Nýja dagblaðið - 16.08.1935, Blaðsíða 2

Nýja dagblaðið - 16.08.1935, Blaðsíða 2
2 NtJA DAGBLAÐIÐ Útsala á OSTUM Gamlir ostar, aem orðnir eru bragðsterkir, en annars góð og óakemmd vara, verða «eldir næstu daga, til ein- staklinga, í öllum kjötbúðum Sláturtélaga Suðurlanda og mjólkurbúðum Mjélkarsamsölunnar og víðar. Ostarnir eru í l‘/s til 2ja kgr. stykkjum og seljast með þessu verði: Hvert stk. 30% fitumagn kr. 2,00 — — 2O°0 — — 1,50 Seljast aðeins í heilum stykkjum og gegn staðgreiðslu. Heildsala hjá Sláturtélagi Sudurlands. BKjólkurbú Flóamauna Stór lúda fæst í öllutn fiskbúðum Hafliða Baldvlnsson ar Skuldaskilasjóður vélbátaeigenda Þeir eigendur vélbáta, er sækja vilja um lán úr Skulda- skilasjóði vélbátaeigenda, skulu senda beiðnir um lán úr sjóðn- um svo sem hér segir: Þeir, sem búa í Barðastrandarsýslum, Yestur-ísafjarð. arsýslu, Norður-ísafjarðarsýslu, á ísafirði og í Strandasýslu, skulu senda beiðnir til formanns umboðsmanna á svæðinu, hr. Kristjáns Jónssonar frá Gaiðsstöðum, erindreka á ísafirði. Þeir, sem húa í Skagafjarðar-, Eyjafjarðar- og Þingeyj- arsýslum, á Siglufir*ði og Akureyri, skulu senda beiðnir til formanns umboðsmanna á svæðinu, hr, Steingríms Jónssonar, fyrv. bæjarfógeta á Akureyri. Þeir, sem búa í Norður-Múla-, Suður-Múla. og Austur- Skaftafellssýslum, á Seyðisfirði og í Neskaupstað, skulu senda beiðnir sínar til formauns umboðsmanna á svæðinu, hr. Jón- asar Guðmundssonar alþm. í Neskaupstað. í Vestmannaeyjum skulu beiðnir sendar til hr. Viggó Björnissonar útibússtjóra. Annarsstaðar ai' landinu (úr Húnavatnssýslum, Dalasýslu, Snæfellsness- og Hnappadalssýslu, Mýra- og Borgarfjarðar- sýslu, Gullbringu. og Kjósarsýslu, Reykjavík, Hafnarfirði, Árnessýslu, Rangárvallasýslu og VesturSkaftafellssýslu) skulu beiðnir sendar til sjóðstjórnarinnar í Reykjavík. Lán úr Skuldaskilasjóði verða ekki veitt öðrum en þeim, sem eiga vélbáta, er ekki eru stærri en 60 smálestir. Eyðublöð undir umsóknir um lán úr Skuldaskilasjóði vél- bátaeigenda fást hjá umboðs-mönnum og skrifstofu sjóðs- ins í Reykjavík. Reykjavík, 15. ágúst 1935. Stjérri skulriatkilasJMs vélbátaeigenria Jón Baldvinason G-eorg Olafsson Ingvar Pálmason Vestan hafs o§ austan Utvarpserindi flutt af sr. Albert Krisljánssyni 12. ágúst sl Niðurlag. Sný ég mér þá að spurning- unni: Hvernig lízt þér nú á þig hér heima? Þessi spurning felur í sér margar spurningar, svo sem: Hvernig lízt þér á landið, fólkið, athafnalífið, menning- una o. s. frv. Þessu verður auðvitað ekki gjörð nein skil á örfáum ínínútum og- verð ég' því að láta mér nægja að tæpta á einhverju af því, sem í hug- ann kemur og verður þá fyrst fyrir landið sjálft. Okkur, sem fluttumst vestur börn að aldri, og' sem ekki höfum landið augum litið síðan, máske í 40—50 ár, er ísland nokkurskonar drauma- og töfraland. Þetta virðist mér margir hér skilja, og eru svo luílfhræddir um, að við verðum l'yrir vonbrigðum, þegar við komum til að svala margra ára þrá, að sjá það aftur. Mér er kunnugt um nokkur slík von- brigði. Þau eru máske eðlileg, því „sínum augum lítur hver á silfrið“. Þessu reyndi ég að gjöra mér sem ljósasta grein fyrir, áður en ég fór að vest- an. En það gera ekki allir, og suma skortir, ef til vill, skilyrði til þess að geta það. Ýmsir drættir í mynd þess lands, sem þeir hafa lengi búið í, eru þeirn hugstæðir og kærir. Þeir sakna þeirra hér og þeim þykir því landið ljótt. Til dæmis eru skógamir. í náttúmunar ríki er máske ekkert sem tekur hug og hjarta fastari tökum en tré og skógar, ef maður kynnist þvi til lengdar. Og hér eru eng_ ír skógar. Þftttaö verður maður að hafa hugfast, þegar maður kemur. Það skal játa, að við fyrstu sýn er landið kalt og bert, þó svipurinn sé mikilúð- ugur og tignarlegur, og manni dettur ósjálfrátt í hug: „Sjá hversu ég er beinaber“ o. s. frv. En þegar maður fer að