Nýja dagblaðið - 28.01.1936, Síða 2
2
N t J A
DAGBLAÐIÐ
HRINGURINN
Aðaltundur félagsins verður haldinn þriðjudaginn
Fagrar listir
Bökafvegn
Nordens Kalender 1936
28. jan. 1936 kl. 8>/2 e. h. að Hótel Borg, uppi.
Konur beðnar að mæta.
STJÓRNIN
Úrvals spaðkjöt
Okkar ágæta úrvals f-paðkjöt alltaf til sölu
í Vi, V* og V4 tunnum..
Samband ísl. samvinnuíélaga
Þetta ársrit Norræna fé-
lagsins er að vanda prýðilega
úr garði gert; pappír mjög
vandaður og prentun fögur,bæði
á letri og myndum. — Eins og
kunnugt mun vera, annast Guð-
laugur Rósinkranz hagfræðing-
ur ritstjórn af hálfu íslenzku
deildarinnar.
Ritið hefst nú með grein um
„norræna samvinnu út á við“,
eftir utanríkisráðherra Norð-
manna, Halvdan Koht, sem
leggur út 'af því hver styrkur
hafi verið í undangengnum
ráðagerðum norrænu landanna
Saarinen, hinn heimsfræga
finnska byggingameistara, höf-
und hins dásamlega járnbraut-
arstöðvahúss í Helsingfors,
„endurskapara skýjaskafanna“,
sem Strengell nefnir hann. —
Greininni fylgja ágætar myndir
af ýmsum höfuðverkum Saa-
rinen, bæði á Finnlandi og í
Ameríku, sem heimti hann til
sín, eins og svo ótal marga
snillinga frá Evrópu og öðrum
heimsálfum, sem eru algerðir
afburðamenn í sinni grein. —
S. H. f. H.
Barnadiskar 1.00
Barnakönnur 0.50
Barnaboltar 1.00
Barnabollapör, áletruð 1.25
Barnaspil 0.85
Barnaboltar 0.85
Barnaskóflur 0,60
Barnalitakassar 0,35
Barnaskeiðar 0.20
Barnaflautur 0.25
Barnaleikföng ýmiskonar
o. m. fleira fyrir börn
K. Einarsson
& Björnsson
Bankastræti 11
Simi 1080.
OSRAM Dekalumen (DLm.) Ijóskúlur
eru 2O°/0 ljóasterkari en eldri gerðir.
A hkls hverrar ljóskúlu er letraö 1 j ó s-
marnið (DLm.) oer rafstraums-
notkunin [(Watt).
Agæta sauðatólg
höfum við jafnan fyrirliggjandi
Samband isl. samvinnufélaga
Simi 1080
Smjör og Ostar
trá Mjólkursamlaginu á Akuteyri
alltaf fyrirliggjandi í heildsölu hjá
Samband ísl. samvínnuíélaga
Simi 1080.
í sameiningu, er hann fyrir
rúmu hálfu ári síðan þurfti að
semja við Frakkland fyi’ir hönd
Noregs.
Að telja upp allar verðmætar
greinar í þessu stóra riti (214
bls. í stóru broti) yrði hér of
langt mál. En þess má geta, að
af hálfu Islendinga, rita þama
Jón Baldvinsson forseti, um Al-
þingi, Guðlaugur Rósinkranz
um starfsemi Norræna félags-
ins 1935, og sérstaklega um för
Karlakórs Reykjavíkur um
Norðurlönd — og Sigurður
Þórarinsson jarðfræðinemi um
Island, sem ferðamannaland, og
er sú grein með hinum prýði-
legustu myndum, ýmsum að
vísu áður kunnum. —
Svo að drepið sé á eitthvað
af því, sem birt er þama frá
hverju landi, má nefna grein
eftir Nils Ahnlund um „nor-
ræn konungamót", allt frá
fymsku, er „Danakonungur
hélt í beizli Uppsalakonungs,
en norski konungurinn í ístað
hans“ við sáttmálagerð í Dana-
hólmi við Gautaborg, eins og
getið er um í konungsbálki
Vestgautalaga, og til þess er
hinir þrír háu konungar Norð-
urlanda mæltu sér mót í Málm-
ey árið 1914, í tilefni af stríð-
inu. — önnur merkileg grein
er um Visby á Gotlandi, á
uppgangsdögum hennar, sem
eins voldugasta Hansastaðar-
ins.
Frá Noregi er vert að benda
á mjög fróðlega grein um
norskan listiðnað, eftir dr. phil.
Thor B. Kielland, og fylgja
hinar prýðilegustu myndir af
húsgögnum, vefnaði, bókbandi,
glerskrauti, t. d. af glermálun
og skrautgluggagerð Freydísar
Haavardsholm, sem er óðum að
vinna sér alþjóðlegt nafn fyrir
skrautmálun og teikningu.
