Nýja dagblaðið - 28.11.1934, Blaðsíða 3
N f J A
DAQBLAÐIB
8
Pw hræsmnr vilna
Eldhúsumræðurnar sanna tjandskap
íhaldsins gegn afurdasölumálnnum.
NÝJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „Blaöaútgáfan h.f.“
Ritstjórar:
Gísli GuSmundsson,
Hallgrimur Jónasson.
Ritstjómarakrifatofurnar
1 Jiugav. 10 Símar 4373ogZ35S
Afgr. og augiýsingaskrifitofa:
Austurstrseti 12. Simi 2323.
Áskriftargjald kr. 2,00 á mán.
Eldhúsumræðumar hafa stað'-
ið yfir undanfarna daga á Al-
þingi.
Kjósendunum úti um byggðir
landsins hefir gefist á því kost.
ur, að heyra höfuðþætti í
stjómmálum og atvinnuhátt-
um rædda að þeim áheyrandi.
Þessi meginefni, sem nú
verða um svo sterk átök, eru
m. a. þau mál atvinnuveganna,
er núverandi stjórn hefir
hrundið fram (afurðasala land-
búnaðarins) og frumVörp henn.
ar og tillögur um viðrétting á
sviði sjávarútvegsins.
Afurðasölumálin hafa sætt
þeim heiftúðugasta fjandskap,
sem íhaldið hefir lagt við nokk-
urt mál í langan tíma. Upp
undir 30 níðgreinar hafa birzt
um þau í þeim tveim dagbl.
íhaldsmanna, sem hér koma út
í Reykjavík. Leiðtogar þess
flokks, eins og t. d. Magnús
Jónsson hafa gengið framar-
lega í flokki um rógstörfin gegn
bjargræðisvegum landbúnaðar-
ins. Aðrir forystumenn flokks-
ins tóku ýmist undir eða biðu
og hlustuðu eftir áhrifunum —
eins og malandi kettir yfir
bráð.
Bóg’berarnir hræddust
sjálta sig.
En svo kom eftirleikurinn.
Lögin urðu gagnleg og um
leið vinsæl. Álygar íhaldsins
undust saman um þess eigin
háls. Rógi þess var kastað aft-
ur yíir flugumennina eins og
ísköldum öldufaldi. Þeir tóku
andköf undir þunga sinnar eig-
in smánar. Og þeir kiknuðu
undir áhrifunum og óttanum,
sem níðið, ósannindin og hat-
urmögnuð óvildin á viðreisnar-
málum stjórnarflokkanna hafði
fellt yfir sjálfa þá.
Og þá hófst trúarvakning í
íhaldsflokknum — á yfirborð-
inu.
Framsóknarflokkurinn boðaði
til funda úti um sveitir. íhalds-
menn fundu ískalda óvild sveit-
anna leggja móti sér.
Þá umsnerust þeir á einni
nóttu. Þeir unnu það meistara-
stykki í ræfilshætti og eymd,
að taka allt aftur, sem þeir
höfðu, sagt afurðasölumálunum
til ófrægingar — ekki af iðrun,
heldur hræsni.
Þeir kváðust vera með af-
urðasölumálunum, já, meir að
segja sögðust þeir hafa búið
málin að fullú í hendum núver-
andi stjórnar. Þeir fullyrtu, að
þeir, sem talað hefðu og skrif-
að móti hækkuðu afurðaverði
(t. d. Magnús Jónsson, Mbl. og
Vísir) væru ekki „heilvita“ og
á slíkum tæki auðvitað enginn
maður mark.
Það er líklega af sömu ástæðu
runnið, að þeir láta heita svo,
að Magnús hafi verið að halda
upp á afmælið sitt sömu dag-
ana og eldhúsumræðurnar fara
fram, til þess að eiga ekkert á
hættu um það, að sá speking-
ur spilli meir málstað þeirra en
orðið er.
Þmgmennirnir eru
Eeytendnr!
Veslings Pétur Ottesen fann
líka til sektarinnar, tómlætis-
heiftar sjálfs sín og íhalds-
ins gegn áminnstum nytja-
málum. En hann afsakaði það
með því, að hann sjálfur (nú
umi þingtímann), Magnús Jóns-
son og allir flokksmenn þeirra,
sem nítt hafa afurðasölulögin,
séu neytendur kjöts og mjólk-
ur!
Meðan P. 0. er að borða
matinn sinn hér í Reykjavík
og borga hann, vakna hjá hon-
um ljót orð og hugsanir um
það, hvað ólukku kjötbitarnir
séu dýrir.
Það eru neytendurnir, sem
eru óánægðir, segir P. O. Flest-
ir þingmenn íhaldsins eru neyt-
endur, og bændaumhyggja
þessa bónda, sem lifir eins og
blindur álfur í íhaldsflokknum,
er ekki meiri en það, að hann
leitast við að verja fjandskap
þeirra með þeim rökum, að það
sé eðlilegt og sjálfsagt, að þeir
beri fyrst og fremst fyrir
brjósti lítilfjörlega stundar-
hagsmuni sjálfs sín, fremur en
hag einar fjölmennustu stétt-
arinnar í landinu. Og samt
þykjast þeir og einmitt þeir
vera hollustu fulltrúar þessar-
ar stéttar.
