Nýja dagblaðið - 22.11.1934, Síða 4
4
n Ý j a
daqblaðið
I DAG
Sólaruppkorna kl. 9,13.
Sólarlag kl. 3,05.
Flóð árdegis kl. 5,50.
Flóð síðdegis kl. 6,10.
Veðurspá: Hægviðri fram eftir
deginum. Vaxandi norðaustan-
átt með kvöldinu. Úrkomulaust.
Ljósatimi hjóla og bifreiða kl.
3,35—8,50.
Söfn, skrilstofur o. fl.:
Landsbókasafnið ...... 1-7 og 8-10
AJþýðubókasafnið ... 10-12 og 1-10
þjóðskjalasafnið .............. 1-4
Pjóðminjasafnið ............... 1-3
Náttúrugripasafnið ............ 2-3
Landsbankinn ................. 10-3
Búnaðarbankinn ....... 10 12 og 1-3
Útvegsbankinn ........ 10-12 og 1-4
Útbú Landsb., Klapparst....... 2-7
Pósthúsið: Bréfapóststofan ... 10-6
Böggiapóststofan .......... 10-5
Skrifstofa útvarpsins . 10-12 og 1-6
Landssíminn ................... 8-9
Búnaðarfélagið ....... 10-12 og 1-4
Fiskifélagið (Skrifst.t.) 10-12 og 1-5
Skipuútg. rikisins .... 9-12 og 1-6
Eimskip ....................... 9-6
Stjórnarráðsskrifst. ... 10-12 og 1-4
Samb. ísl. samv.fél. .. 9-12 og 1-6
Sölus.b. ísl. fiskfr.l. .. 10-12 og 1-6
Skrifst. bæjarins ..... 9-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns .... 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra .... 10-12 og 1-4
Hafnarskrifstofan ..... 9-12 og 1-6
Skipa- og skrán.st. rik. 10-12 og 1-5
Tryggingarst. ríkisins 10-12 og 1-5
Skrifstoía iögreglustj. 10-12 og 1-4
Lögregluvarðst. opin allan sólarhr.
Annáll
Heimsóknartími sjúkrahúsa:
Bandspitalinn .......... 3-4
Landakotsspítalinn ........... 3-5
Kleppur ...................... 1-5
Vifilstaðahælið . 12^2-1% °8
Næturvörður í Reykjavíkurapó-
teki og lyfjabúðinni Iðunn:
Næturlæknir Gisli Pálsson,
fng. 21 C. Sími 2474.
Skemmtanir og samkomur:
Nýja Bíó: Leynifarþeginn, kl. 9.
Málverkasýning Guðmundar Ein-
arssonar, Skólavörðustíg 12.
Samgöngur og póstferðir:
Suðurland til Borgarness.
Dagskrá útvarpsins:
Kl. 10,00 Veðurfregnir. 12,10 Hó-
degisútvarp. 12,45 Enskukennsla.
15,00 Veðurfregnir. 19,00 Tónleikar.
19,10 Veðurfregnir. 19,20 ping-
fréttir. 19,50 Auglýsingar. 20,00
Klukkusláttur. Fréttir. 20,30 Fr-
indi: Frá útlöndum (sira Sigurður
Einarsson). 21,00 Lesin dagskrá
næstu viku. 21,00 Tónleikar: a)
Utvarpshljómsveitin; b) Grammó-
fónn: Óperulög; c) Danslög.
Annað kvöld kl. 8:
Jeppi á Fjalli
Gamanleikur í 5 þáttum.
eftir Holberg.
Lœkkað verö
AðgöngumiOar seldir í lönó
daginn áöur en leikiö er,
kl. 4—7 og leikdaginn eftir
kl. 1. — Simi 3191.
Skipalréttir. Gullfoss var í gær
á Siglufirði. Goðafoss fór til Hull
og Hamborgar í gærkvöld kl. 10.
Dettifoss kom í gærkvöldi frá út-
löndum. Brúarfoss kemur til
Kaupmannahafnar snemma í dag.
