Nýja dagblaðið - 22.11.1934, Page 1
2. ár.
Reykjavík, fimmtudaginn 22. nóvbr. 1934.
277. blað
Ný skipun síldarútvegsins
12. þii&g
4lþýðusambands Islands
Meirihluti sjávarútvegsnefndar Nd.
þeir Bergur Jónsson, Fínnur Jónsson
og Páll Þorbjarnarson bera íram frv.
um síldarútvegsneínd
I gær var lagt fram á Al-
þingi frv. um síldarútvegs-
nefnd, útflutning á síld, hag-
nýtingu markaða o. fl. Frum-
varpið er flutt af meirihluta
sjávarútv.nefndar, þeim Bergi
Jónssyni, Finni Jónssyni og
Páli Þorbjörnssyni.
Helztu ákvæði frv. eru þessi:
SlLDARÚTVEGSNEFND.
„Ríkisstjómin skipar sjö
manna síldarútvegsnefnd. Skip.
ar atvinnumálaráðherra einn,
en hinir skulu vera tilnefndir af
þessum aðilum, einn af hverj-
um: Útgerðarmönnum á Eyja-
firði, útgerðarmönnum á Suð-
urlandi, sunnan Snæfellsness,
útgerðarmönnum á Norður-
landi, utan Eyjafjarðar, og út-
gerðarmönnum á Vesturlandi.
Auk þess tilnefnir Alþýðusam-
band íslands tvo menn. Við
kosningu í nefndina kemur eitt
atkvæði fyrir hvert skip, skrá-
sett á hinum tilnefndu svæðum,
sem haldið var út á síldveiðar
árið á undan kosningu og lagði
upp síld til verkunar og út-
flutnings. Varamenn skulu
skipaðir jafnmargir eftir til-
nefningu sömu aðilja. Nefndar-
menn eða varamenn þeirra
skulu allir dvelja á Siglufirði
vfir síldveiðitímann.
VERKEFNI SÍLDAR.
ÚTVEGSNEFNDAR.
Síldarútvegsnefnd fer með út-
hlutun útflutningsleyfa, veiði-
leyfa til verkunar, söltunar- !
leyfa á síld og löggildir síldar- j
útflytjendur. Hún skal gera
ráðstafanir til þess, að gerðar
séu tilraunir með nýjar veiði-
aðferðir og útflutning á síld
:með öðrum verkunaraðferðum
en nú eru tíðkaðar. Hún skal
hafa forgöngu um markaðsleit
og tilraunir til að selja síld á
nýja markaði og annað það, er
lýtur að viðgangi síldarútvegs-
ins.
Til þess að standast kostnað
af þessum störfum nefndarinn-
ar, getur síldarútvegsnefnd
ákveðið, með samþykki ráð-
herra, að greitt verði í sérstak-
an sjóð 2% — tveir af hundr-
aði — af andvirði seldrar síld-
ar. Sjóði þessum má eingöngu
verja í þágu síldarútvegsins.
Nú verður sjóður þessi svo
mikill, að öruggt þyki, og get-
Bergur Jónsson,
fulltrúi Framsóknarflokksins
í sjóvarútvegsnefnd nd.
ur þá síldarútvegsnefnd ákveð-
ið, að fengnu samþyltki ráð-
herra, að endurgreiða úr hon-
um til síldareigenda í réttu
hlutfalli við verðmagn seldrar
síldar.
FÉLAG SÍLDARFRAM-
LEIÐENDA.
Síldarútvegsnefnd löggildir
síldarútflytjendur, ákveður tölu
þeirra og löggildingartíma.
Nú hefir félag síldarfram-
leiðenda fengið löggildingu sem
síldarútflytjendi og hefir um-
ráð fyrir 80% eða meiru tf
saltsíldarframleiðslu lands-
manna, og getur þá síldarút-
vegsnefnd ákveðið að veita því
útflutningsleyfi fyrir jafnhá-
um eða hærri hundraðshluta af
framleiðslunni og það hefir um-
ráð yfir, en fullnægja skal þá
félagið þeim skilyrðum, er hér
fara á eftir, sé það eigi stofnað
og starfrækt samlcv. lögum nr.
