Nýja dagblaðið - 31.10.1934, Síða 1
NYJA DAGBIAÐIÐ
2. ár.
Reykjavík, miðvikud. 31. október 1934.
258. blað
La n dhelgis varnirnar
Pálmi Loftsson útgerðarstjórí gerir tillögur um
nýja skipun á landhelgisvörnunum, sem spara
rikissjóði mörg hundruð þúsund krónur á árí
Pálmi Loftsson útgerðarstj.
hefir gert tillögur til lands-
stjórnarinnar og Alþingis uni
gerbreytingu á skipulagi land-
helgisgœzlunnar og björgunar-
málanna.
Gæzlukostnaðurinn
nú langt úr hófi
er
Gæzlukostnaður er nú 800
þús. kr. á ári, ef Ægir, óðinn
og Þór eru í gangi allt árið.
Ríkið hefir ekki efni á, að
verja svo miklu fé til gæzlunn-
ar. Undanfarin ár hefir Magn-
ús Guðmundsson látið 1—2 af
varðskipunum liggja með fullri
skipshöfn til að spara kol og
olíu. Sjá allir, að ekki er það
hin rétta leið í málinu, enda
reyndist spamaðurinn við
þetta hverfandi lítill, en land-
helgisþjófamir óðu uppi við
strendurnar og björgunarstarf-
semin var mjög léleg.
Björgunarskútur -
gæzluskip
Nú er fyrir forgöngu Slysa-
vamafélaganna verið að safna
fé í björgunarskútu við Faxa-
flóa. Verður það 60 smál. bát-
ur með 180 hestafla vél og
verður hann byggður að sumri.
Jafnframt er verið að safna
fé í aðra björgunarskútu á
Vestfjörðum og þá þriðju fyrir
norðan. Vafalaust verður hin
fjórða byggð fyrir Austurland.
Pálmi Loftsson telur, að
hver björgunarskúta muni
þurfa um 50 þús. kr. rekstrar-
styrk árlega og þá upphæð
verður ríkissjóður að greiðn,
því ekki er hægt að ætlazt til,
að Slysavamafélögin geti stað-
izt hann á eigin spýtur.
Nýtt skipulag
Leggur Pálmi Loftsson til,
að þegar slysavamadeild á-
kveðins landshluta hefir safn-
að nægu fé til byggingar
björgunarskútu, þá sé gengið
þannig frá því, milli félaganna
og ríkisins, að ríkið taki að
sér rekstur skipsins gegn því
að það verður þannig byggt, að
nota megi það til landhelgis-
gæzlu og það taki að sér land-
helgisgæzluna á þvi svæði, sem
því er ætluð björgunarstarf-
semi.
Jafnframt verði selt 1—2
af núverandi gæzluskipum. 1
framtíðinni verða þá allt að
firoim minni gæzluskip og eitt
Frönsk stjórnmál
Fráför Sarraut og þing radikal-
sósialistd'flokksins
Pálml Loftsson, útgerðarstjóri.
stórt,
Ægir.
annaðhvort óðinn eða
Betri gæzla og um 300
þús. kr. minni eyðsla.
Þetta skipulag á gæzlu. cg
björgunarstarfseminni ætti
ekki að þurfa að kosta nema
500—550 þús. kr. Er hér því
um! mikinn spamað að ræða,
þar sem strandgæzlan ein kost-
ar nú 800 þús. kr. og við þetta
myndi svo bætast allur rekstr-
arkostnaður björgunarskip-
anna, ef þau yrðu eingöngu
höfð til björgunarstarfsemi.
En auk sparnaðarins myndi
gæzlan verða miklu áhrifameiri
en nú og miklu oftar hægt að
ná til að bjarga bátum úr
sjávarháska.
Fjárveitinganefnd hefir
málið til meðferðar og er von
á tillögum hennar innan
skamms.
Nýlega varð franski innan-
ríkisráðherrann, Sarraut, að
láta af ráðherrastörfum. Und-
ir hans embætti og dómsmála-
ráðherrans, Cheron, heyrði það
að komast til fullrar vitneskju
um Staviskimálin. Þegar það
tókst ekki og hið ægilega kon-
ungsmorð í Marseille leiddi til
harðra árása á stjóm lögreglu-
málanna sáu báðir ráðherrarnir
þann kost vænstan að láta af
störfum.
Sarraut er einn af fremstu
stjómmálamönnum1 Frakka.
Hann vann sér fyrst mikið álit
sem landsstjóri í Indó-Kína og
byrja ráðherra feril sinn sem
nýlendumálaráðherra og gat
sér mikinn orðstír í því starfi.
Hann hefir setið í mörgum
ráðuneytum og var forsætis-
ráðherra um tíma í fyrrahaust.
Innanríkisráðherra varð hann í
febrúar síðastl. vetur, þegar
Doumergue myndaði ráðuneyti
sitt.
óánægja með stjóm Dou-
mergue hefir verið innan
flokksins og farið heldur vax-
andi og ekki mun hún hafa
minnkað við fráför Sarrauts.
Orsökin til þess eru hinar
svæsnu árásir íhaldsflokkanna,
sem1 ekkert hafa látið ógert til
að rægja foringja flokksins,
þrátt fyrir stjómarsamvinn-
una. Var því jafnvel búizt við,
að þing flokksins, sem háð hef-
ir verið þessa dagana, myndi
samþykkja að slíta allri sam-
vinnu við íhaldið, en það myndi
leiða til nýrra stjórnarskipta.
Albert Sarraut.
