Nýja dagblaðið - 02.07.1935, Side 3
I ■
0
NtJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: „BUSaútcáfui hJ.“
Ritotjónu*:
Giali Guðmundaaon,
Sigfús Halldón frá Höfnum.
Ritstjórnankiifatofunuur
Laugv. 10. Sim&r 4373 og 23&S.
Afgr. og auglýaing&akrifatofa
Austurstr. 12. Simi 2323.
Áskrlftargjaid kr. 2,00 á mán.
f lausasölu 10 aura eint
Prentsmlðjan Acta.
Morgunblaðið og
Jðn Sígurðsson
Er aamvinnuverzlun ein-
okun?
Mbl. í fyrradag reynir að
vanda, að umskapa og rang-
færa staðreyndir. í þetta sinn
reynir það að afflytja orð
merkasta stjómmálaleiðtogans,
sem Island hefir átt, Jóns Sig-
urðssonar forseta.
Morgunbl. segir að Jón Sig-
urðsson hafi viljað frjálsa
verzluh. Alveg rétt. En svo
kemur Morgunblaðið með sína
athugasemd. Kaupfélögin eru
ófrjáls verziun og einokun,
segir Morgunblaðið, og því hef_
ir Jón Sigurðsson hlotið að
vera á móti þeimt
En það liggja fyrir ummæli
Jóns Sigurðssonar um það,
hvort hann álíti kaupfélags-
skapinn einokunarfyrirtæki. —
Andstæðingar hixma fyrstu
verzlunarfélaga héldu einmitt
fram þeirri meinloku í tíð Jóns
Sigurðssonar. Og Jón gerir
hana að umtalsefni í hinni
merkilegui ritgerð sinni um
vetzlun og verzlunarsamtök.
„Vér verðum enn að fara
nokkrum: orðum um þann
ótta“, segir Jón, „semj sumir
þykjast hafa, að ef verzluhar-
félögin yrði drottnandi, þá
mundu þau! einoka verzlunina
miklu ver en nokkur kaupmað-
ur gerir nú“. Þessum röksemd-
um kaupfélagsandstæðinga
svarar Jón í svohljóðandi
greinarkafla:
„Þegar félögin væru í fullu
fjöri og nálega hver maður í
héraðinu ætti þátt í þeim,
meiri eða minni, þá gætu! slík
félög aldrei orðið einokunarfé-
lög, vegna þess beinlínis, að
þau gætu' engan einokað nesna
sjálf sig. Gjörum við, að allir
Húnvetningar t. d. væri í einu
félagi, þá réðu þeir sjálfir fé-
lagsstjóm sinni, þeir veldu
menn til að skoða reikningana
og bækumar, þeir vissi vun öll
viðskipti félagsins, um! öll kaup
þess og sölur, kaupstjórinn og
allir þeir, sem væru við verzl-
un félagsins, væri þjónar þess
og stæði til ábyrgðar fyrir fé-
lagsmjönnum, félagið sjálft
réði eiginlega prísunum á allri
vöru, í hönd og úr; hvemig
ætti þá þetta félag að geta ein-
okað Húnvetninga? Það væri
sam'a eins og að ímynda sér,
að félagið einokaði sig sjálft.
Já, það gæti einokað sig að því
leyti, að það bindi sig við
reglur, sem það sjálft sam-
þykkti, en vér getuih varla ætl-
Fornriiaúigáfan
ISLENZK FORNRIT IV.
EYRBYGGJA SAGA. GRÆNLENDINGASÖGUR.
Innllegar þakklx vottum vlS öllum þeim Borgnedngnm,
sem auðsýndu okkur dxengllega hlutteknlngu og mannúS i velk-
indum sonar okkar.
Borgjamesi 1. Júlí 1935.
Elisabet pórðardóttir. Helgi porstelnsson.
Hvei-t nýtt bindi af fomrita-
útgáfunni nýju er ný sönnun
þess, að sú útgáfa verður öll
hin veglegasta. Allur ytri frá-
gangur er prýðilegur, svo að
eigi eru gefnar út hér á landi
fegurri bækur. Formálar og
skýringar eru með ágætum, og
meg textann farið sem vísinda-
mönnum sæmir. Mun lengi verða
vísað til þessarar útgáfu sem
vitnisburðar um, hvað langt
nútímakynslóðin íslenzka hefir
komizt í menningu og sm'ekk
um útgáfu bóka. Hún er höfuð-
prýði í bókaskáp hvers Is-
lendings, bæði vegna fegurðar
og þess, að hún er bezti vitnis-
burðurinn, sem! enn er til um
menningu þjóðarinnar bæði í
nútíð — og um liðnar aldir.
