Nýja dagblaðið - 13.11.1934, Síða 4
4
II t » A
dagblabib
IDAG
Sólaruppkoma kl. 8.45.
Sólarlag kl. 3.35.
Flóð árdegis kl. 9.00.
Flóð síðdegis kl. 9.25.
Veðurspá: Austankaldi. Dálítil
rigning.
Ljósatltni hjóla og bitreiða kl.
4,20—8,05.
Sötn, skrifstoiur o. fL
Landsbókasafnið ..... 1-7 og 8-10
Alþýðubókasafnið ... 10-12 og 1-10
þjóðskjalasafnið ............. 1-4
Landsbankinn ................ 10-3
Búnaðarbankinn ...... 1012 og 1-3
Útvegsbankinn ....... 10-12 og 1-4
Útbú Landsb., Klapparst....... 2-7
Fósthúsið: Bréfapóststofan ... 10-6
Bögglapóststofan ........... 10-5
Skrifstofa útvarpsins . 10-12 og 1-0
Landssíminn .................. 8-9
Búnaðarfélagið ....... 10-12 og 14
Fiskifélagið (Skriíst.t.) 10-12 og 1-5
Skipaútg. rikisins .... 9-12 og 1-6
Eimskip ..................... 9-6
Stjómarráðsskrifst. ... 10-12 og 1-4
Samb. ísl. samv.fél. .. 9-12 og 1-6
Sölus.b. ísl. fiskfr.l. .. 10-12 og 1-6
Skrifst. bæjaríns ..... 9-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns .... 10-12 og 14
Skrifst. tollstjóra .... 10-12 og 14
Hafnarskrifstofan ..... 9-12 og 1-6
Skipa- og skrán.st. rík. 10-12 og 1-5
Tryggingarst. ríkisins 10-12 og 1-5
Skrifstofa lögreglustj. 10-12 og 14
Lögregluvarðst. opin allan sólarhr.
Heimsóknartími sjúkrahúsa:
Landspítalinn .............. 34
Landakotsspítalinn .......... 3-5
Kleppur ..................... 1-5
Vifilstaðahælið . 12y2-l% og 3y24i/2
Næturvörður 1 Ingólfsapóteki og
Laugavegsapóteki.
Næturlæknir: Halldór Stefánsson,
Lækjargötu 4, simi 2234.
Samgttngur og póstferðir:
Brúarfoss til Leith og K.hafnar.
Suðurlandspóstur kemur.
Skemmtanlr og samkomur:
Nýja Bíó: Hefðarkona heilan dag
kl. 9.
Dagskrá útvarpslns:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 12,45 Enskukennsla.
15,00 Veðurfregnir. 19,00 Tónleikar.
19,10 Veðurfregnir. 19,20 þing-
fréttir. 19,50 Auglýsingar. 20,00
Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Er-
indi: Starfshættir Alþingis (For-
,seti samein. þings, Jón Baldvins-
son). 21,00 Tónleikar: a) Píanó-
sóló (Emil Thoroddsen); b) Gram-
mófónn: íslenzk lög; c) Danslög.
Innbrot var framið í vöru-
geymslu Jóns porlákssonar &
Norðmanns, Bankastræti 11, að-
faranótt sunnudagsins sl. Hafði
þjófurinn snúið lásinn af hurðinni
og brotið læsinguna. þar var ekk-
ert að hafa nema eldavélar, lino-
leumstranga o. þ. h., sem örðugt
var að' taka með sér. Tilraun
hafði verið gerð til að komast inn
í. herbergi, sfem afgreiðslumaður-
inn hefir til umráða, en ekki hafði
það heppnazt. Mun þjófurinn ekki
hafa haft neitt upp úr innbrot-
inu.
VeðriS i gær. Austanátt og rign-
ing um allt land. Á Austurlandi
var vindur hægur, en allhvasst á
norðvesturlandi. Mest úrkoma var
á suðausturlandi. Úrkoma var
mæld mest á Fagurhólsmýri, 33
rnm.; H-iti yar.frá 2—6 stig.
Annáll
Skipairéttir. Gullfoss kom til
Leith i fyrradag. Goðafoss fór
vestur og norður i gærkvöldi.
