Nýja dagblaðið - 13.06.1935, Page 2
2
If Ý J A
DKGBLABIB
Adalfnndur
LjóamæðratélagB Islands, byrjar þann 21. júui þetta
ár, kl. 2 síðdegis í Oddfellowhúsinu, uppi,
Dagskrá samkvæmt félagslögunum.
Fyrirlestur flytur prófessor Guðmundur Thoroddsen.
Skemmtiferð með Ljósmæðraskólanum eftir fundinn,
Stj órnin.
Raftæk j aeinkasala
ríkisins
Símnefni: Símar:
Elektromonopol Skrifst. 4526, 4126 og 1929
Vörugeymsla: 4839-
Rafmagnsveitur, rafvirkjar og aðrir sem nota þuifa
rafvélar og áhöld, raflagningaefni o. s. frv. og hafa að
lögum rétt til þess að kaupa hjá oss, eru vinsamlegast
beðnir að láta oss vita svo fljótt sem unnt er um allar
stærri pantanir sem þeir væntanlega munu gera á þessu
ári. —
Vegna gíiurlegr&r aðsókn&r endurtekur
Bjarni Björnsson
skemmtun sína í kvöld klukkan 9 í Iðnó.
Aðgöngum. seldir í dag frá kl. 1.
BflRRIlTS bðlllff
— lögur og eápa —
eru ódýrust og bezt.
— Fást i mismunandi ílátum. —
J. Barratt & Co, Ltd.
Tonge Spring Works,
Middle Ton,
NR. Manchester
England.
Einkaumboð
á Islandi heflr:
Samband isl.
samvinnufélaga,
Reykjavík,
Tveuuskouar viðreisu
Af óm'ótstæðilegri þörf á
hreinu lofti og í leit að lífræn-
um framkvæmdum, sem hvort-
tveggja skortir nú svo mjög
í borginni, tók ég mér ferð á
hendur suður að Vífilsstöðum
nýlega.
Þegar bifreiðin þýtu'r inn
eftir Hverfisgötunni, gefur
nokkuð á að líta, semj af má
læra. Einn af verkamönnum
borgarinnar er að ræsta götuna.
í hvert skipti sem hann hefur
skófluna á loft til að koma
skaminu í kerru sína, tekur
vindurinn mestan hluta af þess.
umj þurra óþverra og þeytir
honum út um hvippinn og
hvappinn — í andlit þeirra og
klæðnað, sem framhjá ganga.
* » *
Heilsuhælið á Vífilsstöðum
er einn fjölmennasti dvalar-
staður þeirra, sem' við langvar-
andi vanheilsu eiga að stríða
— vanheilsu, sem oft á rót sína
að rekja til vanhirðingar og
kæruleysis einstaklinganna og
þess opinbera um likamlega vel.
ferð og hreysti almennings. Er
raunalegt til þess að hugsa, að
hér er alltaf þörf fleiri og
stærri sjúkrahúsa.
Víst má telja það þjóðinni til
sæmdar, að reisa hér stór hús
og kosta til þess æmu fé árlega
að veita hjálp og dvalarstað
þeim, seml misst hafa heilsuna.
En sæmra væri að byrgja
brunninn áður en bamið er dott
ið í hann og vaka yfir líkams-
hreysti þeirra, sem enn eru
heilbrigðir. Helgasta skylda
þjóðfélagsins er ekki að byggja
mörg sjúkrahús og stór, heldur
að leggja áherzlú á, að þaú
verði sem fæst og smæst í
framtíðinni, þ. e. a. s. að efla
svo líkamshreysti þjóðarinnar,
að þeirra verði sem allra
minnst þörf. Með hverjum
hraustum borgara vex máttur
þjóðarinnar, en sérhver vanheill
þegn eykur byrðar hennar.
Tökum' eitt dæmi af mórg-
um1, götumoldviðrið, sem þyrl-
ast hefir yfir hér í Reykjavík
undanfama daga, og sem efa-
laust hefir gróðursett ólyfjan
vanheilsunnar í líkama fjöl-
margra borgarbúa, ungra og
gamalla. Eiturbyrlan götunnar
hefir fengið vindinn í lið með
sér til að tryggja það, að stóru
sjúkrahúsin verði troðfull,
mörgu læknamir og hjúkrunar-
konumar hafi nóg að starfa í
framtíðinni og ennfremur að
máttur þjóðarinnar fari þverr-
andi, en byrðamar aukist. Ráð-
andi öflin í bæjarmálum Reyk-
javíkur láta göturykið alveg af-
skiptalaust. Ekki svo m'ikið sem
að vatni sé ausið á götumar.
