Nýja dagblaðið - 13.06.1935, Blaðsíða 3
H t I 1
DKO B L A 0 I Ð
B
NÝJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „BlaÖaútgáfan h.í.“
Ritstjórar:
Gísli Guðmundsson,
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
Ritstjórnarskrifstofumar
Laugv. 10. Simar 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingoskrifetofa
Austurstr. 12. Simi 2323.
Áskriftargjald kr. 2,00 á mán.
f lausasölu 10 aura eint
Prentsmiðjan Acta.
mmmnmmmmmm i . . mma
Ihaldið
á undanhaldi
Tvær undanfarnar helgar
hafa verið haldnir margir
landsmálafundir, þar sem full-
trúar stjórnmálaflokkanna hafa
. rætt og deilt um þau mál, sem
nú eru efst á baugi.
Stjómin, sem tók við völdum
síðastl. súmar, hefir verið at-
hafna. og framkvæmdasöm.
Það er að öllum jafnaði auð-
veldara fyrir andstæðinga að
deila á slíkar stjómir, einkum
þegar stutt er liðið frá fram-
kvæmdum. Byrjunarerfiðleik-
arnir geta gert ýmsa vantrú-
aða á umbæturnar. Árangur-
inn kemur venjulega ekki strax
í ljós. Andstæðingamir þurfa
því að reyna að torvelda fram-
kvæmdirnar, áður en þær fara
að bera ávöxt.
íhaldið hefir heldur ekki
legið á liði sínu við að rægja
og ófrægja núverandi stjórn
fyrir aðgerðir hennar. 1 hverju
einasta íhaldsmálgagni hefir
verið samí stöðugi fjandskap-
artónninn um þær framkvæmd-
ir stjórnarinnar, er lúta að af-
urðasölúmálunum', fjármálun-
um og utanríkisverzluninni.
íhaldið hefir aldrei linnt látuxn
og látið líkast því, að verið
væri að fremja landráð og
stórvítaverð óhæfuverk.
Menn bjuggust því við, að
á landsmálafundunum, seml
byrjaðir eru1 fyrir nokkru,
myndu ádeilur stjórnarand-
stæðinga verða óvenju harðar.
En reyndin hefir orðið allt önn-
ur. 1 stað þess að vera 1
sóknaraðstöðu hafa þeir verið
í varnaraðstöðu. Þeir hafa orð-
ið að verja syndir frá sínum
eigin stjórnartímum og fjand-
samleg tilþrif gegn umbóta-
málum ríkisstjómarinnar, ekki
sízt nú undanfarið.
Það sem einkennt hefir
landsmálafundina í vor um-
fram venju, er linka og
ádeiluskortur stjórnarandstæð-
inga. Á sveitafuhdum hafa þeir-
jafnvel keppzt við að afneita
sínum eigin gerðum eins og t.
d. mjólkurverkfallinu. Og þeir.
hafa virzt verða þeirri stund
fegnastir, þegar fundinum
lauk. Þeir erul auðsjáanlega
dauðhræddir við að leggja mal
sitt undir dóm kjósendanna.
Hræðslan við landsmálafund-
ina kemur líka greinilega í ljós
í Morguhblaðinu' í gær. Þar
segir m. a.:
„Það má vel vera, að ein-
hverjir hafi gaman af þessum
fundum, en gagnið verður
hverfandi".
FRÁ KEFLAVlK.
Fundinn sóttu fulltrúar allra
hinna svokölluðu stjómmála-
flokka, nema Bændaflokksins.
Þingmaður kjördæmisins fyrir
íhaldið, Haraldur Guðmunds-
son atvinnumálaráðherra fyrir
jafnaðarmenn, Bergur Jónsson
sýslumaður fyrir Framsóknar-
flokkinn og Finnbogi Guð-
mundsson, Helgi S. Jónsson og
Óskar Halldórsson fyrir þá,
sem nefna sig Þj óðernissinna.
Fundinn setti þingmaður
kjördæmisins og tróð í fund-
arstjórasæti oddvita hreppsins,
sem1 er mjög þekktur að því að
vera hlutdrægur fundarstj óri.
Hafði svo fyrstur orðið þingm.
kjördæmisins. Var talsverður
buslugangur í honum að vanda,
og hefðu þeir, sem ekkert
þekkja manninn getað ímyndað
sér, að hér væri maðurinn, sem
hefði vitið og viljann að bæta
úr því ástandi, sem nú er. En
aðalkjarni ræðu hans var
ádeila á núverandi landsstjórn
og kom þá sú einkennilega
skoðun fram, að góð lands-
stjórn ætti ekki að skipta sér af
atvinnumálúm landsmanna.