Dettifoss er í Hamborg. Bniarfoss
vnr væntanlegur til Reykjavíkur í
morgun. Lagarfoss var á Fáskrúðs-
firði í gær. Selfoss er á leið til
Hull.
Farþegar með Goðafossi vestur
og norður voru: Kristján Jónsson,
Sigríður Klemensdóttir, Hólmfríð-
ur Gunnarsdóttir, Kristján Eyj-
ólfsson, þórunn Rögnvalds, þor-
lákur Helgason, Hrefna Guð-
mundsdóttir, Sigurrós Sigurjóns-
dóttir, Grímur Snædal, Henry
Háifdánarson, Steinarr Guðmunds-
son.
Höínin. Tryggvi gamli fór til
Englands í gær. Hafði hann tekið
bátafisk til útflutnings á Stein-
grímsfirði. Lyra kom í gærkvöldi
frá útlöndum. Brúarfoss var
væntanlegur að vestan i nótt.
Línuveiðarinn Fróði ætlaði til
Dýrafjarðar í gærkvöldi með
margt farþega.
Hrútasýning var haldin hér í
bænum á sunnudaginn. Fjórir
hrútar af fimmtán, sem komu á
sýningarstaðinn, fengu 1. verð-
laún. Voru þeir frá 91—96 kg. á
þyngd.
Samúel Ólalsson fyrv. fátækra-
fulltrúi andaðlst sl. sunnudag aft-
ir langa vanheilsu.
Vörubirgðir úr þrotabúi Kaupfé-
lags alþýðu verða boðnar upp í
Bröttugötusalnum kl. 10 í dag.
Vörubirgðirnar eru metnar á 10
þús. kr.
Farfuglalundur verður í Kaup-
þingssalnum kl. 9 í kvöld. Far-
íuglafundirnir eru með allra á-
nægjulegustu samkomum hér í
bæ. þar kemur saman ungt fólk
alstaðar að af landinu og skemmt-
ir sér við ræðuhöld, upplestur,
söng, dans, sameiginlega kaffi-
drykkju o. fl. f>að sem sérstak-
lega einkennir þessar samkomur
ungmennafélaganna, er hve
frjálslegar og óþvingaðar þær
eru og skemmtikraftarnir ólam-
aðir og veittir og þegnir af góð-
um hug heilbrigðrar æsku.
Heiðarkona heilan dag heitir
myndin, sem nú er sýnd i Nýja
Bíó. Er það' amerísk tal- og tón-
mynd. Hún hefir fengið góða
dóma í erlendum blöðum og talin
vera mjög skemmtileg.
Dætur Reykjavíkur II. heitir ný
bók eftir þórunni Magnúsdóttur.
Sumi höfundur gaí út fyrir tæpu
ári síðan smásögur undir þessu
nafni og fengu þær góða dóma.
Skemmdimar á LanganesL -
Skemmdirnar á þórshöfn og norð-
anverðu Langanesi af völdum
brimsins mikla á dögunum hafa
verið metnar á 23 þús. kr.
Símakappskák fór fram aðfara-
nótt sl. sunnudags milli Taflíé-
lags Hafnfirðinga og Taflfélags
Akureyrar. Teflt var á 10 borðum.
Úrsíit urðu þau, að Hafnfirðing-
ar unnu 6, gerðu 3 jafntefli og
unnu þannig með 7% gegn 1%.
Einu tafli var ekki lokið og geng-
ur dómur um það. Taflið stóð yf-
ir frá kl. 21 að kvöldi til kl. 9
að morgni.
Nazistar héldu skemmtun á Hó-
tel Borg á laugardagskvöldið.
Mun þar hafa gerzt sitthvað sögu-
iegt og hefir blaðið heyrt, að
mönnum hafi verið varpað þar
út, vegna þess að þeir vildu ekki
bera einkennismerki nazista eða
hrópa „Heil Hitler". — Yfirleitt
mun skemmtunin hafa farið þann-
ig fram, að hún var vel samboð-
in þeim flokki, sem fyrir henni
gekkst.
Hvalur
laskar skip*
London kL 20.30 10/11. FÚ.
