Nýja dagblaðið - 23.01.1936, Síða 4
4
N Ý J A
DAGBLAÐIÐ
| Gamla Bíó|
sýnir kl. 9:
Spennandi lýsing á starfs-
aðferðum amerísku ríkis*
lögreglunnar, leikin af
Fred MacMurray og
Ann Sheridan.
—Börn fá ekki aðgang.—
Veðurspá fyrir Reykjavík og ná-
gi'cnni: Norðaustangola. Bjart-
viðri-.
Næturvörður er í nótt Halldór
Stefánsson, Lækjarg. 4, sími 2234.
Nciiurvöröur er þessa vikuna
í La,ugavegs- og Ingólfs apotekum.
Útvarpið: Kl. 8.00 Enskukennsla,
8.25 Döaskukennsla. 10.00 Veður-
fregnir. 12,15 Hádegisútvarp. 15,00
Veðurfregnir. 19,10 Veðurfregnir.
19,20 Útvarpshljómsveitin (þór.
Guðm.): Lög úr óperuntii „Hol-
lenzka stúlkan" (Kálmán). 19.40
Auglýsingar. 19.45 Fréttir. 20.15
Erindi: Loftið í 40 km. hæð (Jón
Eyþórsson veðurfr.). 20,40 Lúðra-
sveit Rvíkur leikur. 21.05 Lesin
dagskrá næstu viku. (Dagskrá þar
ineð lokið).
Belgaum kom frá Englandi i
fyrrakvöld og fór á veiðar í gær-
kvöldi.
Kolaskipið, Akenside, fór héðan
i gærmorgun áleiðis til Englands.
Snorri goöi fór á veiðar í gær.
Brúin á pverá úr Markarfljóíi
er talin vera í hættu, vegna þess
að áin hafi hlaðið upp svo miklu
íshröngli ofanvert við brúna. (Sam-
kvæmt símtali).
Vatnsskortur austanfjalls. Blað-
inu hafa borizt fregnir um það
að tilfinnanlegur vatnsskortur sé
austanfjalls, sérstaklega í Gaul-
verjabæjarhreppi, og sé þar vatns-
laust á sumum bæjum. — þessi
vatnsskortur mun stafa af óvenju
íniklum þurrviðrum um langt
skeið.
Um 40 manns vinna nú í at-
vinnubótavinnu í Hafnarfirði.
■Hnnið er að því að sprengja
klappir við Reykjavíkurveg og
Linnetsstíg og á að breikka þá
vegi.
Fisktökuskipið „Skarp“ fer til
F.ngfands í dag og tekur póst. —
Pósti sé skilað fyrir kl. 4 í dag.
Franski sendikennarinn, Mlle
Pctibon, flytur í kvöld kl. 8 íyrir-
lestur með myndum, um „Le
ehateau de Versailles".
ísfisksalan, í gær seldu Kári í
Aberdeen 1577 vættir fyrir 1220
sterl.pd. og Sviði í Grímsby 1537
vættir’ fyrir 1056 sterl.pd.
Sundlaugunum var lokað rétt
eftir helgina. Er því borið vlð, að
,íannaðsmn‘
Eftir
SIR JAMES BARRIE
Sýning á morgun kl. 8 í Iðnó.
Lækkað verð!
AðgöngumíCar sddlr 1 dag «fb»
jr kl. 1.---Sími 2191.
Hús brennur
Framh. af 1. síðu.
Engu varð bjargað og húsið
er gjörónýtt. Húsið var vá-
tryggt fyrir 12 þúsund krónur
og innanstokksmunir fyrir 6
þús. krónur.
Eldsupptök eru enn ókunn.
Þeim hjónum líður eftir von-
um, en bæði skárust þau á gler-
brotum og Sveinn þó meira, en
ekki sakaði bömin, enda þótt
glerbrot væru í skaflinum.
heita vatnið þurfi til upphitunar i
hús hér í bænum, vegna kuldanna.
