Nýja dagblaðið - 28.11.1934, Page 2
t
m ý j a
DAOBbAÐIÐ
Boienthkl
Keramik
nýkomiö 1 miklu úrvali.
BEBLIN Austurstræti 7
Sími 2320.
Nýtízku matarstellin
og kaffistell úr ekta postulíni, eru komin aftur; eru seld
fyrir 2 til 24 manns, eða einstök stykki eftir vild.
Sama lága verðið.
K. Einarsson & Blörnsson
Bankastrœti 11
Framsótnarfálag BeyHavítur
Aðalfundur
Framsóknarfólags Reykjavíkur verður haldinn í Kaup-
þingssalnum í dag og hefst kl. 8V* síðd.
Fundaref ni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2, Störf skipulagsnefndar í atvinnumálum:
Jónas Jónsson alþingismaður.
Stjórnin
Leikfélagsdeilan
Niðurl.
Það skal fúslega tekið fram
Lárusi Sigurbjömss. til hugar-
hægðar, að hann var ekki sá
aðilinn (af framkvæmdastj. og
gjaldk.) sem rekinn var, eða
látinn fara frá starfi sínu vet-
urinn 1932—33 og er því sú
skýring hans rétt, en það
breytir í engu mínum orðum.
Það er ekki rétt, að ég hafi
boðist til að láta hinn burt-
rekna framkvæmdastjóra s. 1.
vetur (V. G.) eiga sæti í stjóra
með mér, ef til kæmi. Mér hefði
aldrei dottið slík vitleysa í hug.
Haraldur Bjömsson getur svar-
að fyrir sig. L. S. hefir sjálfur
sagt mér, að hann hafi oftast-
nær gert upp (hin umræddu
uppgjör) heima á skrifstofunni
einn. Hann getur náttúrlega
neitað því nú og ég ætla mér
ekki að saxma það, enda skiptir
það minnstu máli, hvar hann
hefir gert það, né heldur breyt-
ir í nokkru útliti og vitnisburði
þessara óverjandi uppgjöra.
Um kosningu L. S. í stjóm
í vor, með öllum atkvæðum, er
það að segja, að okkar flokkur
kom sér saman um að reyna
þessa þrautaleið til samkomu-
lags, eins og ég hefi áður tékið
fram, en sem var hafnað af
hinum. En ég vissi þá heldur
ekki um alla óstjómina s.l. vet-
ur.
L. S. segist ekki hafa tekið
við eyri frá fyrv. gjaldkera (ó.
Þ.), hvað þá heldur þúsundum.
Ég sagði að hann hefði tekið
við peningunum frá aðgöngu-
miðaseljara félagsins án þess að
gefa honum kvittun fyrir þeim
— og það voru þúsundir, og
þær höfðu ekki allar komið til
skila í bókhaldi félagsins, þegar
ég varð að taka við.
L. S. segir í lok greinar
sihnar, að L. R. eigi nú 2000
kr. umfram skuldir, en að ég
hafi skilað því með 3000 kr.
skuld. Þetta er svo klaufalega
orðað, að ég tel gustuk að lag-
færa það, og gera þá um leið
nokum frekari samanburð á
fjárreiðum L. S. og Co. — og
mínum í þjónustu L. R.
Haustið 1930 tók L. S. og
gjaldkeri hans við fjárreiðum
L. R. með um 22.700 kr. skuld;
fengu 23.000.00 kr. opinberan
styrk og að auki 17.000 kr.
óbeinan styrk eða peningahjálp
— samtals 40.000 kr. — fjöru-
tíu þúsxmd krónur — en skildu
við þær eftir 2 ár með um
30.000 kr. skuld. Ég tók við
fjárreiðunum með þessari stór-
um auknu skuld, fékk einar
einustu 7000 kr. í opinberan
styrk og engan óbeinan styrk
eða hjálp, og skilaði fjáxreið-
unum með rúmlega 11.000 kr.
skuld, eins og ég hefi áður tek-
ið fram. Að frádreginni sölu
eigna fyrir 8000 kr., var því
raunveruleg lækkun um 11 þús.
kr. á einum vetri undir minni
stjóm. Á þessu geta ménn séð,
að fjármálastjóxm — eða ó-
stjóm — þessara manna (L. S.
og gjaldkera hans) — hefir
verið fyrir neðan allar hellur
og það endemi, að furða er, að
menn með almennu viti, skuli
reyna að mæla henni bót. —
Með 40 þús. kr. peningahjálp
hækka þeir skuldimar um 7
þúsundir. — Með 7 þús. kr.
samskonar hjálp lækka ég
skuldirnar raunverulega um 11
þúsundir.