Hvalveiðaskip kom til hafn-
ar í Nýja Sjálandi í dag, og
hafði furðulega sögu að segja.
Hvalveiðamönnum hafði tekizt
að festa skutulinn í stórhveli,
en í fjörbrotunum lenti hvalur-
inn undir skipið, og kastaði
því í loft upp, en það kom þó
niður á réttum kili. Við þetta
sprakk sprengja, og varð ein-
um manni að bana, en hval-
veiðamenn vissu ekki til að
orðið hefði annað tjón, fyrr
en þeir urðu þess varir, að
talsvert vatn var komið í skip-
ið, og var þá haldið til hafnar
með svo miklum hraða, sem
unnt var, og stórhvelinu
sleppt.
Qsfjórn og sukk
á meðferð styrktarfjár
til atvinnuleysingja.
London kL 19Æ0, 11/11. FÚ.
Senator Borah hefir ráðizt á
meðferð opinberra hjálpar-
sjóða fyrir atvinnuleysingja í
Bandaríkjunum, og hefir for-
stjóri hjálparstarfseminnar
skipað rækilega rannsókn á
úthlutun atvinnuleysisstyrkja,
og falið Senator Borah að að-
stoða við rannsóknina.
Kaupondur blaðsins eru minntir
á að tilkynna afgreiðslunni tafar-
laust, ef þeir verða fyrir vanskil-
um á blaðinu.
Útflutningurinn. Um seinustu
mánaðamót nam útflutningurinn
37.2 milj. kr. og er það tveim
milj. kr. minna en á sama tima í
fyrra.
Innflutningurinn. Um seinustu
mánaðamót nam innflutningúr-
mn það sem aí er þessu ári 40.1
milj. kr. og er það 2.3 milj. kr.
meira en á sama tíma í fyrra. þá
var útflutningur 0.4 milj. kr.
hærri en innflutningurinn, en nú
(T innflutningurinn 2.9 milj. kr.
íineiri.
í dag eru 29 ár síðan að Hákon
VII. var kjörinn til konungs í
Noregi.
í Tideus Tegn segir nýlega, að
meðal bóka, sem Nationalforlaget
í Oslo gefur út i haust, verði
skáldsaga eftir Snorra Hjartarson
(Snorrasonar alþm.), sem hann
nefnir: Höit flyver ravnen. Mynd
af Snorra fylgir þessari frásögn
blaðsins.
Hlutavelta Dýravemdunarfélags
ins s. 1. sunnudagskvöld stóð yf-
ir frá kl. 4—12. þar voru margir
ágætir munir. Verðmesta dráttinn
hlaut Sveinn Ólafsson Lækjarg.
10 B. Voru það matvörur fyrir á
annað hundrað krónur. Mun fé-
lagið með hlutaveltu þessari hafa
fengið góðan fjárstyrk, enda
styrktu bæjarbúar það bæði með
gjöfum á hlutaveltuna og einnig
með því að sækja hana og draga
upp öll númerin og sýndu þeir
þannig velvild sína til málefnisins.
Lttgboðin gæsasteik. þar eð út-
flutningur á gæsum frá Litaven
var fyrir nokkru stöðvaður, hefir
landsstjórnin séð sig knúða til
að gera sérstakar ráðstafanir svo
að bændur, sem stunda alifugla-
rækt, tapi ekki markaðinum. —
Strandferðir
Bergur Jónsson. og Gísli Guð-
mundsson flytja þáltill. um! að
láta fella niður úr samningum
milli íslands og annara ríkja
>au ákvæði, er komi í veg fyr
ir það, að Islendingar geti tek-
ið strandferðimar í sínar
íendur.
Smjörlíki
Landbúnaðam. neðri deildar
flytur frv. um þá breyt. á 1.
frá 1933 um smjörlíki, að allt
smjörlíki sem framleitt er hér
á landi skuli bætt með A- og
D-fjörefni eftir fyrirmælum,
er ráðh. setur og ekki á ann-
an hátt. Ennfremur að áður en
ráðh. hefir fyrirskipað með
augl. um blöndun smjörlíkis
með smjöri, má ekki verzla
með smjörlíki blandað smjöri,
og eftir að slík auglýsing hef-
ir verið birt, má ekki selja
smjörlíki öðmvísi blandað
smjöri en fyrir er iriælt.