36 27. júní 1921, um samvinnu-
félög. Félagið skal vera opið
öllum síldarframleiðendum,
þannig, að félög þeirra, sem ná
yfir eina eða fleiri veiðistöðv-
ar eða tiltekið svæði, hafi rétt
til þátttöku og sendi fulltrúa á
fundi þess. Útgerðarmenn og '
útgerðarfélög, sem ráða yfir ;
2000 tunnum saltsíldar eða |
meiru, skulu eiga rétt á að
gerast meðlimir og mæta eða
láta mæta á fundum félagsins. j
Æðsta vald í félagsmálum sé
hjá félagsfundum. Við kosn-
ingu fulltrúa til félagsfunda
skal hver þátttakandi hafa at-
kvæðisrétt, er eigi miðast nema j
að nokkru leyti við síldarmagn. j
Sama gildir og um atkvæðis-
rétt á félagsfundum, enda fari
þar enginn með meira en V20
af atkvæðimagni félagsins fyrir
sjálfan sig og aðra.
Ef ekkert almennt félag síld-
arframleiðenda, sem i-æður yfir
síldarmagni því, sem að fram-
an greinir, sækir um og fær
löggildingu síldarútvegsnefnd-
getur nefndin löggilt tiltekna
tölu síldarútfljhjenda, enda
hafi hver þeirra til umráða að
minnsta kosti 25000 tunnur af
síld og fullnægi ákvæðum laga
nr. 52 27. júní 1925, um verzl-
unaratvinnu, ef um einstakling
er að ræða, eða ef um félag' er
að ræða, að það sé skrásett lög-
um samkvæmt sem hlutafélag,
samvinnufélag eða sölusamlag
síldarframleiðenda, opið öllum
síldarframleiðendum“.
EINKASALA.
Telji síldarútvegsnefnd og
ríkisstj órn, að útflutnings-
möguleikamir notist betur,
með því að taka upp einkasölu
á síld, getur ríkisstjómin gefið
félagi síldarframleiðenda einka-
söluleyfi, með samþykki síldar-
útvegsnefndar.
Sé slíkt félag ekki til, getur
ríkisstjóm falið síldarútvegs-
nefnd einkasöluna, en þó verð-
ur leyfi nefndarinnar að fást
til þess.
Þing Alþýðusambands
lands stendur yfir þessa dag-
ana. Var það sett síðastl. laug-
ardag af íorseta sambandsins,
.Jóni Baldvinssyni alþm..
Er það 12. þing sambands-
ins og það fjölmennasta, sem
haldið hefir verið. Eru mættir
þar á annað hundrað fulltrúar
frá 47 félögum. Átján félög í
samb. senda ekki fulltrúa.
Alls eru 65 félög í Alþýðu-
sambandinu og eru i þeim sam-
tals 10305 félagsmenn.
Meira en helmingur félag-
anna, eða 37 eru í kaupstöðum. j
Hin eru í kauptúnum. 1 sjö
sýslum er ekkert félag innan
Alþýðusambandsins, m. a. í
Gullbringu. og Kjósarsýslu og
Eyjafjarðarsýslu.
Síðan seinasta þing var hald-
ið 1932 hafa mörg félög bæzt
í sambandið.
1 þingsetningarræðu sinni
sagði forseti, að sambandið
væri nú styrkara en nokkru
sinni fyr og það væri hlutverk
þingsins að ákveða hvemig
valdi þess skyldi beitt og það
bezt skipulagt til nýrra átaka.
Þingið hefir gert eftirfar-
andi samþykkt um stjómar-
samvinnu Framsóknarflokksins
og Alþýðuflokksins:
„12. þing Alþýðusambands
Islands iítur svo á, að við ai-
þingiskosningarnar síðastliðið
vor hafi komið fram greinileg-
ur vilji kjósenda landsins um
að Alþýðuflokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn gengju sam-
an til stjómarmyndunar og
vnnu saman að umbótum á lög-
gjöf og að heppilegum stjórn-
arframkvæmdum til hagsmuna
fyrir hinar vinnandi stéttir til
sjávar .og sveita.
Lýsir þingið ánægju sinni
yfir því, að slík stjórnarmynd-
un skyldi takast, og telur þar.n
sáttmála, sem til grundvallar
var lagður fyrir samvinnu
flokkanna í öllu vera ávinning
fyrir alþýðu þessa lands.