Næstur tók til máls atvinnu
málaráðherra. Sýndi hann
fundinum fram á, að ekki gæti
verið mikil alvara hjá þing-
manni kjördæmisins með það,
að góð landsstjóm ætti ekki að
skipta sér af atvinnumálunum,
þar sem hann sjálfur væri
kveinandi um að landsstjórnin
skipti sér ekki af þessum mál-
um. (Varð þá hlátur meðal
fundarmanna). Þá talaði ráð-
herrann um stofnun fisksölu-
samlagsins og uml fisksölu-
möguleika o. fl.
Og ennfremur:
„Þegar þannig er í pottinn
búið, er það vissulega ekki
karp á stjórnmálafundum, sem
bjargað getur þjóðinni frá
glötun*.
Morgunblaðið er auðsjánan-
lega sannfært um, að íhaldið
kemur með skarðan hlut af
fundunum. Það vill þó skiljan-
lega ekki fullyrða þetta opin-
bert, en segir aðeins, að „gagn-
ið af þeim verði hverfandi“.
Morgunblaðið er vant að tala
um íhaldið, sem alla þjóðina.
Það þekkir ekki þjóðarhags-
muni, aðeins flokkshagsmuni.
Þessvegna kemst það líka að
þeirri merkilegu niðurstöðu, að
„karp á stjómmálafundum
bjargi vissulega ekki þjóðinni
frá glötun“.
Morgunblaðið hefir kveðið
upp sinn dóm um landsmála-
fundina. En þetta er jafnframt
dómur um verk núverandi
stjómar. Það er viðurkenning
á því, að kjósendurnir hafi skil-
ið þau rétt. Það er viðurkenn-
ing á því, að íhaldinu hafi mis-
heppnast blekkingastarfsemin
og hljóti nú fyrir verðskuldaða
skömm og óþökk. Það er játn-
ing þess, að fylgi stjómarinn-
ar fari vaxandi, en íhaldið sé
að láta undan síga.
Þá tók til máls fulltrúi
Framsóknarflokksins, Bergur
Jónsson sýslumaður. Var ræða
hans rökföst mjög og laus við
alla ádeilu og stakk mjög í stúf
við ræðu þingmanns kjördæm-
isins. Rakti hann sögu þeirra
mála, sem stjórnin hafði haft
með höndum frá því hún tók
til starfa fyrir um 10 mánuð-
uml síðan, og gaf glöggt yfir-
lit yfir þau.
Þegar á fundinn leið fóru
hreppsbúar að veita því eftir-
tekt, sem merkilegt má heita
af þingmanni kjördæmisins, að
hann hafði ekki ætlað þeim að
láta í ljós skoðanir sínar á
fundinum, og fór því borgari
einn í Keflavík til þingmanns-
ins og bað hann um 5—10 mjn-
útur, en hann neitaði því. Slík
er kurteisi þingmannsins, þegar
hann heimsækir kjósendur sína.
Vonandi er að kjósendur
hans fari nú að skilja að þing-
maðurinn kærir sig ekki um að
heyra óskir þeirra, svo að hann
geti alltaf, þegar á það er
minnzt, að kjördæmið sé van-
rækt af hans hálfu, borið því
við, að hann sé aldrei beðinn
nm neitt.
En ég vil spyrja: Hvenær
eiga kjósendur að láta óskir
sínar í ljós, þegar þingmaður-
inn skiptir nákvæmlega tíma
þeim, sem hann ver til fundar-
halda hér á milli aðkomu-
manna.
Keflvíkingur.
FRÁ BORGARNESI.
Borgarnesfundurinn á annan
í hvítasunnu var fjölsóttur
(um 200 manns, mest úr sveit-
um) og fór ágætlega fram'. Á
íundinum' mættu fyrir Fram
sóknarflokkinn: Bjarni Ás-
geirsson og Eysteinn Jónsson.
Fyrir Alþýðuflokkinn: Sigurð-
ur Einarsson og Guðm. Pét-
ursson. Fyrir „bændaflokkinn"
Svafar Guðmundsson og Gísli
Brynjólfsson. Fyrir íhalds-
flokkinn: Thor Thors. Og fyrir
Kommúnistaflokkinn: Bryn-
jólfur Bjarnason. Innanhéraðs-
menn tóku ekki til máls utan
Sigurjón í Krumshólum og
Ari Guðmuhdsson, er gerðu at-
hugasemdir viðvíkjandi sjálf-
um sér.
Sérstaka athygli vakti það
margra kuhnugra Borgfirð-
inga, er aðalfulltrúi „Bænda-
flokksins" lauk ræðu sinni i
síðara sinn, að þá klöppuðu fá-
einir íhaldsmenn fyrir honum
og voru það aðallega þeir, sem
aldrei gátu unnað honurú sann-
mælis, meðan hann var í þjón-
ustu Borgfirðinga og vann
með dyggð og dúgnaði að
framfaramálum þeirra.
