Nýja dagblaðið - 30.05.1935, Blaðsíða 1
Málalok i Soésdeilunni í gærkvöldi:
*
Revkjavikurbær tekur að sér eftiis-
flutningana fvrir 15 þnsnnd krónur
Ríkisstjórnin lofar að beita sér fyrir þvi, að bærinn fái eftir'
gefinn toll á efni til virkjunarinnar, sem nemi allt að helm-
ingi þess halla, sem bærinn verður fyrir af flutningunum
Bæjarí'áð hefir verið á fund-
um út af Sogsdeilunni svo að
segja dag og nótt tvo undan-
fama sólarhringa. Flutninga-
skipið Henning B, sem hefir
efnið til virkjunarinnar innan-
borðs, fór héðan í fyrrinótt.
Höjgaard verkfræðingur var,
eins og kunnugt er, farinn áð-
ur, en umboðsmaður hans,
Schröder-Petersen, hefir haft
skeytasamband við hann við-
víkjandi einstökum atriðum
samkomulagstilraunanna.
Um klukkan 12 í nótt gerði
bæjarráðið eftirfarandi álykt-
un:
„Bæjarráðið samþykikir að
gera samning \ið Höjgaard &
Schultz A/S., um flutning á
efni og vélum til Sogsvirkjun-
arinnar héðan úr bænum aust-
ur að virkjunarstaðnum, 4700
tonnum, fyrir 75 þúsund krón-
ur, að því tilskildu, að bæjai'-
ráð fái til umráða og afnota
vöruflutningabifreiðar firmajns
hér ásamt dráttarvögnum, ef
þess yrði óskað, með rétti til
þess að framselja öðrum flutn-
ingana, enda nái firmað sam-
komulagi við verkalýðsfélögin
urn önnur deiluatriði og byrj-
að verði á virkjuninni tafar-
laust. Hinsvegar áskilur bæj-
arráðið sér allan rétt til þess
að krefja A/S. Höjgaard &
Schultz um bætur fyrir allt
tjón, sem bæjarfélagið hefir
beðið og bíður vegna verkfalls-
deilunnar og af lausn hennar.
Það er jafnframt skilyrði
fyrir framangreindu tilboði til
verktaka, að samkomulag náist
við Vörubílastöðina „Þróttur“
hér í bænum um flutning á
framangreindum 4700 tonnum
fyrir 28 krónur tonnið“.
í tilefni af væntanlegum
samningum milli A/S. Höj-
gaard & Schultz og verkalýðs-
félaganna, gerði bæjarráðið
ennfremur svohljóðandi álykt-
un:
„Þar sem bæjarráðið telur
að það sé samkv. kunnum taxta^
verkalýðsfélaganna, að verk-
taki greiði kaup matreiðslu-
kvenna og kostnað af nauðsyn-
legustu ferðum verkaananna,
telur það óhjákvæmilegt að
verktaki gangi að héraðlútandi
kröfum verkalýðsfélaganna, en
tekur fram, að það neitar al-
gerlega að bærinn sé skyldur
að endurgreiða verktaka hér af
leiðandi útgjöld“.
Eins og ályktun bæjarráðs
ber með sér, hefir niðurstaðan
orðið sú, að Reykjavíkurbær
tekur að sér að flytja efnið til
virkj unarinnar austur að Sogi
fyrir 75 þús. kr. Hafa Höj-
gaard & Schultz fallizt á að
greiða þá upphæð. En í upp-
hafi vildi firmað ékki greiða
nema 60 þús. kr. fyrir flutn-
inginn. Krafa vörubílastöðvar-
innar „Þróttur“ var hinsvegar
í upphafi sú, að greiddar yrðu
fyrir flutning efnisins alls 148
þús. kr. En til samkomulags
hefir 'hún lækkað kröfu sína
niður í rúml. 131000 kr., og er
nú gengið út frá, að bærinn
greiði henni þá upphæð.
Þess skal getið, að ráðunaut-
ur bæjarins við virkjunina,
norski verkfræðingurinn Ber-
dal, ihefir áætlað hæfilegt
kostnaðarverð flutninganna allt
að 120 þús. kr.
