Nýja dagblaðið - 09.12.1934, Blaðsíða 1
2. ár.
Reykjavík, sunnudaginn 9. desemb. 1934.
ammmm^m—m^^mmmrna—m
292. blað
Heimsviiburiir síðustu viku
u
Heitustu deilumálin í Evrópu eru milli Ungverja og
Júgoslava og um Saarhéraðið
Voflr vfir nv
Deila Ungverja og
Júgóslava.
Mest umrædda málið þessa
vikuna hefir verið deila Ung-
verja og Júgóslava.. Tilefni
hennar hefir áður verið rakið
ítarlega hér í blaðinu, en >að
er í stuttu máli ásökun Jugo-
slava um það, að Ungverjar
eða sex mánaða í senn. Stjóm
Jugoslava hefir nú ákveðið, að
landvistarleyfi þessara manna
skuli ekki endurnýjuð, og telur
sem aðalástæðu, að vegna
mikillar atvinueklu í landinu
hafi orðið að grípa til þessara
ráðstafana.
Stjórnin í Ungverjalandi hef-
Litla bandalagið.
Frá vinstri til hægri: Titulescu utanríkisráðh. Rúmeniu, dr. Benes
utanrikisráðherra Tékkóslóvakiu, Jcítitsck utanrikisráðh. Júgóslaviu.
hafi veitt banamönnum Alex-
anders konungs beinan og ó-
beinan stuðning, leyft þeim
landvist, ungverskir liðsforingj-
ar æft þá í vopnaburði o. s.
frv.
Krafa Jugoslava um að
Þjóðabandalagið tæki málið til
rannsóknar, kom til umræðu í
Þjóðabandalagsráðinu síðastl.
föstudag. Fulltrúar beggja
landanna báru þar fram á-
kveðnar óskir um það, að
Þjóðabandalagið tæki málið að
sér og hinn raunverulegi sann-
leikur kæmi í ljós.
En jafnframt þessu hefir
gerst nú í vikunni atburður,
sem er liklegur til að auka
fjandskapinn milli þessara
landa að miklum mun. Um
80 þús. Ungverjar hafa dvalið
í Jugoslavíu um lengri tíma
og hafa þeir fengið endurnýj-
uð landvistaxlsyfi til þriggja
ir mótmælt þessari ákvörðun.
En þau mótmæli hafa ekki ver-
ið tekin til greina.
Eftir frásögnum frá landa-
mærahéruðum, er ástandið þar
hið uggvænlegasta. 1 bæjunum
í Ungverjalandi nálægt landa-
mærunum, er nú fullt af flótta-
mönnum og hefir sumstaðar
ekki verið hægt að útvega
nema litlum hluta þeirra
húsaskjól. Þetta fólk hefir
orðið að skilja eftir eigur sín-
ar og muni og hefir ekkert
fyrir sig að leggja. Margir
hafa hina hörmulegustu sögur
að segja. T. d. hefir verið sagt
frá því, að gömul hjón hafi
orðið að skilja eftir tvær dæt-
ur sínar, sem dvöldu hjá skyld-
mennum þeirra, vegna þess
livað þau fengu,1 nauman tíma
til burtferðar.
Með vissu verður það ekki
sagt, hvorsu margir flótta-
mennirmr eru, en bæði ung-
verskum og jugoslavneskum
yfirvöldum kemur saman um
það, að þeir sikpti mörgum
þúsundum. Ungverska stjórnin
tók þá ákvörðun á fundi 7. þ.
m. að sem flest af þessu fólki
yrði flutt til Bqdapest, þar
sem yrði séð fyrir því fyrst
um sinn.
Vegna brottrekstranna hafa
Jugoslavar aukið til muna
herafla sinn á landamærunum
og hafa Ungverjar litið á þær
ráðstafanir með mikilli tor-
tryggni.
Atburðir þessir eru hinir í-
skyggilegustu fyrir friðarhorf-
urnar í álfunni. Löndin þama í
kring skiptast þegar í tvo
flokka, og myndu óðar tilbúin
að veita sinn stuðning, ef grip-
ið yrði til vopna. Ítalía og
Austurríki fylgja Ungverja-
landi að málum, en Rúmenía
og Tékko-Slovakía fylgja Jugo-
slavíu, en það eru þessi þrjú
síðastnefndu lönd, sem mynda
Litla bandalagið svokallaða.