En um leið og menn dást
að þessari útgáfu, hljóta þeir
að spyrja: Getur hún orðið al- '
menningseign þessarar kyn-
slóðar?
Hér skal fyrst litið á efnis-
lega hlið þessa máls, og þá
eru þar þegar nokkur tormerki
á. Fyrst er nú það, að útgáf-
an gengur allt of seint. Fyrsta
bindið kom þremúr árum! síðar
en verða átti, og hin koma
dræmt eftir — aðeins eitt
bindi á ári. Alls verða bindin
varla færri en 50, og er þá eigi
gert ráð fyrir, að annað verði
út gefið en það, sem mark-
verðast er fomritanna, þ. e.
Islendingasögur, Eddur, mál-
fræðiritgerðimar, Sturlunga,
Biskupasögur, lögbækumar,
Fornaldarsögur Norðurlanda,
Noregskonunga sögur, Færey-
ingasaga, sögur Orkneyja jarla
og Knytlinga og úrval riddara-
sagna og helgisagna. Eru því
horfur á, að hvomgt megi
verða, að þessari kynslóð end-
ist tími til útgáfunnar né til að
eignast hana. 1 annan stað er
útgáfan öllum þorra almenn-
ings of dýr. Kostar hvert bindi
. 9 krónur óbundið. Það er að
’ vísu ekki mikið verð eftir
stærð og frágangi, ef borið er
saman vig aðrar bækur, sem nú
eru út gefnar hér á landi. En
við það er ekki rétt að míða,
ef útgáfan á að'verða almenn-
ings eign, heldur við fjárhags-
lega getu manna til þess að
svo megi verða. Er og rétt að
minnast þess, að ríkissjóður
veitir styrk til útgáfunnar, og
fer þá betur á því, að sá
styrkur verði enn lítið eitt
hækkaður, en að bækurnar
verði almenningi of dýrar. Og
ekki er víst, að mikið tjón yrði
fyrir útgáfuna, að lækka bæk-
urnar nokkuð í verði, því að þá
er von aukixmar sölu. Helzt
j þyrftu þær að lækka í verði um
1 þriðjung, úr 9 kr. í 6 kr. En þá
ætti það líka að verða metnað-
1 ur hvers gáfaðs Islendings að
eignast fomritin öll og njóta
þeirra sem1 bezt!
En eftir á að hyggja: Falla
fornritin svo í smekk nútíma-
kynslóðarinnar, að þau geti
orðið almenningseign þess
vegna? Sumir efast um það, og
telja lestur fomritanna fara
alltaf þverrandi, nútímakyn-
slóðin horfi fram og eigi aftur
og hafi engan áhuga á gömlum
skræðum. Þetta hefir oft heyrzt
áður, og er lítið mark á því
takandi. Fer þetta og mjög
etfir því hvað fólkinú er kennt
að meta. Og um fomrit okkar
er þess að geta, að þau eni nær
eingöngú um efni, sem aldrei
fyrnist: um1 mannfræði. Við
mætum þar i glöggri lýsingú
mönnum og konum af uppmúa-
legri gerð, heitum í ástríðxún
og míklum í skapi, svo lík okk-
ur, að við skiljúm þaú, og þó
svo ólík, að við samanburðinn
fæst það sjónarhom, semj er
nauðsynlegt til að hvessa at-
hyglina. Því er alltaf í gildi
það, sem Páll Vídalín sagði um
að, að menn þyrftu að óttast,
að þær reglur kynni að verða
svo heimskulegar og skaðlegar
félaginu, að þær yrði því til
eyðileggingar; ef svo væri, þá
yrði manni víst óhætt að
hugga sig við, að það væri á
valdi félagsmanna sjálfra að
breyta þeim, og taka stjómina
af þeim mönnum1, sem hefðu
verið upphafsmenn til þeirra.