Finnst þó ýmsum líklegra að hér
sé um gróðabragð að ræða hjá
forráðamönnum bæjarins og
kunna því illa, að nokkrar krónur
sóu mtnar til jafns við þá holl-
séu metnar til jafns við þá holl-
lcga hafa veitt mörgum bæjar-
búum.
Ráðunautamir Páll Zophónías-
son og Pálmi Einarsson fara í dag
norður til þess að halda bænda-
námskeið. Halda þeir fyrsta nám-
skeiðið á Borðeyri, annað á
Blönduósi og þriðja á Hvamms-
tanga. Áður hafa þeir haldið þrjú
námskeið hér syðra, eitt í Kjós,
annað á Kjalarnesi og þriðja fyr-
ir Garðahrepp og Álptanes.
Aðalfundur í verkamannafélag-
inu Hlíf í Hafnarfirði var hald-
inn í gærkvöldi. Fundinn sóttu
um 200 manns. Kosnir voru í
stjórn: þórður þórðarson formað-
ur, Albert Kristinsson ritari, Hall-
dór Halldórsson gjaldkeri, Jóhann-
Tómasson fjármálaritari, og
jiorvaldur Guðmundsson varaform.
Allir endurkosnir nema sá síðast-
nefndi.
Háskólafyrirlestrar í trúar-
bragðafræði. Sænski sendikennar-
inn, Ake Ohlmarks, flytur í
1 völd kl. 6.15 í háskólanum þriðja
íyrirlestur sinn um trúarbrögð
frumstæðra þjóða.
Vatnslaust var í Skildinganesi
og- nokkrum húsum efst á Skóla-
vörðuholtinu í allan fyrradag.
Var hafin rannsókn á því þá um
daginn, af hverju þetta myndi
síafa, en ekkert fannst athuga-
vert, hvorki við geymana eða
leiðsluna. Ekki er þó talið senni-
lcgt, að eyðslu á vatni hafi verið
til að dreifa, því til þcss þyrfti að
eyða um 660 lítrum á hvert
mannsbarn í bænum á sólarhring.
Ymsir hafa haldið að vatnsveitan
hafi lánað rafveitunni vatn, en
það er misskilningur, og slík
vatnshjálp myndi heldur ekki
koma vatnsveitunni að neinu liði.
í gær var viðasthvar nægilegt
vatn á báðum þessum stöðum.
Fyrirlestur í Alþýðuskólanum. í
kvöld (fimmtudag) kl. 9 flytur
Ludvig Guðmundsson skólastjóri
L ísafirði fyrirlestur í Alþýðuskól-
anum, fyrir kennara og nemendur.
þess er vænzt, að nemendur
skólans fjölmenni.
Leiðrétting. Hér þykir rétt að
loiðrétta frásögn Alþýðublaðsins í
gœr um nýafstaðna stjórnarkosn-
ingu í verklýðsfélaginu Víkingur
í Vík í Mýrdal. Segir blaðið svo
fiá, að allir meðlimir hinnar ný-
kjörnu stjórnar séu alþýðuflokks-
menn, þótt varaformaður og ann-
ar stjórnarmeðlimur séu yfirlýstir
Framsóknarmenni — Virðist hér
vcra um leiðinlega vangá að ræða
frá blaðsins hálfu og óskandi
\ egna þess sjálfs, að slíkur frétta-
flutningur hverfi úr sögunni.
Víkurbúi.
Yaldataka
Játvarðar
VIII.
London kl. 17, 22/1. FÚ.
Valdataka Játvarðar konungs
VIII. var tilkynnt um gjörvallt
Bretaveldi I dag. Blöktu fánar
við hún í öllum borgum, en
verða dregnir í hálfa stöng á
morgun.
Forsætisráðherrann, Stanley
Baldwin, gekk á fund hins nýja
konungs í Buckinghamhöll í
dag. Eftir að þeir höfðu talazt
við, fór konungur til Sandring-
ham með járnbrautarlest, á-
samt hertoganum og hertoga-
frúnni af York, og hertoganum
og hertogafrúnni af Gloucester.
Fjöldi fólks gengur í dag
fyrir kistu konungs, þar sem
hún stendur í Maríu Magda-
lenukirkjunni í Sandringham.
