Nýja dagblaðið - 31.08.1935, Qupperneq 3
NÝJA DAGBLAÐIÐ
8
NÝJA DAGBLAÐIÐ
Útgefandi: ,Blaðaútgáfan h.f.‘
Ritstjóri:
Sigfús Halldórs frá Höfnum.
Ritstjórnarskrifstofurnar:
Laugv. 10. Símar 4373 og 2353.
Afgr. og auglýsingaskrifstofa
Austurstr. 12. Simi 2323.
Áskriftargjald kr. 2,00 á mán.
I lausastölu 10 aura eint.
Prentsmiðjan Acta.
II111'IIIIHII IIIMmBH———
„Svarta stJ6rnin“
í Reykjavík
Fyrir mörgum árum, um það
leyti, sem íhaldið var að reyna
að gleypa herleifar Sigurðar
Eggerz — og tókst það -— var
haldinn hér í Reykjavík sam-
eiginlegur fundur íhaldsmanna
og' gamalla „Sjálfstæðis-
manna“. Á þessum fundi voru
íhaldsmenn sætmæltir og fag-
urmæltir og kváðust vilja
rétta hinum litia Sjálfstæðis-
flokki „bróðurhönd“ til satn-
vinnu. Þá kallaði ungur Sjálf-
stæðismaður fram í fyrir í-
haldinu á þessa leið:. „Ég sé
enga ,,bróðurhönd“. Hér er
bara „svarta höndin“. — En
„svarta höndin“ sigraði. Hún
lagði sinn kalda lófa fyrir
heiðríkjugluggann á pólitísk-
um himni Sigurðar Eggerz. Og
nú er hún að „kasta rekunum"
á Jakob Möller.
I þjóðmálunum hefir þó
hinn knýtti hnefi „svörtu
handarinnar“ orðið að lúta í
lægra haldi. En í málefnum
Reykjavíkurbæjar er hann enn
hið æðsta vald. Reykjavík
hefir svarta stjórn.
Heildsalarnir, Kveldúlfur og
Morgunblaðið eru „máttar-
stólpar“ hinnar „svörtu
stjórnar" í Reykjavík. Og
Vísir dansar með — vesaling-
urinn — á pólitískumi moldum
föringja síns.
í flokki hinnar „svörtu
stjómar“ í Reykjavík hafa
,,undirróðursmenn“ og róg-
berar mest áhrifin, að því er
skjallega var vottað af for-
manni flokksins í hirðisbréf-
inu góða. Borgarstjórakosning
arnar fara þannig fram, að Ja-
kob Möller er felldur frá þeim
af „undirróðursmönnum“.
Og hvernig er svo að vera
þegn hinnar „svörtu stjórnar"
i Reykjavík.
í ríki hinnar „svörtu stjórn-
ar“ hafa skattar verið meira
en tvöfaldaðir á síðustu fimm'
árum.
í ríki hinnar „svörtu stjórn-
ar“ okrar hin „svarta stjórn“
sjálf á brýnustu lífsnauðsynj
um almennings. Þar er gas,
vatn og rafmagn selt með 60
—100% álagningu á kostnað-
arverð.
I ríki hinnar „svörtu stjórn-
ar“ er dýrasta húsaleiga á
landinu.
í ríki hinnar „svörtu stjórn-
ar“ er mesta atvinnuleysi á
landinu. Meginhlutanum af því
fé, sem ríkið leggur fram til
atvinnubóta, verður að eyða í
ríki hinnar „svörtu stjórnar".
Það, sem Isafold sagði,
og það sem ég sá
Ég hefi lengi lesið fsafold,
og borgað hana, því að ég
kann ekki við, að fá neitt gef-
ins frá ókunnugu fólki. Mér
hefir fundizt margt gott í því
biaði, að efni til. Sérstaklega
hafði ég ánægju af að lesa ým-
islegt, sem Jón heitinn Þor-
lálísson 'skrifaði. Það var allt
svo sérlega skýrt hjá honum.
Og svo eru í ísafold talsvert
af nryndum og erlendum frétt-
um, og að því hefir maður
gaman. Ég hefi sem sagt
aldrei keypt annað blað en
fsafold, og ég hefi oft, ef satt
skal segja, farið talsvert eftir
því, sem hún segir.