Tímarnir breytast og menn-
irnir með má segja, þegar
„Jónarnir" 1 Borgamesi eru
orðnir helztu „k.lapparar“ á
fundum þar fyrir Svafari Guð-
mundssyni!
Ihaldsmenn hafa verið mjög
ánægðir í blöðum sínum yfir
vantrausti á þingmann og
Kaldhreinsuð
nýmjólk
Út af framkomnum óskum, framlengist fresturinn til þess
að skrifa sig fyrir kaldhreinsaðri nýmjólk hjá búðum
Samsölunnar, til laugardagskvölds 15. þ. m. Listar liggja
frammi í búðunum til þess tíma.
Stjórn Mjolkursamsölunnar.
E i H W 1 Borgarfiarðar 1 [ og Borgarness |
fastar ferðir alla miðvikudaga og laugardaga
Til Iieykjavíkur alla þriðjudaga og föstudaga
Afgreiðsla í Reykjavík:
Nýju Bifreiðastöðinni, Kolasundi. — Sími 1216
Finnbogi Guðlaugsson, e°/9?río'
Sími 18.
landstjórn, er þeir fengu sam-
þykkt ,á fámennum fundi s. 1.
vetur í Borgamesi. Hafa þeir
skrifað um þann fund hverja
greinina eftir aðra í Mbl., sum-
ar undirskrifaðar „Borgnesing-
ur“. En af því þetta hefir ver-
ið Mbl. óhróður með lakara
móti, hefir enginn Borgnesing-
ur viljað við hann kannast og
helztu íhaldsmenn kauptúnsins
gefið yfirlýsingar í Nýja dag-
blaðinu, að þeir eigi engan staf
í slúðrinu. Er það vel, þegar
þeir hafa manndáð í sér til að
löðrunga sitt aðalblað og láta
það sitja uppi með skömmina.
En á þessum Borgamessfundi
nú er ekki að efa, að Fram-
sóknarflokkurinn hefði fengið
samþykkt traust á þingmann
og ríkisstjóm, hefði tillaga
verið borin fram um það. Allir
flokkar áttu þar nokkurt fylgi,
jafnvel „Bændaflokkurinn" 2—
3 menn, þó að „Jónamir" séu
ekki taldir þar með. En engum
okkar, sem á fundinúm vorum,
gat dulizt, að Framsóknar-
flokkurinn átti langmest fylg-
ið, hvað sem andstæðingablöð-
in kunna að segja um það.
Fundarmaður.
sín, ag kaupa elcki handa þeim
gerilsneydda mjólk. Þess vegna
hefði hann minnkað við sig
mjólkurkaupin um meira en
h.elming, — Hve vesæll þessi
skáldskapur er, sézt bezt á þvf,
að fram að mjólkurverkfalli í-
haldsins, hafði P. M. alltaf
keypt alla mjólk til heimilisins
gerilsneydda, jafnt handa börn-
um sem fullorðnum. Með öðr-
urri orðum: Þessi ráðstöfun P.
M., að minnka mjólkurkaupin,
stafaði eingöngu af fúsum
vilja hans til að taka svo öfl-
ugan þátt, sem hann gat, í
mj ólkui'verkf alli flokksbræðr-
anna í Rvík. — Enda hefir P.
M. hvergi dottið í hug, að bera
fram slíkan dauðans leirburð
sér til afsökunar.
Vér höinm
nýlega fengið nýtízku áhöld til
framköllunar og „kopieringa"
sniðin eftir áhöldum1 AGFA
stofnunarinnar í Berlín og
getum nú boðið viðskiptavin-
um vorum fljóta og nákvæma
afgreiðslu.
VESÆLL VAR NÚ
SKÁLDSKAPURINN.
Það var ljóti dagurinn fyrir
Pétur Ottesen, annar í hvíta-
sunnu í Reykholti. Sök sér var
að bíða stórkostlega lægri
hlut. En verra var, þegar rök-
in þrutu, að verða að grípa til
þess vesæla skáldskapar, sem
hann reyndi að tylla í eyðum-
ar.
Þegar Jónas Jónsson lýsti
mjólkurverkfalli Péturs Magn-
ússonar, sem minnkaði við
heimilið mjólkurkaupin úr 8
Itr. í 3, þá tókst Pétur Otte-
sen malfærsluna á hendur fyrir
nafna sinn, á skáldlegan hátt
í meira lagi. Hann kvað P. M.
liafa gert þetta fyrir böm
Góða mynd
fáið þér með því að láta okkur
framkalla og „kopiera" fyrir
yður.
Thiele, Austurstræti 20.
Allir
n
n
n
n
n
n
n
frjálslyndir menn, sem
fylgjast vilja vel með
þjóðmálunum verða að
lesa Nýja dagblaðið. —
En vilji menn vera
þröngsýnir og ofstækia-
fullir andstæðingar, þá
er þeiití ráðlegra að lesa
ekki blaðið.