Samvinna á
Míðjarðar-
hafinu
LRP. 22/1. FÚ.
Frá Genf kemur fregn um
það, að útbýtt hafi verið meðal
meðlima Þjóðabandalagsins á-
litsskjali um ástandið í Mið-
jarðarhafi ef til ófriðar kæmi.
Inniheldur það meðal annars
samninga þá, sem Bretland og
Frakkland hafa gert um gagn-
lcvæma aðstoð, ef til árása
kæmi í Miðjarðarhafinu. Er í
þessu ennfremur yfirlýsingar
frá stjómum Grikklands, Tyrk-
lands og Jugo-Slavíu, þar sem
þær tjá sig reiðubúnar til þess
að takast á hendur allar þær
skyldur, „sem þeim beri sam-
kvæmt 16. grein Þjóðabanda-
lagssáttmálans".
Samsteypu-
stjórn í Egipta-
landi
London kl. 17, 22/1. FÚ.
Egypska stjórnin hefir á-
kveðið að segja af ser, með
það fyrir augum, að skipuð
verði stjóm, sem allir flokkar
eigi fulltrúa í.
Er þetta gert vegna þess, að
fyrir dymm standa samningar
við brezku stjómina og er tal-
ið réttmætt, að allir flokkar
séu aðilar að þeim samningum.
Brezka stjórnin hefir þegar
lýst yfir, að hún sé fús til
samninga milli Egyptalands og
Bretlands á sama grundvelli
eins og fólst í uppástungum
Arthur Hendersons 1930. Að-
eins gerir brezka stjómin þá
krötu, að áður sé fullgengið
frá samningum um nokkur mál,
þar á meðal hvernig hátta
skuli hervörnum og herstjóm
Egyptalands og Sudan.
Kosningar eiga að fara fram
í Egyptalandi 10. marz næst,-
komandi.
Vertíðin
Framh. af 3. síðu.
ekki frekar rætt að þessu sinni.
Eina færa leiðin, sem ég sé
til skynsamlegrar takmörkun-
ar á fiskframleiðslunni, er að
treysta á sjómennina og út-
gerðarmennina í þessu efni.
Það er alkunnugt, að fiskveið-
ar hafa verið stundaðar af of-
urkappi hér á landi, miklu
meira um það hugsað, að afla
sem allra mest, heldur en hitt,
að afla sem ódýrast. Sjósókn er
stunduð í hálfófærum veðrum,
og fyrir utan hættuna, sem því
fylgir fyrir áhafnir fiskiskip-
anna, eyðist óhæfilega mikið af
olíu og kolum. Þá er veiðar-
færanotkun íslenzkra fiskiskipa
talin ákaflega mikil, sem stafar
bæði af því að skipin nota lang-
ar línur og að mikið tapast af
veiðarfærum, þegar sjósókn er
stunduð af ofurkappi í illfær-
um veðrum.
Þegar þess er gætt, að því
nær allt, sem til útgerðar heyr-
ir, verður að kaupa frá útlönd-
um, er það bersýnilegt, eins og
nú horfir með markað fyrir ís-
lenzkan fisk, að fyrir útgerðina
og þjóðina í heild, skiptir ákaf-
lega miklu máli, að stillt sé í
hóf svo sem frekast er unnt
allri eyðslu á erlendum útgerð-
arvörum, og að megináherzlan
sé lögð á að afla fiskjarins með
sem minnstum tilkostnaði, þó
fiskarnir verði færri, sem
dregnir verða úr sjónum á
þessu ári, heldur en þegar allt
kikur í lyndi. J.
Sundmennt
Norðurlanda
Framh. af 1. síðu.
horfendasætin laus og geta svo
notað gangstéttirnar fríar og
frjálsar til kennslu á milli þess
að kappsundin færu fram.
Þegar komið er inn í fordyri
sundhallarinnar, eru búnings-
ldefar fyrir konur til vinstri
og karlmenn til hægri, eins og
sézt á meðfylgjandi mynd.