Saar-málíð
Athygli manna beinist nú
alltaf meira og meira að at-
kvæðagreiðslunni í Saar, en
hún á að fara fram í næsta
mánuði. Þriggja manna nefnd,
valin af Þjóðabandalaginu, hef-
ir undanfarið unnið að því, að
r.á samkomulagi milli Þjóðverja
og Frakka um Saarmálin og
gaf nefndin skýrslu um störf
sín nú í vikunni. Hefir hún
komið sér saman um eftirfar-
andi atriði, sem stjórnir Þýzka-
lands og Frakklands telja sig
geta fallizt á:
1. Falli atkvæðagreiðslan
þannig að Saar komi undir yf-
iráð Þýzkalands skulu Frakkar
selja Þjóðverjum kolanámur
sínar í Saar fyrir 900 milj.
franka. Kolanámur þessar eru
afarauðugar og eru Frökkum
mikilsvirði. Þó skal Frökkum
heimilt að halda ýmsum nám-
um' endurgjaldslaust næstu
fimm ár, en kolavinnsla þeirra
má þó ekki fara fram úx 2-2
Sogsvirkjunin
(xengið frá samningum um
lán til virkjunarinnar
Samkvæmt skeyti sem blað-
inu hefir borizt frá borgar-
stjóra Jóni Þorlákssyni, og
upplýsingum frá fjármálaráðu-
neytinu, hafa samningar nú
verið fullgerðir um lán til
virkjunar Sogsins.
Lánið er að upphæð öVí
milj. sænskar krónur. Vextir
af því 4i/o% og útboðsgengi
9714 af hundraði.
Samið hefir verið við ýms
firmu og félög um að taka að
[ sér vissa hluta verksins og sölu
efnis.
Verður verkið hafið innan
skamms og talið ekki ólíklegt
að rekstur geti byrjað haustið
1936.
Fyrir hönd ríkisstjónrarinn-
ar hafa þeir Jón Krabbe
stjómarfulltrúi í Kaupmanna-
höfn og Sigurður Jónasson
forstjóri aðstoðað við lántök-
una og gengið frá samning-
um.
Lobrun forsetl Frakklands.
milj. smál. árlega.
2. Embættismenn skulu ekkí
verða látnir fara úr stöðum sín-
um vegna þjóðernislegra á-
stæðna.
3. Verkamönnum skal vera
frjálst að halda félagssamtök-
um sínum áfram og trúar-
bragðafrelsið sltal eldd afnum-
ið.
Fleiri ákvæði eru í þessum
samningum en þetta eru þau
helztu.
Þýzk blöð láta vel yfir þessu
samkomulagi, en and-nazista-
blöð láta sér fátt um finnast
og telja að reynslan hafi sýnt,
að Þjóðverjar haldi illa loforð
sín í seinni tíð.
Saarmálin verða rædd á
Þjóðabandalagsfundum, sem nú
standa yfir og verður þar
meðal annars gengið frá fyrir-
komulagi á alþjóðalögreglu
þeirri, sem á að starfa í Saar
meðan atkvæðagreiðslan stend-
ur yfir. Er ætlazt til að í henni
taki þátt lögreglumenn frá sem
fiestum þjóðum 0g stafi hún á
ábyrgð Saarnefndar Þjóða-
bandalagsins. Telja Þjóðverjar
sig vel geta fallizt á það, að
höfð verði þar alþjóðalögregla,
en Frakkar hafa látið svo um
madt, að þair muni ekki taka
þátt í henni. Samskonar yfir-
lýsingar hafa fulltrúar Rúss-
lands og Tékkóslóvakíu gefið.
Kosningahiti er mikill í Saar
og er undirróður geysilegur af
hálfu þýzku st j ómarinnar.
Merkilegt er það, að kommún-
istár, sósíalistar og katólskir
menn standa hlið við í barátt-
unni gegn yfirráðum Þjóð-
verja. Tveir þeir fyrstnefndu
gera það af pólitískum ástæð-
um, hinir síðastnefndu af trú-
arbragðaástæðum.
Morð Kíerofís
1. þ. m. var myrtur í Lenin-
grad þekktur rússneskur verka-
mannaleiðtogi, Serge Kieroff.
ILann var einn af nánustu sam-
verkamönnum Stalins og þótti
með afburðum snjall ræðumað-
ur.
Banamaður hans var hand-
tekinn, en dómur hefir ekld
felldur yfir honum ennþá.
Morð þetta hefir að sögn
valdð miklar æsingar í Rúss-
landi og hefir alla síðastliðna
viku verið gengið að því kapp-
samlega að klófesta alla þá,
sem líklegir væru til gagnbylt-
ingarstarfsemi. 1 Leningrad
hafa 8 embættismenn lögregl-
unnar verið reknir, sakaðir
um slælegt eftirlit. Fjölmargir
menn hafa verið teknir til yfir-
he.vrslu. Stjórnin hefir lagt
fyrir dómstólana að hraða öll-
um glæpamálum, sem eigi
pólitískar orsakir og ekki skuli
hikað við að kveða upp dauða-
dóma.
Þessari fyrirskipun stjórnar-
innar hefir sýnilega verið vel
hlýtt, því 6. þ. m., þegar
Kieroff var jarðaður, var opin-
berlega tilkynnt, að síðan hann
var myrtur hafi 71 maður ver-
ið tekinn af lífi vegna póli-
tískrar undirróðursstarfsemi
gegn stjórninni