Lagarfoss var á Siglufirði i gær-
morgun. Selfoss fór frá Leith i
fyrradag á leið til Reykjavíkur.
Farþegar með Goðafoss til Hull
og Hamborgar í gær: G. G. Shuck,
L.árus Sigurbjörnsson og frú, Kat-
rín Söebeck, Mr. Sutchiffe, L. Hop-
kins, Harold Föerster og 10 ensk-
ir sjómenn.
Höfnin. Togaramir Otur, Bei-
gaum, Hilmir, Hannes ráðherra
og Gulltoppur em nýkomnir frá
útlöndum. Eldborg kom i fyrra-
kvöld frá Englandi. Katla fór til
Spánai- i gær. Sementsskip til
JóiTs þorlákssonar & Norðmann o.
fl. kom í gærmorgun. Súðin fór í
hringferð vestur um kl. 1% í gær.
Lárus Sigurbjömsson mætir á
Holbergshátíðinni í Bergen, sem
fulltrúi Leikfélags Reykjavikur.
l?ór hann utan með Goðafoss í
gærkvöldi.
Gangleri II. liefti yfirstandandi
árgangs er nýlega komið út.
Á hvaða aldri giítist kvenfóikið?
Samkvæmt mannfjöldaskýrslum
1926—30, sem Hagstofan hefir ný-
lcga gefið út giftust 3455 kven-
menn á þeim árum. 1727 voru
yngri en 25 ára, 1385 á aldrinum
25—34 ára, 296 frá 35—49 ára og
24 voru komnar yfir fimmtugt.
Aldur 23 var ótilgreindur.
Skýrsla Menntaskólaris á Akur-
cyri 1933—34 er komin út. Um 200
ncmendur hafa sótt skólann á því
starfsári. 48 nemendur luku gagn-
íræðaprófi og auk þess þrír utan
skóla. 17 nemendur tóku stúdents-
próf. Heimavistarfélag starfaði við
skólann og voru í því 86 félags-
menn. Alls starfaði það 255 daga
og var allur kostnaður kr. 392,70
á félaga, eða kr. 1,54 á dag. Skóla-
meistari skrifar góða frásögn um
ferðalag 6.-bekkinga í Húnaþing
og auk þess birtist þarna eftir
hann: Avarp til gagnfræðinga
1934, flutt í kveðjusamsæti 11.
apríl 1934 og ritgerð um framtíð-
arhorfur og þroskakjör stúdenta
um síðustu aldamót og nú.
ísfisksalan. Surprise seldi i
Grimsby í gær 1450 vættir fyrir
1317 sterlingspund.
Lík Sigtryggs Friðriksson bónda
að Sellandi í Fnjóskadal, sem varð
úti í hríðinni aðfaranótt 1. vetrar-
dags, er fundið, þykir sennilegt,
að hann hafi farizt í snjóflóði.
Reykjavíkurbær hefir fengið 35
þús. kr. ián í Útvegsbankanum
og 72 þús. kr. lán í Landsbankan-
um eða samtals 107 þús. kr. Lán-
inu verður vai-ið til aukningar at-
vinnubótavinnunnar.
Ilelgi Guðmundsson og félagar
hans komu á mánudaginn aftur
til Hornafjarðar á bílnum, er þeir
fóru með til Reykjavikur. Voru
þeir 4 daga á leiðinni suður. Fengu
þeir stórrigningu á Breiðamerkur-
sandi, en sluppu yfir ámar áður
'én þær urðu ófærar. — FÚ.
Nýir kaupendur fá Nýja dag-
blaðið ókeypis tll næstu mánaða-
móta.
Skyr, rióma, smjör
er ávallt bezt að kanpa hjá
Njólkurbúi Flóamanna
Vonarstræti
Sími 4287
Fjá/X*klá.dinxi
útbreiddur í mörgum hérööom, en
mestur í Húnavatnssýslu og Rang-
árvallasýsln.
Ur nmrœðnm á þingi.
