Nýja dagblaðið - 13.11.1934, Side 3
N Ý J A
DABBLABIÐ
3
nýja dagblaðið
L'tgulaiidi: „Blaðaútgáfan h.f."
Ritstjórar:
Gísii GuOniundaaon,
Hallgrímur Jónasson.
Ritstjórnartikrifstofurnar
Laugav. 10 Síniar 4373 og 2853
Afgr. og auglýsiugask.riistofa:
Austurstrœti 12. Sími 2323.
Áskriftargjald kr. 2,00 á mán.
í lausasölu 10 aura eint.
Prentsmiðj&n Acta.
Ósanngjörn
afnotagjöld
Ýmsum símanotendum, sem
búa í úthverfum bæjarins,
gengur dálítið erfiðlega að
skilja réttlætið í gjöldum þeim,
er þeir þurfa að greiða af
símatækjum sínum, saman-
borið við samskonar gjöld
annara, er búa inni í bænum.
Þeir, sem t. d. búa suður í
Skildinganesi, þurfa að borga
a. m. k. 30—45 kr. hærra upp-
setningargjald fyrir síma en
bæjarbúar innan Hringbrautar.
En þótt ýmsum finnist í þessu
nokkur ósanngimi, er raunar
ekki óeðlilegt að uppsetningar-
gjaldið sé þar eitthvað hærra,
sem línur þarf lengri, enda
þótt innan bæjarins sé.
En meginfjarstæðan og ó-
sanngirnin gagnvart úthverfa-
mönnum liggur í öðru. Þeim er
einnig gert skylt að greiða
miklu hærri afnotagjöld en
öðrum bæjarbúum.
Ásamt miklu hærra uppsetn-
ingargjaldi fyrir að fá símann
heim 1 fyrstu, bætist við milli
40—50 kr. hærra afnotagjald
árlega en inni í borginni.
Verður naumast fundið
nokkurt réttlæti í þvílíkum
skatti, enda hefir honum verið
mótmælt t. d. af símanotendum,
sem búa í Skildinganesi. Má
sennilega segja, að engir bæj-
arbúar sæti eins slæmum kjör-
um í notkun símans og þeir, er
búa sunnan bæjarins.
Það liggur í því, að hin svo-
kölluðu fjarlægðargjöld eru
ekki miðuð við miðstöð síma-
kerfisins, símstöðina, eins og
sjálfsagt mætti þykja, heldur
við Hringbraut.
Símanotandi sem t. d. býr
suður við Grímstaðaholt, verð-
ur að greiða tvöfalt fjarlægð-
argjald (fyrir tvo fyrstu 500
métrana), meðan annar síma-
notandi, sem býr í sömu fjar-
lægð frá símstöð austur í bæ,
þarf engin fjarlægðargjöld að
borga. Það miklu lengra er
út að mörkum Hringbrautar í
þá átt en suður á bóginn.
Þessi ranglátu aukagjöid
eiga engan rétt á sér. Þau
koma hart niður á efnalitlu
fólki, sem orðið hefir kleifara
að búa og byggja yfir höfuð
sér í úthverfunum en inni í
bænum. Er þess að vænta, að
atvinnumálaráðh. taki þetta
mál til athugunar og leiðrétti
það óréttlæti, sem símanotend-
ur m. k. þessa áðumefnda út-
hverfis eiga við að búa.
SimanotandL
Ski
n og skúrir
Hækkandi stjarna.
Bátar
Stokkseyringa
Alþingi í fyrrahaust sam-
þykkti að ábyrgjast 85 þús.
kr. fyrir útgerðarfélög á
Stokkseyri. Stóðu sjómenn þar
uppi mjög atvinnuvana, og
þorpið í miklum fjárhagslegum
vandræðum, því að hinir gömlu
íhaldsforkólfar höfðu siglt at-
vinnulífinu og málum þorpsins
í strand. Sjómenn á Stokks-
eyri létu í vor semja við báta-
smiðju í Danmörku um smíði
þriggja báta og er hver þeirra
16 smálestir. Hinn fyrsti er á
leið heim, en tveir eiga að
leggja af stað bráðlega. Út-
gerðarfélag þetta á við margs-
konar erfiðleika að etja, en
íramtíð þorpsins veltur að
miklu leyti á, að þessi tilraun
heppnist, því að ef ekki getur
borið sig útgerð sjómanna
sjálfra, þá hættir öll útgerð á
Stokkseyri.