En nú hefi ég allt í einu
misst alla mína gömlu trú á
þessu blaði. Ég er meira að
segja búinn að segja ísafold
upp, og' vil helzt ekki sjá hana
framar á mínu heimili. Og þess
vegna bið ég nú Nýja Dbl.
fyrir þessar línur en ekki
Morgunblaðið (socialista hefir
mér alltaf verið heldur í nöp
við og' vil ekki skrifa í þeirra.
blað). Mig langar til, að Reyk-
vikingar fái að sjá línurnar,
Lví eiginlega voru þær skrifað-
ar fyrir þá fyrst og fremst.
En það, sem ég ætlaði eigin-
lega, að segja frá, er það, að
ég hefi núna sl. vetur og eins
í vor lesið æði margar grein-
ar í ísafold um innflutnings-
höftin. Nú verð ég að segja
það eins og það er, að ég var
alltaf heldur á móti ísafold í
því m'áli. Ég hefi aldrei getað
séð neitt á móti því að banna
innflutning á óþarfa vörum.
Og ég gat líka fallizt á það,
I ríki hinnar „svörtu stjórn-
ar“ fer framleiðslutækjum
fækkandi ár frá ári, jafnframt,
sem fólkinu fjölgar.
„Svarta stjórnin“ í Reykja-
vík skuldar 14,7 miljónir króna
eða 445 kr. til jafnaðar á hvern
þegn í ríki sínu.
Og samhliða lætur „svarta
stjórnin“ auglýsa fyrir lands-
fólkinu í öllum sínum blöðum,
live fjárhagur hennar sé prýði-
legur og hvílíkur gæfuvegur
það sé, að flytjast inn fyrir
landamæri hinnar „svörtu
stjómar“.
Island á aðra ofurlitla
„svarta stjórn“. Hún er í
Vestmannaeyjum. Þessi litla
svarta stjórn í Vestm'annaeyj-
um komst í greiðsluþrot í vor
og opinberar eignir í hennar
vörzlu voru auglýst ar til upp-
boðs.
Þannig er það í Reykjavík,
og þannig er það í Vestmanna-
eyjum. Svona er gott að hafa
„svarta stjóm“!
Reykvíkingur.
sem fjármálaráðherrann okkar
hélt fram í vetur, að það gæti
þurft að takmarka innflutning
á sumum vörurn, sem ekki
væru beinlínis óþarfi, ef inn-
leggið vantaði til að borga út-
lendingnum með. En þá dugir
náttúrlega ekki, að stjórnin
eða innflutningsnefndin sé með
ranglæti og banni einum að
kaupa inn það, sem hún leyfir
öðrum.
En nú las ég það í ísafold
minni í vor sem leið — það
var víst fyrir sumármál —,
að stjórnin og innflutnings-
nefndin beittu þarna nfiklu
ranglæti. Og þessu ranglæti
var svoleiðis beitt, sagði ísa-
fold mín, að Sambandið og
kaupfélögin fengju að flytja
frá útlöndum allt, sem þau
bara vildu, en kaupmennirnir
í Reykjavík fengju bara ekki
að flytja neitt inn, og að þeir
sætu uppi með hálftómar búð-
irnar og fólkið í standandi
vandræðum, þar sem svo að
segja allar vörurnar færu í
kaupfélagsbúðirnar úti á landi.
Ég er sjálfur í kaupfélagi
og hefi lengi verið, og þekki
þar vel til. Ég veit nokkurn-
veginn, hvað þar hefir verið
til í búðinni tvö seinustu árin.
Og ég veit líka, hvernig þetta
hefir verið í næsta kaupfélag-
in og í félaginu fyrir norðan,
þar sem bróðir minn býr. Og
þegar ég sá þessa grein í ísa-
fold, þá varð mér að hugsa:
Ja, nú er eitthvað orðið breytt
í Reykjavík síðan fyrir nokkr-
um árum', ef fólkið þar getur
ekki fengið í kaupmannabúð-
unum, það sem við bændaræfl-
arnir höfum pantað í kaupfé-
lagsbúðina okkar. Því að það
hefir nú verið svo hérna á
heÍFiilunum í nokkur ár, síðan
kreppan kom, að við höfum
sparað flest það, sem okkur
hefir dottið í hug að spara.
Tveir nágrannar mínir hafa.
ekki keypt sér föt úr útlendu
efni í fimm ár (það var 1930)
og reyndar að ég held, engan
heilan klæðnað. Útlent skótau
hefir ekki verið keypt á mínu
heimili í hálft þriðja ár nema
gúmmískór og gúmmístígvél,
sem við notum á engjunum.