Á síðasta þingi var samþ.
þál. um að fela stjórninni að
rannsaka útbreiðslu fjárkláð-
ans hér á landi. Sömuleiðis uni
það, hvemig honum yrði á
sem öruggastan og heppileg-
astan hátt útrýmt. Skyldi
stjórnin leggja till. fyrir það
þing, er nú situr, um útrým-
ingu fjárkláðans, byggðar á
nefndum rannsóknum.
Mál þetta var rætt í Nd. í
fyrradag í sambandi við fyrir-
spum þar að lútandi frá
Bjarna Ásgeirssyni og Jóni
Pálmasyni, og gaf landbúnaðar-
ráðherra m. a. eftirfarandi
npplýsingar: Á síðastl. vetri
fór fram fjárkláðaskoðun um
allt land, sumstaðar að vísu
mjög ónákvæm, en þó kom í
ljós, að kláði var til á öllu
landinu, að undanskildum
Skaftafellssýslum, Vestmanna-
eyjum og ef til vill Múlasýslum
og Norður-Þingeyjarsýslu, en
mjög misjafnlega mikið er
veikin útbreidd í ýmsum hér-
uðum.
Landb.ráðh. skýrði frá því,
að prófessor Níels Dungal,
hefði kynnt sér á síðastliðnu
sumri í utanför sinni helztu
aðferðir og lyf, sem notuð
væru við útrýmingu fjárkláða.
Af þrem lækninga-aðferðum,
sem aðallega eru notaðar við
fjárkláða, telur prófessorinn
kláðaböðun þá einu aðferð,
sem hér sé tiltækileg og legg-
ur til að notuð sé Natron
brennisteinsblanda. Sótthreins-
un fjárhúsa telur prófessorinn
nægilega, ef að húsin eru látin
Aðallnndnr
Félags ungra Fram-
sóknarmanna
Félag ungra Framsóknar-
manna hélt aðalfund sinn í
| gærkvöldi.
í stjórn félagsins voru kosn-
ir: Stefán Jónsson (form.),
Þórður Björnsson, Páll Hall-
grímsson, Runólfur Sigurðsson
og Ragnar Guðjónsson.
i I fulltrúaráð voru kosnir:
Magnús Björnsson, Runólfur
Sigurðsson, Þórarinn Þórarins-
son, Páll Hallgrímsson, Rann-
veig Þorsteinsdóttir, Helgi Lár_
usson, Stefán Jónsson og Guð-
jón Teitsson.
Fundur verður haldinn m.iög
bráðlega, þar sem rædd verður
framtíðarstarfsemi félagsins.
standa tóm í 17 daga áður en
hið baðaða fé er látið fara inn
í þau. Hinsvegar telur Hannes
Jónsson dýralæknir, að helzta
ráðið til þess að sótthreinsa
fjárhúsin væri, að láta féð
fara sem allra blautast upp úr
baðleginum inn í húsin. Telur
hann sig hafa sannanir fyrir
því, að kláðamaurinn geti lif-
! að í fleiri mánuði án þess að
vera á lifandi sauðkind.
J Atvinnumrh. talaði um það,
að stjórnin hefði ekki séð sér
fært að leggja til að almenn
kláðaböðun færi fram um allt
land, bæði vegna vantandi
undirbúnings í málinu, en þó
einkum vegna óálitlegs fóðurá-
I
j setnings a miklum hluta lands-
ins.
Þá kom fram í umr. nokkur
ágreiningur um það, hvor að-
ferðin væri réttari til útrým-
S ingar fjárkláðanum almenn
ldáðaböðun fyrir allt landið eða
S skarpara eftirlit með þrifaböð-
unum en verið hefir, samhliða
sérstökum kláðaböðunum á
sjúku fé.