Mjólkurfélag;e-
máliö
Fyrir nokkru síðan komst
upp, að forstjóri Mjólkurfélags
Reykjavíkur, Eyjólfur Jóhanns.
son, hafði staðið í sviksamlegu
sambandi við undirmenn í
Landsbankanum, og fengið þar
fé að láni, án vaxta, án leyfis
yfirmanna bankans og á þann
hátt, að það var bæði brot á
reglum bankans og lögum
landsins. Undir eins og hljóð-
bært varð um málið var ölluni
almenningi ljóst, að hér var um
að ræða vísvitandi sviksemi, og
af hættulegu tægi. Forstjóri
Mjóikurfélagsins sá og, að svo
var, bað stjórn Mjólkurfélags-
ins um traustsyfirlýsingu og
fékk hana. Hefir slíkt komið
eitt sinn áður fyrir hér á landi,
að embættismaður, sem sann-
ur var að stórkostlegur afbroti,
fékk samþykkt traust frá
stéttarbræðrum sínum, þó að
hver einstakur félagmaður af-
neitaði verknaði hans. Síðan
reyndi forstjórinn að útvega
sér traust hjá fulltrúaráði fé-
lagsins, en það vildi ekki verða
við þeirri ósk. Málið var síðan
rannsakað og dæmt af settum1
lögreglustjóra Gústaf Jónas-
syni. Féll dómurinn mjög í
áframhaldi af trausti félags-
stjórnarinnar, því að Eyjólfur
var raunverulega sýknaður,
með því að dæma hann tii
hegningar, sem ekki á að fram-
kvæma.
Það fer að verða mjög
vandalítið að lifa fyrir fjár-
svikara hér á landi. Þeir mega
lokka starfsmenn ríkisins til
lögbrota. Þeir mega þverbrjóta
hegningarlögin ár eftir ár. Hin-
um umkomulausu er hegnt taf-
arlaust fyrir hverja smáyfir-
sjón. En eftir dómi Gústafs
Jónassonar, þá verður Eyjólf-
ur Jóhannsson að leika leik
sinn með starfsmenn Lands-
bankans nokkur ár enn til þess
að hann geti fengið dóm. —
Mörgum munu þykja þetta
undarleg lög.
Deila út af
heiðarsmerki
Þegar Magnús Torfason átti
40 ára embættisafmæli 1. nóv.
s. 1. lagði dómsmálaráðherra
til, eins og venja er við slík
tækifæri að svo löng þjónusta
í þágu ríkisins væri viðui’-
kennt með heiðursmerki. En
er málið kom til íhaldsmanna
í orðunefndinni, voru . sumir
þeirra hinir tregustu og gekk
til jafningjatilfinning við M.
T. Forsætisráðherra lét sér
ekki líka þessi svör og taldi,
að hér væri einmitt um slíkt
tilfelli að ræða, þar sem heið-
ursmerki ætti við. Mun suma
mennina í orðunefnd hafa
grunað, að þeir væru komnir á
nokkuð tæpt vað, og ekki úti-
lokað, að Hermann Jónasson
legði til, að skipulagi nefndar-
innar yrði breytt, ef hún liti
svo á hlutverk sitt, að hún væri
eingöngu til vegna íhalds-
manna. Fór svo, að nefndin
tók upp þann kostinn, sem
beztur var, að láta enga póli-
tíska hlutdrægni koma til
greina í þessu efni. **
,Einn og tvo í róðri‘
Ólafur Thors o. fl. þingm. í-
lialdsins hafa fært fram, sem
ástæðu gegn tékju. og eigna-
skattsfrv., að það rýrði tekju-
stofna bæjar- og sveitarfélaga,
ef að lögum yrði. 1 þeim anda
fluttu þeir þá fjarstæðu brtt.,
að helmingur skattsins skyldi
renna til sveitar. og bæjarfé-
laga. Við atkv.greiðslu hefir
þó sýnt sig, að þrír íhalds-
menn í neðri deild gátu ekki
greitt till. atkvæði. Greiddu
þeir Jón Ólafsson og Gunnar
Thoroddsen atkv. á móti till.,
en Jón Sigurðsson sat hjá. Svo
fór um sjóferð þá. „Alltaf
drepur hann af sér menn, einn
og tvo í róðri“. Á hitt eru í-
haldsmenn steinhættir að
minnast, að frumv. íþyngi lág-
tekjumönnum frá því sem ver-
ið hefir.
Nýr Borgarnesbátur
Frv. Bjama Ásgeirssonar og
Gunnars Thoroddsen um að
ríkið ábyrgist 200 þús. kr. lán
fyrir h/f. Skallagrím í Borgar-
nesi og legði fram allt að 50
þús. kr., sem hlutafé í félagið
til þess að félagið kaupi nýtt
flutningaskip, er annist flutn-
inga á Faxaflóa í stað E/s.
Suðurlands, var samþ. til 3.
Iumr. í neðri deild í gær með
þeim bréytingum, að skipið
annist einnig flutninga á hafn-
ir við Breiðafjörð, og því skil-
! yrði, að félagið útborgi ekki
j arð af hlutafé sínu, méðan
; ríkisábyrgðin stendur.