Og við höfum sparað hérna í
sveitinni sykur, kaffi og hveiti
alveg eins og mögulegt var. Og
kaupfélagið pantar aldrei meira
en rétt það 'sem þarf til að
endast næstu vikurnar. Svona
höfum við reynt að spai'a.
Sumir eru náttúrlega óánægð-
ir (einkum kvenfólkið, sem
von er), en þetta er nú okkar
tilraun til „sjálfstæðis".
En eftir því, sem ísafold
mín sagði, þá var nú samt
sparnaðurinn miklu meiri í
Reykjavík. Mér skildist helzt,
að ástandið væri svo slæmt,
að hjartagóðir kaupmenn bein-
lísis viknuðu við að sjá, hvað
fólkið gengi tötralega, til fara,
og mega ekki flýtja inn fatn-
að og skó til að bæta úr sár-
ustu vandræðunum. Og svo
sagði ísafold, að ekki fengizt
sement eða timbur, svo að
fólkið myndi þurfa að .liggja á
götunni í vetur fyrir hunda-
og- manna-fótum. Ég skal segja
það eins og það er, að mér i
fannst þetta svo átakanlegt, '
fið ég hætti við að byggja for
í sumar, til þess að einliver |
bágstaddur Reykvíkingur gæti
þó fengið þá sementslúkuna,
sem í hana hefði farið.
— — En svo kom ég til
Reykjavíkur í vor. Ég brá
mér að heiman eftir sauð-
burðinn og var þrjá daga í höf-
uðstaðnum. Ég átti erindi. En
mig langaði líka til að sjá
með eigin augurn hina tötra-
legu höfuðstaðarbúa og hina
tómu búðarglugga, sem inn-
flutningsnefndin hafði lagt í
eyði.
Ég gekk um mestallan bæ-
inn. Ég fór um Austurstræti,
Aðalstræti , Hafnarstræti,
Bankastræti, Hverfisgötu og
Laugaveg. Ég stanzaði fyrir
íraman stóru búðirnai', sem
ég aðeins hefi séð áður, og oft ;
heyrt krakkana mína vera að j
segja mömmu sinni frá, þegar
þau koma „að sunnan“. Og ég
þreifaði á ísafoldarblaðinu í
vasa mínum með annri hend-
inni og neri á mér augun með
hinni, til þess að vita með
vissu, hvort mig væri ekki að
dreyma.
Mér vai'ð það þá loksins
ljóst, að blaðið samanbögglaða
í vasa mínum hafði inni að
halda þá svörtustu lygi, sem
ég hafði nokkurntíma heyrt.
Mér varð það ljóst, að ménn-
irnir, sem svona skrifa, hafa
ekki nokkra minnstu hugmynd
um það, sem við sveitafólkið
erum að reyna að leg'gja á
okkur til að spara.
Og það voru þá eigendur
]>essara búðarglugga, sem ætl-
uðu að telja okkur bændum
trú um, að félögin okkar
stæðu fyrir öllu óhófinu og
tækju allan erlenda varning-
inn í sínar búðir, svo að
Reykjavík fengi ekki neitt.
Mér varð það þá ljóst, að
svo lengi, sem þessir uppljóm-
uðu búðargluggar eru til, þurf-
um við miklu strangari inn-
flutningshömlur en nú eru og
að það er hnefahögg í andlit
sveitafólksins að leyfa allan
þennan innflutning handa búð-
unum í Reykjavík.
En héðan af ætla ég að vara,
nágranna mína við öllu því,
sem í ísafold stendur. Og ég
vona,, að frændur mínir og
tengdafólk taki tillit til minna
orða við næstu kosningar eins
og ]>að hefir gert hingað til.
Sjálfstæðiskjósandi í fyrra.
Kominn htim
Haliur Hallsson
tannlæknir.
Grátt alullarefni
(Oxford)
8.50 pr. meter
OEFJIJN, Laugaveg 10
eru viðurkennd fyrir ga>0L
Carbor-
undum ljá-
brýni eru alger.
lega eitlalaus og slétt. ^IMgl
Carborundum brýni eru ekki
brothætt, og vatn hefir engin ^
áhrif á þau. — Carborundum brýni
gefa hárbeitta, varanlega egg í ljéina,
Notið ætíð Carborun d’u m brýni.
SAMBANl) ÍSL. SAMVINNUFÉLAGA,