Einkum var búizt við því, að
til harðra átaka myndi koma
milli þeirra, sem eru á móti
stjóminni og Herriots, sem á
sæti í stjóminni og er aðalfor-
ingi flokksins.
Nú segir í útvarpsskeytum,
að flokksþingið hafi samþykkt
að styðja ekki stjómarskrár-
breytingu Doumergue um þing-
rof. Það þýðir, að Doumergue
mun ekki takast að koma henni
fram á næsta þingi.
Tjónid
á. Þórsliöfn
Einkaskeyti frá frétta-
ritara Nýja dagblaðsins
á Þórshöfn í gærkvöldi.
Til viðbótar. fregnum um
skemmdir af ofviðrinu síðustu
laugardagsnótt, skal þetta tek-
ið fram:
Sjór gekk yfir þjóðveginn
innan við þórshöfn, braut hann
á stórum parti og skolaði
burtu ofaníburði, en hlóð sums-
staðar á hann grjóti, svo að
hann er langt um ófær á
tveggja km. svæði.
Á Syðralóni urðu skemmdir
á túni. Fjárhús brotnaði og
nokkrar kindur tók út af fjör-
unum. Á Völlum í Þistilfirði
tók sjórinn 20—30 kindur.
Á Læknisstöðum á Langa-
nési braut sjórinn fiskhús og
skolaði 20—30 skippundum af
fiski, er þar voru, langt upp á
land. Mikill hluti túnsins á
Læknisstöðum fór undir möl
og stórgrýti.
Á Brimnesi urðu skemmdir á
túni af grjótburði. Gekk þar
sjór í bæjarhús, en olli þó ekki
miklu tjóni á húsum, en miklu
skolaði út af tómum tunnum
og lýsi er bóndinn átti.
Tjónið á Þórshöfn og þar í
nágrenni, er stórmikið og til-
finnanlegt, því sumir menn
hafa misst aleigu sína.
Frá Alþingi
Útflutningsgjald
Frv. stjómarinnar um út-
flutningsgj. var í fyrrad. til 2.
umr. í neðri deild. Urðu all-
miklar umr. um málið. Með
þessu frv. er ákveðið að fella
í einn lagabálk lög nr. 70 frá
1921 og þau lög sem síðan hafa
verið sett um sama efni með
þeim aðalbreytingum, að út-
flutningsgjald af landbúnaðar-
afurðum falli niður og lækka
stórlega útflutningsgjald af
síld o. fl. afurðum. Fjárhagsu.
hafði klofnað í málinu. Meiri-
hl., Sigfús Jónsson, Ásgeir og
Stefán Jóhann vildu að frv. yrði'
samþ. án efnisbreytinga, en
mimuhl., ól. Thórs og Möller,
vildu ennfremur fella niður 1
kr. útflutningsgjald af síldar-
mjöli og fóðurmjöli. Fjármála-
ráðh. sagði, að þó útflutnings-
gjöld væru yfirleitt óheppileg-
ur tekjustofn, væri ekki fært
vegna ríkissjóðs að ganga
lengra í niðurfellingu þeirra en
gert væri með frv.
Jónas Guðmundsson flytur
brtt., sem1 hann tók aftur til 3.
umr. um að ferfalda útflutn-
ingsgjalda af þurkuðum fiski-
úrgangi, en fella með öllu nið-
ur gjald af fiskimjöli í þeim
tilgangi að bæta aðstöðu inn-
lendra fiskimjölsverksmiðja.
Frv. var samþ. án efnis-
Fcnmh é 2. aUSu.
Ifélllr úr llorBur-Diiieyjarsýslg
Almennur þingmálafundur á Þórshöin
skorar á Alþingi að staðfesta kjötlögin
Fréttaritari Nýja dagblaðs.
ins á Þórshöfn ritar blaðinu
á þessa leið:
í haust hafa verið hér um
slóðir sífelldar rigningar og
Hæsti trillubátur mun hafa
tæpl. 200 skippund eftir sum-
| arið. Er það talinn góður afli
hér. Eigandi og formaður þe3s
báts er Marino Ólason. Á þeim
stormar af og til. Hey eru j sama bát fór Marino frá Vest-
mikil úti ennþá, einkum á
Langanesi utan til. Þar hafa
aðeins komið 3 þurkdagar síð-
an sláttur byrjaði. Var það
uni miðjan sept. Náðu menn
þá nokkru af töðum, en stór-
skemmdum. Eru þar miklar
töður óhirtar ennþá og úthey.
Heyskapur er almennt lítill og
lélegur. Garðrækt fer mjög í
vöxt hér um' slóðir. Uppskera
í haust víða góð, þó eru kar-
töflur minna vaxnar en í fyrra.
Fiskafli var góður hér í Þórs-
höfn í júlí og ágúst. I vor var
aftur aflaleysi og haustafli
brást að mestu sökum ógæfta.
Afli hér því varla 1 meðallagi.
mannaeyjum til Þórshafnar
vorið 1933 í tveim áföngum,
sem var talin hættuför á svo
litlu fari. Fiskafli á Skálum
var lakari en á Þórshöfn og
hömluðu vindar þar sjósókn.
Sama er að segja um aflabrögð
í Gunnólfsvík og Bakkafirði.
Slátrun sauðfjár er lokið hár
á Þórshöfn. Var hún með
mesta móti og mun hafa verið
slátrað nálega 7000 fjár. Dilk-
ar voru mjög rýrir til frálags.
Nýlega var haldinn hér í
Þórshöfn almennur þingmála-
fundur. Var þar meðal annars
rætt um kjötsölulögin. Var
Framh. á 4. síðu