Ríkisstjórnin hefir lofað að
beita sér fyrir því^ að bærinn
fái eftirgefinn toll á efni til
virkjunarinnar, sem nemi allt
að helmingi þess halla, sem
bærinn verður fyrir, með því
að taka að sér flutninginn fyr-
ir 75 þús. kr. Hefir hún talið
eðlilegt, að rétta bænum hjálp-
arhönd að þessu leyti, til þess
að bjarga honum1 frá stórkost-
legu vaxtatapi, sem hann hefði
orðið fyrir, ef virkjunin hefði
stöðvazt (300 þús. kr. á ári)
— og ennfremur til að koma í
veg fyrir yfirvofandi atvinnu-
tjón mörg hundruð verka-
manna.
í dag verður væntanlega
gengið frá þrem samningum i
samræmi við þá niðurstöðu,
sem fengin er: í fyrsta lagi
milli bæjarstjórnarinnar og
firmans, um! að bærinn taki að
sér flutningana fyrir 75 þús.
kr., í öðru lagi milli bæjar-
stjórnarinnar og vörubílastöðvL
arinnar „Þróttur" og í þriðja
lagi milli firm'ans og verka-
mannafélagsins Dagsbrún um
vinnuna við Sogið. Viðvíkjandi
þeirri vinnu hefir á milli bor-
ið um, ihvort firmað ætti að
greiða kaup matreiðslukvenna
og ferðir verkamanna eins og
ákveðið er í taxta verka-
manna. En firmað mun hafa
lýst yfir því í gærkvöldi, að
það myndi taka að sér þennan
kostnað í bili, en að það á-
skildi sér endurgreiðslu frá
bænum, ef í ljós kæmi, að það
hefði ekki verið skylt til að
bera kostnaðinn samkvæmt
samningum við bæinn.
Almennt mun því verða
fagnað, að lausn er fengin á
þessari hættulegu deilu. Myndi
þess að vísu margur óska, að
greinilegar hefði verði frá
þessum málum gengið við
firmað í upphafi af hálfu bæj-
arstjórnarinnar og að fyr
hefði verið fram í því gengið
af hennar hálfu, að fá þá
lausn, sem orðin er, úr því að
ekki var á betra völ.
Vinnuveitendafélag Islands
sendi blöðunum í gærkvöldi
langt varnarskjal fyrir Höj-
gaard & Schultz út af afstöðu
'firmans í deilunni. Eru þar
fram borin svipuð rök og Mbl.
birti í upphafi deilunnar. En
þaú skrif Mbl. hafa án efa
verið mjög óheppileg og dregið
úr því, að firmað legði veru-
lega á sig til samkomulags
við hina íslenzku aðila.
Verkfallið við vöruflutninga-
skipið Henning B ihófst 24. ap-
ríl. Skipið var því búið að
liggja meira en mánuð hér í
höfn áður en það loksins lét í
haf í fyrrinótt. Þess er að
vænta, að því hafi verið snúið
við í nótt.
Sigfús Einarsson
tónskáld
Frú Valborg og Sigfús Ein-
arsson, tónskáld, fara með
„Lyra“ í dag áleiðis til Skan-
dinavíu.
Sigfús Einarsson fer að
Siyfús Einarsson.
þessu sinni utan sem fulltrúi
„Sambands íslenzkra karla-
kóra“, blandaðra kóra og
„Bandalags íslenzkra lista-
manna“, til þess að sitja söng-
mót í Osló og Stokkhólmi.
Hafa Sambandið og- Bandalag-
ið kjörið hann fulltrúa sinn í
þessa för. Mótið í Osló er alls-
herjarmót norskra karlakóra
um land allt, og stendur frá
8,—10. júní.
Mót Svía í Stokkhólmi er
einnig allsherjarmót, og stend-
ur fyrir því „Ríkissamband
blandaðra kóra í Svíþjóð“, og
stendur frá 14.—16. júní. Á
bæði mótin er boðið fulltrúum
allra norrænu þjóðanna.