Frá Danmörku má kannske
sérstaklega nefna ágæta grein
um Norðurjótland, eftir málar-
ann og dráttlistarmanninn og
rithöfundinn Achton Friis, á-
gæta lýsingu á hinum víking-
legu, ijóshærðu, bláeygu,
stríðlunduðu Vendilbúum og
öðrum Limafjarðarnágrönnum,
sem að þessu hafa borið öll ein-
kenni hins svokallaða „norræna“
kyns — jafnvel flestum Norð-
urlandabúum fremur.
Að Finnlandi kem ég síðast
en ekki sízt, er ég nefni grein
eftir Gustaf Strengell um Eliel
Ferðaskrifstofur og
ferðamenn
Viðtal við Vígfús Guðmundsson
Niðurl.
3. stóra atriðið, er hvatti mig
til að reyna að vinna eitthvað
í þessum málum, voru líkumar
fyrir því að skapa mætti hér
nýja, álitlega tekjugrein fyrir
þjóðina.
Þegar ferðastofan sótti um
styrk til Alþingis, létum við,
fylgja umsókninni ýtarlegar
skýrslur, sem Sveinn Bjömsson
sendiherra, góðfúslega aflaði
fyrir mig frá Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi og Danmörku um
tekjur af erlendum ferðamönn-
um í þeim löndum. Sýndu þær
skýrslur, að þessi lönd höfðu
geysimiklar tekjur af þessari
starfsgrein. Taldi ég þá miklar
líkur til að við gætum í fram-
tíðinni fengið a. m. k. 10%
tekjur á móts við Noreg eða
Svíþjóð (nálægt 30 milljónir
króna í hvoru landinu árlega).
Og tækist það, þá yrðu þær
tekjur fyrir ísl. þjóðina t. d. af
erlendum ferðamönnum, h. u.
b. fimm sinnum meiri en það,
er íslendingar fá fyrir allt það
kjöt, er þeir selja í Noregi á
ári, miðað við 1934 og 1935.
Fyrir ýmsar vörur bænda:
nýtt kjöt, lax, egg. smjör,
grænmeti o. fl., sem eru í háu
verði að sumrinu, er varla unnt
að fá eins góðan markað og ef
hægt væri að fá erlenda menn
hingað heim til að neyta þeirra.
Þá þarf heldur ekki að vera að
særa út innflutningsleyfi er-
lendis fyrir þær vörur, sem
ferðamennimir nota, og ekki að
hafa fyrir því að reyna að selja
þær á yfirfylltum mörkuðum
í fjarlægum löndum.
— Þarf ekki að gera margt
hér innanlands til þess að örfa
f erðamannastrauminn ?
— Jú, vissulega. Mest að-
kallandi er að auka og bæta
verustaðina. Veitingastarfsem-
in á ekki samleið með venjuleg-
um heimilisstörfum. Hótel-
slcorturinn hefir verið bagaleg-
ur fram að þessu. Það var á-
gætt þegar Hótel Borg kom og
hægt var að vísa útlendingum
á nýtízku hótel í höfuðstaðn-
um; en vonandi verður „Borg-
in“ of lítil áður en mörg ár
líða. — Við Jónas Jónsson
munum líklega fyrstir hafa
komið auga á það að nota hér-
aðsskólana á sumrum fyrir
gistihús. Reyndi ég að nota
reynslu mína til að koma sniði
á gistihússrekstur í þeim
stærstu. Eins varð ég hvata-
maður að því að Kvennaskóla-
! húsið á Blönduósi var tekið til
' gistihússreksturs. Maður sá, er
byrjaði þar að minni tilhlutan,
hefir rekið veitingastarfsemina
vel síðan, og hefir þetta bætt
mikið úr gistihússkortinum
milli Reykjavíkur og Akureyr-
ar. — Vegirnir þurfa líka að
batna og nýir vegir að leggjast.
Þótt ég sé „prinsipielt“ á
móti háum tollum á nauð-
synjavörum og nefsköttum á
einstaklinga, þá tel ég, úr því
sem gera er, mjög eðlilegt að
taka allháan benzínskatt og ná
þannig gjaldi af þeim, er nota
vegina, hvort sem það eru er-
lendir eða innlendir menn.
Eitt af því, er þarf að gera,
er að fá haganlegar ferðir,
hraðskreiðra skipa til landsins
frá næstu erlendum borgum.
Og ég vil biðja þig að undir-
stryka það, að á meðan við
eigum svo marga náfrændur í
Ameríku, sem hafa áhuga fyr-
ir íslandi og sem meira að
segja eiga talsvert í Eimskipa-
félagi íslands, þá ætti það fé-
lag að senda eitt skip árla og
síðla sumars til Ameríku. Flytti
það hóp frænda og annarra
ferðamanna til og frá yfir haf-
ið og þá um leið vörur, er ég
efa ekki að heppilegt væri að
verzla með við Bandaríkja-
menn, og jafnvel eitthvað í
Canada.
En sérstaklega vantar okkur
fleiri og betri gistihús. Svíar
(einkum Svensk Turistförening)
hafa oft byrjað gistihúsarekst-
ur sinn úti á landi þannig, að
reisa á fögrum stöðum lítinn
Frh. á 8. síðu.