Nýja dagblaðið - 23.03.1935, Qupperneq 2
2
N Ý J A
DAGBL AÐIÐ
Til sölii
er húseignin nr. 9 við Grundarstíg
Upplýsingir gefur Valtýr Blöndal,
Landsbanka Islands.
SPRING CLASSES IN ENGLISH
Three classes, with five Papils in each class, will begin
in the last week of March. Have you an examination
coming? Are you going to England? Will you meet
Tourists this Summer? Pupils are encouraged to,ask
about their difficuities.
HOWARD LITTLE, Lauga veg 5, — Traðarkotssund
8Júkraaamlag Reykjavikur
Aðalfundur
samlagsins verður haldinn í Iðnó næstkomandi föstudag
29. þ. m. kl. 8V* síðd.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir á skrif-
stofunni Bergstaðastræti 3, gegn sýningu gjaldabókar.
Arsreikningar S. R. eru þar til sýnis fyrir samlagsmenn
Reykjavík, 21. marz 1935
STJÓRNIN
Síðasti daúurinn
sem hægt er að selja okkur flöskur,
og þd aðeins til kl. 3.
Áfengisverzlun rikísins
V Nýborg
Ssnfös*
í 1 kg. stykkjum og stærri bögglum
9
nýkomið írá Vík 1 Mýrdal, Rauðalæk
og víðar,
Samband ísl. samvínnufélaga
Prjónavélar
Husqvarna-
prjó.:avélar
eru viðux kenndar
íyrir gæ'i
I»ó er veröiö
ótrúlega lágt
Samband fsl. samvinnufélaga
I sunnudagsmatinn:
■r
1
Svínakótelettur
Nautabuff
Beinlausir fuglar
Guiasch
Kálfakjöt
Ennfr. allsk. álegg
KjQtbúðReykjavikor
Vesturgötu 16. Sími 4769.
Cr.8. Island
fer sunnudagirm 24. þ. m.
kh 8 síðd. til Leith og Kaup-
mannahafnar.
Tilkynningar um vörur
komi fyrir hádegi í dag.
Farþegar sæki farseðla
í dag.
Skipaafgreiðsla
Jes Zimsen
Tryggvagötu. - Sími 3025.
Þann 4. þ. m. undirritaði
konungurinn í Síam afsal sitt
til konungsdóms í landinu. Hef-
ir hann að undanförnu dvalizt í
Englandi, sökum ágreinings við
stjórnina í Síam.
Prajadhipok lconungur er að-
eins 41 árs að aldri. Hann naut
í æsku ágætrar skólamenntun-
ar í Englandi og mótaðist
mjög af vestrænum áhriíum.
— Hann var um nokkurt
skeig einvaldur í landinu,
þar til fyrir fáum árum síðan,
að bylting varð og landið félck
stjórnarskrá.
Síðan 1934 hefir konungur
verið mjög í andstöðu við rík-
isstjórnina, sem eigi hefir fall-
ið í geð frjálslyndi hans og
umbótahugar.
Konungur setti fram kröfu
um það, að ríkisstjórnin gæti
eigi tilnefnt menn til þingsetu-
og að liðsforingjar, sem væru
starfandi í hernum, skyldu ekki
hafa rétt til þátttöku í stjórn-
málum. Einnig krafðist hann
þess, að neitunarvald hans
skyldi aðeins ógildast af %
hlutum þingsins eða með þjóð-
aratkvæði, málfrelsi og prent-
frelsi skyldi lögleiða og öll
pólitísk afbort dæmd af æðsta
dómstóli landsins. Allir pólitísk-
ir fangar skyldu látnir lausir
og þeir embættismenn, sem af
pólitískum ástæðum: hafa verið
reknir úr embættum sínum,
skyldu taka við þeim aftur, eða
fá full eftirlaun. Ennfremur
krafðist hann þess, að fá rétt
til að náða dauðadæmda fanga.
Þegar stjórnin í Síam hafn-
aði þessum kröfum, afsalaði
konungur sér af frjálsum vilja
öllum rétti til að bera kórónu
Síams.
Höfuðástæðan fyrir ágrein-
ingi þessum er talin vera sú,
hve konungur lagði mikið kapp
á að innleiða menningu og siðu
Evrópumanna í Síam. Hann
hugðist að vinna sigur á æfa-
gömlum kreddum og fordóm-
um1 og leiða landa sína á braut
menningar og þróunar að hætti
vestrænna þjóða. En fastheldni
landa hans varð honum yfir-
sterkari.