Almennur
slúdentafundnr
rϚir nm stofnun
atvinnudeildar
við Háskólann
í gærkvöldi kl. 8V& hófst
| hinn fyrsti almenni stúdenla-
| fundur í Stúdentagarðinum
nýja, og var fundurinn mjög
vel sóttur. Verkefni fundarins
var að ræða um stofnun at-
vinnudeildar við háskólann, en
frv. um þetta efni hefir nýlega
verið lagt fram á Alþingi. For-
maður Stúdentaráðsins, Eggert
Steinþórsson setti fundinn, en
rektor háskólans, Alexander
Jóhannesson hóf umræðum um
málið. Sýndi hann með fáum
orðum mjög greinilega fram á
þá miklu þörf, sem væri fyrir
því, að stofnuð yrði vísindaleg
kennslustofnun fyrir atvinnu-
vegina. Grundvöllur atvinnu-
veganna væri vísindaleg þekk-
ing, en atvinnuvegirnir væru
grundvöllur fyrir fjárhagslegu
sjálfstæði þjóðarinnar, sagði
rektor.
Að lokinni ræðu rektors tóku
til máls sérfræðingamir Hákon
Bjarnason, Niels Dungal,
Trausti Ólafsson, Ámi Frið-
riksson og Bragi Steingríms-
Nýja Bíó
Leyní farþeginn
Sænskur tal- og hljómgleði-
leikur.
Aðalhlutverkin leika:
Birgit Tengroth,
Edwiu Adolphron o. fL
SÝND EI>. 9.
0 Odýrn 0
auglýslngarnar.
|| M.aup og suia
Silkinærföt á 8/50 settið.
Silkibolir irá 2/50. Silkibuxur
frá 2/tíö. Undirkjólar frá 3/75.
lNáttkjólar 8/75. Náttföt 8/50.
Serlega faliegir Silkivasaklútar.
íviisiitir- Dömuklútar á 2/50
stk. Verzl. „Dyngja".
Litlir, góðir ofnar til sölu.
uppl. á Bergstaðastr. 23.
VINBER fást í
Kaupfélagi iieykjavikur.
Samkv æmishanzkar
á 6/25 parið.
VerzL „Dyngjá'.
Fasteignasala Helga Sveina-
sonar er í AÖalstræti 8. lnng.
irá Bröttugötu. Sim,i 4180.
Náttkjólar, lérefts og flúnels
frá 3/75. Náttföt, lérefts, m/
iöngum ermum. Kvenbolir frá
1/75. Kvenbuxur frá 1/25.
Corselet frá 2/95. Sikkabandar
strengir 1/50. Lífstykki frá
3/95._________Verzl. „Dyngjá*.
Saltfiskbúðin er vei birg aí
nýjum fiski. Simi 2098.
Morgunkjólar, Morgunkj ólæ-
tau, Svuntur, Svimtutvistur,
Sloppar, hvítir og mislitir.
VerzL „Dyngja“.
Laufásbúðin vei birg af nýj-
um fiski. Sími 4956.
Silkiléreft, rósuð, í náttföt
0g rúmfatnað. Dökk, munstruð
í skólasvuntur.
Verzl. „Dyngja**.
Taða til sölu. A. v. á.
Kaffidúkar
í fallegu úrvali, nýkomnir.
Verzl „Dyngja“.
son. Voru þeir allir á einu máli
um það, að þörf fyrir stofnun
nefndrar deildar við háskól-
ann væri mjög brýn, en höfðu
þó hinsvegar nokkrar at-
hugasemdir við tilhögun deild-
arinnar, aðallega um skiptingu
verkefna milli efnafræðisdeild-
ar og líffræðideldar, sem flest-
ir vildu heldur kalla landbún-
aðardeild. Urðu um þetta
nokkrar umr. milli Hákonar
Bjarnasonar skógfræðings og
próf. N. Dungals og verður síð-
ar vikið að því hér í blaðinu.
Nokkrir háskólastúdentar
I
tóku til máls. Að lokinni umr.
var samþ. í einu hljóði áskor-
un til Alþingis um að samþ.
frv. um stofnun atvinnudeildar.
Um 70—80 stúdentar sátu
fundinn.