Einfalt ráð
við borgarastyrjöld!
London kl. 20.30, 10/11. FÚ.
Óeirðir hafa ennþá orðið í
Cuba, og eru það atvinnuleys-
ingjar, sem hafa valdið þeim.
Stjórnin hefir tilkynnt, að hún
muni bæla allar óeirðir niðar
með harðri hendi, en eitt blað-
ið í Cuba hefir bent stjóm-
inni á það, að öruggasta leiðin
til að bæla niður óeirðir sem
þessar, sé, að veita atvinnu-
leysingjunum vinnu — en þó
ekki of stranga.
tramsóknarfélag
Borgarfjarðar
Nýja Bió
Heíðarkona heilan dag (Lady for a Day) Ljómandi skemmtileg amer- ísk tal- og tónkvilcmynd. — Aðalhlutverkin leika: May Robson, Warten Wflliaju Jean Parker o. fl. Sýnd síðasta slnn i kvttld kL 0.
• Odýrn # Mflýsingaraar.
Kaup og sala
Ágæt kryddsíld nýkomin í verzlun Kristínar J. Hagbarð. Sími 3697.
Hmvötn, hárvötn og hrein- lætÍHvörur fjölbreytt úrval hjá Kaupfélagi Reykjavflrar.
Fallegu lampana og allt til rafmagns, kaupa menn í raf- tækjaverzlun Eiríks Hjartár-
sonar, Laugaveg. 20. Sími 4690. S<fiskbúðin er vel birg af nýjum fiski. Sími 2098.
VÍNBER fást í Kaupfélagi Reykjavíkur.
|| Tilkynningar |
Hefi síma 2869. Dr. Max Keil, Tjarnargötu 10, B.
Beztu og ódýrastar allskon- ar viðgerðir á skófatnaði. Skó- vinnustofan, Njálsgötu 23, sími 3814.
Kjólar og frakkar á full- orðna og börn eru saumaðir fyrir sanngjamt verð á sauma- stofunni á Suðurgötu 14.
|j Átvinna |||
Fyrir skömmu hélt Fram-
sóknarfél. Borgfirðinga fund í
Borgamesi til þess að ræða
landbúnaðarmálin á Alþingi.
Fundinn sóttu um 60 manns.
Á honum vom m. a. niættir
þingmaður Mýrasýslu Bjarni
Ásgeirsson og Jónas Jónson,
form. Framsóknarflokksins. Á
fundinum kom fram! mikil
ánægja um það, hverng ríkis-
stjómin hefir tekið á landbún-
aðavmálunum.
Stúlka vön jakkasaumi ósk-
ast. — Bjami Guðmundsson,
Hverfisgötu 53.
ílösk og lipur stúlka, vel að
sér, sem er vön afgreiðslu, get-
ur fengið stöðu hálfan eða all-
an daginn. Meðmæli frá fyrri
húsbændum nauðsynleg. Tilboð
merkt „Stundvís" leggist ó af-
greiðslu blaðsins.
Húsnœði
3 herbergi og eldhús eða
lítið hús, óskast til leigu 15.
þ. m. eða 1. des. Má vera utan
til í bænum. A. v. á.
Herbergi með sérinngangi
óskast. A. v. á.
Herbergi óskast, helzt ná-
lægt miðbænum! eða vestan-
vert í bænum. A. v. á.
Kennala
Og um s. 1-. mánaðamót ákvað
stjórnin að skylda alla opinbera
btarísmenn ríkisins og aðra þá,
sem vinna við hálfopinberar stofn-
onir, að kaupa ákveðið magn af
gæsakjöti í hlutfalli við tekjur
þeirra. Er með þessu ætlazt til að
200 þús. gæsir seljist á innlendum
markaði.
Biano og orgelkennsla. Hljóð-
færi til æfinga getur komið til
greina. Lorange, Freyjugötu
10
Orgelkennsla. Kristinn Ing-
varsson, Hverfisgata 16._______
Hafnfirðingar! Kenni á orgel.
M. Karlsdóttir, VíSistöðum.