Konungur og drottning hans,
sem alltaf hefir staðið við hlið
manns síns í baráttunni, hafa
nú tekið sér nafnið prins og
prinsessa Sukhodaya. Þau eru
bæði aðdáendur vestrænnar
menningar og iðka íþróttir og
ferðalög af miklu kappi.
Prins Sukhodaya segist vera
mjög feginn að losna við titla
sína, „drottnari hinna 24 regn-
hlífa“ og „bróðir mánans“, og
geta nú frjáls og óháður notið
hvíldar eftir annir og and-
streymi undanfarinna ára.
Búizt er við, að hinn 11 ára
gamli prins Ananda verði næsti
konungur í Síam. Er hann nú
á skóla í Lausanne, og krefst
móðir hans þess, að hann fái
að ljúka námi, áður en byrð-
ar konungsdómsins séu lagðar á
herðar hans.
Þegar móðir litla prinsins
spurði hann, hvort hann lang-
aði til að verða konungur í
Síam, þá svaraði hann:
— Því ræður þú, mamma.
Wella: niðursett verð. —
Sorén: án rafmagns. —
Látið permanent-krulla
yður, með þeirri aðferð,
sem á bezt við hár
yðar.
HÁRGEIÐSLUSTOFAN
„PERLA“
Sími 3895. Bergst.str. 1.
Flóra
Austurstræti 1. Sími 2039
Vorlaukarnír
eru komnir, svo sera:
Anamönur
Gladiolur
Georgínur
Ranunklur
Montbritslur og
Liljur
Einnig Gloxiniur og Begó-
níur. Allskonar matjurta- og
blómafræ nýkomið.
Flóra
Austuratræti 1
P
E
R
M
A
N
E
N
T
Síðasti
rsningiahiifðinginn
I Korsíku stóð vagga Napó-
leons mikla, en þessi hrjóstr-
uga fjöllótta eyja, hefir líka
fóstrað margar skæðar ræn-
ingjasveitir, sem fram til þessa
dags hafa gert eyjarbúum
þungar búsifjar og skotið veg-
faröndum skelk í bringu.
Nýlega var André Spada,
sem talinn er síðasti ræningja-
höfðingi Korsíku, dreginn fyr-
ir lög og dóm og dæmdur til
dauða.
Þau atvik, sem leiddu til
þess ag Spada gerðist ræningi,
eru með nokkuð óvenjulegum
hætti.
Einn vinur hans hét Ratili.
Tveimur dögum áður en Spada
skyldi taka til starfa, sem toll-
þjónn í þjónustu ríkisins, var
Ratili staddur á veitingahúsi.
Lenti þar í slagsmálum og var
kona ein, serh þar var stödd,
skotin til bana. Ratili var af
misgáningi tekinn fastur o g
haldið með hann áleiðis til
fangelsisins. Þetta var meira
en Spada gat afborið og fór
hann á stúfana og drápu þeir
félagar hermennina, sem hand-
tóku Ratili.
Eftir þetta lögðust þeir út
og stofnuðu ræningjaflokk. En
fyrir löngu síðan féll Ratili í
hendur réttvísinnar og var
sendur til Djöflaeyjunnar.
Eitt síðasta og mesta hryðju-
verk Spada var það, að eitt
sinn sem oftar stöðvaði hann
bifreið og krafðist þess, að eig-
andinn borgaði sér skatt. Þeg-
því var neitað, skaut hann
fjóra menn, sem' voru í bílnum
og brenndi síðan allt til ösku.
Þetta fannst stjónarvöldun-
um að bera í bakkafullan læk-
inn. Var send 600 manna lið-
sveit búin beztu hergögnum
til höfuðs Spada. Eftir 18 mán-
aða vöm var hann að lokum
liandtekinn.
Spada var sakaður um sjö
niorð og 18 morðtilraunir, sem
kostað höfðu alls 14 mannslíf.
Auk þess aragrúa af stærri og
smærri glæpum.
Hann virðist hafa álitið sig
vera nokkurskonar Robin
Hood, sem stal af þeim ríku til
að gefa fátækum. Og olli það
honum miklum vonbrigðum, að
eftir handtökuna þurfti að hafa
um hann hervörð, til þess að
landar hans tækju hann eklci
af lífi án dóms og laga.
Við réttarhöldin komst Spada
meðal annars þannig að orði:
— Ég er vinur meðal vina,
en ægilegur óvinum mínum.
— Ég er voldugasti ræningja-
höfðingi heimsins.