Nýja dagblaðið - 10.01.1935, Blaðsíða 1
Íjómannadeilan
Viðtal vid sáttasemjara ríkisins. íormann Sjó-
mannatélagsins og varatormann Félags íslenzkra
botnvörpnskipaeigenda
Nýja dagblaðíð átti í gær við-
tal við sáttasemjara í vinnu-
deilum, Bjöi-n Þórðarson lög-
mann, varaformann Félags ísl.
botnvörpueigenda, Kjartan
Thors og formann Sjómannafá-
lags Reykjavíkur, Sigurjón Á.
Ólafsson, og spurði þá hvað
liði sjómannadeilunni ’og um
orsakir hennar.
Vidtal viÖ
Björn Þórðarson
Bjöm Þórðarson skýrði blað-
inu frá því, að undanfama
daga hefði hann haldið fundi
með báðum aðiljum, án nokk-
urs árangurs, og væri enn ekki
meiri vonir um samkomulag
en í upphafi deilunnar.
Vidtal viö
Sigurjón Olafsson
Sigurjóni ólafssyni sagðist
frá á þessa leið:
Deilan milli sjómanna og út- >
gerðarmanna er urri ýms at- ;
riði, sem samningarnir frá 1929 /
ná ekki til. Hafa orðið ýmsar .
breytingar á útgerðarháttum .
síðan, sem ekki var gert ráð
fyrir í samningunum, en nauð-
syn krefur, að tekið sé tillit til
í samningum milli sjómanna
og útgerðarmanna.
Má t. d. nefna, að í samn-
ingunum frá 1929 er tekið
fram, að skipstjóri geti gefið
hóseta frí með fullu kaupi,
meðan skipið er í söluferð. En
þetta hefir oft verið þannig í
framkvæmdinni, að nokkrir há- i
setar hafa verið afskráðir
meðan skipið fór út og ekkert ,
kaup fengið meðan skipið var í
ferðalaginu. Úr þessu vilja
sjómenn fá bætt og afstýra
því, að útgerðarmenn noti
þessa aðferð til að rýra kaup
þeirra.
Þá hafa sumir útgerðarmenn
tekið þá venju upp,að láta skip-
in veiða sjálf nokkuð af afl-
anum og kaupa síðan til við-
bótar. Þetta þýðir kauplækkun
hjá sjómönnum, því lifrarhlut-
urinn verður lægri, en ef skipin
veiddu allan aflann. Því vilja
sjómenn fá lifrarhlut af þeim
afla, sem er keyptur.
Mesta breytingin er þó sú,
að togaramir hafa verið gerð-
ir að einskonar flutningaskip-
um, látnir kaupa fisk á höfn-
um til útflutnings. Þetta hefir
þýtt mikla kauplækkun hjá há-
Björu pórðarson lögmaður,
Háttasemj. ríkisins í vinnudeilum.
setum, þar sem þeir fá engan
lifrarhlut, enda þótt fastakaup-
ið sé 18 kr. hærra.
Sjómenn fara því fram á, að
mánaðarkaupið á flutningatog-
urum sé 300 kr. og er það
byggt á því, að það séu venju-
leg laun háseta á togurum, sem
stunda veiðar.
Einnig hefir verið samþykkt
í Sjómannafélaginu, að háset-
um yrði fjölgað á þessum skip-
um, en þeir eru nú til muna
færri, en á hinum, sem stunda
veiðar. En Sjómananfélag3-
stjómin taldi sig geta fallizt á
þá tölu háseta, sem útgerðar-
menn álitu hæfilega, enda hafði
þá samninganefndin frá út-
gerðarmönnum fallizt á kaup-
hækkunina, en þær vonir
brugðust eins og kunnugt er.
Viðtal við
Kjarfan Thors
Kjartani Thors sagðist þann-
ig frá:
Þó erfiðlega líti út á hinu
nýbyrjaða ári, ætluðu útgerð-
armenn að gera út með ó-
breyttum samningum við sjó-
menn. Verkfallið stafar af því,
að sjómenn vilja gera ýmsar
breytingar á samningunum,
sem útgerðarmenn vilja ekki
fallast á.
I samningunum frá 1929 seg-
ir, að skipstjóra sé heimilt að
gefa háseta frí með fullu
kaupi meðan skipið er í sölu-
ferð. Sjómannafélagið vill orða
þetta svo, að sjómenn haldi
fullu kaupi þangað til skipið
komi úr utanför. Á það vilja
útgerðarmenn ekki fallast, því
ef skipið dvelst eitthvað ytra,
t. d. vegna viðgerðar, vilja þeir
ekki kosta meiri mannafla en
nauðsyn krefur. Frh. á 4. s.
Taining atkvaða
f Saar
verönr lokiö á mánu-
dagskvöld
Menn ern tarnlr aðflytja
traneka peninga
úr landi
Londou kl. 17, 9/1. FÚ.
Mikið er nú farið að flytja
franska peninga í Saar til
Frakklands. Sagt er að meir
en hundrað miljónir franskra
franka hafi verið flutt síðast-
liðinn hálfan mánuð. Menn sem
eiga þetta fé, óttast það að ef
atkvæðagreiðslan verður méð
Þjóðverjum, muni Schacht taka
franska peninga í Saar, en þeir
eru gulltryggðir, en láta í
staðin þýzka seðla, sem engin
gulltrygging er fyrir.
Berlln kL 8, 9/1. FÚ.
Kjörstjóm Þjóðabandalagsins
í Saar tilkynnir, að talning at-
kvæða eftir atkvæðagreiðsluna
á sunnudaginn kemur, verði
sennilega lokið á mánudags-
kvöld, og muni úrslitin þá sam-
tímis birt í Saarbriicken og
Genf.