Þegar ég tók við reyndust
skuldir félagsins umfram
eignir um 6800 krónur. Ég
hefði getað skilað af mér
við 1000 kr. halla — eða með
um 6 þús. kr. bættum efnahag
— ef meðstjómendur mínir
hefðu ekki (með öllum at-kvæð_
um gegn mínu) fallið frá eða
gefið eftir tekjuliði eða kröfur,
sem telja bar fyllilega réttmæt-
ar, og skemmt með því efnahag
félagsins um ca. 2000 kr. Leik-
starfsemi félagsins það ár var
aðeins 50 leikkvöld. Á síðasta
leikári varð starfsemin aftur
miklu meiri (um 70—80 leik-
kvöld) og opinber styrkur var
1000 kr. meiri en árið áður.
Samt batnar hagurinn ekki
meira það ár en um tæpar
5000 kr. eftir sögn L. S. þrátt
fyrir einsdæma aðsókn að
Manni og konu (um 40 leik-
kvöld), sem hlýtur að hafa
gefið félaginu alveg óvenjulega
mikinn ágóða. (Ég gæti gizk-
að á 5 til 6 þús. kr.). Þetta
ætti að samsvara 4 til 5 þús. kr.
verri afkomu hlutfallslega það
ár en árið áður undir minni
stjóm.
Þar að auki má svo lipplýsa,
að hin oft áminnstu 2 ár, áður
en ég tók við, var fólk gert
margafturreka með reikninga
sína og kaupkröfur á hendur
félaginu, með þeirri viðbám, að
engir peningar væm til, þrátt
fyrir það, sem síðar sannað-
ist, að þúsundir hefðu þá átt að
vera í sjóði. Sama sagan end-
urtók sig í fyxra haust. Fólk
mátti standa og bíða eftir
greiðslu tímunum saman og
var gert afturreka hvað eftir
annað. Stundum lét fjármála-
stjórn! félagsins meira aðsegja
ekki sjá sig á útborgunardög-
um félagsins, svo menn fóru al-
gerða erindisleysu. Mitt stjórn-
arár kom naumast fyrir, að
nokkur væri gerður afturreka
með reikning sinn og þann vet-
ur var auk heldur innieign fé-
lagsins í bankavaxtabók stund-
um svo skipti þúsundum króna.
Loks skal bent á, að í grein
sinni gefst L. S. alveg upp við
að mótmæla öllum ásökunum
mínum, nema reikningshaldi
stjómarinnar nú, er hann telur
komið í gott horf. Færi betur
að svo væri. Hann reynir ekki
lengur að verja þessi megin at-
riði í ádeilu minni :
Hina ólögmætu og vítaverðu
ráðningu erlenda leikstjórans.
Hinn óþolandi drátt á félags-
fundinum.
Frumhlaup sitt um yfirlýs-
ingu okkar H. B.
Ásakanir mínar á hendur
hinum rekna framkv.stj. s. 1.
vetur.
ölvunarásakanir minar á
hendur ýmsum starfsmönnum
L. R.
Tölur þær, í síðustu gi-ein
minni, sem sýndi hinn gífurlega
mun á fjárreiðum hans og
gjaldkerans hin umgetnu 2 ár
áður en ég tók við — og svo
mínum það árið, sem ég gegndi
þessum störfum.
Hera L. S. þykist ætla að
stefna mér fyrir rétt og tala
við mig þar. Geri hann það
bara. Ég hræðist ekki þann
rétt, því sannanir liggja fyrir
á öllum sviðum, og það fá þá
áreiðanlega fleiri að verða
samferða.
Og að endingu þetta: Al-
þingi verður að taka hér í
taumana, ef Leikfélag Reykjar
víkur á ekki framvegis að
verða „klúbbur“ fyrir óráðs-
seggi og drykkjumenn og lág-
gengis klíkuskap íslenzkrar
leikstarfsemi. Það verður að
rétta leiklistinni hjálparhönd
með því að hreinsa til — taka
hana undir sinn veradarvæng
og yfirráð að meira eða minna
leyti en strika úr upphrópun-
armerkin um vesalmennsku og
óreglu í þessari starfsemi.
Freymóður Jóhannsson.
B. D. S.
E.s. Lvra
fer héðan fimtudaginn 29. þ. m.
kl. 6 síðdegis til Bergen um
Vestmannaeyjar og Thorshavn.
Flutningur tilkynnist fyrir
hádegi á morgun.
Farseðlar sækist fyrir sama
tíma.
Kic. BJarnason & Smitb
Ný egg
Lífur og björtu
Sviö
íshúsið
Fríkirkjuveg 7. Síml 4565
Aðeins
það bezta
er nógfu g ott
^ þegar heilbrigði yðar
á i hlut
Epoka-dömublndl
^ Epoka-beltl
1‘frMffl Það langbezta eu þó
ekki dýrast.
Fæst í
Ingfólfsapoteki og
Reykjaviknrapoteki