Enn fremúr gæti maður hugs-
að sér, að verzlunarfélag í
einni sýslu drottnaði yfir ann-
ari sýslu, ,af því þar væri færri
félagsmenn, en úr þessu væri
hægt að bæta, því ekki þyrfti
annað, en að fleiri gengi í fé-
lagið úr þeirri sýslu, þar til
þeir yrði eins aflmiklir eins og
hinir, og þá myndi allt jafna
sig. Yfirdrotnan félagsmanna
úr einni sýslu yfir annari gæti
ekki heldur nokkru sinni komið
fram í einokun verzlunarinnar,
því þag segir sig sjálft, að allir
félagsmenn sætti jöfnúm
kaupum, yfirráðin yrðú iirni-
falin í því, að þeir sýslubúar,
sem fleiri væri saman, gæti
neytt sín betur í kosningu for-
stöðumanna, en engin líkindi
eru til að neinn flokkur félags-
manna múndi neyta sín til að
kjósa aðra en þá, sem gæti
orðið nýtir liðsmenn fyrir fé-
lagið“.
Hver treystir sér til, seml les
þessi ummæli Jóns Sigurðsson-
ar, að haida því fram, að hann
hafi talig verzlúnarstefnu sína
öndverða kaupfélögunum, eins
og Morgunblaðið segir.
Nei, Jón Sigurðsson hefir
þvert á móti með þeirri skarp-
skyggni, sem honum var
manna mest lagin, leitt að því
óyggjandi rök, að kaupfélögin
eni ekki og geta ekki orðið
einokunarfélög.
Þá kröfu ætti að mega gera
til Morgunblaðsritstjóranna,
þó að sjálfsrýni þeirra sé eðli-
lega dálítið gláxúskyggnt á eig-
in gáfur og eigin stefnu, að þá
villist þeir ekki á því og at-
gervi og stefnu Jóns Sigurðs-
sonar.
íslendingasögur: „Viljirðu vit-
ur verða, þá lestu sögur“. Af
engum lestri öðrum verðum
við þess vísari, hvað við erum
sjálf, en hvað eru klæði okkar,
menning, siður, tízíka, trú eða
annar búnaður.
Auðvitað eiga ekki öll okkar
fornrit jafnt erindi til allra.
Þau eru misjöfn að listargildi,
þau eru og misjafnlega fróðleg
fyrir alla alþýðu manna. En
þau þrjú bindi, sem út eru
komin, eiga öll erindi við mjög
marga gáfaða menn og konur,
og hefir þó hvert þeirra sitt
ágæti. 1 Egilssögu eru beztar
lýsingar, sem til eru á íslenzku
mali, af ástríðumiklum skaps-
munum. 1 Laxdælasögu eru
merkilegastar lýsingar, sem enn
hafa verið gerðar af íslenzkum
konum. 1 Eyrbyggjasögu er
hin merkilegasta lýsing af bar-
áttunni milli skapsmuna og
vitsmuna, bæði í þjóðlífinu
manna meðal og í sálarlífi ein-
stakra mjanna (einkum Snorra
goða). Þar er og lýsing á hin-
um römmústu, óskildu, dular-
fullu undrum, sem! maðurinn
spyr sig um, án þess að geta
nokkru svarað. — í fylgd með
Eyrbyggjasögu eru svo Græn-
lendingasögurnar, sem skýra
frá mestum úrkostum, sem við
íslenzka kynkvistinum hafa
blasað og um leið frá mesta
ósigrinúml sem þjóði'n hefir
beðið — þegar henni opnaðist
vegur til að vinna hálfan heim.
inn, lét færið ónotað og varð
kotþjóð. Sú saga vekur örast
drauma og athugun, að lokn-
um lestri Eyrbyggjasögu.
Skapsmunir Eiríks rauða og
Leifs sonar hans vísa leið til
nýrra landa, en ráðkænskú og
vit Snorra goða hefði þurft til
að koma upp því ríki, sem var-
anlegt mátti verða.
Arnór Sigwjónsaon.
Julius Nielsen
(Eigandi: H. O. Hansen)
Stofnað 1894
Bornholmegade 2A Köbenhavn K.
Erindrekstur og umboðssala
Annast kaup og sölu allra ísl. afurða
Tilboð óskast
Telegr.adr.: Foeringur Coder: Bentley’s og A.B.C. 6th