Að loknum hátíðahöldunum
fara þau hjóri til Kaupmanna-
hafnar, og búast þar við að
hitta börn sín, hr. Einar og
ungfrú Elsu Sigfúss. Hafa þau
bæði getið sér þar góðan og sí-
vaxandi orðstír, Einar sem!
íiðluleikari en ungfrú Elsa sem
söngkona, sem alkunnugt er.
Sigfús Einarsson hlaut að
verðleikum mikið lof, er hann
fór með 50 manna blandaðan
söngflokk á allsherjarsöngmót
Norðurlanda í Khöfn, sumarið
1929. Síðan hefir flokkur hans
eigi starfað, unz hann tók aft-
ur til í vetur, sem betur fer.
Er höfuðstaðnum það menn-
ingarnauðsyn, að hér starfi
blandaður kór, enda er hann
vel farinn í höndum Sigfúsar
Einarssonar. Hafa félög þau,
er kusu hann, séð lilut ís-
lenzkra listamanna vel borgið,
meðal fulltrúa Norðurlanda.
Ovissan í Bandaríkjunum
London kl. 21.00, 28/5. FÚ.
Allmargir atvinnurekendur
hafa þegar tilkynnt, að þrátt
fyrir dómsúrskurð Hæstarétt-
ar, um að 3. kafli viðreisnar-
löggjafarinnar væri ekki í
samræmi við stjórnarskrána,
muni þeir standa við sínar
fyrri skuldbindingar.
London kl. 16, 29/5. FÚ.
Ástandið í Bandaríkjunum,
vegna hæstaréttardómsins um
atvinnumálastefnu stjórnar-
innar, er enn óbreytt og í ó-
vissu. Þó er talið, að tvennt sé
ákveðið: Annarsvegar sú af-
staða framkvæmdastjómar-
innar, að vilja fá stefnu stjórn-
arinnar framkvæmda á ein-
hvem hátt, og hinsvegar sú á-
kvörðun verkamanna, að
heimta stefnuna framkvæmda,
án tillits til hæstaréttardom's-
ins.
Verkfalli hefir nú verið hót-
að um allt land, ef dómurinn
verði látinn hafa það í för með
sér, að stöðva áætlanir stjórn-
arinnar. Forseti námiimanna-
sambandsins lýsti því yfir í
dag, að námumenn myndú
hefja verkfall 17. júní, ef ekki
hefði tekizt fyrir þann tíma,
að koma fram nýrri löggjöfd
um málin, eða halda viðreisn-
arstarfinu áfram á einhvem
hátt. Talsniaður vefara sagði
einnig, að þeir myndu svara
með verkfalli hverri tilraun,
sem gerð yrði til þess að
hverfa frá eða slaka á þeim
ráðstöfunum um atvinnu og
laun, sem viðreisnamefndin
hefði þegar gert.
Sum fyrirtæki hafa hækkað
laun sín, þrátt fyrir ákvæði
hæstaréttardómsins, þar á
meðal eru tvö stór olíufélög.
Verðfall hefir orðið á ýms-
um vörutegundum, til dæmis
hafa bækur og vindlingar í dag
fallið stórlega í verði í Boston.
Kauphallarviðskipti eru mjög
lítil í dag, vegna óvissunnar
um það, hvað verða muni.
Framkvæmdastjóri viðreisn-
arstarfsins sagði í dag, að það
mætti ekki koma til mála, að
hæstaréttardómurinn hefði þau
áhrif, að fellt yrði merki við-
reisnarstarfsins. „Við þurfum
að láta lifa anda Bláa amar-
ins, þótt fuglinn sjálfur sé
dauðúr“.
Roosevelt forseti kvaddi í
gær og i dag á fund sinn með-
limi viðreisnarráðsins og leið-
toga verkamanna, til þess að
ræða málin. Forsetinn hefir nú
falið dómsmálaráðuneytinu það
verkefni, að finna nýtt formi
fyrir framkvæmd hinna gömlú
áætlana, í samræmi við
stjórnarskrá ríkisins.