Allar reglur um hreinlæti og
sæmilega ræstingu em þver-
brotnar og heilsu og lífi fjölda
fólks stofnað í bráða hættu.
Enginn veit hve margir verða
götumoldviðrinu að bráð, en
hitt er víst, að með svipuðu
„hreinlæti" og hingað til hefir
tíðkast hér í borginni, verður
ag byggja fleiri Vífilstaðahæli
í framtíðinni. Hefir þjóðin efni
á því að velferð almennings sé
stofnað í hættú fyrir kæruleysi
skammsýnna valdhafa og hvað
á kæruleysi þeirra eftir að
kosta? Hefir landið okkar efni
á því, ekki einungis að missa
þá krafta, sem verða götu-
naoldviðrinu í Reykjavík að
bráð, heldur og að bera byrðar
þeirra? Hvað kosta öll Vífil-
staðahæli fram'tíðarinnar?
Þessar og aðrar slíkar hugs-
anir vakna í huiga mér á leið-
inni að Vífilstöðum, en þegar
þangað er komið beinist afc-
hyglin að umhverfinu. Um-
hverfis hið myndarlega sjúkra-
hús sjást nokkrar smærri
byggingar og stóra túnið
hvanngræna, varpar hlýlegum
svip á staðinn. 1 nokkurri
fjarlægð staðnæmist augað við
ógróna mela og hraun á alla
vegu. Þetta er eins og vin í
eyðimörk. Hér hefir máttur
moldarinnar og afl m'anns-
handarinnar unnið þrekvirki til
eflingar þeim, sem' staðinn
sækja, sér til heilsubótar. Um
leið og ég stíg út úr bifreiðinni,
berst áfengur töðuilmur að
vitum mér. Bjöm Konráðsson
ráðsmann á Vífilstöðulm ber
þar að í sömu svipan, og spyr
ég hann, hverju það sæti að
farið sé að slá svo árla sum-
ars.
— Grasspretta er með af-
hrigðum mikil, en sér í lagi eru
raklendari hlutar túnsins vel
sprottnir, af því að þurrviðri
hafa gengið. Við byrjuðum að
slá 5. þ. ml og erum búnir að
slá 15—20 dagsláttur. Er það
nokkru fyrr en venja er til, en
fallið mxkið. Aðeins að þurrk-
arnir haldist, segir Bjöm og
horfir með áhyggjusvip á
meinleysislega skýhnoðra í
vestri.
Þegar við göngum' um vell-
ina vaxna hnéháu' töðugresi og
í áttina til slægjunnar, spyr ég
Bjöm hve stórt túnið sé.
— Alls eru 150—160 dagsl.
í fullri rækt, svarar hann.
Mestur hluti þess var áður
óræktarmýri, sem ræst var
íram á árunum 1921—23. Var
hún ag nokkru unnin með
þúfnabana 1922. Síðar var
jörðin fullnumin með hesta-
verkfærum, henni gefinn áburð-
ur og sáð grasfræi og höfrum.
Var mýrin öll komin í rækt
1926. Síðan hefir túnið verið
stækkað til muna, og hafa holt-
in og melamir verið teknir til
ræktu'nar. Töðufall hefir verið
rúmlega 2500 hestar undanfar-
in ár, en gera má ráð fyrir,
að heyfengur verði nokkru
meiri í sumar, því að spretta
er ágæt.
— Hvenær var Vífilstaðar
búið stofnað?
— Búið var sett á stofn
1916 og fór hægt af stað, en
hefir með jöfnum og föstuúx
skrefum náð því að verða eitt
af stærstú kúabúulm landsins.
Þegar frá er talinn stofnkostn-
aðurinn hefir búið verið rekið
sem sjálfstæður liður í starf-
rækslu heilsuhælisins. Þegar
ríkissjóður 1916 lagði fram 26
þús. kr. til stofnunar búsins,
fór méstur hluti þess fjár til
að byggja fjós fyrir 18 kýr
ásamt tilheyrandi haughúsi og
heygeymslu. Einnig vom
keyptar 16 kýr.
— Hve stórt er búið nú?
— Kýmar eru 70, en naufc-
gripir alls um 80. Einnig á bú-
ið 300 hænsn, 30 svín og 5
dráttarhesta.
Fraxoh, á 4. glðu.
Sláttur á Vífilsstöðum.
Myndin tekin 7. þ. m.
Beztn matarkaupin gera þeir, sem kanpa
ódýra kindakjötid
frá. íshúsinn HBBÐUBBEIÐ. Sími 2678.