Verzliö við þá
að öðru jöfnu, sem auglýsa
í Nýja dagbladinu
Antoni Eden
Þessi enski stjóramálamað- i hann kosningu fyrir íhalds-
! flokkinn.
ur var nýverið á ferð um Norð-
urlönd í opinberri heimsókn.
Hann er nú sá maður, sem
einna mest ber á í utanríkis-
málum Englendinga — að frá-
Anthony Eden.
töldum þeim ráðgjafanum, sem
fer beinlínis með þau mál, en
það er, eins og kunnugt er,
Sir John Simon.
Hann er 43 ára gamall, af
allkunnri ætt og alkunnum
stjómmálamönnum. — Braut
hans hefir legið gegnum Eton
og Oxford og inn í parlament-
ið enska.
Eins og svo margir aðrir,
var Eden sendur til vígvall-
anna 1914—18. En 1923 hefst
stjórnmálaferill hans. Þá náði
Þeim flokki hefir hann fylgt
jafnan síðan, en staðið þar þó
lengst til vinstri.
Sá, sem einna fyrstur kom
I auga á gáfur hans og hæfi-
leika, var Chamberlain, sem
veitti Eden ritaraembætti í ,ut
anríkisráðuneytinu.
Brátt hækkaði Eden í tign
og áliti. Hann varð einskonar
aðstoðarráðherra eftir 1931 ,og
hægri hönd John Simons. Um
skeið var allmikið uiri það
talað, að Mac Donald flytti J.
Simon úr stöðu hans og fengi
honum í hendur innanríkismál-
in. Þá átti Eden að verða utan-
! ríkisráðherra.
Nú gegnir A. Eden í raun og
j veru störfum utanríkisráðherr-
, ans að allmiklu leyti. Hann
! mætir út á við fyrir hönd
i brezka ríkisins, þegar J. Sim-
| on er hindraður frá því sjálf-
j, ur. Og í Genéve er það hann,
j, sem oftast kemur fram fyrir
Englands hönd.
Honum er spáð mikilli fram
tíð. Stjórnmálahæfileikar hans
eru taldir frábærir og ýmsa
órar fyrir því, að leið hans
muni áður en langt um líður,
liggja upp í forsætisráðherra-
stól Brethlands.
Afgreidd þingmái
Þessi stjórnarfrv. hafa verið
afgreidd sem lög frá Alþingi:
1. Frv. um framlenging á
bráðabirgðaverðtolli frá 2.
júní 1933 til ársloka 1935.
2. Frv. um að lög um verð-
toll frá 15. júní 1927 með þeim
breytingum er síðar hafa ver-
ið á þeim gerðar, skuli gilda
til ársloka 1935.
3. Frv. um staðfestingu á
bráðabirgðalögum frá 28. júní
s. 1. um að lög um útflutning
á kjöti frá 19. júní 1933 skuli
gilda til 1. júlí 1935.
4. Frv. um að ríkisstjórnin
(Áfengisverzlunin) hafi einka-
leyfi til þess að framleiða hér
á landi ilmvötn-, hárvötn, and-
litsvötn, bökunardropa, kjama
(essensa) og einkainnflutning
á pressugeri. Með þessum lög-
um er numið úr lögum' bann
við því, að Áfengisverzlunin
selji sjúkrahúsum vín og ó-
mengaðan „spiritus“.
5. Frv. um hagfræðiskýrsl-
ur, er skyldar tryggingarskyld
iðnfyrirtæki til þess að láta
hagstofunni í té árlega skýrsl-
ur um starfsemi sína og enn-
fremur útgerðir innlendra og
erlendra skipa, er stunda fólks-
og vöruflutninga hér við land
samkvæmt ferðaáætlun, skýrsl-
ur um tölu strandferða, við-
komustaði, tölu farþega og
flutningsmagn.
Sem lög hafa og verið af-
greidd frá Alþingi þessi frv.
einstakra þingmanna: Frv. um
hlutaruppbót sjómanna og frv.
um endurkosningu1 bæjar-
stjórna (ísafjörður).
Uppboð.
Opinbert uppboð verður
haldið í Aðalstræti 8 í dag
kl. 10 árd. og verða þar
seldar allar vörur úr verzl.
Kaupfélags Alþýðu, báðum
búðum, svo og áhöld, þár
með talið kassaapparat,
samlagningarvél ritvél,
reiðhjól. vogir o. m. fl. Þá
verða og seld húsgögn og
myndasafn. Greiðsla fari
fram við batíiarshögg.
Lögmaðnrinn
í Reykjavik.
Karlmannaföt
Karlmannafrakkar.
Drengjaföt.
Síðar buxur.
Pokabuxur. ,
Skíðabuxur.
Káputau.
Kjólatau.
Ferðateppi..
Band.
Lopi.
Lan g a veg 1 0
Sími 2838.