Berlin kL 8, 9/1. FÚ.
Burckel, Saarfulltrúi Hitlers,
mun tala á fundi, sem haldinn
verður í Kaiserslautem í kvöld.
Hefir öllum erlendum1 blaða-
mönnum í Saar verið boðið á
fundinn.
Svartaþoka f gær
í Englandi og flmeríku
Flugvél
var í 3 tima að leita að
fluffhöfninni í Chioago
London kL 17, 9/1. FÚ.
Þoka grúfir yfir mestum
hluta Englands í dag og haml-
ar umferð jámbrautarlesta og
bifreiða, en hefir alveg stöðv-
að skipaferðir á Thairies og
táfið flugferðir. Á ýmsum stöð-
um hefir það aukið hættuna,
að fannkoma hefir verið tals-
verð og frost. Þokan er ennþá
verri á suðausturströndinni en
á Thames.
í New York hefir þoka einn-
ig hamlað skipaferðum. 13
skip liggja nú í New Yorkhöfn
og komast ekki leiðar sinnar
vegna þoku og nieðfram allri
austurströndinni hafa skipa-
ferðir tafizt tvo undanfarna
sólarhringa.
Tveggja ferjuskipa frá New
York er saknað. Alvarlegar
truflanir á flugferðum hafa
Framh. á 4. aiðu.
Laval kom heim í gær
Samningar Frakka og Itala hafa verið
undirritaðir og birtir
London kL 17, 9/1. FÚ.
Þegar Laval kom heim frá
Róm í dag.tóku á móti honum á
j árnbrautarstöðinni ráðh err-
amir og milcill mannfjöldi ann
ar. Seinna gekk hann á fund
forsetans og skýrði honum frá
viðræðunui»i í Róm. Hann af-
henti einnig Flandin forsætis-
láðherra skýrslu sína og sömu-
leiðis enska sendiherranum í
París.
í viðtali við frönsk blöð
sagði Laval í dag, að hann
kæmi heim aftur mjög ánægð-
ur yfir því, að sér og Musso-
lini hefði tekizt að koma á ör-
uggri og varanlegri vináttu
milli Frakklands og Italíu. „Ég
held“, sagði hann, „að ég hafi
unnið vel fyrir hagsmuni lands-
ins og fyrir málefni friðarins“.
London kL 17, 9/1. FÚ.
Afvopnunarboðskapur, und-
irskrifaður af Laval og Musso-
lini, var birtur í dag. í honum
eru engin ákveðin ummæli um
það, að nokkur sérstök þjóð sé
að vígbúast, en hinsvegar er
sagt, að ef það sannist, að ein-
hver þjóð vígbúist, múni
Frakkar og Italir ráðgast um
málið.
Báðar þjóðir skuldbinda sig
til þess að reyna, að fá Þjóð-
verja til þess að taka aftur
þátt í umræðunum um afvopn-
unarmálin.
Frönsku blöðin gefa það í
skyn í dag, að í viðræðunum í
Róm hafi náðst fullt samkomu-
lag um nýjan grundvöll fyrir
frekari samningaumleitunum
um afvopnunarmálin og L’
Ouvre segir, að Laval ætli til
Berlínar þegar hann og Fland-
in komi úr Lundúnaför sinni.
Múhaneðstrúarmenn og Hindúar
berjasj i Indlandi
Lögreglan akaut & mannfjöldann — 9 menn lélln
London kL 17, 8/1. FÚ.
• Mikið upphlaup varð í dag í
Colapor í Indlandi og börðust
]/ar Múhaméðsmenn og Hindú-
ar. En 9 ménn féllu, meðal
þeirra tvær konur, og margir
særðust.
Söfnuður Múhameðsmanna
hafði plantað trjám meðfram
veginum að musteri þeirra í
banni yfirvaldanna, sem höfðu
synjað um leyfi til þessarar
trjáplöntunar. Þegar verkinu
var lokið, komu eftirlitsmenn
til þess að skoða það. Mikill
mannfjöldi safnaðist saman og
bjóst við því að rífa ætti trén,
og tókst brezku1 yfirvöldunum
með naumindum að afstýra
upphlaupi. Seinna kom hópur
af Hindúum á staðinn og sló þá
á skömmum tíma í trylltan
Verða 5000 Saarbúar
sYÍftir amerísknm
borgararétti?
Kalundborg kl. 17, 9/1. FÚ.
Margir Þjóðverjar frá Banda-
ríkjunum hafa farið til Saar,
til þess að taka þátt í at-
kvæðagreiðslunni þar. Nú er
sagt að komið hafi til orða i
stjórninni vestra, að svifta
þessa menn amerískum borg-
ararétti, ef þeir gerðu alvöru
úr því að neyta atkvæðisréttar
síns. Ef úr þessu verður nær
það til 5 þúsund manns.
bardaga, og var allt haft að
vopni, sem í náðist, axir, grjót
og sigðir.
Lögreglan neyddist til þess
að skjóta á múginn áður en það
tókst að dreifa honum og lágu
þá fallnir menn og særðir eftir
á götunni.
Yfirvöldin hafa fyrirskipað
rannsókn á málinu.
Engir brezkir embættismenn
voru við þetta riðnir.
August Krogh, hinn heims-
i'rægi danski lífeðlisfræðingur,
sem fékk Nobelsverðlaun 1920,
fyrir afrek sín í þessari vís-
i indagrein, varð sextugur ný-
lega. Hann er heiðursdoktor við
marga erlenda háskóla og er
með allra þekktuStu vísinda-
mönnum Dana.