Lágreistari bjálfaskap er
vart hægt að hugsa sér í rök-
um og málafylgju.
Undir stimpii blaðanna
íhaldsmenn standa naktir í
framkomu sinni og fjandskap
gegn hagsbótamálum alþjóðar.
Belgur hræsninnar og blekk-
inganna hefir verið dreginn af
höfði þeim, jafnharðan og þeir
reyndu að hylja bak við hann
ásjónu sína og innræti. í stað-
inn hafa skammagreinarnar í
Mbl. og Vísi um viðreisnarmál-
in verið límdar á þá eins og
stimpill. Og með þvílík frí-
merki er þeirn þröngvað fram
á sjónsvið landsmálanna undir
dóm og athugun almennings.
Og Pétur Ottesen finnur — í
öllu sínu óskammfeilna snuðri
eftir málsbótum — enga afsök-
un fyrir íhaldsflokkinn. Hann
veit að það er hlegið að því,
þegar hann og sálufélagar hans
eru að geipa með þau ósann-
indi, að þeir séu viðreisnarmál-
unum fylgjandi. Þrautavörn
hans er sú, að íhaldsþingmenn-
irnir séu bara neytendur sjálf-
ir. Það sé von, að þeir séu á
móti hækkun kjöts og mjólkur.
f lauaasölu 10 aura. eint.
PrentsmlBjan Acta.
Umhyggja hinna launuðu
þjóðarfulltrúa í íhaldsflokknum
nær aldrei út fyrir þarfir og
þægindi sjálfra þeirra.
Eldhúsdagsumræðunum er
loltð. Hræsnaramii' hafa vitn-
að. En upp úr sumum þeirra
hefir flotið játning þess, að
persónuhagsmunir og hatur til
stjórnarinnar sitji með íhalds.
mönnum í fyrirrúmi fyrir hag
allrar þjóðarinnar, sem landið
byggir.
Foreldravika
Til þess m. a. að ná sem
beztri samvinnu milli foreldra
og skóla, hefir sú starfsemi
verið upp tekin við bamaskóla
í Kaupm.höfn, að stofna til
foreldraviku.
Foreldrum er boðið að koma
í skólana og fylgjast með
kennslunni og námsstarfinu í
eina viku. Til þess er ætlazt,
að kennslan sé í engu breytt
frá því venjulega, heldur sjái
foreldrar bamanna sem rétt-
asta mynd af starfi þeirra og
háttum annarsvegar, en
kennsluformum, framkomu og
aðferðum kennaranna hins-
vegar. Á kveldin hafa svo
kennarar og foreldrar fundi
með sér, þar sem skólavistin
dg starfið, sem þár fer fram,
er rætt frá ýmsum hliðum.
Foreldravikan er einn liður í
þeirri starfsemi að tengja
skóla og heimili saman um það
geysimikilsverða mál, sem upp-
eldið er og verður.
Þessi aðferð var upp tekin
s. 1. vetur, en er nú komið í
fast form við flesta eða alla
skóla borgarinnar.
Mollisonshjónin
gjnldþrota
Eins og kunnugt er tóku
hinir frægu fluggarpar, Molli-
sonshjónin, þátt í Ástralíuflug-
inu. Leiddu þau flugið á tíma
og var þá talið líklegt, að þau
myndu hreppa verðlaunin. En
hamingjan var ekki með þeim í
þetta sinn. Vél þeira varð fyr-
ir allmikilli bilun og þau urðu
að hætta fluginu, því aðgerð á
skemmdunum fékkst ekki í
tæka tíð.
Nú hafa þau lýst yfir því, að
þau hafi varið öllum sínum
fjármunum til þess að geta tek.
ið þátt í fluginu. Flugvélin
kostaði þau um 100 þús. kr.
og annar undirbúningur litlu
minna.
Smjörlíkisgerð okkar, sem ætíð
heíir verið brautryðjandi í því að
lækka smjörlíkisverðið í landinu,
kemur nú á markaðinn með nýja
endurbætta tegund af smjörlíki
Gula-bandið
Smjörlíki þetta er það bezta, sem
nokkru sinni hefir verið framleitt.
Fœst ávallt i
Kaupfélagí Reybjavíkur
og víðar og kostar aðeins kr. 0,65
pr. ’/* kg.
Biðjið verzlun yðar ætíð um
GULA B A N D I Ð
ef þér þurfið að kaupa smjörlíki.
Kaupfélag Eyfirðinga
■
r ** n * ■
Nú þarf að efnagreina og rannsaka vörurnar.
Fóðurblanda S.I.b
Ier þannig samsett, samkvæmt rannsókn Efnarann-
sóknarstofu Ríkisins:
„Vatn.............. • • .. 11,2%
Aska .................... 6,5%
Köfnunarefniasambönd..... 27,1%
Hráfita.................. 5,17 %
Tréni.................... 5,8%
önnur efni............... 44,23%
Amiðefni................. 1,5%
Eggjahvítuefni, meltanleg. 22,2%“
Athugið þessa efnagreiningu áður en þér festið
kaup á fóðurvörum.
Samb. ísl. samvinnufólaga
Skyr, rjóma, smjör
er ávallt bezt aö kanpa hjá
Mjólkurbúi Flóamanna
Vonarstræti
Sími 4287
iugljsiogar i NJja dagblaðino aoka liOskiItin.