Telur þingið sjáfsagt að
halda þessari samvinnu áfram
við Framsóknarflokkinn, svo
lengi sem hann í engu gengur
á gerða samninga, og svo lengi
sem einstakir þingmenn þess
flokks ekki ganga í berhögg við
hagsmuni vinnustéttanna i
landinu“.
Fjárlagafrumvarpið
iýsir ánœg-ju sinni yfír stjórnmála-
samvinnnnni við Framsóknarfiokkinn
ís-
ÞJóðabandalagið
og ófrið'jrinn í Suður-Ameriku
Loudon kl. 17 21./11. FÚ.
Aukafundur Þjóðabandalags-
ns hélt áfram í dag, og var þá
tekin til meðferðar skýrsla
nefndar þeirrar, er rannsakar
deilumál Boliviu og Paraguay,
og reifaði fulltrúi Tékkó-
slóvakíu það mál. Hann kvað
bæði þessi ríki hafa brotið
sáttmála Þjóðabandalagsins, og
að það væri mál, sem skipti
alla meðlimi bandalagsins.
Hann sagði, að Þjóðabandalagið
yrði þegar í stað að gera ráð-
stafanir til þess að lcoma í veg
fyrir slíkt.
Anthony Eden tilkynnti, að
'Stóra Bretland væri samþykkt
tillögum nefndarinnar og skor-
aði á alla fulltrúa að sjá tií
þess, að stjórnir þeirra gerðu
þegar alvöru úr því að banna
vopnasölu til Boliviu og Para-
guay, ef þær hefði ekki þegar
gert það.
Sænski fulltrúinn mælti með
því, að leitað yrði álits alþjóða-
dómstólsins í Haag, til þess að
fá úr því skorið, hvort ríkið
liefði ráðizt á hitt, og ætti
þannig sök á ófriðinum.
Tiliðgur í
Bitlingar og embættakostnaðu r á hvergi að lækka.
En framlög til atvinnubóta lækki um 200 þús. kr. Framlag
til byggmgar. og landnámssjóðs lækki um 100 þús. kr. og
sömuleiðis framlag til verkamannabústaða. Aðarar tillögur
ganga í svipaða átt.
íhaldsmennimir í fjárveit-
inganefnd hafa nú lagt fram
nefndarálit sitt og tillögur. Má
glöggt marka af þeim, hvem
hug íhaldið ber til umbótamál-
anna og hinna vinnandi stétta.
Allar tillögur íhaldsmann j
anna eru lækkunartillögur. En |
þar er hvergi lagt til að draga
úr embættiskostnaði, fækka
J bitlingum eða koma á öðrum
sparnaði, sem hagnýtur verður
' verður talinn. Allar tillögurnar
ganga í þá átt að draga úr
verklegum framkvæmdum og j
þá einkum þar, sem harðast j
kemur niður á hinum efna-
; minnstu þegnum þjóðarinnar.
Þannig leggja íhaldsmenn-
irnir til, að atvinnubótastyrk-
urinn verði lækkaður um 200
: þús. kr„ framlagið til strand-
ferða um 80 þús. kr„ framlag
j til verkamannabústaða um 100
! þús. kr. framlag til byggingar-
og landnámssjóðs um 100 þús.
kr., framlag til símalagninga
um 35 þús. kr., framlag til
verklegs framhaldsnáms um 5
þús. kr. og fellt verði niður 80
þús. kr. framlag til byggingar
gagnfræðaskóla í Reykjavík.
Tillögurnar eru lítið fleiri, en
þær sem eru ótaldar stefna all-
ar í sömu átt.
í nefndarálitinu er fjargviðr-
ast mikið um hið bága ástand
atvinnuveganna, atvinnuleysi o.
s. frv. Kemur það þó illa heim
við tillögumar, sem aliar ganga
í þá átt, að draga úr verkleg-
um framkvæmdum og auka
þannig á þau atvinnuvandræði,
sem fyrir eru.
Það er óhætt að fullyrða, að
tillögur þeirra íhaldsmannanna
í fjárveitinganefnd er eitt hið
svívirðilegasta plagg í garð
vinnandi stéttanna, sem komið
hefir fram á Alþingi.