kynnast betur, mætir manni, næstum því við hvert fótmál, ný opinberun fjölbreytts og iimríks jurta- og blómlífs. Grænir hvammar og blóma- brekkur heilla hugann og seyða mann í faðm sinn. Svipur móð- urjarðarinnar mýkist og hýrn- ar og fyllist ástúð og yndi. Móðirin breiðir út faðminn móti bami sínu, og Steingrím- ur svarar fyrir mann: „Ó, tak mig í faðm þér“. Nú fær móð- írin mál og talar til manns í orðum skálda sinna og maður skilur þau betur en áður. „Fjalladrottning móðir mín, mér svo kær og hjartabundin. Sæll ég bý við brjóstin þín, blessuð aldna fóstra mín. Hér á andinn óðul sín, öll sem verða á jörðu fundink Nú er þetta ekki lengur aðeins djúp- ur grunnur, heldur óhagganleg. vissa; sannindi sem ekki verða framar rengd. Ég veit að hér talar hjartað; en enginn getur að ósekju neitað því um sitt. Ég hefi líka reynt að líta á landið með augum' hins óvið- komandi ferðamanns, og það er enn heillandi. Ekki af því, að það sé í sjálfu sér öllum löndum fegra, heldur af því, að fegurð þess er með öðru móti. Hún er sérstæð. „Það líkist engum löndum“, segir Þor- steinn Erlingsson, og það er létt. Hér verður auga ferða- mannsins aldrei þreytt, því að hvarvetna ber fyrir það eitt- hvað nýtt og óvænt. Eilífar andstæður búa hér hlið við hlið: grænar grundir og gróð- urlausir sandar' grónar hlíðar og grýtt hraun; sjóðandi iiverir og snækrýnd fjöll — og svona mætti lengi telja. Því er ísland sjálfkj'örið ferðamanna- land, ef það er nægilega, kynnt út á við og’ rétt með ferða- manninn farið meðan hann dvelur hér. Nei, ég hefi ekki orðið fynr vonbrigðum, og þegar aftur „íslands tindar sökkva í sjá“, heldur landið á- fram að vera mer „Töframynd í Atlants ál“, og „Nóttlaus voraldar veröld, þar sem víð- sýnið skín“. En hvað um blessað fólkið? Hvernig lízt mér á það? Hér lendir maður út á þann hála ís, af tveimur ástæðum. Fyrst er það nú æfinlega vandi að svara svona. spumingu, hver sem í hlut á, og vernda hvort- tveggja í senn; hreinskilnina og vináttuna. Og svo er hitt, að hvao sem é . segði um Islend- inga, segði ég líka um sjálfan mig, því „skylt er skeggið hök- unni“. En á það verður nú þó að hætta. íslendingar eru dulir og tómlátir. Þeir eru sein- teknir og fyrsta viðkynning við þá verður gjaraan dálítið þur og strembin. Þessa urðum við bræður varir, þegar við fyrst komum í hóp þeirra um borð í Brúarfossi í Leith. Við settumst þar inn í reykingar- salinn, þar sem margt fólk var í samræðum hvað við annað; en enginn yrti á okkur, né leit til okkar öðruvísi en hálf for- vitnislegum, en þó tómlátum hornaugum1. Þögnin og við- kynningarleysið var að leggj- ast á okkur eins og farg, þeg- ar einhver hending Vai’ð þess valdandi, að tilefni gafst til kynningar. En úr því gekk allt ágætlega, og getum við nú, eftir tveggja mánaða kynn- ingu, sagt að við förum héðan með ljúfar miningar um sam- veruna. Þessari hlið skapgerð- arinnar, sem ég hefi nú lýst, verður sennilega ekki breytt og ber þess ekki að óska, en hitt mætti að ósekju gjöra, að slípa og fága ögn yfirborðið á henni. F.vrir sjónum gestsins er mafgt af fólkinu seint og silalegt í hreyfingum og ekki eins fallegt að vallarsýn eins og það gæti verið, því í sjálfu sér er það myndarlegt og fallegt. Þettað hafið þið sjálf séð og er nú margt gjört til að laga þetta, enda er árangurinn mjög' áberandi, en þó má enn betur vera. Allt þetta gleymist gjarnan við nánari viðkynn- ingu, því fólkið er yfirleitt vel skapað, bæði líkamlega og and- lega. Á Stúdentagarðinum hér Framh. á 3. síðu. Nýtt dilkakjöt (ai nýslátraðu) Ktötbúð Reykjavikur Vesturgötu 16 — Sími 4769 skilTÍndurnar eru ætíö þær beztu og sterkuatu, sem fáanlegar eru Nýj- asta gerðin er með algerlega sjálfvirkri smurningu, og skálar og skilkarl úr ryðfríu efni. Samband isl. samvinnafálaga.

x

Nýja dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.