönd
hefir svo gagngerð áhrif á af-
komu allra landsmanna og af-
komu ríkissjóðs sérstaklega,
að hún hlýtur að mynda ann-
an þáttinn í því yfirliti, sem
gefa á hugmynd um grund-
völlinn, sem aðgerðir þings
og stj ómar í fjármálum verða
að byggjast á.
Arið 1931
Árið 1931 hefir verið talið
fyrsta kreppuárið hér. Á því
ári voru tekjur ríkissjóðs mik-
ið lægri en undanfarin ár eða
um 15.8 miljónir. Höfðu ver-
Stefna stjórnarinnar: Lækkun nauðsynjavöru-
og framleiðslutolla. Hækkun hátekju- og stór-
eignaskatts og tolla á munaðarvörum. Niður-
felling dýrtíðaruppbótar á háum launum. Stór-
aukin framlög til atvínnuveganna og verklegra
framkvæmda. — Greiðsluhallalaus fjárlög
ið áætlaðar í fjárlögum 12.8 |
miljónir. Otgjöldin voru þá, !
að viðbættum afborgunum
fastra lána og öðrum eigna-
hreyfingum, um 18.2 miijónir,
en samkvæmt fjárlögum voru
þau 12.8 miljónir. Greiðslu-
halli ársins 1931 var því um
2.9 miljónir. Bið ég menn að
gæta þess sérstaklega, að þeg-
ar um greiðsluhalla er að
ræða, eru taMar með útgjöld-
um afborganir af föstum lán-
um ríkissjóðs. Yfirlitið miða
ég við greiðslujöfnuð en ekki
reksturshalla eða rekstursaf-
gang ríkissjóðs, sökum þess,
að ekki er vel komið um rekst-
ur ríkissjóðs fyrr en afborg-
anir fastra lána eru af hönd-
um inntar án nýrra lántaka.
Otflutningur íslenzkra af-
urða 1931 var um 48 milj., en
innflutningur um 48.1. Var því
verzlunarjöfnuður lítið eitt ó-
hagstæður, en gi-eiðslujöfnuð-
ur við útlönd hefir verið mjöa
óhagstæður það ár. Eftir því,
sem næst verður komizt um
upphæðir þeirra greiðslna ann-
ara en fyrir vörur, sem mynda
greiðslujöfnuðinn, er talið að
útborganir þjóðarinnar séu
eigi minna en 8 miljónum
hærri en innborganir. Þýðir
það, að til þess að greiðslu-
jöfnuðurinn sé hagstæður,
þyrfti útflutningur vara að
nema um 8 mllj. meira en inn-
flutningur. Með vissu verður
þetta ekki vitað, en nálægt
hinu rétta verður komizt.
Árið 1931 hefir því venð
greiðsluhalli á rekstri ríkis-
sjóðs og skuldir safnazt við
útlönd. Ástæðurnar ber vitan-
lega fyrst og fremBt að rekja
til hins mikla verðfalls á af-
urðum landsmanna.
Arið 1932
Árið 1932, annað kreppuár-
ið, reyndust tekjur ríkissjóðs
11.1 milj., en voru á fjárlög-
rnn áætlaðar 11.4 miljónir.
Greiðslur ríkissjóðs taldar á
sama hátt og 1931 reyndust
um 13.9 miljónir. Voru sam-
kvæmt fjárlögum 11.5 milj.
Greiðsluhalli ríkissjóðs var um
2.8 milj. Vörur voru þá út-
fluttar fyrir 47.8 milj. en inn-
fluttar fyrir 37.3 milj. Verzl-
unarjöfnuður því hagstæður
um 10.4 milj. og greiðslujöfn-
uður við útlönd hagstæður.
Gætti hér áhrifa innflutnings-
haftanna. Jafnhliða því, sem
innflutningshöftin björguðu
greiðslujöfnuðinum við útlönd
1932, vegna þess hve mjög
dró úr innflutningnum þeirra
vegna, gætti áhrifa þeirra á
afkomu ríkissjóðsins í því, að
tolltekjumar hröpuðu niður og
komust langt niður fyrir það,
sem þær hafa verið um mörg
ár, fyr og síðar. Varð því mikill
greiðsluhalli hjá ríkissjóði, enda
þótt útgjöld ríkissjóðs væru
lægri en þau höfðu verið um
langt skeið, og lægri en þau
hafa verið síðan. Þessi af-
koma ársins 1932 sýnir mjög
glöggt sambandið á milli
tekna ríkissjóðs og vöruinn-
flutningsins. Hún sýnir, að
semja verður fjárlög og
skattalög með nákvæmu tilliti
til þess, sem framundan virð-
ist um möguleika fyrir vöru-
innkaupum til landsina
Arið 1933
Árið 1938 er síðasta árið,
sem nokkumveginn fullnaðar-
skýrslur eru til um. Tekjur
ríkissjóðs á því ári voru um
18.7 milj., en voru áætlaðar
um 11 milj. Greiðslurnar
reyndust um 15 miljónir, en
ætlaðar á fjárlögum um 12
milj. Greiðsluhalli ríkissjóðs
árið 1933 var um' 1.3 miljónir.
Samkv. bráðabirgðaskýrslum
Hagstofunnar fyrir árið 1933
voru fluttar út vörur fyrir
um 49.8 milj. króna, en inn
vörur fyrir um 47.4 milj. 1933.
Má búast við að tölur þessar
hækki nokkuð við endanlega
skýrslugerð, en ekki ástæða til
að ætla annað en að þær sýni
nokkurnveginn réttan mismun
út- og innflutnings. Hefir
verzlunarjöfnuðurinn því verið
hagstæður um ca. 2.4 milj., en
greiðslujöfnuðurinn við útlönd
óhagstæður vegna þess hve
greiðslur aðrar en fyrir vörur,
eru okkur í óhag, svo sem
áðan var drepið á. Heildar-
svipurinn á afkomu ársins
1933 var því sá, að hagur
þjóðarinnar út á við versnaði
töluvert og greiðsluhalli ríkis-
sjóðs var nokkuð á 2. miljón.
Var hann þó mikið lægri en
undanfarin ár. Ríkisskuldir í
árslok voru 39.996 þús. kr. og
höfðu hækkað um 916 þúsund
krónur á árinu. Sjóður hækk-
aði hinsvegar um 535 þús.
krónur á árinu. Um einstök at-
riði viðvíkjandi afkomu ríkis-
sjóðs á árinu 1933, tel ég
fullnægjandi að vísa til opin-
berrar greinargerðar fyrver-
andi fjármálaráðherra, sem