Stuttu strikin tákna milligerð-
ina á milli klefanna. Baðgestur-
inn kemur fyrst inn á svokall-
aðan „óhreinagang“ og fær
ldefa, og er hann hefir afklæðst
gengur hann út um aðrar dyr
á klefanum og út, á svokallað-
ann „hreinagang". Eina leiðin
úr þessum gangi inn í laugina,
er í gegnum þvottaklefann, og
eftir að menn hafa þvegið sig
þar, fá þeir aðgang að laug-
inni. Með þessu fyrirkomulagi
er það útilokað, að nokkur mað-
ur komist ofan í laugina nema
að hafa baðað sig og þvegið
áður. Þessi tvöfaldi gangur,
hreini og óhreini, var ekki
nema á allra nýjustu laugun-
um. t. d. er það ekki í sund-
höllinni í Kaupmannahöfn eða
Frederiksberg, en aftur í sund-
höllinni í Aarhus.
Sundhöllin í Reykjavík.
Það vakti ánægju mína, þeg-
ar ég hafði séð Stadbad Mitte,
hvað sundhöllin okkar hér í
Reykjavík er lík henni að
[NYJA BIÓ
Járn-
hertoginn
Söguleg kvikmyud
um hertog&nn af
Welliugton og’ sam-
tiðarmenn hans
Aðalhlutverkið leikur hinn
heimsfrægi „ Karakter
leikari
George Arlíss
Aðrir leikarar eru:
Gladis öooper
Ellaline Terries o-fl.
mörgu leyti. Hún er eins og
kunnugt er 33Í/3X10 metrar.
90 cm. djúp í grynnri endann
og 3,5 metrar í dýpri endann.
Jafnmargar vippur verða þar
og í sömu hæð og í þeirri
þýzku og því sömu hlutföll
milli hæðar og dýptar; gang-
stéttarbreidd 2,10 metrar við
hliðarnar og til endanna 3
metrar við annan og 2,5 metrar
við hinn. Má því segja að þau
breiddarhlutföll séu hin sömu
og í þeirri þýzku. I sundhöll-
inni hér eru einnig tveir gang-
ar, hreinn og óhreinn, og eina
leiðin úr hreina ganginum út í
•laugina, er í gegnum þvotta-
ldefann, svo að enginn getur
stolizt óhreinn, ofan í. Klefar
fyrir kvenfólk eru á neðri hæð
með samskonar fyrirkomulagi.
Hér verða einnig, eins og ann-
arstaðar, vatnshreinsunarvélar
og sótthreinsunarvélar. Sund-
þróin verður flísalögð innan
með dökkgrænum á veggjum
en ljósgrænum í botninum, en
milligerðin milli klefanna úr
glerhúðuðum steini, dökkum á
veggjum en Ijósum á botni, en
á gangstéttunum í kring verða
brúnar og ljósar flísar og enn-
fremur verða Ijósgular flísar
töluvert upp á veggina og einn-
ig verða baðklefar og búnings-
klefar flísalagðir og milligerðin
milli klefanna úr glerhúðuðum
steini. Flísamar eru af hinni
beztu gerð og virðist þar ekk-
ert til sparað, og sunnan á
sundhöllinni, uppi yfir búnings-
klefunum, eru tvö ágæt sól-
baðsskýli, annað fyrir konur
og hitt fyrir karla. Þessi ágætu
sólbaðsskýli hefir sundhöllin
hér fram yfir allar aðrar sund-
hallir, sem ég hefi séð, og er
það óneitanlega bæði gagn og
gaman fyrir oss íslendinga að
hafa sýnt af oss þann skilning
að hafa sundhöllina þannig út-
búna, að menn geti veitt sér
þar aðgang að hinni heilnæm-
ustu heilsulind sem menn
þekkja — sólböðunum. Eins og
nú er vandlega séð fyrir bygg-
ingu sundhallarinnar, tel ég
hana geta orðið höfuðstaðnum
og landinu í heild sinni til
mikils sóma, sagði Erlingur að
lokum.
Það er nú unnið að því í vet-
ur að fullgera sundhöllina í
Ileykjavík, og er búist við að
hún verði fullgerð á sumri
komanda. M. S.